Morgunblaðið - 02.08.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
Framsalsmálið enn óútkljáð:
Fór fjölda ferða
til ýmissa landa
til fíkniefnakaupa
ÁKVÖRÐUN IIEFUR ckki verið tckin um það enn hvort gæzluvarð-
haldsfanKÍnn í hassmálinu stóra, scm komizt hefur upp um í Svíþjóð,
verður framseldur héðan til Svíþjóðar. Málið er nú í höndum
ríkissaksóknara en dómsmálaráðuneytið mun hafa endanlegt
úrskurðarvald í málinu.
Eins ok fram hefur komið í Mbl. hefur Hæstiréttur staðfest þann
úrskurð sakadóms Reykjavíkur, að skilyrði séu fyrir hendi til
framsals, en þau eru aðeins fyrir hendi ef hin meintu fíkniefnabrot
teljast stórfelld ok þyngri refsinjí en 4 ára fangelsi Hkkí við hrotunum
að íslenzkum iögum.
íslenski gæzluvarðhaldsfanxinn kom hingað til lands 13. júní s.l. o«
var hann handtekinn þegar við komuna til landsins. Við yfirheyrslur
síðan hjá fíkniefnadeild lögreKÍunnar hefur hann viðurkennt fyrir
dómi að hafa. ýmist cinn eða í félajíi við aðra. Kerzt sekur um
eftirtalin fíkniefnabrot, samkvæmt því sem fram kemur í úrskurði
sakadóms Reykjavíkur, en þar kennir margra grasa eins og
upptalningin her með sér:
1. Að hafa á tímabilinu janú-
ar-marz 1978 farið ásamt öðrum
manni 3 ferðir frá Gautaborg til
Kaupmannahafnar og keypt þar
um 100 gr. af hassi í hverri ferð,
sem þeir seldu síðan ótilteknum
aðilum í Gautaborg.
2. Að hafa ásamt tveimur nafn-
greindum mönnum farið í júlí
1978 frá Gautaborg til Kaup-
mannahafnar til hasskaupa án
árangurs, og að hafa nokkru
síðar átt þátt í neyzlu og sölu um
50 gr. af hassi í Gautaborg.
3. Að hafa í júní/júlí 1978, ásamt
nafngreindum manni, farið frá
Gautaborg til Amsterdam í Hol-
landi og keypt þar um 500 gr. af
hassi sem þeir seldu síðan ókunn-
um aðilum í almenningsgarði í
Gautaborg með hagnaði. llafi
kaupverðið í Amsterdam verið
4—5 gyllini hvert gramm, en
söluverðið í Gautaborg 20—30
skr. hvert gramm í stærri ein-
ingum, en um 40 skr. í smærri
einingum.
4. Að hafa 2—3 vikum síðar farið
aðra ferð til Amsterdam með
sama manni og áður og keypt um
700 gr. af hassi, sem þeir seldu í
Gautaborg á sama hátt og greint
er undir lið 3.
5. Að hafa í ágúst 1978 í þriðja
sinn með sama manni og áður til
Amsterdam og keypt um 1 kg af
hassi, sem þeir fluttu til Gauta-
borgar og seldu á sama hátt og
segir í 3 lið.
6. Að
1978,
hafa
£
INNLENT
farið í september
enn með hinum sama
manni og áður, í ferð, m.a. til
Ankara í Tyrklandi, þar sem
þeir keyptu 650 gr af hassi, sem
þeir ætluðu að flytja til íslands
eða Svíþjóðar, en voru handtekn-
ir í Engíandiog hassið gert upp-
tækt þar.
7. Að hafa farið frá íslandi í
desember 1978 einn síns liðs til
Amsterdam og keypt þar um 140
gr af hassi og flutt það hingað til
lands. Hassið hafi hann selt
ýmsum aðilum, yfirleitt á um kr.
4.000 hvert gramm.
8. Að hafa veitt viðtöku snemma
á þessu ári frá nafngreindum
manni í Gautaborg um 2 gr af
hassi.
9. Að hafa keypt af manni í
Gautaborg í marz s.l. 250 gr af
mariuhana á 15 skr. hvert
gramm, sem hann seldi ókunn-
um aðilum á 35—40 skr. hvert
gramm. Var þetta gert í
hagnaðarskyni.
10. Að hafa í apríl s.l. keypt af
sama manni og greinir í lið 200
gr. af hassolíu á 57,50 skr. hvert
gramm. Samkvæmt síðasta
framburði gæslufangans fyrir
dómi varðandi hassolíuna, af-
henti hann nafngreindum ís-
lenzkum manni um 90 gr af
hassolíunni að hann telur, 10 gr
fóru til spillis, 10 gr fóru til eigin
nota, en afganginn seldi hann
ýmsum ókunnum aðilum í
Gautaborg á 80 kr. hvert gramm.
Ljósm.:Bjarni Guömundsson.
12 ára golþorskur
bað er ekki á hverjum degi að svona golþorskar koma í
vörpurnar hjá togurunum. Þcssi væni þorskur kom í vörpu
Ingólfs Arnarsonar þegar togarinn var á veiðum á Vestfjarða-
miðum í sumar. bað er Páll Sigmundsson háseti, sem heldur á
þorskinum, sem talinn er 10—12 ára gamall.__
Seldu í
Bretlandi
TVEIR togarar seldu í
Bretlandi í gær. Vest-
mannaey VE seldi 150,5
tonn í Hull fyrir 56.6
milljónir króna, meðalverð
375 krónur hvert kíló, og
Stálvík SI seldi 184.4 tonn
í Fleetwood fyrir 51,7
milljónir króna, meðalverð
281 króna.
Nýr kaup-
félagsstjóri
HREIÐAR Karlsson hefur
verið ráðinn kaupfélags-
stjóri hjá Kaupfélagi Þing-
eyinga á Húsavík. Núver-
andi kaupfélagsstjóri er
Finnur Kristjánsson, en
ekki hefur verið ákveðið
hvenær Hreiðar tekur við af
honum.
Hreiðar Karlsson, sem er
34 ára að aldri, hefur starfað
hjá Kaupfélaginu í um 10
ára skeið. Lauk hann prófi
frá Samvinnuskólanum árið
1965 og hefur m.a. dvalist
erlendis við framhaldsnám.
Vatnsyfirborð í Þórisvatni 1 metra lægra nú en í fyrra:
Þarf að skammta
rafmagn í vetur?
„ÞAÐ MÁ reikna með því miðaðyið núverandi ástand og sömu þróun og verið hefur á síðustu vikum, að þá
verði vatnsyfirborð í bórisvatni 1 metra lægra. 1. október næstkomandi en það var á sama tíma í fyrra.“
sagði Ingólfur Ágústsson rekstrarstjóri Landsyirkjunar.
Hann sagði, að nú væri vatnsyfirborð í Þórisvatni. sem er vatnsmiðlun fyrir Sigöiduvirkjun og
Búrfellsvirkjun, 90 sentimetrum lægra en það var í ágúst í fyrra. Standa vonir til þess, að 1. október
næstkomandi verði vatnsyfirborð í bórisvatni í 574 metra hæð yfir sjávarmáli en var 574.95 mctrar á þeim
tíma í fyrra.
„Það hefur verið áætlað að þessi
eins metra lækkun á vatnsyfir-
borði samsvari 2% af orkuþörf-
inni á orkuveitusvæði Landsvirkj-
unar á tímabilinu og þar til í lok
aprílmánaðar. Hvort þessi 2%
minnkun þýðir að grípa verður til
raforkuskömmtunar eða hvort
nægilegt rafmagn er tryggt, er
ómögulegt að segja fyrir um að
svo stöddu. Það fer eftir því
hvernig veturinn verður," sagði
Ingólfur.
Hann sagði að nú vantaði 6
metra upp á fulla yfirborðshæð
vatnsins. Hann sagði að víða
annars staðar mætti sjá áhrif
lítillar úrkomu. Nú í júlímánuði
hefði rennsli í Þjórsá verið um 353
rúmmetrar á sekúndu en var 400
rúmmetrar á sama tíma í fyrra.
Ingólfur sagði, að sömu söguna
væri að segja af Soginu þar sem
rennslið hefði verið 88 rúmmetrar
í fyrra en væri nú minna en 80
rúmmetrar á sekúndu, sem væri
minnsta rennslu í Soginu sem
mælst hefði í langan tíma að
undanskildum árunum ’51 og ’65.
Þegar Ingólfur var spurður um
ábrif hugsanlegrar seinkunar á
byggingu Hrauneyjafossvirkjunar
eins og rætt hefur verið um innan
ríkisstjórnarinnar sagðist hann
telja seinkun „alveg útilokaða ef
við eigum að standa við þær
skuldbindingar um orkusölu sem
nú þegar hafa verið gerðar”. Hann
sagðist telja brýna nauðsyn reka
til þess að Hrauneyjafossvirkjun
yrði lokið haustið 1981.
Dr. Kristján Eldjárn um næstu forsetakosningar:
„Ótímabært að gefa nokkra
yfirlýsingu til eða frá“
Allar líkur á forsetaframboði, gefi forseti ekki kost
á sér til endurkjörs, segir Albert Guðmundsson
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í
gær til íorseta íslands, dr.
Kristjáns Eldjárns, vegna
frétta og umræðna um, að hann
hygðist ekki gefa kost á sér til
endurkjörs við forsetakosning-
ar, sem fram eiga að fara á
næsta ári. Forsetinn sagði:
„Ég tel ótímabært að gefa
nokkra yfirlýsingu til eða frá um
þetta efni, þar sem svo langur
tími er til stefnu. Meðan ég gef
ekki sjálfur yfirlýsingu um þetta
á annan hvorn veginn verða
Ekki tímabært
að ræða málið,
segja aðrir
.nenn að líta svo á, að þetta sé
enn óráðið."
í viðtali við Dagblaðið í gær
segir Albert Guðmundsson,
alþm., að allar líkur séu til, að
hann fari í forsetaframboð á
næsta ári, gefi dr. Kristján
Eldjárn ekki kost á sér til
endurkjörs. í sama blaði segja
dr. Gylfi Þ. Gíslason og Ármann
Snævarr, forseti Hæstaréttar,
að þeir telji ekki tímabært nú að
ræða þessi mál og Ármann
Snævarr tekur sérstaklega fram,
að hann vonist til þess að núver-
andi forseti gefi kost á sér á ný.
Guðlaugur Þorvaldsson, sátta-
semjari ríkisins, kveðst ekki
hafa leitt hugann að að forseta-
framboði. Við forsetakosning-
arnar 1952 voru þrír frambjóð-
endur í kjöri, en við forsetakosn-
ingar 1968 voru þeir tveir.
Kjaradeila milli ríkis
og rannsóknarlögreglu
ÁGREININGUR er kominn upp
milli rannsóknarlögreglumanna og
fjármálaráðuneytisins um túlkun
kjarasamninga. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins mun ágrein-
ingurinn snúast um hálfa klukku-
sti.nii sem greidd er aukalega fyrir
úlkall utan dagvinnutíma og aðra
hálfa klukkustund, sem greidd er að
auki, standi útkallið í meira en tvær
klukkustundir. Fjármálaráðuneytið
hefur fellt niður þessar aukagreiðsl-
ur, sem lögreglumennirnir hafa
túlkað sem tíma fyrir þá að koma sér
á útkallsstað. Morgunblaðið spurði
Eggert N. Bjarnason, formann Fél-
ags rannsóknarlögreglumanna um
þessa deilu í gær og vildi hann þá
ekkert tjá sig um hana, sagði aðeins
að ágreiningur væri uppi um túlkun
samninga.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun mikill urgur vera
meðal starfsmanna Rannsóknar-
lögreglu ríkisins vegna þessa máls.
Eggert neitaði því þó eindregið í
gær, að lögreglumennirnir hygðu á
einhverjar aðgerðir í málinu. Þeir
myndu að sjálfsögðu sinna útköllum
eftir sem áður hvenær sólarhrings
sem væri.
Jón L. í öðru sæti
JÓN L. Árnason vann Rundberg í
7. umferð Norðurlandamótsins í
skák í gær og er Jón nú I öðru sæti
í mótinu með 6 vinninga. Á Heims-
meistaramóti unglinga urðu úrslit
m.a. þau í fimmtu umferð, að
Margeir Pétursson gerði jafntefli
við Finnann V'álkealmi.
Að sögn Guðmundar Sigurjóns-
sonar hafði Margeir lengst af mun
hagstæðara tafl en lék af sér í
tímahraki. Cherning og Seirawan
eru efstir í mótinu með 41/2 vinning
en Margeir hefur 3 vinninga.
Á Norðurlandamótinu urðu úrslit
m.a. þau, að Bragi Halldórsson vann
sína skák og sömuleiðis Áskell Kár-
ason, Ingvar Ásmundsson á ha-
gstæða biðskák en Ásgeir Þ. Árnas-
on tapaði. Svíinn Niklasson er efstur
með 6'/2 vinning. Áskell og Bragi
hafa 5 vinninga.