Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 USA-ferðinni Frá Kristni Jörundssyni. KEPPNISFÖR íslenzka körfu- knattleikslandsliðsins í Banda- ríkjunum er nú á enda. Síðasti leikur landsliðsins var gegn Luth- er College s.l. sunnudag og lauk þeim leik með sigri Bandaríkja- mannanna 103 — 77, eftir að þeir höfðu haft yfir 53 — 33 í hálfleik. Sem kunnugt er, þá er lið Luther College væntanlegt hingað um jólin og mun leika hér nokkra leiki. 11. desember s.l. lék landsliðið við Wartburg háskólann í Waverly, og segir svo frá þeim leik í bréfi frá Kristni Jörunds- syni: Warburg keppir í sömu deild og flest liðin, sem við leikum við hér i' Iowa. Og síðustu sjö árin hefur Wartburg liðið unnið þessa keppni. Þeir hafa ekki marga stóra Ieikmenn, en þeir hafa hins vegar mjög agað lið og leika kerfisbundinn körfuknattleik. Wartburg hafði forystu allan fyrri hálfleikinn, en við fylgdum fast á eftir og var munurinn aldrei meiri en 6 —8 stig fyrr en undir lokhálfleiksins. Þá sigu þeir framúr og höfðu 46 — 31 forystu í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mjög svipaður þeim fyrri. Munurinn jókst heldur, en varð aldrei neitt mjög mikill. Snemma í seinni hálfleiknum misstum við báða miðverðina út af með fimm villur og háði það okkur nokkuð. Lauk leiknum með sigri Wartburg 82 — 58, sem verður að teljast mjög góður árangur hjá okkur, enda átti íslenzka liðið einn sinn bezta leik í ferðinni, hingaðtil. Kínverjar viðurkenndir í FYRSTA sinn i 25 ár tekur Kína þátt í Asíuleikunum í íþróttum, er háðir verða í Teheran næsta sumar. Á fundi íþróttaleiðtoga Asíuþjóða, sem haldinn var i Teheran í siðustu viku, var ákveðið með 20 at- kvæðum gegn 2 að veita Kína aðild að leikunum en útiioka Formósu. Það voru aðeins full- trúar ísrael og Suður-Kóreu sem greiddu atkvæði gegn kinverskri þátttöku. Akvörðun þessi er talin mjög þýðingarmikil fyrir Kínverja, og næsta skref þeirra verður örugglega að sækja um aðild að Olympíuleikunum. Vitað er þó. að þar muni þeir mæta tölu- verðri andspyrnu og hefur t.d. alþjóðlega Olympíunefndin lýst yfir óánægju sinni með úrslit atkvæðagreiðslunnar í Teher- an þar sem hún telur óhæfu að vísa Formósu frá. Nokkur alþjóðleg sambönd: borðtennis, róður, bogfimi, ís- knattleikur og skautaíþróttin, hafa viðurkennt Kínverja og visað Formósu úr samtökum sinum, en önnur sambönd,, t.d. fyrir frjálsar íþróttir, sund, knattspyrnu og fimleika, hafa ekki viljað viðurkenna Kín- verjana á kostnað Formósu. 3000 fyrir 9 rétta VINNINGURINN I Getraunum skiptist nokkuð í síðustu viku, er farið var yfir seðlana fundust 5 með 10 leiki rétta og 50 með 9 leikjum réttum. 10 réttar lausnir gefa af sér 74.600 krónur í hlut og 9 réttar 3.100 krónur. IVIörg úrslit komu á óvart í ensku knattspyrn- unni á laugardaginn og kom það niður á spámönnum dagblaðanna, sem gekk óvenju illa að þessu sinni, en tölum ekki meira um það. í sambandi við 18. leikviku er rétt að geta þess, að á getrauna- seðlum hefur misritazt til- kynningadagur til Getrauna um 11 eða 12 leiki rétta. Þannig að ekki á að hringja í síma Getrauna á aðfangadag eins og beðiðer um á seðlinum, þann dag taka starfs- menn Getrauna sér frí eins og aðrir. Heldur er fólki bent á að hafa samband við skrifstofu Get- rauna 27. desember eða þriðja I jólum. Þaðer Iff og fjör f þcssari mynd, sem tekin er á leik Crystal Palace og Miwail á dögunum. Ekki er vitað, hvernig þessum f imleikaæf ingum lauk en leikurinn endaði með jafntefli, 1-1. lokið Stigahæstir voru Kristinn með 19 stig og Þórir með 12 stig. Þann 8. desember síðastiiðinn lékum við gegn Simpson-háskólan um I Iowa, en í þeim skóla eru um 1200 nemendur. Við byrjuðum leikinn mjög vel og komumst I 7:2, en þeir sigu á og jöfnuðu fljótlega. Sigu þeir sfðan hægt og sígandi fram úr og höfðu yfir í hálfleik 49:40. Simpson byrjaði síðari hálfleikinn mjög vel og jók muninn f 67:46, á þessum tíma átti fslenzka liðið mjög slæman leik. En við sóttum f okkur veðrið og minnkuðum muninn i 9 stig, 74:65 er 7 mínútur voru eftir. Aftur jókst munurinn og lokatöl- ur urðu 97:77, Simpson-liðinu i vil. Stigahæstir voru Kristinn með 18 stig og Þórir með 17 stig. Haukar EINN leikur fór fram í Islands- mótinu í körfuknattleik um síðustu helgi, UMFG vann Hauka 65:55 í 2. deild, í hálfleik var staðan, 34:24. Þó að ekki hafi munað nema 10 stigum í lokin, var lið Grindvíkinga áberandi sterkari aðilinn og verðskuldaði sigurinn. Eirfkur Jónsson.UMFG, var áberandi bezti maður vallar- jns og réðu Haukarnir engan veg- inn við hann. Eiríkur skoraði 35 stig, flest með langskotum. Jó- hannes Edvaldsson var beztur Haukanna og jafnframt stiga- hæstur með 29 stig. GK. Kristinn Jörundsson. Jólamót í frjálsum Reykjavfkurfélögin og Breiða- blik gangast fyrir jólamóti í frjálsum fþróttum nk. fimmtudag og föstudag. Mótið fer fram í Baldurshaga og hefst klukkan 19.00 báða dagana. Fyrri daginn verður keppt í 50 m grindahlaupi, þrfstökki og hástökki karla, 50 m grindahlaupi og langstökki kvenna. Síðari daginn verður keppt f langstökki og 50 m hlaupi karla og hástökki og 50 m hlaupi kvenna. Banda- ríkja- menn 1 heim- sókn MILLI jóla og nýárs kemur hing- að til lands körfuknattleikslið frá Luther College f Iowa í Banda- rfkjunum. Liðið leikur hér alls 7 leiki, f Reykjavík, Akureyri og Kef lavfkurflugvelli. Leikjaniðurröðun verður sem hér segir: 28. desember gegn Reykjavík- urmeisturum KR í Laugardals- höll. 29. desember gegn landsliðinu í Hafnarfirði. 30. desember gegn úrvali á Keflavíkurflugvelli. 2. og 3. janúar tekur liðið þátt í f jögurra liða keppni f Laugardals- höll, þátt í mótinu taka Luther College, a og b landslið og lið af Keflavíkurflugvelli. 4. janúar verður leikið gegn Þór á Akureyri. 6. janúar gegn úrvali á Kefla- vfkurflugveíli. 7. janúar gegn landsliði í Laúg- ardalshöll. Alls verða því leiknir 10 leikir í sambandi við komu bandaríska liðsins hingað og af þeim leikur landsliðið 4 leiki og verður það kærkomin æfing fyrir liðið, sem leikur í Polar Cup í Finnlandi í lok janúar. Að sögn eins af leikmönnum fslenzka landsliðsins, sem verið hefur á keppnisferð um Banda- ríkin undanfarið og meðal annars leikið við Luther College, þá er liðið, sem hingað kemur, nokkuð gott en þó engan veginn ósigr- andi, nái íslenzku liðin góðum leikjum. Pele hótað BRASILlSKA knattspyrnustjarn- an Pele hefur að undanförnu orð- ið fyrir óskemmtilegri lífs- reynslu. Honum hafa borizt bréf, þar sem því er hótað, að börnum hans verði rænt, greiði hann ekki háa upphæð til hótunarmann- anna. Þá var nýlega kastað sprengju inn i garðinn við hús Pele, en hún olli ekki miklum skemmdum. A-Evrójia einokaði HM kvenna JUGÓSLAVÍA varð heimsmeist- Pólland og Tékkóslóvakia ari í handknattleik kvenna, sigr- kepptu um fimmta sætið og sigr- aði Rúmeníu í mjög skemmtileg- um úrslitaleik með 16 mörkum gegn 11, eftir að staðan hafði ver- ið jöfn f hálfleik 7—7. Þótti lið Júgóslavíu bera nokkuð af í keppninni, ekki sízt fyrir mjög vel útfærðan varnarleik. Sovétríkin hlutu bronsverð- launin í keppninni, sigruðu Ung- verjaland í keppni um þau með 20 mörkum gegn 12. Staðan í hálf- leik í þeim leik var 11—5. UMFG — aði Pólland í þeirri viðureign 15—13. Um sjöunda sætið kepptu Norðurlandaþjóðirnar Danmörk og Noregur og sigruðu dönsku stúlkurnar 12—10. Báðar þjóðirn- ar höfðu gert sér miklar vonir um að lið þeirra stæðu sig betur í keppninni, einkum þó Danir, en fyrir keppnina hafði t.d. liðið sungið lög inn á plötu, og hét titillag plötunnar „Við sækjum gull til Júgóslavíu". Austur-Þýzka land varð í níunda sæti í keppn- inni, Japan í tíunda sæti, Vestur- Þýzkaland í ellefta sæti og Hol- íand í tólfta sæti. Getrauna- tafla nr. 18 leikir 22. des. •ÍO •H 40 CÖ rH £ 0 hC U o s G Ö •H E VH *H W VH > G c •H *fí 1—t •H > 40 \0 •rc A •H rC Ö •H -P •rz U) <D P 2 4C 3 m Sunday Mirror Sunday People News of the World 1 Sunday Express P CÖ p fc£ 0 i—1 0 EH 0 'O c 3 co SAMTALS. 1 X 2 Arsenal - Everton 1 1 1 i i 1 X 1 X 1 8 2 O Goventr.y - Leicester 1 1 X i i X 1 X 1 1 7 ? O Derb.y - Tottenham 1 X 1 i 2 1 1 1 X X 6 ? 1 Ipswich - BirminKham 1 1 1 i X 1 1 X 1 í 8 2 0 Leeds - Norwich 1 1 1 i 1 1 1 1 1 í 10 0 0 Liverpool - Man. Utd. 1 X 1 i 1 1 1 1 1 í 9 1 O Man. Cit.y - Burnle.y X 1 X 2 1 X X 1 2 X ? 9 2 0PR - Newcastle X X 1 X 1 1 2 2 _ í 4 ? 2 Sheff. Utd. - Southampton X 2 X X X _ _ _ _ _ o; . 4 1 West Ham - Stoke í 1 1 1 2 2 x X X X 4 4 2 Wolves - Chelsea X 2 X 1 2 X o í— X 2 2 1 4 ? Aston Villa - Notts Count.y 1 X 1 1 X 1 X X X 1 0

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.