Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 Ift'wll Þýtur ískóginum ass- 5. kafli ÆVINTÝRI FROSKS „Já, alveg rétt, ég var búinn að gleyma þeim. Hvað er orðið af þeim, blessuðum?“ „Það er von þú spyrjir," sagði rottan í umvöndun- artón. „Á meðan þú flengist um landið í dýrum bifreiðum og lifir góðu lífi, hafa þau greifinginn og moldvarpan verið í hálfgerðri útilegu, átt napra daga og kaldar nætur á verði við hús þitt til að Keppni jólasveinanna Getur þú séS hver af þessum se\ jólasveinum kemur fyrstur í mark, þegar þú færð þessar upplýsingar? II VNN HEFUR EKKI TRÉSKÓ A FÓTUM HANN ER EKKI I VESTI IIANN ER í RÓNDÓTTRI TREYJU HANN ER DÓKKH ERÐUR •\os ’ju issocj :jbas fylgjast með mörðunum og hreysiköttunum og lagt á ráðin um, hvernig eigi að endurheimta eignir þínar fyri þig. Þú átt ekki skilið að eiga svo dygga vini, froskur, þaðsegi ég satt. Einhvern tíma áttu eftir að iðrast þess að hafa ekki metið vináttu þeirra meira á meðan kostur var.“ „Ég veit, að ég er vanþakklát skepna,“ sagði froskur og tárfelldi. „Ég ætla að fara og leita þau uppi, út í kuldann og dimma nóttina og deila með þeim súru og . . . heyrðu, . . . mér fannst ég heyra glamur í diskum. Húrra, kvöldmaturinn er tilbúinn. Komdu, rotturófa ... “ Rottan minntist þess, aðfroskur hafði veriðlengi í fangelsi og þess vegna varð að fyrirgefa honum ýmislegt. Hún fór því með honum að matarborðinu og hvatti hann til aðnjóta þess, sem fram var borið. Þau höfðu nýlokið snæðingi, þegar barið var að dyrum. Froskur varð skelfdur, en rottan kinkaði hug- hreystandi kolli til hans og opnaði . . . og inn gekk greifinginn. Útlit hans allt bar það með sér, að hann hafði búið lengi fjarri heimili sínu og þægindum þess. Skórnir hans voru forugir og útgangurinn allur var ekki burðugur. En hann hafði svo sem heldur aldrei verið nein tildurrófa. Nú gekk hann hátíðlega til frosks og heilsaði honum: „Velkominn heim, froskur. . . . æ, fyrigefðu annars, hvernig læt ég. Þetta er heldur ömurleg heimkoma, vesalings froskur.“ Svo sneri hann sér undan, dró stól að borðinu og fékk sér væna sneið af köldum kjötbúðingi. oAJonni ogcTVIanni Hann benti okkur, að við skyldum skoða hana. Síðan fór hann út. Þegar við vorum orðnir einir, sagði ég við Manna: „Þetta er undarlegt. Það er alveg eins og það, sem við höfum lesið um í Þúsund og einni nótt“. „Já“, sagði Manni. „Mér finnst vera farið ennþá betur með okkur en kóngssynina, sem sagt er frá í Þús- und og einni nótt“. „Það er satt, Manni. En livað heldurðu, að þeir ætli að gera við okkur?“ „Ég veit ekki“, sagði Manni. „Kannske þeir ætli með okkur til Frakklands, eins og þegar Tyrkirnir fluttu íslendinga til Algier forðum“. Ég hló að þessu og sagði: „Við skulum nú vona, að þeir geri það ekki. Þú manst, að Tyrkir gerðu alía Islendinga, sem þeir tóku Freysteinn eft||. Gunnarsson Jón gveinsson býddi að þrælum. Mér finnst Frakkarnir fara betur að okkur en svo, að þeir ætli að gera okkur að þræliun“. „Það er satt, Nonni. Ég vildi ekki heldur fara í þrældóm til Frakklands, annars hefði ég ekkert á móti því að koma þangað einhvern tíma. „Það væri gaman, Manni“. Þá vissum við ekki, að þessi ósk okkar átti eftir að rætast, fyrr en okkur varði. Við fórum nú að blaða í myndabókinni. En brátt voru dyrnar opnaðar, og inn kom maður í snjóhvítum klæðum. Það var brytinn á skipinu. Hann heilsaði okkur glaðlega og setti diska með kökum og öðru lostæti á borðið. Síðan fyllti hann tvö lítil glös af hvítu víni og gerði okkur skiljanlegt, að við skyldum gæða okkur á þessu. Síðan fór hann út. a__ nte&fnorgunkaffimi Afsakið, en get ég nokk uð hjálpað ...? — Allt í einu uppgötvaði ég, að þetta var flugfiskur. — Hef ég látið þig bfða lengi. elskan...? — Nei, ég giftist honum ekki vegna peninganna, inín kæra. Ég hef ekki huginynd um, hve margar milljúnir hann á...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.