Morgunblaðið - 15.08.1965, Qupperneq 8
8 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 15. águst 1965
EFTIR aðeins örfá ár munu
Bandaríkjamenn og Rússar
keppast um að hljóta það
öndvegissæti í mannkyns-
sögunni að hafa orðið fyrst-
ir til að senda menn til
tunglsins .Síðasta geimskot
Bandaríkjamanna, geim-
ganga Bandaríkjamannsins
McDivitts og sovézka geim-
farans Leonovs, benda ein-
dregið til þess að nú sé
farið að hitna í keppninni
um tunglið. Svo sem kunn-
ugt er voru hér margir
geimfarar Bandaríkja-
manna fyrir skemmstu, og
æfðu sig í jarðfræðilegum
athugunum o.fl. í Öskju og
víðar. Þrír af þessum mönn
Escape Tower
Command Capsule
Only this sec
o_ Earth
x Return
^ Rocket
O Moonbug
-i inside
£ outer
^ rflsinn
Third Stage
Second
Stage
Hin risavaxna Saturn V eld-
flaug, sem flytur fyrstu tungl-
farana í Apollogeimfarinu.
Tunglpaddan sézt neðst í trjón
iinni, móðurskipið fyrir ofan.
Þannig mun þriðji geimfarin n, sem bíður í móðurskipinu á b raut umhverfis jörðu, sjá tunglf arana tvo er þeir leggja að móð
urskipinu í tunglpöddunni ef tir heppnaða tunglför. *
Veldur aflþjóðleg samlteppni um tunglið því, að
öryggisráðstafanir séu eliki nægar?
— Yfirlit um „Project ApoSSo“ og fyrstu
tunglför Bandaríkjamanna
um munu verða fyrstu
tunglfararnir, eða a.m-k.
fyrstu bandairísku tunglfar-
arnir. Þessir ungu menn
ræddu blátt áfram við blaða
menn hér um tunglið og
fyrirhugaða ferð sína þang
að, og virtist það eitt valda
þeim áhyggjum, hverjir
yrðu valdir til fyrstu far-
arinnar. Greinin hér á eftir
er að mestu hyggð á grein
úr brezka blaðinu Daily
Telegraph um kapphlaupið
um tunglið, en þegar skal
fram tekið, að ekki voru
geimfararnir, sem hingað
komu, hinu brezka blaði í
öllu sammáa, einkum í
þeim efnum er taka til ör-
yggisútbúnaðar þeirra, sem
virtist lítið áhyggjuefni.
Bandaríkjámenn eyða nú lið-
lega 360 milljónúm ísl. króna
á dag til hinnar svonefndu
Apollo-áætlunar sinnar, þ. e.
að senda menn til tunglsins,
og þeir eru sigurvissir í bar-
áttu sinni. Rússar, þótt enn
hvíli mikil leynd yfir öllum
geimferðamálum þeirra, hafa
fyrir löngu álitið geimferðir
skipta gifurlegu máli áróðurs-
lega séð í augum heimsins.
FLJÓTFÆBNI?
Hættan er sú, að kapphlaup
ið milli stórveldanna neyði
þau til fljótfærnisaðgerða, sem
gastu leitt til ófarnaðar. >eg-
ar hefur margt komið í ljós
sem bendir til þess að slakað
hafi verið á kröfum um ör-
yggi.
Þannig er það augljóst, að
mest hætta steðjar að geirnför
unum á tunglinu sjálfu. Ef
geimfar þeirra skemmist í
iendingu, eilegar að fiugtak
misheppnast þar, ellegar að
bilun verður á útbúnaði, sem
ekki er hægt að gera við á
staðnum, verða tveir menn
eftir á tunglinu og þeir munu
láta lífið innan fárra daga,
vegna súrefnisskorts.
Kringumstæður krefjast þess
raunar, að annað geimfar, sér-
staklega útbúið til björgunar,
verði staðset á braut umhverf-
is tunglið. En í áætlunum
Bandaríkjamanna er ekki gert
ráð fyrir neinu sliku, segir
Daily Telegraph
TVÖFALDUR ÚTBÍINAÐUR
Við þetta má bæta, að frétta
maður Mbl. átti langt samtal
við einn bandarisku geimfar-
anna hér í Reykjavík, einmitt
um þessi atriði. Hann sagði að
allur útbúnaður og tæki geim-
farans, sem á tunglinu lenti,
væri tvöfaldur. Bf einhver
hlutur bilaði, væri annar til
staðar að gegna hlutverki hans.
Aðspurður sagði hann þó: „Það
er hugsanlegt að bæði kerfi
bili, en það er tiltölulega lítil
hætta á því. Við gerom okkur
það ljóst, að áhætta fylgir
geimferðum. En hún er fylli-
lega útreiknuð, og okkur kunn.
Og í ljósi þess, að hundruðir
þúsunda manna hafa fallið fyr
ir föðurland sitt í bardaga um
einn eða tvo kílómetra af víg-
línu, getur það naumast talið
fásinna að taka þessa áhættu
á sig, svo hverfandi sem hún
Á Merritt-eyju undan vestur
strönd Flórída, getur að líta
hverja áherzlu jBandaríkin
leggja á tunglskotið. Heill her
verkfræðinga og sérfræðinga
er þar að störfum, og þegar
hafa verið byggðir þar skot-
pallar og gífurlegar bygging-
ar til þess að setja saman hina
risavöxnu Saturn V eldflaug,
sem flytja á geimfarana til
tunglsins. Eldflaug þessi er
362 fet á hæð — helmingi
hærri en Nelsonsúlan á Trafalg
artorgi. Satumflaugin vegur
um 3000 smálestir við flugtak,
og hreyflar hennar framleiða
um 8.700.000 punda þrýstiorku
við flúgtak.
„FLUGPADDAN"
Tunglfarið sjálft er í þrennu
lagi. í nefi þess verður stjórn-
klefi (command capsule) fyrir
þrjá menn. Þá kemur sérstakt
„þrep“, en í því eru eldflaugar
hreyflar, sem einkum á að nota
á heimleiðinni. Fyrir aftan
þetta tvennt kemur svo sjálft
tunglfarið (Lunar Excursion
Module) — sem raunar er sjálf
stætt geimfar í eðli sínu, og
nota á til hinnar eiginlegu
lendingar á tunglinu. Banda-
ríkjamenn kalla tækið „tungl-
pödduna“ — Moonbug.
Ferðin mun hefjast með þvl
að Saturn V eldflaugin flytur
Apollo-geimfarið og þriggja
manna áhöfn þess á sporbaug
umhverfis jörðu. Þar verða öll
tæki reynd til hins ítrasta með
aðstoð stöðva á jörðu niðri. Ef
allt er í lagi, getur ferðin hald
ið áfram.
Eftir að þriðja þrep eidflaug
arinnar hefur hafið að flytja
geimfarið í átt til tunglsina
með um 25.000 mílna hraða á
klst„ verður áliöfmn að búa
sig undir erfiðasta hluta leið-
Framhald á bts. 23.
Þannig munu tveir geimfara nna flytja sig úr möðurskipinu
yflr í tunglpödduna í 90 milna hæð yfir tungiinu. Þriðji
geimfarinu varður efttr í Apo lio.
er.
Tunglpaddan í lendingu á tunglinu.