Morgunblaðið - 02.08.1979, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
í þverhníptum
sjávarbjörgum er hún
sá bjargfuglinn sem
neðst býr í bjarginu,
oft aðeins steinsnar
frá yfirborði sjávar
og þegar Ægir kon-
ungur byrstir sig á
varptímanum þá
löðrar hann byggð
hennar. Það er ritan
sem um er að ræða og
einnig er algengt að
hún taki ból í berg-
skorum sjávarhella.
Hvar sem ritan er
þá lífgar hún upp á
umhverfið með sínum
stílhreina lit og fín-
gerða fasi. Hún er
svokallaður haffugl á
stærð við stormmáv
og auðþekktust á
svörtum vængbrodd-
um og svartleitum
fótum og einlitu, gulu
nefi. Hún er grá á
baki en að öðru leyti
drifhvít og augu
hennar eru mjög
sérkennileg, því þau
virka eins og dimmir
djúpir hellar inn í
hvítan grunninn. Rit-
an erjöfnum höndum
við strendur og á út-
RITAN
lætur brimið
löðra
byggð sína
hafinu, en í björgum
verpir hún í mjög
þéttum byggðum. Rit-
an er hljóðlátur fugl
og fim á flugi, enda
leitar hún sér venju-
lega ætis á flugi á
yfirborði sjávar. Eng-
inn íslenzku bjarg-
fuglanna þarf eins
litla „Ióð“ í berginu
fyrir sig og sína og
þar er oft stórkost-
legt að fylgjast með
ritunni í búskapnum
á tæpasta vaði, því
oft þarf hún hrein-
lega að setja sig í
sérstakar stellingar
til þess að tolla á
„sinni jörð“. Hún er
líflegur bjargfugl og
mikið á hreyfingu,
enda er það helzt í
bjargbúskapnum sem
hún lætur í sér heyra
og þá er það hávært
„kittí-úakk“ og svo
stígandi „kaka-úík. “
Á.j.
Ljósmyndir:
Sigurgeir
Jónasson