Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 23 DRÖG AÐ HEIMSLISTARSÖGU Björn Th. Björnsson: ALDATEIKN. Mál og menning 1973. STUNDUM er verið að finna að „skrúðmælgi" Björns Th. Björns- sonar í kynningarþáttum hans um myndlist i sjónvarpi. Satt er það að Björn getur verið hátíðlegur og dálítið uppskrúfaður. Ilann gerir sér far um að varpa fræðilegu Ijósi á viðfangsefni sín og þess vegna verða orð hans stundum torskilin alþýðu manna. En hitt er engu að siður ljóst að á það er held ég of sjaldan bent að Björn Th. Björnsson er einmitt sá mað- ur, sem með hvað aðgengilegust- um hætti fjallar um myndlist — og hann gerir það menningarlega. Til kynningar innlendrar og er- lendrar myndlistar hefur hann lagt mikið af mörkum og það er þakkarvert. Efnið í bók sína Aldateikn hef- ur Björn Th. Björnsson sótt í fyr- irlestra sina við Myndlistaskóla Islands. List i árdaga nefnist fyrsti kafli bókarinnar og lýsir steinaldarlist; síðasti kaflinn Handmáluð ljósmynd af draunii f jallar um súrrealisma. í bókinni eru 400 myndir og skýrir Björn sögu listanna með tilvísun til þeirra. Bókin er þess vegna öðr- um þræði myndabók og eykur það mjög gildi hennar. Eg sé ekki betur en með bók Björns Th. Björnssonar sé komin út á islensku gagnleg skilgreining á sögu heimslistarinnar, eða að minnsta kosti vissum þáttum hennar. Þetta er ekki bók handa sérfræðingum heldur almenningi. Það er furðu mikið efni, sem rúm- ast i ekki stærri bók, en að sjálf- sögðu hefur sú leið verið farin að velja og hafna; ekki er reynt að koma allri listasögu heimsins fyr- ir á síðunum! Einna skemmtilegasti kafli bók- arinnar nefnist Einfari á Signu- bökkum og fjallar að mestu um teiknarann Ilonoré Daumier.sem i list sinni afhjúpar mannlega lesti og spillta yfirstétt. List hans var vörn lítilmagnans á byltingar- timum nitjándu aldar. En náttúr- lega lifir list Daumiers vegna þess hve frábær teiknari hann var, en ekki einungis fyrir ádeilu sfna. Birni Th. Björnssyni tekst á snjallan hátt að sýna okkur inn i hugarheim teiknarans og lýsa því andrúmslofti, sem hann lifði f. Annar kafli, sem vekur sér- staka athygli, er Bænda-Bruegel, sem fjallar um sextándu aldar málarann Pieter Bruegel, en lýs- ingar hans á lifi bændastétta Nið- urlanda hafa löngum þótt meðal hátinda listrænnar sköpunar. Þeir Daumier og Breugel eru báð- ir listamenn, sem höfða til nútim- ans, bæði hvað snertir vinnu- brögðog viðfangsefni. Urn naivista eins og Henri Rousseau og Edward Hicks fjallar Björn ítarlega. Sama er að segja um Bauhaus-skólann og abstrakt- list brautryðjanda eins og Piets Mondrians. Björn heldur þvi fram að málverk Mondrians eigi sér félagslegan tilgang og varar við einhliða skilgreiningu á póli- tískri list. Björn segir að því hafi verið „komið inn, að þau listaverk ein séu þjóðfélagsleg, sem feli beint áróðursgildi i myndefni sinu. í þá veru er talað um pólitíska list, um þjóðfélagsraun- sæi, og listin þannig flokkuðeftir hinu „læsilega" yfirborði einu, en hvorki af hvötunum sem til henn- ar liggja né áhrifunum sem hún veldur '. Myndir Mondrians eru í augum margra röð flata í ýmsum litum, en aðsjálfsögðu áttu mynd- ir hans þátt í listrænu endurmati og urðu þannig pólitískar. Aftur á móti held ég að hin einstreng- ingslega flokkun á pólitískri og ópólitískri (af sumurn kölluð óvirk) list sé einkum runnin und- an rifjum vinstri róttæklinga. Auðvitað er öll list meira og minna pólitísk. Samfélagið, um- hverfi listamannsins, er alltar nærverandi. Orðin „handmáluð ljósmynd af draumi" eru fengin að láni hjá Salvador Dali. Hann var spurður að því hvernig bæri að líta á mynd eftir hann og svaraði með þessari glöggu og skáldlegu skilgrein- ingu. Undanfara súrrealismans, dadaismanum, lýsir Björn Th. Björnsson ágætlega. Hann sýnir fram á hvernig hinar byltingar- kenndu listastefnur spruttu upp úr samvinnu myndlistarmanna og skálda. Eg hefði kosið að hann hefði freistað þess að skýra súrrealismann betur, til dæinis veita lesandanum innsýn í Súrrealistaávarp André Bretons og birta dæmi um súrreliska ljóð- list. En vel má vera að slíkar vangaveltur og innskot hefðu íþyngt bókinni. Prentun bókarinnar hefur tek- ist sæmilega þótt sumar mynd- anna séu í daufara lagi. Ástæðan er einfaldlega sú að ljósmyndir af málverkum verða aldrei annað en svipur hjá sjón. Ekki hefur verið lagt út í það dýra fyrirtæki að prenta nokkrar myndir i lit, sem óneitanlega hefði verið til mikill- ar prýði. Kápumyndin, sem er í lit, og sýnir hluta af málverkinu Ilungraða ljóninu eftir Henri Rousseau, styður þá skoðun. Um- brot og útlit Þrastar Magnússonar er til fyrirmyndar. Þessi bók skal að lokum þökk- uð. Um leið og hún gefur okkur glögga mynd af myndlistarkynn- ingu Björns Th. Björnssonar er hún drög að heimslistarsögu. Björn Th. Björnsson Cervantes og Guðbergur Cervantes: KRÓKSI OG SKERÐIR. Guðbergur Bergsson þýddi. Bókaútgáfa Menningar- sjóðs 1973. KROKSI og Skerðir eftir Miguel de Gervantes Saavedra, höfund Don Quijotes, er að sögn þýðand- ans Guðbergs Bergssonar „um- vöndunarsaga", tekin úr bókinni Novelas Ejemplares (Viðvörunar- sögur), sem kom út 1613. Tilgang- ur sögunnar er að vara unga menn viðglapstigum borganna. Sagan kynnir okkur lif afbrota- manna i Sevilla og tengsl þeirra við yfirvöld borgarinnar, semsagt spillingu, sem alltaf gengur erfið- lega að uppræta. Króksi og Skerð- ir eru hinir verstu prakkarar, enda fljótt boðnir velkomnir í samfélag bófanna. Sagan er ör- stutt og þótt siðaboðskapur sé markmið hennar er hún mark- verðust fyrir það af hve miklu fjöri og imyndunarafli Cervantes lýsir þeim félögum og hrekkjum þeirra. I bókarlok fræðir Guðbergur Bergsson okkur urn Cervantes. Það er hin skemmtilegasta lesn- ing. Með þvi að taka upp hansk- ann fyrir snillinginn Cervantes, sem skorti bæði nákvæmni og það, sem Guðbergur kallar „rað- hugsun", þ. e. a. s. að hugsa i samhengi, og skrifaði síður en svo hnökralaust mál, er Guðbergur að minni hyggju að verja sjálfan sig. „En innan alls þessa ósamræmis er eins konar samræmi ósamræm- isins," segir Guðbergur um Cer- vantes. Um þýðingu Guðbergs, sem er hin læsilegasta, er það annars að segja, að hún vitnar um aukið vald hans á íslenzku máli. Aftur á móti er ég fús til að játa, að mál Guðbergs hef ég alltaf kunnað ágætlega við; það hefur sinn sjarma í afbrigðileik sínum-frá hinum ströngu reglum málfræð- inganna. Króksi og Skerðir er fyrsta bók- in í nýjum smábókaf lokki Bókaút- gáfu Menningarsjóðs. Byrjunin er frábær. Áfram með smjörið! Haukur Ingibergsson: HUÓMPLÖTUR Þuríður Sigurðardóttir LP, Mono SG-hljómplötur Um þessi jól koma út tvær stór- ar plötur með Þuríði Sigurðar- dóttur — sín hjá hvoru hljöm plötufyrirtækinu — og er það all óvenjulegt. A plötunni frá SG- hljómplötum er að finna öll þau lög, sem Þúríður hefur sungiðinn á plötur hjá fyrirtækinu, og er elzta lagið hátt f 10 ára gamalt, Elskaðu mig, sem Þuríður söng kornung með Lúdósextettinum. Síðan koma lög frá því tímabíli, er Þun'ður söng með hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar auk laga at tveim LP-plötum, sem hún söng inn á ásamt Sigurði Ólafs- syni og Pálma Gunnarssyni. Gef- ur þessi plata þannig góða mynd af ferli Þuríðar. Það er ekkert efamál, að Þuríður er með beztu dægurlagasöngkonum, sem starf- að hafa á íslandi, og hjálpast þar að góðir hæfileikar og mikil re.vnsla. Að sjálfsögðu liggja lög misjafnlega fyrir Þtuíði eins og flestum söngvurum. Þannig er „Elskaðu mig" augljóst byrjanda- verk og „Ég vil, að þú komir" hæfir Þuriði ekki. Henni tekst bezt upp f rólegum, ljóðrænum lögum, (sem flestum þykir erfitt að syngja) og er lagið, „Eg ann þér enn" e.t.v. það bezta, sem Þuríður hefur enn sungið inn á hljómplötu. Það er furðulegt, að eftir nær áratugar starfsferil, skuli ekki vera til fleiri lög með Þurfði einni. Ástæðan er m.a. sú, að hún hefur oftast staðið f skugg- anum, ef svo má segja, fyrst af Vilhjálmi Vilhjálmssyni síðan föður sínum, Sigurði Ölafssyni, og nú síðast Pálma Gunnarssyni. Stafar þetta af ýmsum tilviljun- um lifsins, því að sem söngvari stendur Þuríður vel fyrir sfnu. LúSrasveit Hafnarfjarðar Stjórnandi: Hans Ploder Stereo, EP. Það er vissulega virðingarvert, þegar út eru gefnar plötur með lúðrasveitum, þar sem sala í slík- um plötum mun oft á tíðum vera lítil nema á starfsvæði viðkom- andi lúðrasveitar og hjá áhuga- mönnum um lúðrablástur. Þaðer því augljóslega ekki gróðahugs- unin, sem liggur að baki svona útgáfu, heldur eitthvað annað, sennilega löngunin til láta eitt- hvað varanlegt eftir sig liggja. Lúðrasveit Hafnarfjarðar hefur greinilega lagt rnikla vinnu í að gera þessa plötu sem bezt úr garði. Samstilling hljómsveitarinn ar er góð og hljómurinn allþéttur, en það hvort tveggja ber vitni um alúð jafnt hjá hljómsveit sem hljómsveitarstjóranum, Hans Ploder. Þá er lagavalið verulega skemmtilegt. Eina íslenzka lagið er Hafnarfjörður eftir Friðrik Bjarnason, enda væri nú annað- hvort að hljómsveitin léki þaðinn á sína fyrstu plötu. Auk þess eru fjögur lúðrasveitarlög, eins og þau geta fjörugust orðið. Er eitt þeirra allþekkt, Wunderland bei Nacht, og leikur Lárus Sveinsson einleikinn. Það er hins vegar spurning, hvort ekki hefði verið betra aðfá fleiri rythmahljóðfæri með, s.s. gítar, en við það hefði platan orðið enn nýtizkulegri, s.br. Tijuana Brass. Þetta hefur samt ekki verið gert og gömlu lúðrasveitarskipuninni haldið. Engu að síður er þetta ein sú hressilegasta plata, sem islenzk lúðrasveit hefur látið frá sér fara. Lítið oitt LP, SttM-eo ÁA-reekords Sú hljómlist, sem söngflokkur- inn Lítið ei.tt flytur á þessari plötu, lætur einkar þægilega í eyrum. Raddirnar eru yfirleitt vel samstilltar og daman í hópnum, Berglind Bjarnadóttir, er rósin í hnappagatinu. Það mun hafa ver- ið markntið Lítið eitt að gera plöt- una sem besta úr garði, hvað varð- aði laga og textaval og þetta hefur tekist. Textarnir eru áberandi vandaðir og eiga Hörður Zóphoníasson og Valur Öskarsson mestan þátt i þvf. Lögin eru úr ýmsum áttum. Tvö eru frá Peter, Paul og Mai’v, eitt frá Dylan svo og þjóðlög. Meðlimir kvartettsins hafa einnig kornið við sögu. Gunn- ar Gunnarsson á þrjú lög, þ.á.nt. fallegt lag við Heilræðavísur Hall- gríms Péturssonar, og Jón Arni Þórisson hefur gert tvö lög, sem allt eins gætu verið ævagamlir húsgangar, og þetta er sagt til hróss, þar sem það er ekki á allra færi að semja á þennan hátt Litið eitt leika yfirleitt undir á gítara, en nokkur aukahljóðfæri eru þó notuð á smekklegan hátt. Það rná vera, aðeinhverjum muni þykja þessi plata full nileg og vissulega er hún rólegri en það prógram. sem Litið eitt hefur flutt á skemmtunum, en ntörg rólegu lögin eru verulega falleg og vel flutt svo sem Mánudagur. sem kvartettinn hefur áður flutt i sjónvarp, og 'IV ö ein. þar sem einmanaleikinn er undirstrikaður með eintnanalegum gítar á ann- arri stereorásinni. Pressun plöt ar er ágæt og kemst allt til skila. sem á annað borð hefur farið inn á segulbandið. Um látlaust útlit umslags sá Egill Eðvarðsson. Sem sagt; óvenju vel unnin plata frá upphafi til enda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.