Morgunblaðið - 15.12.1965, Blaðsíða 30
so
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15. des. 1965
Effir iQndsleikina:
Sex „smáatriði
til athugunar
■a
Þessa mynd tók Sveinn Þormóðsson í seinni leik Islands og Rúss-
lands. Ágúst hefur fengið knöttinn inn á línu og ætlar að skjóta
á markið, en Rússarnir hindra hann ólöglega. Eins og sjá má á
myndinni, stendur leikmaðurinn nr. 6 fyrir innan vítateig. 1 slík-
um tilfellum eiga dómarar skilyrðislaust að dæma vítakast, en
í þetta sinn dæmdi hinn ágæti sænski dómari Islendingum aðeins
aukakast.
TAP ísl. landsliðsins í hand-
knattleik í síðari leiknum við
Sovétríkin var almennt til um-
ræðu manna á meðal í gær. Var
bollalagt á ýmsa lund um það,
hvað valdið hafi tapinu á síð-
ustu stundu eftir að ísl. liðið
hafði haft forystu í leiknum
nær allan tímann og það stund-
um svo góða og örugga forystu
að tap virtist útilokað, ef liðið
léki síðustu 10 mín. leiksins með
svipuðum krafti og 50 mínúturn
ar þar á undan.
Rússnesku forystumennirnir
voru ósköp ánægðir yfir sigrin-
um, sögðu aðeins: ísl. liðið getur
sjálfu sér um kennt, þessum
leik átti liðið ekki að geta tap>að.
Ýmsa punkta er freistandi að
benda á varðandi leikinn:
1) isl. liðið hafði undirtök í
leiknum og frumkvæði
alltaf NEMA þegar það
hafði náð góðri forystu,
þ.e. er stóð 10:6 í íyrri
hálfleik og 14:11 í síðari.
Það bendir tii að liðið þoli
ekki þá spennu, sem sam-
fara er að komast í sigur-
aðstöðu, taugarnar bili og
liðið nái ekki eðlilegum
• leik við slíkar aðstæður —
hvað þá að nota sér yfir-
burðastöðuna til aukins
framgangs.
2) Sendingar manna á milli
voru ónákvæmar og kæru-
leysislegar og leiddu til
mikilla ófara. Er ekki nauð
syn á að æfa þær sérstak-
lega? Er dðlilegt að sjá
hægar bogasendingar milli
manna í landsleik?
3) Vítaköst brugðust mörg og
liðinu hálfgerð hefndargjöf
að fá þau sér dæmd. Þetta
er veikor punktur hjá liði
hlaðið stórskyttum.
4) Varla tókst ísl. liðinu að
stöðva hraðhlaup, nema
missa mann af veUi í 2 min
fyrir gróft brot. Rússar
komu í veg fyrir öll hrað-
hlaup isl. liðsins (nema
eitt) með einföldu leik-
broti. Því skyldi þarna
vera á munur?
5) Óeðlilegt er að visu að
hvetja til Ieikbrota. En það
virðast öll lið beita vörn,
sem jaðrar við lögbrot á
nettari hátt en ísl. liðið.
6) Skiptingar leikmanna í ísl.
liðinu fara mjög hægt
fram, svo að bein töf verð
ur á eðlilegum gangi leiks-
ins hjá liðinu. Þarna þarf
fastari tök á stjórninni.
Endalaust má svo deUa um
það, hvaða liðsmenn eru
og eiga vera hverju sinni
á leikvellinum.
Það mætti eflaust telja fleiri
atriði. Þetta er e.t.v. smáatriði,
en ef þau hefðu öll verið í lagi
hjá ísl. liðinu, þá hefði ísland
unnið með miklum mun 1 báð-
um leikjunum.
— A.St.
Víkingur
sigraði í
3. fl. karla
Á LAUGARDAGINN léku ti'l úr-
sliita í 3. flokki karla í Reykja-
víkurmótinu í handknaititleik Vík
ingur og Fram. Leikur tveggja
skemmtilegra liða.
Fyrsta mark leiksins kom þeg-
ar á fyrstu mín., skoraði það
Rúnar.fyrir Fram. Víkingar jafna
á sömu mín. með hitmiðuðu
skoti frá Þórðd.
Á 2. min. skorar Haraldur fyr-
ir Víking með föstu skoti utan
af velli. og 1 tnín síðar skorar
Ingvar fyrir Fram með langskoti.
Víkingar svara fyrir sig með
marki aif Mnu frá Vigfúsi. F.nn
bæta Víkingar við og skoraði
Haraldur fjórða mark Víkings,
Víkingar og Framarar skora síð-
an sitthvort markið úr víitaköst-
um og voru þar að verki, fyrir
Víking Georg og fyrir Fram
Ingvar. Staðan í hálfleik var því
5:3 fyrir Víking.
Seinni .hállíleiikur hófst með
rólegu spili beggja liða. Engin
mörk voru skoruð fyrstu þrjár
mín. seinni hálfleiks. Framarar
voru fyrri til og skoraði Mar-
teinn fjórða mark Fram, en hann
brauzit skemmtilega í gegnum -
vörn Vílkings. Haraldur í Víking
svaraði með marki úr uppstökki.
Staðan var 6:4 fyrir Víking.
Á 6. mín skorar Ingvar fimmta
mark Fram af línu. Framarar fá
sér dæmt vítakast en misnota.
Á 7. mín. skorar Georg fallegt
mark af línu fyTÍr Víking, og á
síðustu mín. fá Víkingar vítakast
á Fram og skora þar sitt áittunda
mark og jafnframt síðasta mark
leiksihs. Lauk leiiknum með rétt-
látum sigri Víkings 8:5.
Þetta var skemmtilegur leikur
tveggja taktistkra liða, en bæði
liðin hafa þó sýnt betri leiki áð-
ur. Gireinilegt var að tauga-
spenna úrslitaleiksins háði báð-
um liðunum.
Enska
knattspyrnan
21. UMFERÐ ensku deildarkeppn
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit leiikja þessi:
1. DEILD:
Aston Villa — Everton 3-2
Brackburn — Nonthampton 6-1
Blackpool — Stoke 1-1
Fulham — Burnley 2-5
Leeds — W.B.A. 4-1
Leicester — Sheffield W. 4-1
Liverpool — Arsenal 4-2
Sheffield U. — N. Forest 1-1
Sunderland — Mancester U 2-3
Tottenham — Chelsea 4-2
West Ham — Newcastle 4-3
2. DEILD:
Bristod C. — Middilesbrough 2-2
Bury — Portsmouth 1-0
Cardiff — Preston 1-3
Charlisie — Crystal Palace 3-1
Coventry — Huddersfield 0-3
Derby — Charlton 2-0
Manchester C. — Leyton O. 5-0
Norwich — Bolton 3-0
Rotherham — Birminghain 3-4
Southampton — Plymouth 4-1
Wolverhampton — Ipswich 4-1
í Skotlandi urðu úrslit m.a.
þessi:
Celtic — Hibernian 2-0
Motherwell — St. Mirren 4-1
Rangers Morton 3-1
Staðan er þá þessi:
1. 1. DEILD: LIVERPOOL 31 —
2. BURNLEY 28 —
3. LEEDS 25 —
1. 2. DEILD: HUDDERSFXELD 30 —
2. MANOHESTER C. 27 —
3. COVENTRY 27 —
Parker 45
hinn fjölhæfi penni
Hér er penni, sem gæti verið gerður sérstaklega
fyrir yður. PARKER „45“ hefur aila hina hefð-
bundnu kosti PARKER ásamt vali um blek-
hylkja- eða dælufyllingu.
PARKER fjölhæfni þýðir . . . að þér getið fyllt
pennann með bleki á venjulegan hátt . . . eða
með hreinlegu blekhylki, sem endist yður næstu
10000 orðin . . . og með ritoddi, sem hæfir rit-
hönd yðar og sem hægt er að skipta um á
augabragði.
Skoðið og reynið PARKER „45“ í næstu rit-
fangaverzlun.
PARKER „45“ er völundarsmíð. —
PARKER „45“ hentar yður.
Parker „45“ Standard kr. 331.00
A PRODUCT 0F«f>THE PARKER PEN COMPANY—MAKERS OF THE WORLD'S MOST WANTED PENS