Morgunblaðið - 02.08.1979, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
47
r
FRAM, tapaði sínum fjórða deild-
arleik í röð, er liðið beið lægri
hlut fyrir Þrótti í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Með sama áframhaldi
verða Framarar komnir í botn-
slaginn áður en þeir geta deplað
auga. Þróttarar bættu að sama
Fram (T|H*
Þróttur %3u I
skapi stöðu sína aftarlega á
merinni í deildinni. Sigurmark
Þróttar skoraði Páll Ólafsson
með glæsilegu skoti utan úr
vítateig, er aðeins tvær mínútur
voru til leiksloka. Lokatölur
1—0, staðan í hálfleik því eðli-
lega 0—0.
Leikurinn hafði lengst af róandi
áhrif á áhorfendur sem voru
frekar fáir. Mikill fjöldi þeirra var
lengst af upptekinn við að henda
rusli í aðra grunlausa áhorfendur.
Maður hefur oft séð lakari knatt-
spyrnu, en leikurinn í gær var
ekkert sérstakur. Bæði liðin léku
oft nett úti á vellinum, en bæði
gerðu sig einnig oft sek um tilvilj-
anakennda takta. Allan leikinn
má segja að Framarar hafi verið
heldur skárri, a.m.k. voru þeir
nokkrum sinnum mun nær því að
skora en Þróttarar, sem segja má
að hafi nýtt sitt eina færi til
hlýtar.
Hafþór Framari Sveinjónsson
brenndi af góðu færi á 5. minútu,
eftir rosalegan darraðardans á
markteig Þróttar og mínútu síðar
skaut Ásgeir Elíasson þrumuskoti
rétt yfir Þróttarmarkið. Á 9.
mínútu varði Ólafur Ólafs vel
skalla Guðmundar Torfasonar.
Besta færi Fram kom þó á 18.
mínútu, er Pétur Ormslex sendi
stungu á Ásgeir, sem vippaði yfir
Ólaf í markinu, en í þverslá.
Leikurinn jafnaðist mjög er líða
tók á hálfíeikinn og undir lokin
átti Páll Ólafsson tvö góð skot,
sem fóru fram hjá. Var hér alger-
lega um einstaklingsframtak Páls
að ræða.
Framarar voru sterkari framan
af síðari hálfleik og á 55. mínútu
tókst Gunnari Orrasyni að skalla
yfir opið markið af 10 sentimetra
færi, eftir góða fyrirgjöf Rafns
Rafnssonar. Gunnar náði illa til
knattarins. Þrátt fyrir meiri sókn-
arþunga og heldur liprara spil,
gekk Frömurum afleitlega þegar
nálgaðist markið og afgerandi
færi er ekki hægt að tala um.
Nokkrum sinnum virtist allt vera
að koma, en ekkert varð úr. 4
mínútum fyrir leikslok fengu
Þróttarar eina færi sitt ef frá er
skilið þegar Páll skoraði upp úr
þurru. Guðmundur Baldursson
markvörður Fram missti þá
Forest
fékk skell
Bayern Milnchen vann stórsig-
ur á Nottingham Forest í vináttu-
leik liðanna í Miinchen í gær-
kvöldi. Var sigurinn síst of stór
miðað við gang leiksins, en þarna
áttust við fyrrverandi og núver-
andi Evrópumeistarar. Staðan í
hálflcik var 2-0.
Liverpool, enska meistaraliðið,
vann góðan sigur á Borussia
Mönchengladbach í vináttuleik á
Anfield Road í gærkvöldi. Loka-
tölur leiksins urðu 4—2, staðan í
hálfleik var 2—1 fyrir Liverpool.
Hamburger SV vann spænska
stórliðið Valencia 3—0 í sams
konar vináttuleik í gærkvöldi.
Þá vann Kaiserslautern í fyrra-
kvöld algeran yfirburðasigur á
Standard Liege, 7—0.
klaufalega frá sér aukaspyrnu
Úlfars Hróarssonar, en bætti það
siðan upp með því að verja meist-
aralega bæði skot Sverris Bryn-
jólfssonar og Baldurs Hannesson-
ar.
Markið skoraði Páll fallega sem
fyrr segir á 88. mínútu, en bæði
rétt áður og rétt eftir slapp
Þróttarmarkið vel er hætta steðj-
aði að. Páll var atkvæðamesti
sóknarmaður Þróttar og hans var
illa gætt er hann skoraði.
Pétur Ormslev og Gunnar Orra-
son voru skæðustu sóknarmenn
Fram, ef hægt er að tala um slíkt
þar se'm liðið komst ekki á blað, en
báðir áttu ágæta spretti.
í stuttu máli:
íslandsmótið 1. deild Fram —
Þróttur: 0—1 (0—0)
MARK ÞRÓTTAR: Páll Ólafsson
(88. mínútu)
SPJÖLD: engin
DOMARI: Hreiðar Jónsson -gg.
• Asgeir Eliasson hefur vippað knettinum yíir Ólaf Ólafs markvörð Þróttar, en í þverslána hrökk
knötturinn og fór þar forgörðum eitt besta færi Fram í leiknum.
Ljósm. Emilía.
Láttu þér ekki leiðast
um mestu ferðahelgi ársins
f ferðala
Þaö besta
sem völ
er á
PIONECR sterio bíltæki með útvarpi, casettutæki
°g tveim hátölurum gera bílinn þinn aö hljómleikasal á hjólum.
Verð fyrir allt þetta frá 139.400.-
ið
SHARP
ferðatækin
sem eru
engu ööru lík
Útvarp, casettutæki með sjálf-
leitara og frá einum upp í fjóra
hátalara gera tjaldiö að tónleika-
höll. Verð frá 99.900.-
■ - - og fyrir þá sem heima sitja
★ Hin frábæru japönsku Sharp sjónvörp eru hrein völundarsmíö.
Verð 14“ kr. 335.000.- • 18“ kr. 419.000 - • 20“ kr. 484.000.-
★ Frá hinum tækniþróuöu
frændum okkar Svíum
Lu
XOR
sjonvörp. Verð 22“ 535.000.-
★ Þiö geriö heimilið aö kvikmyndahúsi
meö sjónvörpum frá okkur.
★ Og auövitaö bjóöum viö úrval af
hljómtækjum frá (^PIOIMEER
°9 SHARP
Fram að
sligast í
fallbaráttuna?