Morgunblaðið - 02.08.1979, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
Síðustu viku dvöldust hérlendis 250 ungmenni og
forystumenn æskulýðsmála frá Norðurlöndunum og tóku
þátt í Norrænu æskulýðsmóti. sem haldið var í Reykjavík.
Mótið var haldið á vegum Norrænu félaganna og
æskulýðssambanda Norðurlanda. Slík mót eru haldin
árlega, til skiptis á Norðurlöndunum, og miða að því að efla
kynni norrænnar æsku og gefa ungu fólki tækifæri til að
kynnast af eigin raun fhúum og menningu hinna
Norðurlandanna.
Mótið í Reykjavík hófst laugardaginn 21. júlí og lauk
með hátíðarsamkomu í Klúbbnum s.l. laugardagskvöld.
Dagskrá var fjölbreytt, farið var í ferðalög um suður- og
vesturland, vinnustaðir heimsóttir, íslenzkar kvikmyndir
sýndar og fundað var um hin ýmsu málefni, er varða ísland
og málefni norrænnar æsku.
Blaðamaður Mbl. heimsótti
mótið síðasta dag þess, ræddi við
nokkra þátttakendur og fylgdist
með störfum þeirra. Á dagskrá í
hátíðarsal Háskólans voru um
eftirmiðdaginn panelumræður þar
sem fjallað var um stöðu nor-
rænnar æsku. Þátt tóku í panelin-
um einn aðili frá hverju Norður-
landanna. Fyrir íslands hönd sat
hann Reynir G. Karlsson æsku-
lýðsfulltrúi, umræðum stjórnaði
Gylfi Kristjánsson formaður
Æskulýðssambands íslands. Mátti
heyra, að norrænu ungmennin
voru yfirleitt á einu máli um
nauðsyn samvinnu Norðurlanda,
þó ein rödd kæmi utan úr sal og
tjáði sig meira fylgjandi alheims-
samvinnu, og að við yrðum að vera
þessi og ræddu þau af þekkingu.
Sérstaklega bentu nokkrir ræðu-
menn á nauðsyn eflingar mann-
legra samskipta og töldu að það
samstarf, sem átt hefði sér stað
hingað til hefði gefið jákvæða
niðurstöðu t.a.m. afnám passa-
skyldu, er ferðast er milli Norður-
landanna o.fl.
„Ungt fólk á
íslandi vorður
fljótt fullorðið.“
Jerkar Sjörgen sat í panelnum
fyrir hönd Svíþjóðar. Hann sagði,
er blaðamaður ræddi við hann í
lok umræðnanna, að þessi kynnis-
ferð sín til landsins hefði gefið sér
margt að hugsa um. „Sérstaklega
yfir suðurströndina með fjöllin í
baksýn er ólýsanlegt. Hingað gæti
ég vel hugsað mér að koma aftur
og myndi ég þá reyna að ferðast
um óbyggðir landsins til að finna
æðaslátt landsins í ósnortinni
náttúru þess.“
Hann sagðist hafa kynnt sér
nokkuð sögu lands og þjóðar.
„Menningarverðmæti þjóðarinnar
eru athyglisverð og e.t.v. hefur
Island sérstöðu á Norðurlöndun-
um að því leyti.
Jerker sagði í lokin: „Þar sem
við erum hér á æskulýðsmóti
hefur nokkuð mikið verið rætt um
stöðu ungs fólks á Norðurlöndum.
Það sem mér finnst eftirtektar-
verðast við ungt fólk á íslandi er
hversu fljótt það verður fullorðið.
Ég geri mér grein fyrir að til að
bjarga verðmætum, t.a.m. í fisk-
vinnslu þá þarf að nota hverja
vinnufæra hönd. En það er áreið-
anlega einsdæmi að fá í hendur
launatöflu, þar sem getið er um
hversu há laun skuli greiða börn-
um innan við tólf ára aldur."
Rætur norrænnar
menningar að
finna á Islandi
Peter Backa frá Finnlandi sagði,
að íslendingar ættu að sínu mati
áreiðanlega margt sameiginlegt
með því þjóðarbroti Finna, sem er
sænskumælandi. „Við þurfum,
Frá
norrænu
æskulýðs-
, móti
r
í
Reykjavík:
íslandsdvölina og höfðu margir á
orði, hversu heppin við værum að
veðurfar og einn þátttakandinn
sagðist alls ekki skilja hversu
Islendingum væri tíðrætt um
slæmt veðurfar. Útskýringar blm.
á kuldunum undanfarið, að þetta
væri fyrsta „góða vika“ sumarsins
og að snjóað hefði á Norðurlandi
fyrir skemmstu var tekið með
kurteislegu brosi.
Um kvöldið var haldið kveðju-
hóf í Klúbbnum. Þar flutti Gils
Guðmundsson alþingismaður
ávarp, en hann á sæti fyrir íslands
hönd í forsætisnefnd Norður-
landaráðs. I hófinu voru Karl
Jeppesen og Gylfi Kristjánsson,
sem sáu um framkvæmd mótsins,
hylltir af norrænu ungmennunum
og þeim færðar gjafir. Rómuðu
gestirnir mjög framkvæmd móts-
ins og sænsku fulltrúarnir buðu til
sams konar móts í Svíþjóð að ári.
Hófinu lauk með því að dansað var
fram eftir nóttu. Norrænu þátt-
takendurnir héldu síðan flestir
heim á leið á mánudeginum.
„Þátttaka íslend-
inga hefði mátt
vera meiri“
Karl Jeppesen sagðist ánægður
með þátttökuna í mótinu, en þó
hefðu færri komið en reiknað
hafði verið með. „Þeir sem komu
Stóðu Zl" nr-éAi r\rr tAl/ll virlron
Frá panelumræðunum um málefni norrænnar æsku og samvinnu Norðurlanda.
Ljósm. Mbl. F.P.
í lokahófinu var margt til skemmtunar, t.d. tróðu þessir dönsku strákar upp og
sungu danska söngva, hver með sínu nefi. Ljósm. Mbl. Matthías Pétursson.
Efla ber mannleg samskiptí meðal Norðurlandabúa —
norræn samvinna hefur gefið jákvæða niðurstöðu
eins og þið, að verja tungumál
okkar og menningu fyrir utanað-
komandi og sífellt auknum áhrif-
um.
Eftir þessa íslandsdvöl mína
geri ég mér ljóst, að rætur nor-
rænnar menningar er áreiðanlega
að finna hér á íslandi. Norræn
ungmenni fá góða innsýn inn í
forna, sameiginlega menningu
okkar hér, en samt sem áður hef
ég á tilfinningunni að erlend áhrif
vinni hér nokkuð á, eins og á
hinum Norðurlöndunum."
Peter sagðist hafa farið í ferð
um Suðurland og komið að Gull-
fossi og Geysi og fundist mikið til
um náttúrufegurð landsins. Að-
spurður sagðist hann hafa mikla
trú á norrænni samvinnu. „Það er
kannske ekki víst að samvinna
Norðurlanda sé sú eina rétta á
öllum sviðum, t.a.m. eru löndin
ekki öll í sömu bandalögunum og
má þar nefna EBE og NATO.
Öryggismál Norðurlanda hafa lít-
ið verið rædd innan Norðurlanda-
ráðs og kannski er gott dæmi um
víðtækni norrænnar samvinnu, að
NORDSAT verður líkast til heit-
asta umræðuefnið á næsta þingi
Norðurlandaráðs."
Peter sagði í lokin að hann hefði
ekki vitað mikið um land og þjóð
fyrir komu sína hingað. „Heim-
sókn mín verður til þess að mig
langar að vita meira og sjá meira
af landinu. Ég á áreiðanlega eftir
að koma hingað aftur og fá svör
við mörgum spurningum sem
vaknað hafa.“
víðsýn og forðast einangrun, sem
viðkomandi taldi vera hættu á, ef
þjóðir flokkuðu sig niður eftir
landfræðilegri legu.
Þau atriði sem unga fólkið var
sammála um að tengdi okkur
samvinnu og samband voru aðal-
lega menningarleg og eins voru
uppi raddir um, að aukin sam-
vinna í efnahagsmálum yrði Norð-
urlöndum til góðs. Margt fleira
bar á góma í umræðunum, sem of
langt yrði að rekja hér. En aug-
ljóst var, að þeir, sem þarna
ræddu samvinnu og samskipti
Norðurlanda, höfðu hugleitt mál
Jerker Sjögren sagði, að sér
fyndist ungt fólk á íslandi
verða fljótar fullorðið en ungt
fólk á hinum Norðurlöndunum.
finnst mér eftirtektarvert hversu
velferð íbúanna virðist almenn. Þó
höfuðborg ykkar sé ekki stærri en
meðalstór borg í Svíþjóð þá sézt
hér varla fátækt, miðað við í
erlendum borgum. Ef við lítum á
íslenzk stjórnmál þá er það einnig
ýmislegt athyglisvert og virðist
erfitt að setja sig inn í marga
hluti, t.a.m. verðbólgan og hvernig
þið verðið að bregðast við í
mörgum meiri háttar rnálurn."
Jerker sagðist hafa flogið til
Vestmannaeyja í mjög góðu
skyggni. „Náttúrufegurð landsins
er mikil og útsýnið úr flugvélinni
Peter Backa frá Finnlandi.
Útlistunum um
veðurfar
sumarsins tekið
með kurtejs-
legu brosi
Aðrir þátttakendur, sem blm.
ræddi við voru mjög ánægðir með
þátt í dagskrá mótsins. Við vorum
einstaklega heppin með veðurfar,
sól skein svo til allan tímann.
Þegar upp er staðið get ég ekki
annað sagt en að ég sé ánægður,
það eina sem skyggði á var að
þátttaka íslendinga hefði mátt
vera rneiri."
F.P.
Karl Jeppésen var ákaft hylltur og honum þökkuð störf hans við
mótið. Hann ræðir hér við nokkra gesti.