Morgunblaðið - 15.08.1965, Side 6
6
MORGUNBLADID
Sunnudagur 15. ágúst 1965
ERLEND
tíðindi
Enn einn
ósigur
ÚRSÖGN Singapore úr Malasíu-
sambandinu hefur vakið mikla
athygli víða um heim, enda var
hér um enn einn óvæntan atburð
að ræða í þeim heimshluta, sem
einkennist öðru fremur af xll-
deilum og bardögum.
Ummælum Tunku Abdul Rah-
man, forseta Malasíu, og Lee
Kuan Yew, forsætisráðherra
Singapore, um orsakir slitanna,
ber ekki alls kostar saman. Yew
segir Rahman hafa neytt Singa-
pore til að segja sig úr sam-
bandinu, en Rahman segir deil-
ur innan sambandsins hafa verið
komnar á það stig, að ekki hafi
verið nema um tvennt að ræða:
beina kúgun Singapore eða
deilur, sem leitt hefðu getað til
ófriðar.
Stjórnmálafréttaritarar eru
hins vegar margir þeirrar skoð-
unar, að meirihluti íbúa Singa-
pore, fólk af kínversku bergi
brotið, og hlynnt kommúnistum,
hafi gert samstarfið innan Mala-
síu svo erfitt, að ekki hafi leng-
ur verið unnt að komast hjá
meiriháttar ákvörðun um aðild
Singapore að sambandinu.
Strax, er opinberlega var skýrt
frá slitunum, kom í Ijós, hverjir
fögnuðu þeim mest: kínverska
þjóðarbrotið í Singapore og ráða
menn Indónesíu. Kommúnisk til
hneiging beggja aðila er löngu
kunn, og þykir mörgum það
ekki spá góðu um framtíð og
friðarhorfur í þessum hluta SA-
Asíu.
Enginn býst þó við, að ráða-
menn Indónesíu reyni að beita
valdi við Singapore á næstunni,
á sama hátt og gert hefur verið
við Malasíusambandið, allt frá
stofnun þess. Ástæðan til þess,
að almennt er gert ráð fyrir, að
Indónesar fari sér hægt um sinn,
er fyrst og fremst sú, að Yew,
forsætisráðherra, lýsti því yfir,
strax eftir slitin, að hann óskaði
eftir nánari samskiftum við
Indónesíu. Enginn veit, enn sem
komið er, hvern skilning ber að
leggja í þau orð, því að því hefur
jafnframt verið heitið af hálfu
ráðamanna Singapore að haft
verði náið samstarf við þau ríki,
sem nú mynda Malasíu, á sviði
varnar- og viðskiptamála.
Enginn efast þó um, að Suk-
arno, Indónesíuforseti, muni á
allan hátt vinna að því að auka
áhrif sín í Singapore, og geri
jafnframt allt, sem hann getur,
til að stuðla að upplausn Mala-
síu. Sukarno hefur lýst því yfir,
hvað eftir annað, allt frá stofn-
un Malasíusambandsins 1963, að
hann muni vinna að því öllum
árum að knésetja það. Slitin nú
verður tvímælalaust að telja
fyrsta sigur hans á þeirri braut.
Næstkomandi þriðjudag halda
Indónesar hátíðlegan þjóðhátíð-
ardag sinn, og flestir stjórnmála
íréttaritarar telja, að þá muni
Sukamó enn gera harða hríð að
Malasíu. Sömuleiðis er talið mjög
sennilegt, ef dæma má af fyrri
reynslu, að þjóðhátíðardagur
Malasíu, 31. ágúst, verði valinn
til svipaðrar árásar.
Er þessara daga var minnzt á
s.L ári, sendi Sukarnó fallhlífar-
hermenn til meginlands Malasíu.
í bæði skiptin unnu brezkir,
ástralskir og nýsjálenzkir her-
menn, sem til varnar em í sam-
bandsríkinu, sigur á innrásar-
liðinu. Síðan hefur þó ekkert
lát orðið á svipuðum aðgerðum
af hálfu Indónesíu, og margir
hópar skæruliða verið settir á
land í Malasíu, með misjöfnum
árangri.
Undanfarið ár hafa sprengju-
tilræði verið allt að því daglegur
viðburður í Malasíu. Fyrir
tveimur vikum var gerð tilraun
til að sprengja upp anddyri
bandaríska sendiráðsins í Kuala
Lumpur, og Sukarno hótaði því
fyrir nokkrum vikum, að hann
myndi breyta Singapore í „log-
andi víti“, ef Bretar létu af því
verða að auka andspyrnu sína
gegn Indónesíu. Varnarmálaráð-
herra Indónesíu, Abdul Haris
Lee Kuan Yew: nánari samskifti við Indónesíu.
Nasution hélt því fram, allt fram
til þess, að slitin urðu, að leggja
yrði til atlögu við Singapore.
áður en hægt yrði að ganga milli
bols og höfuðs á allri Malasíu.
Sennlegt er, að slitin verði til
þess, að Sukarno beini nú skæru
liðum sínum að ríkjunum Sara-
wak og Sabah.
Hermálasérfræðingar eru marg
ir á þeirri skoðun nú, að Tndó-
nesar kunni að beita eldflauga-
vopnum gegn Malasíu, því að
þeir hafa nú yfir að ráða flota
báta, sem bera eldflaugar, af
þeirri gerð, sem borið geta kjarn
orkusprengjur. Sprengjurnar
munu Indónesar þó ekki hafa
enn, og verða því um sinn að
notast við venjulegt sprengiefni.
■jír Ánægður bíleigandi
í vikunni ræddi ég ögn um
skriffinnskuna, m.a. öll hlaup-
in, sem fólk verður að leggja
á sig áðrir en það eignast nýj-
an bíl. En hér kemur bréf frá
Akureyri og lýsir það fyrir-
myndarþjónustu, sem ég vissi
ekki að þekktist á „landinu
kalda“:
„Kæri Velvakandi,
í dálkum þínum í gær var
vikið að skriffinnskunni og
sennilega ekki að ástæðulausu.
En sjálfsagt er líka að geta
þess, sem vel er gert. Ég hef
keypt tvo bíla af Saab-gerð.
Þann fyrri 1962 og hinn í júlí
sJ. I bæði skiptin var mér
færður bíllinn heim í hlað, vest
ur í bæ. Gengið hafði verið
frá öllu: Skrásetningu, trygg-
ingu o.s.frv. Benzíngeymirinn
var meira að segja fullur og í
síðara sinnið einnig aukabenz-
ínbrúsi, 25 lítra, í skottinu. Ég
kom til Reykjavíkur klukkan
7 að kveldi til þess að ná í bíl-
inn og þurfti ekki fyrir neinu
að hafa, ók svo heimleiðs eft-
ir að hafa borðað kvöldmat-
inn. Afgreiðslan hjá þessu bíla
umboði er að mínum dómi til
mikillar fyrirmyndar. Allt
stendur þar eins og stafur á
bók, öll loforð efnd samstund-
is. Starfsfólkið er allt boðið og
búið til að veita þá fyrir-
greiðslu, sem unnt er að veita
— og veita hana fljót og örugg-
lega. Ég týndi bíllyklinum hér
á Akureyri og fékk nýjan send
an að sunnan sama kvöldið —
svo eitt dæmi sé nefnt.
—Þ.G.Á."
Hugarfarsbreyt-
ingar þörf
Ég er hræddur um að mörg
þjónustufyrirtæki í Reykjavík
eigi margt ólært, þurfi að bæta
sig mikið til þess að fá slík
meðmæli. Hér er um að ræða
atriði, sem ekki breytist á
einni nóttu, þvi víða þarf að
verða alger hugarfarsbreyting.
Skilningur á eðli þjónustunn-
ar er ekki fyrir hendL Vöxtur-
inn í öllu viðskiptalífinu hefur
verið það ör, eftirspumin og
kaupgetan það mikil — að á
fjölmörgum sviðum hefur ekki
verið hægt að anna eftirspurn.
Þess vegna er sá, sem selur,
oft að gera viðskiptavininum
greiða með því að láta hann
hafa vöruna eða veita honum
þjónustuna. Viðskiptavinurinn
verður að sætta sig við duttl-
unga þess, sem veitir honum
þjónustu — og þá hvarflar það
stundum ekki að seljandanum
að hann sé í rauninni að veita
þjónustu. Hegðun hans verður
eftir því. Það er slæmt að
þurfa að skipta við slikt fólk,
enda missti það öll viðskipti
ef eðlilegt hlutfall væri milli
framboðs og eftirspurnar. Hér
á ég ekki aðeins við verzlan-
ir, heldur alla tegund vinnu,
sem almenningur þarf að
kaupa — og mig grunar, að
þetta eigi ckki sízt við um
byggingaframkvæmdir.
Ég er kominn ögn út fyrir
ramma bréfsins, en það gaf til
efni til þessara hugleiðinga.
Auðvitað ættu öll bílaumboð
að afhenda viðskiptavinum sín
um nýja bíla skráða, tryggða
— og með kvittun fyrir greidd
an skatt.
Jói er líka ánægður
Hér kemur annað bréf og er
það frá ferðalangi:
Kæri Velvakandi,
Margt er skrifað og rætt um
það hve öll þjónusta sé dýr og
umgengni sé slæm um hina
minni greiðasölustaði úti á
landi. Á ferð minni til Siglu-
fjarðair í s.l. viku kom ég við
á Blönduósi og fór inn á mat-
stofu þá, sem er við B.P. benz-
ínstöðina við þjóðveginn.
Matstofa þessi er mjög snyrti
leg, salerni hrein og fáguð —
og þjónusta lipur. Tvö egg,
brauð og stór skammtur af
bacon ásamt mjólkurglasi kost
aði aðeins fimmtiu krónur. Og
það, sem mér þótti mest um
vert var hve afgreiðslan var
fljóit.
Langt er síðan ég hef greitt
fyrir þjónustu á veitingahúsi
með jafnmikilli ánægju.
Hins vegar 'íeypti ég konfekt
poka á matstofu á Siglufirði á
25 krónur og mér til mikillar
undrunar komst ég að raun
um það, þegar ínnifaald pokans
var athugað, að hér var um að
Það er og talsvert áhyggju-
efni, að á Borneo eru um 25.000
manns af kínversku bergi brotn-
ir, sem enga dul er sagðir draga
á kommúniskar tilhneigingar
sínar, og vitað er, að Indónesar
hafa reynt að skipuleggja þenn-
an hóp manna til skemmdar-
verka og andspyrnu gegn ráða-
mönnum í landinu. f Sarawak
hafa menn af kínverskum
uppruna verið þjálfaðir af út-
sendurum frá Indónesíu 1
skemmdarverkum, og slík skæru
liðasveit gerði fyrir skömmu
árás á lögreglulið, undir stjóra
hermanna frá Indónesíu.
Malasía treystir fyrst og
fremst á hermenn brezka sam-
veldisins í baráttimni við Indó-
nesíu. Framtíð herstöðva Breta
1 Singapore er óviss, og hefur
verið um það rætt, að brezka
stjórnin verði að endurskoða
alla afstöðu sína í því máli, eftir
síðustu atburðL Slitin eru enn
einn ósigur fyrir andstæðinga
kommúnista í þessum heims-
hluta, þar sem engan enda virð-
ist hægt að binda á þann ófrið-
areld, sem þar geisar.
Rétt eða
röng afstaða
Konstantins
SÍÐUSTU viðræður Konstantína
Grikkjakonungs, og Papandreou,
fyrrverandi forsætisráðherra
urðu árangurslausar. Lausa
Framhald á bls. 2L
ræða átta MACKINTOSH
mola. í apoteki staðarins má
fá sams konar sælgæti fyrii
þrjár krónur molann. — Jói“.
Það er alltaf ánægjulegt að
heyra í fólki, sem greiðir fyrir
þjónustu með glöðu geði. Bréf-
ritarar Velvakanda eru því mið
ur yfirleitt óánægt fólk, enda
liggur við að ánægjuraddirnar
séu hjáróma í öllum óánægju-
söngnum í bréfakassanum min-
um.
Jói hefur greinilega haft á-
nægju af að kanna verðlagið
á Siglufirði svo að hægt er að
slá þvi föstu, að hann vinni
ekki hjá verðlagssitjóra.
★ Ábyrgðarmikið starf
Ég var að fá nýjasta tölublað
Æskunnar hingað á borðið til
mín. Þetta er gamall vinur,
sem ég haf alltaf ánægju aí
að fletta þótt ég reyni ekki
lengur að sviðsetja sögur og
leikf sem þar birtast. Mér
finnst ánægjulegt að sjá hve
Grími Engilberts hefur tekizt
vel að fella saman nýtt og
gamalt, gefa því líflegan blaa
og skemmitilegan. Það er á-
kaflega ábyrgðarmikið starf að
gefa út æskuiýðsblað, ekki sízt
Æskuna, víðlesnasta unglinga-
blaðið á landinu. í höndunum
á Grími er Æskan ung, hefur
samt sterk tengsl við fortíð-
ina. En hún mætti gjarn*
skyggnast oftar inn í framtíð-
ina, því við þurfum að venja
imga fólkið á að horfa fram f
tímann. íslendingum hættir
við að dvelja of mikið í for-
tíðinni — og fæstum verður
þokað framar en í nútiðina. ;
AEG
NÝJUNG
TVEGGJA IIRAHA HÖGG-
OG SNÚNINGSBORVÉLAR
'M
Bræðurrúr ORMSSON hJ. i
Vesturgötu 3. — Sími 36Ö20. 1