Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 O/iCBÖK í dag er miðvikudagurinn 19. desember, 353. dagur ársins 1973. Eftir 1 ifa 12 dagar. Im brudagar. Ardegisháflæði er kl. 02.09, síðdegisháflæði kl.114.37. Tennur þínar eru eins og hópur af nýklipptum ám, sem koma af sundi, sem allar er tvflembdar og engin lamblaus meðal þeirra. (Ljóðaljððin 4. 2.) (»0 ára cr í dag Einar Sigurðsson. nnirarameistari, Hringbraut 35. Hafnarfirði. Þann 10. mivember gaf séra Þorbergur Kristjánsson sanian í hjónaband í Kópavogskirkju, Jónínu Sigmarsdóttur og Guð- mund Sigvaldason. Heimili þeirra er að Laufásvegi 60. ( Lí'ismyndasl. Jóns K. Sæm.l. Þann 10. nóvember gaf séra Bjiirn Jónsson saman í líjónaband Vikuna 14. — 20. desember er kvöld-. nætur- og helgidagavarzla lyfjabúða í Reykjavík í Iðunnar- apóteki-æg Garðsapóteki. Nætur- varzlan er í Iðunnarapóteki. Læknastofur eru lokaðar á laugardögum og helgidögum, en læknir er til viðtals í göngudeild Landspítalans í síma 21230. Almennar upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu I Reykjavík eru gefnar í símsvara 18888. Mænusóttarbóiusetning fyrir fullorðna fer fram í Heilsu- verndarstöðinni á mánudögum kl. 17.00—18.00. Vaktmaður hjá Kópavogsbæ — bilanasími 41575 (símsvari). Tannlæknavakt er I Heilsu- verndarstöð Reykjavíkur alla laugardaga og sunnudaga kl. 17—18. Sfmi 22411. 0G TÍMARIT Jófabluð Húsfreyjunnar er komið út, en tímaritið er gefið út af Kvenfélagasambandi Islands. í blaðinu er fróðleg grein um laufabrauðsgerð og leiðbeiningar um hana. Viðtal er við Oddnýju Thorsteinsson, sem var í f.vlgd með Margréti Danadrottningu í íslandsheimsókninni s.l. sumar, ennfremur viðtal við Guðrúnu Halldorsdóttur skolastjóra Náms- flokka Reykjavíkur um starfsemi námsflokkanna og viðtal við Hauk Ki'istjánsson yfirlækni vegna slyss í heimahúsum. Þá eru í blaðinu mataruppskriftir og föndurþættir. Ut er komið jólablað Herópsins,. og eru í blaðinu greinar og sögur um trúarleg efni, en einnig fréttir iif starfsemi Hjálpræðishersins. Gbðjið sjálfa ykkur með því að gefa fátækum jólagjöf. Mæðrasfyrksnefnd. | SÖFIMIIM Myndasafn Einars Jónsson- ar verður lokað vegna viðgerða fyrst um sinn. Skyrgámur Í dag kemur Skyrgámur til byggða. Þetta er meinleysis- grey, sem lítið fer fyrir þegar hann hefur nóg af skyri. Hann notar ekki sykur út á skyrið eins og viðgerum, heldur stráir hann á það salti. Einu sinni komst hann inn í Mjólkurbú Flóamanna á Selfossi, og þá varð nú heldur betur handa- gangur f öskjunni. Þetta var að næturlagi og allt starfsfólkið svaf vært heima hjá sér. Skyr- gámur byrjaði á því að þefa upp úr hverri kyrnu, og svo byrjaði hann að smakka. Hann gerði sér ekki grein fyrir þvf, að sama skyrið var I öllum döllunum, svo að hann gramsaði f þeim öllum, starfs- mönnum mjólkurbúsins til sárrar gremju þegar þeir sáu vegsummerkin næsta morgun. Nú er hann búinn að frétta, að farið sé að framleiða blá- berjaskyr. Grýla sagði honum frá þvf um mitt sumar, og sfðan hefur Skyrgámur lifað í von- inni um að fá að bragða þetta gógæti. "VVt) WÖFUM AtORU mT PA9 í>EfR4" IKROSSGÁTA Lárétt: 1. hetjur 6. líkamshlutar 8. frumefni 10. ósamstæðir 11. lýtið 12. ósamstæðir 13. samteng- ing 14. elskat: 16. fyllibyttunni. Lóðrétt: 2. bardagi 3. garmana 4. samstæðir 5. mæltir 7. meinum 9. lukka 10. líkamshluti 14. f.vrir utan 15. 2 eins Lausn á sfðustu krossgátu Lárétt: 1 kasta 6. sár8. láklaus 11. efa 12. frú 13. ís 15. ÍÐ 16. sef 18. lúskrum Lóðrétt: 2. aska 3. sál 4. traf 5. óheill 7. ósuðum 9. Í.F.S. 10. úri 14. sek 16. 55 17. FR. | TAPVXO-FUIMDIÐ ~| Fyrir réttri viku hvarf grábröndótt læða með hvítar lappir frá Suðurlandsbraut 105. Hún er með hvítt hálsband. Upp- lýsingar í síma 32357. Hvít og svört læða (kettlingur) er í óskilum að Sólheimum 42. Upplýsingar í síma 30123 kl. 10—12 og 2—4. Bröndóttur og hvítur högni er í óskilum að Skúlagötu 52. (Fannst hjá Landakotsspítala). Upplýs- ingar í síma 25453. í Keflavíkurkirkju. Brynju Sigfúsdótlur og Jón Axel Steindorsson. Heimili þeirra verður að Tómasarhaga 15. Reykjavík. (I jósmyndasl. Þóris). Þann 27. október gaf séra Oskar .1. Þorláksson saman í hjönaband í Diímkirkjunni. Nfnu Magnús- dóttur og Tómas Bergsson. Heimili þeirra er að Vesturgötu 19. Reykjavík. (Studio Guðm.). Jóla- getraun barnanna í dag birtist 6. myndin af átta í Jólagetrauninni, þar sem börnin innan fermingar keppa um skauta sem sá heppni hlýtur. Þrautin er sú að finna út, hver þriggja m.vndatexta, sem gefin er upp hverju sinni, á við myndina, sem birt er. a) A þetta að vera jólagæs? Þetta líkist meir spörfugli. b) Loksins fáum við hvít jól. ~j e) Heldurðu að strákurinn sé orðinn nógu stói til að ráða við svona reiðhjól? Listana átta biðjum við ykkur um að senda inn í einu lagi. Næst síðasta myndin kemur á morgun og sú sfðasta á föstudaginn. Eftir það verður veittur góður frestur til að senda inn lausnir hvaðan sem er af landinu. Og síðan birtast úrslitin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.