Morgunblaðið - 11.01.1966, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.01.1966, Blaðsíða 19
Þriðjuðagur 11. janúar 1966 MORGUNBLAÐIÐ 19 Sigurður Ó/o/sson, útgm. Höfn — Minningarorð Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr it sama; en orðstírr deyr aldregi, taveim er sér góðan getr, Hávamál. T>AÐ var fyrst árið 1945, sem leiðir okkar Sigurðar Ólafssonar lágu saman. Ekki hafði ég lengi dvalið á Hiöfn, þegar ég heimsótti Sigurð Ólafsson á hið myndar- lega heimili hans, en þeir félagar Sigurður og Jón Brunnan, sem var mágur Sigurðar höfðu reist sem sameign reisulegt steinhús, sem er tvær hæðir auk kjallara. IÞar hafði ráðið stórhugur og myndarskapur. Eins var með út- igerðina hún var þeirra sameign. Báturinn Björgvin lá við sterk- iega bryggju, sem þeir félagar höfðu reist rétt framan við ílbúð- arhúsið fram í sjóinn. Þar fast við bryggjuna höfðu þeir einnig reist gott sjóhús, þar sem fór fram beiting línu og geymsla veiðarfæra. Um þetta leyti voru þeir Sigurður Ólafsson og Jón Brunnan hættir útgerð sinni, en með taenni höfðu þeir hvor á sinn hátt og sameiginlega unnið merkilegt brautryðjendastarf fyr- ir sitt byggðarlag. Sigurður stýrði lengst bátum með nafninu Björgvin, bæði af hyggindum hins farsæla fiskimanns og af hörku og áræði hins harða sjó- eóknara, þegar þess þurfti, en þó með fullri forsjá. Farsæll aflamaður var hann og skipverj- ar hans héldu mikilli tryggð við hann, enda átti hann hlýhug þeirra eins og annarra samferða- manna. Árið 1942 þann 24. sept- ember, á stríðsárunum sýndi Sigurður og skipverjar hans er með honum fóru mikla dirfsku og snarræði, þegar þeim tókst að bjarga breskum flugmanni, þegar flugvél hans hafði í ofsa- veðri hrakið í sjóinn hér við flugvöllinn á Melatanga. Með Sigurði voru í þetta skipti >or- þjörn og Ólafur synir hans og Ásmundur Ásmundsson héðan af Höfn. Fyrir þetta afrek var Sig- urður sæmdur heiðurspeningi breska ríkisins BEM orðu og þeir þorbjörn, Ólafur og Ás- mundur heiðursskjölum. Af- hending verðlauna þessara fór fram við hátíðlega athöfn hér í Barnaskólanum árið eftir. Nú var lífssviðið að breytast ellmikið. Sigurður hafði nýlega misst konu sína Bergþóru, sinn samhenta og góða lífsförunaut. Sigurður og Jón Brunnan voru hættir sinni farsælu útgerð. Sam göngumál höfðu alltaf verið mik ið áhugamál í lífi Sigurðar Ólafs- sonar. Nú var nýr þáttur hafinn í samgöngumálum landsmanna. Flugfélag íslands h.f., var að auka allmikið starfsemi sína, flugvélar þess voru farnar að fljúga til allmargra staða á land- inu og í Hornafirði hafði Sigurð ur Ólafsson gerst umboðsmaður þess. Fyrir flugmálum og gangi Flugfélags íslands h.f., hafði Sigurður brennandi álhuga. Fylgd ist hann því mjög vel með þróun félagsins, með öllum breytingum á flugkosti þess og rekstri og gladdist af alhug með tilkomu hverrar nýrrar flugvélar, sem félagið jók við flugflota sinn. Sigurður vann mikið fyrir Flug- félag fslands h.f., hér i héraðinu, hvað álit þess og gengi snerti, en hann vildi ekki síður að Flug- félagið veitti Skaftfellingum góða þjónustu, sem það gerði frá fyrstu tíð og gerir áfram með miklum sóma, það megum við Skaftfellingar mjög þakka. Með- an ég hafði á hendi radíóþjón- ustu fyrir flugráð hér á staðn- um, höfðum við Sigurður og son ur hans Þorbjörn mikið saman að sælda í sambandi við flugsam göngur til Hornafjarðar. Þeir feðgar fylgdust mjög vel með veðurskilyrðum á flugleiðunum, öryggið var fyrir öl.lu, fylgzt var með flugtaki flugvélanna, komu tíma og öllu því er máli skipti. Afgreiðslan á flugvelli kom fljótt í hlut Þorbjarnar, en hún var oft mjög erfið, því fara þurfti yfir Hornafjörð til að komast héðan frá Höfn á flug- völlinn á Melatanga. Þorbjörn og þeir menn með honum sem önnuðust þessa flutninga eiga miklar þakkir ski'lið fyrir mikinn dugnað og farsæla stjórn í þess- um oft mjög erfiðu ferðum. Sigurður missti hinn mikla efnispilt Ólaf í sjóinn, þegar vél- skipið Borgey fórst utan við Hornafjörð árið 1946. Þetta var mikið áfall, en hann tók því með skynsemi hins reynda og hyggna manns. Nokkru síðar hætti Sig- urður búskap, en Rósa dóttir hans hafði tekið við húsmóðurstörfum af móður sinni og séð um heimil ið af mikil'li prýði. Hann flutti til tengdadóttur sinnar Ágústu Vignisdóttur og sonar síns Þor- bjarnar, en þau höfðu byggt sér nýtt hús hér og komið sér upp vistlegu heimili. Nokkru siíðar missti Sigurður einnig Steinunni dóttur sína. Alla tíð hafði Sigurð ur Ólafsson mikinn áhuga fyrir útgerð, aflabrögðum fiskveiði- flotans. Hann kvað vart betra að gera út á vetrarvertíð frá öðrum stað en Hornafirði, enda hafði hann sjálfur sýnt og sannað, að héðan má gera út með góðum ár- angri. Mikinn áhuga hafði hann fyrir öllum nýjungum, í útgerð í rekstri flugvéla og til aukinna þæginda fyrir heimilin, og á fjarskiptasviðinu. Hann hafði fengið talstöð í bát þeirra félaga, svo fljótt sem kostur var. Hann fylgdist vel með ferðum skipa og flugvéla. Sigurður var heilsteyptur per- sónuleiki, laus við alla hálfvelgju og smámunasemi, ódeigur að skipta skoðunum við hvern sem var, varði mál sitt af harðfylgi, þegar honum þótti þess með þurfa, en tók einnig fullt tillit til skoðana annarra þegar hon- um fannst þær vera réttmætar. Honum var yndi að því að fá menn inn á heimili sitt og blanda geði við þá, marga ánægjustund vil ég þakka honum mun marg- ur undir það taka. Efist í huga Sigurðar var að geta orðið sam- borgurum sínum að liði, þess hef ég og mín fjölskylda notið, sem ég þakka af alHug. Sigurður ólafsson stóð við orð sín og krafðist þess einnig að aðrir gerðu það. Þannig eru heiðar- legir drengskaparmenn. Sigurður Ólafsson var fæddur að Bæ í Lóni 30. maí 1890. Hann lést á Landsspítalanum í Reykjavík 8. nóvember síðastliðinn. Útför Sigurðar var gerð frá Bjarna- neskirkju 14. dag sama mánaðar. Kveðjuathöfn fór fram í Barna- skólanum Höfn, var henní útvarp að um endurvarpsstöðina hér á staðnum. Mikið fjölmenni var, bæði við kveðjuathöfnina og í Bjarnaneskirkju. Prófasturinn í Bjarnanesi Skarphéðinn Péturs son jarðsöng. Það vakti athygli, að viðstatt jarðarförina var margt af starfs- fólki Flugfélags íslands h.f., for- stjóri þess Örn Johnson, flug- menn og aðrir þekktir samstarfs- menn flugmála, svo og sérlegur fulltrúi hennar hátignar Breta- drottningar Brian Holt ræðis- maður. Að jarðarfarathöfn lok- inni var öllum viðstöddum boð- ið til rausnarlegra veitinga í Sindrabæ. Það var í anda hins gestrisna höfðingja. Fyrir hönd Kaupfélags Austur-Skafttfellinga flyt ég Sigurði Ólafssyni hugheil ar þakkir fyrir að leysa vel af hendi margskonar flutningaþjón- ustu fyrir félagið og hverskonar I fyrirgreiðslu. Sigurður Ólafsson var höfðingi í sjón og reynd. Vertu sæll vinur. Óskar Helgason. t „Líf er nauðsyn lát þig tavetja. Líkst ei gauði berstu djarft. Vertu ei sauður heldur hetja Hníg ei dauður fyrr en þarft.“ Larz Ellesson. Sigurður fæddist að Bæ í Lóni 30. maí 1890. Sveit sú er í suðaust ur horni íslands — Bæjarhrepp- ur heitir þar, kenndur við Bæ þar sem Úlfljótur hinn lögvitri bjó á landnámsöld. Þetta er sveit Úlfljóts, sem alið hefur og fóstr- að marga ágætismenn. En margt atf því góða fólki er nú burt flutt í þéttbýlið. Einn í þeirra hópi var þessi öðlingur sægarpurinn góði. Ólafur faðir Sigurðar drukknaði haustið 1895 er hafn- sögumannsbáturinn fórst við að fylgja dönsku vöruflutningaskipi út fyrir Papós á rúmsjó. Svein- björg móðir hans ól drenginn upp með seinni manni sinum Þor- leifi Eiríkssyni hinum mætasta bónda og áttu þau sex börn, sem til þroska komust hálfsystkini Sigurðar. Ólst hann þannig upp í hópi margra ungmenna, því þá voru fimm bændur í Bæ og flestir barnmargir. Sigurður var elztur ungling- anna og gerðist brátt foringi liðs ins, enda bráðþroska og vænn að vallarsýn. Og varð það ævina alla, að hann var foringi þeirrar sveitar, sem fylgdi honum, á sjó og í landi í blíðu og stríðu, í gleði og sorg. Ég held að öllu þessu fólkj hafi þótt vænt um hann. Áreiðanlega hélt hann tryggð við háseta sina og sam- starfsfólk til hinztu stundar. Við vorum nágrannar um okkar daga, einnig eftir að hann flutti á Höfn því leiðir styttast með bættum samgöngum og það voru sam- göngumálin, sem tóku hug hans og krafta öllum öðrum málum framar. Margan greiðan gerði hann mér og veitti rausnarlega er ég var gestur á heimili hans. En aldrei varð ég þess var að hann teldi mig standa í þakkar- skuld við sig. Greiðvikni og gest risni taldi hann skyldu sína við samborgarana hvern og einn, smáa sem háa. Bjargvættur mátti hann kallast öðrum fremur. Oft var til hans leitað er að kreppti. Um áratugi mátti segja að sam- göngur við Hornafjörð byggðust á vélbátnum. Björgvin sem hann stýrði og átti með mági sínum Jóni J. Brunnan. Fólk og farang ur var sótt út fyrir Hornafjarðar ós, þótt strandferðarskipin neit- uðu að koma inn á Höfnina. Síð- ar fluttu þeir félagar vörur til bænda austur og vestur með ströndinni á Bæjarós, Papós, í Suðursveit og til Örætfa. Þar með átti ég margan matvörusekkinn og sykurkassann. Minnist ekki að vörur blotnuðu eða skemmdust á annan hátt. Hagsýni, gætni og karlmennska fylgdusit að í ferð- um þeim. Fiskafli á vertíð var oft meiri á þann bát, en að í með allagi gæti talist. Oft komu þeir með fyrsta vertíðarfiskinn að 'landj og dreifðu nýmetinu um sveitir án endurgjalds. Sjálfsagt að gefa körlunum einu sinni í soðið. Oft var á tvær hættur teflt í sjóferðum Sigurðar, Einu sinni missti hann mann útbyrðis í stór sjó, en náði honum inn afitur með aðstoð manna sinna, þar sem hann flaut uppi vegna lofts í sjóstakknum. Ausfjarðaþokan var einatt dimm, en út úr henni komst hann samt slyisalaust. Öll þoka var honúm andstyggð, bæði í hugsun og atfhöfn. Hann vildi hreinar línur og enga hálfvelgju. Honum var ekki tamt að segja frægðarsögur af sjálfum sér, þótt efni væri nærtækt. En talaði oft um kosti og afrek vina sinna, er hann taldi til fyrirmyndar. Árið 1915 hinn 28. maií giftist Sigurður heitmey sinnj Bergþóru Jónasdóttur bónda á Hlíð, síðar í Krossalandi. Hún var dugmikil og verkhög, varð afbragðs hús- móðir. Skömmu síðar fluttu þau frá Bæ ofan á Höfn, eins og við segjum í Lóninu. Þar beið þeirra mikið verkefni. Vélbátur kom í stað árabátsins, er Sigurður stýrði til handfæraveiða frá Pap- ós. Stórt tvilytft steinhús með kjallara var byggt fast við fjörð inn. Mannmargt heimili varð þar, ekki sízt að vetrinum þá vertíð hófst. Ekkert var sparað við heimafólk né gesti en þeir urðu oft margir. Við vinir þeirra nefndum það í okkar hópi „Gisti húsið sem enga borgun tekur“. Árin liðu útgerð varð meiri og svo hófust flugferðir til Horna- tfjarðar. Þau Sigurðúr og Berg- þóra ásamt Jóni bróður hennar tóku á móti fyrstu flugmönnun- um og mun þeim hafa fundist að þar væri ekki í kot vísáð. Sig- urður varð umboðsmaður Flug- féíags íslands á Hornafirði og hafði stöðugt símasamband við þá syðra. Það var á þessum byrjunarórum lítilla flugvéla að einn Reykvíkingur símaði til Sigurðar, um það hvort hann gæti ekki fengið keypt kaflfi fyrir sig og fjölskylduna. Svarið kom fljótt: „Kaffið getur þú tfengið, en hér er það ekki selt“. Árið 1945 andaðist Bergþóra BR ég heyrði lát æskufélaga míns Magnúsar Jónssonar frá Gróu- stöðum var sem hjúpur löngu liðins tíma og atburða yrðu sem frá deginum í gær. Þótt liðin séu nær sextíu ár, er við lékum sam- an, þá var skammt milli bæjanna Garpsdals og Gróustaða. Fyrsta minningin á jólunum 1895. Hurð var knúin, norðan stormur og hríð gnauðuðu um baðstofuþekj- una, maður var kominn frá Gróustöðum að fá fóstru mína Sigríði, því hin unga húsmóðir Guðbjörg ætlaði að fara að eiga barn, en það myndi taka tíma þar til ljósmóðirin kæmi. En heima var fátt um kvenfólk sem hjálpað gæti. En nú var komið nær jólum og mér þótti uggvænlegt um jólafagnað er mamma skyldi fara að heiman. Því hún var sú er gaf jólagleðina. En mamma kom heim áður en jólahelgin hófst og þá með þær fréttir að fæddur væri drengur. Er ég svo heyri jólaguðspjallið um fæðing barnsins í Betlehem tengdi hugur minn þessa atburði saman, þótt vegalengd og tími væru fjarlæg. Undur þau er frásaga jólaguð- spjallsins getur um, urðu mér og mínum huga dýrðleg mynd. Gg skyldi slíkt hafa skeð er dreng- eftir farsælt en annasamt hús- móðurstarf og skömanu seinna verður Sigurður að hætta sjó- sókn sökum veikleika í fótum og flytur til sonar síns í nýbyggt einbýlishús. Flugsamgöngur við Skaftafellssýslu verða hans mesta . áhugamál. Kauptfélag Austur-Skaftfellinga kaupir stóra húsið þeirra og fær þar starf- rækt gistihús svo gestamóttaka heldur þar áfram. Nú kallast það Hótelið og tekur borgun, svo sem lög gera ráð fyrir. Börn þeirra Bergþóru og Sigurðar voru fjögur: Þorbjörn, sem starf ar að afgreiðslu flugvéla og gætir flugvalla, giftur Ágústu Vignis- dóttur og eiga þau syni sjö, Ólaf- ur, sem ungur fórst með m.s. Borgeý utan við Hornafjarðarós árið 1946, Rósa, hústfrú á Akra- nesi, gift Kristjáni Jónssyni starfs manni við Sementsverksmiðjuna, þau eiga tvö börn, Steinunn var vanheil og andaðist ung að ár- um. Minningin um Sigurð Ólafs- son, svo var hann ávallt nefnd- ur, er okkur vinum hans kær, meðal annas vegna þess að við litum ekki allt af eins á málin, sem deilt var um, varin og sótt Þá var hann stundum óvæginn og heflaði ekkj hvert orð, en þeir sem beat þekktu hann vissu að hann átti óvenjumikið af góð- girni og sáttfýsi, þótt yfirborðið virtist nokkuð hrjúft. Hann var átakamaður í orði og verki, drengur góður, tryggðatröll. Blessuð sé minning hans. Sigurður Jónsson, Stafafelli. urinn fæddist á Gróustöðum? Ég varð að spyrja mömmu að því, er ég næði tali af henni. Og hennar svör voru mér fullnægj- andi. Þar sem barn fæðist eru himneskar verur í kringum það, og móðir og faðir biðja því bless- unar guðs. Magnús ólst upp hjá foreldr- um sínum til 15 ára aldurs. Það var á þessu aldursskeiði Magnús- ar, sem kynni okkar urðu. Hann var elztur 5 bræðra sinna, réð því starfi og leikjum. Ungur að aldri varð hann að taka þátt í heimilisstörfum með föður sín- urn, sem oft var að heiman. Magnús var góður leikfélagi og rbæðrum sínum ráðhollur og góð fyrirmynd. Leikir þeirra, er einkenndust af atvinnuháttum heimilisins, búskapur, húsabygg- ingar, jarðrækt, girðingar m. m. Byggði Magnús mjög vönduð Og vel gerð fjárhús. Hið sama var með vörslu garða. Frágangur á þessum leikvangi hans var svo frábær, að allir þeir er sáu dáð- ust að. Og enn sér fyrir veggjum og garðlögum þessa æskustarfs Magnúsar, og heyrt hefi ég haft eftir bóndanum á Gróustöðum, að hann myndi ekki láta bylta leikvangi frænda sinna. Er þó bóndinn athafnamaður í jarð- rækt Er Magnús var 14 ára fór hann til vistar að Stað á Reykjanesi, en þar voru þá séra Jón Þor- valdsson og frú ólína Snæbjörns- dóttir úr Hergilsey. Þá var ráðs- maður hjá þeim Hafliði bróðir frú ólínu, Hafliði var sem ætt- menn hans athafnamaður mikill, jafnvígur til sjós og lands. Geðj- aðist honum vel að hinum unga vinnumanni, dugnaði hans, áræði og hugkvæmni. Þá voru að koma í notkun bátavélar (mótorar). Þessar nýungar heilluðu hug Magnúsar ásamt hinu nýja um- hverfi og atvinnu. Sjómennskan um hinn margslungna Breiða- fjörð, í stríðum straumum, vand- rötuðum og viðsjálum leiðum og margbreytileik veðráttu. Þar var sjórinn sóttur eð kappi en þó með forsjá. Eftir nokkra ára dvöl hjá Hafliða bónda flutti Magnús til Reykjavíkur að nema járnsmiði, er hann lauk með góðu prófi frá Framhald á bls. 17. Magnús Jónsson yfir- vélstjóri — Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.