Morgunblaðið - 05.07.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JULI 1974
27
Glæsilegt skóúrval
nýkomiö
frá Englahdi °
og Spáni.
' Bölir og buxur
i stórkostlegu úrvali.
Opið til kl. 10
í kvöld
og til hádegis
á morgun
Bergstaðastraeti simi 14-350
Kíff * V ''m' 'X jyr ■ / . sJk jrr A X / / V
Pf\ / W ( ;) V XllD Sv Jfr\ \
wlgV :nJá hbb
Ólafur Sigurvinsson f harðri baráttu við færeyskan ieikmann
Beztu menn liðsins að þessu
sinni voru þeir Matthías
Hallgrímsson, Asgeir Elíasson og
Marteinn Geirsson. Auk þess áttu
Jóhannes Edvaldsson og Magnús
Þorvaldsson þokkalegan leik.
Aðrir leikmenn léku undir getu,
hvað sem því veldur.
Færeyingar léku mun betur en
ég hef séð þá áður gera og voru
óþekkjanlegir frá því í leiknum í
Klakksvík í fyrravor.
Beztu menn þeirra voru Ragnar
Hansen, Hermann Midjord,
Sverre Jacopsen og markvörður-
inn Regin Árting. Hdan.
Markvörður Færeyinga átti gooan leiK, ner hirðir hann knöttinn áður
en Martein og Óskar ber að.
Það fór því vel á því, að
Matthías skyldi skora fyrsta
markið í þessum leik, en það gerði
hann á 17. mín., og eins og svo oft
áður lék hann á nokkra varnar-
menn og skoraði síðan óverjandi
netið. Sverre Jacopsen skaut að
markinu af 30 m færi og yfir
Þorstein, sem var kominn of
framarlega, þannig að hann hafði
ekki tök á að verja. Við markið
efldust Færeyingar mjög og voru
Úrslitaleikir
í 2. og 3. deild
FJÖGUR af beztu liðum 2. deild-
ar verða I sviðsljósinu I kvöld.
Breiðablik mætir FH f Kópavogi
og Þróttur leikur gegn Haukum f
Hafnarfirði. 1 3. deild mætast
Stjarnan og Fylkir f Garðahreppi
og á Háskólavelli mætast Leiknir
og IR. Allir þessir leikir hefjast
klukkan 20.30.
Ekki er að efa, að hart verður
barizt f flestum þessara leikja.
Til dæmis hafa hvorki FH né
Breiðablik efni á að missa stig f
hinni erfiðu baráttu f 2. deild og
tap f Ieiknum í kvöld þýddi raun-
verulega búið spil f 2. deildinni
fyrir Breiðablik. Þróttur kemst
örugglega f krappan dans gegn
Haukum f kvöld, Hafnarfjarðar-
liðið hefur staðið sig mjög vel það
sem af er mótinu.
Leikur Fylkis og Stjörnunnar
er úrslitaleikur f riðlinum um
sæti f úrslitunum. Fyrri leik lið-
anna á heimavelli Fylkis lauk
með jafntefli, en bæði lið ætla sér
sigur í kvöld.
Færeyingar sýna framfarir
en landsliðsnéfnd má athuga
sinn gang fyrir næsta leik
ATTUNDI landsleikur Islands og
Færeyja fór fram f Gundadali f
Þórshöfn á miðvikudaginn f bezta
veðri að viðstöddum 2500 áhorf-
endum.
I fslenzka liðinu að þessu sinni
léku fimm sinn fyrsta landsleik,
þeir Magnús Þorvaldsson,
Vfkingi, Jón Pétursson, Fram,
Óskar Tómasson Vfkingi,
Kristinn Björnsson, Val og Hörð-
ur Hilmarsson, Val, en hann kom
inná f sfðari hálfleik f stað Ólafs
Sigurvinssonar. Þá lék Matthfas
sinn 25. landsleik og hlýtur hann
þvf „gullúrið“.
fyrir hinn ágæta markvörð Fær-
eyinga, Regin Arting.
Ásgeir Elíasson bætti öðru
marki við á 32.' mín. með föstu
skoti frá vítateig, en knötturinn
barst til hans frá markverðinum,
sem hélt ekki föstu skoti frá
Matthíasi.
íslendingar höfðu talsverða
yfirburði í fyrri hálfleik og hefðu
átt að getað skorað fleiri mörk, en
um marktækifæri af hálfu
Færeyinga var ekki að ræða.
Það var vart liðin mínúta af
síðari hálfleik, þegar Þorsteinn
Ólafsson mátti sækja knöttinn í
nú mun ákveðnari en áður, e'n
tókst samt sem áður ekki að skapa
sér tækifæri. Kristinn Björnsson
skoraði 3. mark Islendinga á 64.
mín. er hann fékk knöttinn rúlj-
andi á móti sér frá markverðin-
um. Kristinn var óheppinn að
skora ekki fleiri mörk, þvf að
hann átti gott skot í stöng og
tvisvar var bjargað á línu, er hann
skaut að markinu. Á 70. mín.
bætti Sverre Jacopsen við öðru
marki Færeyinga með fremur
slöku skoti, sem Þorsteinn hefði
átt að ráða við.
Fleiri urðu mörkin ekki og lauk
leiknum því með 3—2 fyrir Is-
lendinga. Það fer ekki á milli
mála, að Islendingar léku þennan
leik illa, sérstaklega þó síðari
hálfleik, þar sem engu líkara var
á löngum köflum en að þeir væru
heillum horfnir.
Það er því greinilegt, að lands-
liðsnefndin verður að endurskoða
val sitt á landsliðinu í veigamikl-
um atriðum, en til þess hefur hún
nægan tfma, því að næsti leikur
er ekki fyrr en 19. ágúst, gegn
Finnum í Reykjavík.
Heimslið
Þeir blaðamenn, sem fylgjast
með heimsmeistarakeppninni f
knattspyrnu, keppast nú við að
velja „heimslið“ og birta f blöð-
um sfnum. Eftir keppnina
munu þcir svo koma saman á
fundi og velja lið og þykir mjög
eftirsóknarvert að komast f
það.
Eftir síðustu leiki HM valdi
þýzka blaðið „Bild“ eftirtalda
leikmenn í heimslið sitt:
Hellström (Svíþj.) Vogts (V-
Þýzkal.), Pereira (Brasilíu),
Beckenbauer (V-Þýzkal.), Bo
Larsson (Svfþjóð), Kasperczak
(Póllandi), Deyna (Póllandi),
Neskees (Hollandi), Gadocha
(Póllandi)/ Cruyff (Hollandi)
og Sandberg (Svíþjóð).
Blaðamenn „France Foot-
ball“ völdu eftirtalda leikmenn
í sitt lið:
Hellström (Svíþjóð), Vogts
(V-Þýzkal.), Beckenbauer (V-
Þýzkalandi), Pereira (Brasi-
líu), Miranda (Brasilíu)
Bremner (Skotlandi), Deyna
(Póllandi) Oblac (Júgóslavíu),
Rep (Hollandi), Cruyff (Hol-
landi) og Housemann
(Argentínu).
Þau blöð sem valið hafa
„heimlið“ sitt, eru yfirleitt sam-
mála um fjóra menn: Hellström
frá Svíþjóð í markinu, Þjóð-
verjana Vogts og Beckenbauer
og Hollendinginn Cruyff.