Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 BSRB-samninguriim Framhald af bls. 44 eftir kerfisbreytingu, eins og sumir halda. Samningar BSRB eru hag- kvæmir fyrir þann hóp ríkis- starfsmanna, sem voru í þrem lægstu launaflokkunum, er felldir voru niður, og er fólkið, sem í þeim flokkum var, fært upp í 10. flokk. En það ber að hafa í huga, að láglaunafólkið, sem samkvæmt samningum BSRB er einnig allt upp í 18. — 19. flokk, fær sára- litlar kjarabætur með þessum samningum miðað við ríkjandi verðbólguástand f landinu og óbreytta skattalöggjöf. Þá er það alvarlegt mál út af fyrirsig, að BSRB skuli hafa undirritað samninga áður en nokkrar raunhæfar tillögur um skatta- lækkanir hafa komið fram. Eg get ekki séð, hvernig verkalýðshreifingin geturgeng ið til samninga um eitt eða neitt, eins og nú er komið, fyrr en fyrir liggja skuldbindandi loforðaf hálfu ríkisvaldsins eða samþykkt lög á Alþingi, sem fela i sér verulega skatta- lækkanir. Það er krafa al- mennings í landinu," sagði Guðmundur. Þá snéri Morgunblaðið sér til dr. Jónasar Bjarnasonar for- manns launamálanefndar Bandalags háskólamanna og bar samninginn undir hann. Jónas kvaðst að svo stöddu aðeins vilja ræða um launahlið samningsins, en tók um leið fram, að hann teldi hann ekki á neinn hátt bindandi fyrir Bandalag háskólamanna. Jónas taldi, að með þessum samningi hefðu aðeins fengizt mjög óverulegar kjarabætur, ef nokkrar. Hann benti á í því sambandi, að á samningstíman- um kæmi til takmörkun á verð- lagsuppbótum vegna launaliðs búvöru og breytts innheimtu- kerfis sjúkrasamlags, er fælu í sér um 10 kaupgjaldsstig, eða sem næst 7% skerðingu á verð- lagsuppbótum. Það mætti því segja, að hækkun BSRB-samn ingsins væri aðeins leiðrétting á því. : Það kvaðst hann telja alrangt að blanda olíumálinu inn í þessa samninga, eins og gert hefði verið. Hann minntiá.að yfirleitt hefðu ríkisstarfsmenn verið töluvert á eftir í kjarabar- áttu sinni, en nú tækju þeir skyndilega frumkvæðið með því að fara að spá fram í tímann. Taldi Jónas alls ekki einsýnt um áhrif olíukreppunn- ar á afkomu þjóðarbúsins, þó að hún væri að vísu verðbólgu- valdur. Hann var þá spurður að því, hvort ekki mætti telja víst, að kjaradómur myndi í úrskurði sínum um deilu BH hafa BSRB- samninginn að leiðarljósi. Hann taldi fráleitt, að svo þyrfti að verða — í fyrsta lagi fengist þá staðfesting á því, að kjaradómur væri algjörlega ósjálfstæður, og í öðru lagi væri samningsréttur Bandalags háskólamanna þar með að engu hafður. Óskar Garibaldsson verka- lýðsleiðtogi á Siglufirði sagði, að hann teldi af og frá, að BSRB-samningurinn hefði nein áhrif á samningagerð verka- lýðsfélaganna norðanlands, „þó að það sé kannski ætlazt til, að hann hafi það hjá hinum“. Hermann Guðmundsson í Hlíf, Hafnarfirði, kvað hins vegar BSRB-samninginn mundu hafa einhver áhrif á samningagerð ASÍ, en verkalýðshreyfingin myndi eftir sem áður ganga sína eigin götu og stefnu- markandi gæti samningurinn varla talizt. — Flugfreyjur Framhald af bls. 44 ur á móti 49,495 kr. f byrjunar- Iaun; eftir7 ár 60.053 kr. Á DC-8 fær 2. freyja 40.007 í byrjunarlaun; eftir4 ár 50.176 kr. Fyrsta freyja þar fær aftur á móti 50.921 kr. í byrjunarlaun en eftir 7 ár í starfi kr. 61. 785. Þá fá flugfreyjur nú greidda fulla dagpeninga nema hvað flug- freyjur með innan við hálfs árs reynslu f starfi fá greidd 70% dagpeninga. í innanlandsflugi fá hins vegar allar flugfreyjur greidd 100% dagpeninga. Einnig sagði Erla, að flugfreyj- ur fengju nú umtalsverða lag- færingu á orlofsmálum, þannig að í stað þess, að frídagar verði tald- ir 28 almanaksdagar, eins og gilt hefur, verða orlofsdagarnir nú taldir í virkum dögum. Sam- kvæmt því fá flugfreyjur nú 27 daga orlof eftir 1 árs starf, eftir 2 ár 30 daga, eftir 10 ár 33 daga og eftir 15 ár 37 daga. Þá náðist samkomulag um, að flugfreviur fengju eftirleiðis kr. 28 þúsund á ári í bílapeninga svo kallaða, og er sú upphæð miðuð við hámark 60 ferðir. Verði farið umfram það fá flugfreyjur sér- staka aukagreiðslu, eða kr. 500 á ferð. Ennfremur fengu flugfreyjur það fram, að þær halda 3ja mánaða Iaunum í fæðingarfríum og jafnframt fengu þær það við- urkennt, að þær geta sjálfkrafa gengið inn í starf sitt aftur, verðí frí þetta ekki lengra en sex mán- uðir. Þetta gildir um allar flug- freyjur, svo fremi þær hafi eins árs starf að baki. Jafnframt var því Iýst yfir af hálfu flugfélag- anna, að 35 ára aldurstakmarkið væri úr sögunni. Þá varð sam- komulag um, að slysatrygging flugfreyja skuli hækkuð úr 1,8 milljón kr. í 3 milljónir. Loks sagði Erla, að náðst hefðu fram ýmsar þýðingarmiklar leiðrétting- ar á félagslegum atriðum. Erla var að lokum spurð að því, hvort flugfreyjur myndu gera al- vöru úr þeirri hótun sinni að setja menn þá, sem störfuðu á vegum Loftleiða f verkfallinu sem öryggisverðir, á svartan lista, en ein flugvél Lofteliða kom hingað til lands með slíka öryggisverði ínnan borðs. Sagði Erla, að það mál yrði rætt á fundi flugfreyja og ákvörðun um þetta atriði tekin þar. í þessu sambandi er rétt að fram komi, að Alfreð Elíasson for- stjóri Loftleiða hafði samband við Morgunblaðið í gær og bar til baka upplýsingar blaðsins i frétt í gær um laun þessara öryggis- varða Kvaðst hann geta staðhæft, að ekkert hefði verið farið að semja við þessa menn um laun eða hlunnindi. * KOSTAR TUGI MILLJÓNA Eftir að fyrrgreindur samning- ur hafði verið undirritaður náði Morgunblaðið einnig tali af Krist- jáni Guðlaugssyni stjórnarfor- manni Loftleiða og spurði hann álits á samningnum. Kristján sagði að þeir flug- félagsmenn væru ánægð- ir með. að þessi deila skvldi leyst. ,',Þessi samningur kemur að vísu til með að kosta okkur mik- ið,“ sagði hann, „Tugi milljóna króna gæti ég trúað, erfmiðað við allar aðstæður held ég, að við fö»num allir þessu samkomu- lagi.“ Sem fyrr segir var Björn Jóns- son samgönguráðherra viðstadd- ur undirritun samningsins og ávarpaði þar viðstadda. Hann þakkaði öllum, sem unnu að lausn þessarar „erfiðu og viðkvæmu vinnudeilu“. Sérstakleea þakkaði hann sáttasemjara ríkisins, Torfa Hjartarsyni, fyrir hans þátt í lausn deilunnar og aðstoðar- mönnum hans, þeim Benedikt Sigurjónssyni og Brynjólfi Ingólfssyni, svo og samninga- nefndum deiluaðila, sem hann kvað hafa sýnt mikinn samnings- vilja undir lokin og komið þannig í veg fyrir, að hér skapaðist háskalegt ástand. ★ FLUG HAFIÐ Flug hófst strax í gær, en þó aðeins í litlum mæli. Þannig komu tvær Loftleiðavélar til landsins í gær frá Bandaríkjun- um og á vegum Flugfélagsins var flogið til Glasgow og London og aftur til baka, svo var flogið hing- að frá Kaupmannahöfn um Osló í gær. Innanlands var hins vegar aðeins flogið meðfragt. í dag ætti hins vegar allt áætlunarflug að vera komið í eðlilegt horf. — Aðstöðugjöld Framhald af bls. 20 skipa og af fiskiðnaði. c. Allt að 1% af hvers konar iðnaðar- rekstri öðrum. d. allt að 1,3% af öðrum atvinnurekstri Var frumvarpið eins og áður greinir samþykkt með þessum breytingum og afgreitt við 3. umræðu á laugardag til neðri deildar. Hefur 1. umræða um frumvarpið þar, þegar farið fram, enda mun ætlunin að afgreiða þaðfyrir jól. -----♦ » ♦---— — Tollskrár- frumvarp Framhald af bls. 20 ógerlegt fyrir stjórnarandstöðuna að flytja breytingartillögur við frumvarpið. Til þess hefði enginn tími unnizt. Að lokinni 3. umræðu var frum- varpið afgreitt til neðri deildar, en það virðist liggja fyrir, að um- rætt bráðabirgðaákvæði um hækkun söluskattsins verði fellt þar, þar sem Bjarni Guðnason hefur lýst því yfir, að hann sé andvígur hækkun söluskattsins. Leiðrétting 1 gær birtist auglýsing i Mbl. frá Mjólkursamsölunni í Reykjavík um ístertur, sem ekki átti að birtast. Verðin í auglýsingunni voru röng. Rétt verð eru sem hér segir: 6 manna terta kr. 225.-, 9 manna terta kr. 275.-, 12 manna terta kr. 375.-, 6 manna kaffiterta kr. 265.-, og 12 manna kaffi- terta kr.450.-, — Ræða Magn- úsar Jónssonar Framhald af bls. 18 að setja svo þessi framleiðslutæki á hausinn. Ekki verður betur séð en svoverði. Ríkisstjórnin hlustar ekki á þær raddir, sem hvarvetna berast af iandinu um, að það sé sennilega milljón króna halli á mánuði á skuttogurunum nýju, enda þótt ekkert sé reiknað í fyrningar og vexti. Nei, nei það er bara beðið. Það á að bíða eftir skýrslum og bíða eftir rannsókn- um og Guð má vita hverju bíða á eftir. Röng ályktun ríkisstjórnarinnar. Síðan vék Magnús Jónsson að því, að þær geysilegu hækkanir, sem hefðu orðiðá útflutningsfram leiðslu okkar hefðu villt mönnum sýn um hið raunverulega ástand efnahagsmála. Og ríkisstjórnin hefur dregið algerlega rangar ályktanir, eða öllu heldur hefur hún engar ályktanir dregið af því eða gert tílraun til að nota þessa einstæðu gjöf, sem þjóðinni hefur hlotnazt á skynsamlegan hátt og tií þess að undirbyggja framtíð- ina. Þetta er alvarlegasta fordæm- ingin á núverandi rfkisstjórn og raunar alveg nægileg til þess að henni beri skylda til þess að biðj- ast lausnar. Það á að afgreiða nú rétt fyrir jólin 30 milljarða fjár- lög, án þess að sjá fyrir tekjuöfl- un. Við slfkt er ekki hægt að una og ríkisstjórnin getur ekki leyft sér að bjóða þjóðinni upp á þau vinnubrögð, ef henni sk.vldi detta það í hug. Ég segi þetta nú við aðra umræðu, ef það kynni að geta leitt huga hæstvirts fjár- málaráðherra að því, hversu al- varleg áhrif það kann að hafa að reka nú í gegn með handjárnuðu stjórnarliði fjárlög með milljarða halla og alla enda lausa á öllum sviðum. Ég leyfi mér að vara stór- kostlega við því að knýja f járlögin fram með þessum hætti og tel skylt að láta það liggja hér skjal- lega fyrir, að sú ákvörðun hafi komið fram. — Soyus Framhald af bls.l lýsingar verið gefnar um tilgang tilraunarinnar og ekki verið upp- lýst, hversu lengi mennirnir tveir eiga að vera úti í geimnum, — en getur eru að því leiddar, að til- raun þessi sé liður í undirbúningi sameiginlegrar tilraunar Banda- ríkjamanna og Sovétmanna, sem fyrirhuguðer árið 1975. Haft er eftir sovézkum vísinda- mönnum, að Soyuz geimförin hafi verið endurbætt verulega frá því, sem áður var, en í júní 1971 fórust þrír sovézkir geimarar í slíku geimfari, er þeir voru á leið til jarðar. I september sl. var hin endurbætta gerð af Soyuz send á loft og reyndist í alla staði ágæt- lega, að þvf er sovézkir vísinda- menn hafa tjáð bandarískum. — Sýrlendingar Framhald af bls.l utanríkisráðherrann, en hvorug- um tókst að tala um fyrir Assad. Haft er eftir háttsettum emb- ættismanni í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu, að friðarráð- stefnan í Genf verði sett 21. desember, svo sem ráð hafi verið fyrir gert. Hafði hann sagt, að Kissinger mundi leggja hart að fulltrúum Israels og Egyptalands að semja um deilur sínar, enda þótt Sýrlendingar fengjust ekki til þátttöku. Af hálfu ísraelsstjórnar hefur verið tilkynnt, að fulltrúar hennar muni sækja ráðstefnuna og setjast að samningum við Egyptaland og Jórdaníu, þó að Sýrlendingar verði þar hvergi nærri. Abba Eban utanríkisráð- herra verður formaður sendi- nefndar ísraels. — Dönsku ráðherrarnir Framhald af bls.l Landbúnaðar- og fiskimálaráð- herra Níels Anker Kofed. Umhverfis- og Grænlandsmála- ráðherra Holger Hansen. Dóms- og menntamálaráðherra Nathalie Lind. Kennslumálaráðherra Tove Nielsen. Kirkjumálaráðherra, sem jafn- framt fjallar um opinberan rekst- ur verður Kresten Damsgaard. Landvarnarráðherra Erling Bröndum. Innanríkis- og félagsmálaráð- herra Jacob Sörensen. Ove Guldberg utanríkisráð- herra fjallaði um opinberan rekstur í stjórn borgaraflokkanna á árunum 1968 — ’71. Hann er bæði verkfræði- og lögfræði- menntaður og hefur haft mikinn áhuga á aðild Danmerkur að EBE. Fjármálaráðherrann, Anders Andersen, hefur verið forseti landbúnaðarráðsins frá því 1960. Hann er einn af fremstu þing- mönnum Venstre og keppti við Hartling um formannsstöðuna í f lokknum 1965. Nyboe Andersen fær embætti efnahags- og viðskiptamálaráð- herra einkum vegna þess, að hann er talinn öðrum hæfari til að fjalla um orkumálin og afleiðing- ar þeirra. Hann er fær hagfræð- ingur og hefur verið prófessor við viðskiptaháskólann. Hann var efnahags og markaðsmálaráð- herra, og fjallaði einnig um sam- norræn málefni í stjórn borgara- flokkanna 1968 — ’71. Nathalie Lind var félagsmála- ráðherra í þeirri stjórn og vann sér þar mikið álit. Hún hefur stað- ið framarlega í dönsku kvenna- samtökunum. Johan Philipsen, Niels Anker Kofoed og Holger Hansen féllu allir í kosningunum4. des. Holger Hansen hefur verið í Grænlands- málaráðinu frá 1968 og því sjálf- kjörinn í ofangreint embætti. Niels Aker Kofoed féll fyrir mönnuin Glistrups á Borgundar- hólmi, en er kunnur fyrir baráttu sína fyrir málstað Borgundar- hólmara í laxadeilu Dana og Bandaríkjanna. Nýi landvarnarráðherrann, Er- ling Bröndum, er ritstjóri Hors- ens Folkeblad, kunnur blaðamað- ur og pólitískur fréttaskýrandi. Hann varð ritstjóri 27 ára, yngst- ur Dana, árið 1957, þá við Born- holms Tidende. — Rafmagns- skömmtun Framhald af bls. 44 yrði sett upp í Neskaupstað. Var áætlun skipsins breytt og kemur það beint til Austurlands 22. des- ember og á ekki að taka nema dag að setja túrbínuna niður. Þessi gastúrbína er af sömu gerð og sú, sem var flutt frá Seyðisfirði til Hornafjarðar, en sú túrbína kom til landsins frá Noregi fyrir ein- um mánuði. — Olía frá írak Framhald af bls.l eina ríkið, sem ekki fellst á að draga úr framleiðslu olíu. Hins vegar dró verulega úr olíuútflutn- ingi frá trak eftir að ísraelskar flugvélar vörpuðu sprengjum á olíubirgðastöðina í Banias í Sýr- landi og ollu þar verulegum spjöllum. Nú hefur útflutningur aukizt á ný, þar sem lokið er við- gerðum í Banias. Eftir að styrjöldin við ísrael hófst, tilkynnti stjórn landsins, að hún mundi þjóðnýta 23.75% af Basrah-olíufélaginu, sem Mobil og Exxon eiga í sameiningu. Hammadi sagði, að það væri stjórnum Arabaríkjanna auðveld- ur leikur að þjóðnýta eignir er- lendra aðila i olíuiðnaðinum, stóru olíufyrirtækin væru ekki i neinni aðstöðu til að grípa til gagnaðgerða. — 33 í valnum Framhald af bls.l menn stjórnar Kuwaits segja hins vegar, að þeir hafi gefizt upp skil- yrðislaust, eftir að þeim var tjáð, að hvorki yrði við þá talað né samið og þeir myndu hvorki fá vott né þurrt fyrr en þeir gæfust upp. Minnt er á, að Palestínu- Arabarnir fimm, sem gáfust upp í Kuwait í september sl. eftir árás- ina á sendiráð Saudi-Arabfu i París, voru látnir lausir með leynd, þegar októberstyrjöldin hófst, og sendirtil vígstöðvanna. Það var um tvöleytið í dag, að fsl. tíma, sem Boeing 737 vélin lenti í Kuwait eftir viðkomu i Damaskus, þar sem húntók elds neyti. Yfirvöld höfðu neitað vél- ínni um lendingarleyfi og raðað jeppabifreiðum og öðrum farar- tækjum á flugbrautina. Ræningj- arnir neyddu flugmanninn til lendingar, sem tókst, þó að vélin lenti á 1 — 2 bifreiðum og styngj- ist á trjónuna í sandbing talsvert fyrir utan flugbraut, þegar hún stöðvaðist. Landvarnar- og innan- ríkisráðherra Kuwait, Saad el Abdulla fursti, kom til flugvallar- ins, að beiðni ræningjanna, og fékk þá til að gefast upp eftir 3 klst. þóf. AIls fórust 33 manneskjur í þessari hryðjuverkalotu Pale- stínu-Araba. Fyrst tveir ítalskir flugvallarstafsmenn i Rómaborg, — þegar ræningjarnir skutu sér leið út á flugvöllinn, síðan 30 far- þegar í bandarisku Pan-Am þot- unni, sem ræningjarnir vörpuðu bensínsprengju inni í, og loks ein kona, farþegi í Lufthanza-vélinni, sem þeir rændu. Hún dó á leið- inni til Aþenu og var skilin þar eftir. Einn ræningjanna varð eftir í Damaskus, hann hafði fengið vélbyssuskot í magann og var fluttur þar i sjúkrahús. Þessar aðgerðir skæruliða hafa verið harðlega fordæmdar bæði af talsmönnum Araba og annarra ríkja. Þær hafa stutt grunsemdir um, að Palestínuskæruliðar sem beina aðgerðum sínum gegn Evrópumönnum, hafi aðalbæki- stöðvar á ítalíu og hafa ýmsir aðilar hvatt til þess, að gripið verði til meiri háttar gagnað- gerða. ------♦ ♦ ♦------ — EBE Framhald af bls.21 ágreining, sem ríkir milli hinna ýmsu aðildarríkja í máli þessu. Þetta niðurstöðuleysi fundar utanríkisráðherranna hefur f för með sér frestun á framkvæmd ákvörðunar fjármála- og við- skiptamálaráðherra EBE, sem tekin-var á mánudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.