Morgunblaðið - 02.08.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
41
fclk f
fréttum
+ Frægasti nautabani Spánar, E1 Cordobes, sem fyrir sjö árum kvaddi þessa
vinsælu íþrótt Spánverja, þá á hátindi frægðar sinnar og gerðist svínabóndi, er
snúinn aftur í nautahringinn. — Á fyrstu sýningu sinni í ferðamannabænum
Benidorm, að viðstöddum 9000 áhorfendum, hafði hann sýnt að lengi lifir ígömlum
glæðum. — Af list og mikilli snilld hins færasta nautabána, hafði hann hrifið
áhorfendur, er hann lagði að velli hvert nautið á fætur öðru, alls sex gripi. — E1
Cordobes, sem nú er orðinn 43ja ára að aldri, sagði blaðamönnum svo frá að hann
hefði verið orðinn þreyttur á svínaræktinni. Því er heldur ekki að leyna, að sú
spenna sem ríkir í nautahringnum hefur mikið aðdráttarafl á mig, bætti hann við.
— E1 Cordobes hefur þegar lofað að taka þátt í 75 nautaötum í heimalandi sínu.
Skaut
svani
+ í franska bænum
Evreux, sem er um 70
mflur fyrir vestan París,
hefur 23ja ára gamall
maður verið dæmdur í
fangelsi fyrir að skjóta
svani.
Þetta gerðist fyrir
nokkrum vikum. Svana-
hjón með unga sína voru á
sundi á á einni þar við
bæinn, er maðurinn,
Valere Picard að nafni,
skaut þau með skamm-
byssu. Hann neitaði fyrir
réttinum að gefa skýringu
á þessari furðulegu hegð-
un sinni, en hann var
handtekinn skömmu eftir
og hafði sýnt lögreglunni
mótþróa. — En lögreglan
varð svo að taka manninn
undir sinn verndarvæng,
því öskureiðir bæjarbúar
hugðust koma fram hefnd-
um fyrir svanadrápið.
Auk refsingar, þriggja
mánaða fangelsis, var
manninum gert að greiða
rúmlega 100.000 kr. í sekt.
Svanina hafði vinabær í
Bretlandi sent hinum
franska bæ og fbúum hans
að gjöf.
+ Læknar við Bellevue-sjúkrahúsið í New York, eru
bjartsýnir á, að flókin skurðaðgerð þeirra, á hægri
handleggþessarar ungu stúlku muni bera árangur og
hún nái sér að fullu. Hún hafði í troðningi á
brautarstöð í borginni fallið fram á teina farþegalest-
ar sem brunaði yfir handlegg hennar og tók hann af.
— Hún sagði ljósmyndara AP-fréttastofunnar, sem
tók þessa mynd af stúlkunni á sjúkrahúsinu, að enn
væri hún að mestu tilfinningalatjs í handleggnum.
Læknar gæfu sérþógóðar vonir um að handleggurinn
myndi verða nokkurn veginn jafngóður.
Hópferð
veröur farin á hestum aö Ragnheiðarstöðum um
Verzlunarmannahelgina.
Lagt verður af stað frá Geithálsi kl. 7 á föstudags-
kvöld og fariö að Kolviðarhóli. Þeir, sem ekki ná svo
snemma, geta hitt hópinn aö Kolviöarhóli á föstu-
dagskvöldið.
Á laugardagsmorgun verður lagt af staö kl. 11 og
farið að RagnheiðarstöðLm um daginn.
Á sunnudaginn veröur jöröin okkar skoöuö. Þeir,
sem óska að skilja hesta sína eftir að Ragnheiöar-
stööum, fá bílfar til Reykjavíkur.
Tekiö veröur á móti farangri í félagsheimili Fáks á
föstudag kl. 14—16.
Framreiddur veröur matur á laugardagskvöld og
sunnudag.
Fáksfélagar fjölmenniö í feröina.
Fararstjóri veröur Guömundur Ólafsson formaöur.
Hestamannafélagið Fákur.
JMtogtmltfftfetfe
óskar eftir
biaðburðarfólki
Austurbær: □ Hraunteigur
□ Hverfisgata frá □ Hrísateigur
63—125
□ Hrisateigur
□ Úthlíð
□ Óðinsgata
□ Háaleitisbraut
14—60.
Vesturbær:
JfD Grenimelur
Uppl. í síma
35408
• Mest seldi tjaldvagn á íslandi.
• Svefnpláss fyrir 5—8.
• 3 m3 geymslurými fyrir farangur.
(Allur viðlegubúnaður fyrir 4—5 manna fjölskyldu).
• Trausfur og öruggur undirvagn. ísl. hönnun.
• Tekur aöeins 15 sek. aö tjalda, engar súlustillingar
eða vandræöi. Allt tilb. um leið og opnaö er.
KOMIÐ — SKOÐIÐ — SANNFÆRIST.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
KMi Wl ■ mm Bolholti 4, Reykjavík,
MmmM m jjf símí 91-21945
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU