Morgunblaðið - 02.08.1979, Side 48
i Sími á afgreiðslu:
83033
JW»r0imbInbi?)
á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JH»r0unb!«bib
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1979
Kjartan og Frydenlund
raeddust við í gærdag
KJARTAN Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra og Knut Frydenlund
utanríkisráðherra Norðmanna ræddust við í gær um ágreininginn
milli landanna og samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði
sér í gær varð enginn árangur af þeim viðræðum, sem fram fóru um
síma. Ráðherrarnir munu þó hafa orðið ásáttir um að viðræður yrðu
teknar upp að nýju, en talið mun. að það verði ekki alveg á næstunni.
Munu þeir hafa ákveðið að hafa áfram samband sin í milli símleiðis
um málið. Kjartan Jóhannsson neitaði því í samtali við Morgunblaðið
í gær, að nokkurt samband hafi verið milli landanna um þetta
ágreiningsefni í gær.
1 Noregi er mikið fjallað um
þetta mál í fjölmiðlum og í gær
sagði Káre Willoch, leiðtogi hægri
flokksins í samtali við Aftenpost-
en, að nauðsynlegt sé að gera
ríkisstjórn íslands ljóst að harka
af hennar hálfu á svæðinu innan
200 mílnanna, sem Norðmenn gera
tilkall til, verði skoðuð sem
fjandsamleg aðgerð af hálfu Is-
lendinga gagnvart Norðmönnum.
Willoch sagði að ís endingum ætti
að vera Ijóst að það gæti ekki
verið sjálfsögð krafa af þeirra
hálfu, að þeir gætu gert tilkall til
hafsvæða, sem væru nær Jan
Mayen en Islandi.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu, taldi dómsmála-
ráðuneytið sér ekki fært að færa
pólska togarann Ursus frá Gdynia
til hafnar, þar sem reglugerðinni
frá 1975 um útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar hafði ekki verið
breytt. Morgunblaðið spurði
Kjartan Jóhannsson, sjávarút-
vegsráðherra um þetta atriði í
gær og sagði hann að lögfræðing-
ar sjávarútvegsráðuneytisins
væru að skoða málið og yrði
niðurstaða þeirra sú, að breytinga
væri þörf, myndi reglugerðinni
breytt. Sjávarútvegsráðherra
kvað unnt að gera slíka breytingu
á reglugerðinni hvenær sem væri.
Engin fiskiskip voru á hafsvæð-
inu innan 200 mílnanna, sem
Norðmenn gera tilkall til í gær, að
því er Landhelgisgæzlan upplýsti
Morgunblaðið um. Norski loðnu-
veiðiflotinn var þá um 50 sjómílur
utan við miðlínuna við Grænland,
norður af Þistilfirði. Mun lítil
veiði hafa verið meðal skipanna í
fyrrinótt og stóð loðnan djúpt og
var á hreyfingu í norðaustur, í átt
til Jan Mayen.
Gerðardómurinn í farmannadeilu:
Attt að 15% hækkun
meðal yfirmanna
„ÞAÐ er alveg ljóst, að engar efnahagslegar forsendur eru fyrir þeim
hækkunum. sem þarna koma fram,“ sagði Þorsteinn Pálsson,
sambands lslands í samtali við Morgunblaðið í gær, en þá lágu fyrir
bráðabirgðaútreikningar V.S.Í. á niðurstöðum hins lögskipaða
gerðardóms sem settur var með bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar
á farmenn hinn 19. júní siðastliðinn.
Samkvæmt upplýsingum Þor-
steins sýna þessir bráðabirgðaút-
reikningar, að heildarlaunakostn-
aður vegna yfirmanna á farskip-
um hækkar um 14 til 15%. Hækk-
unin meðal undirmanna er nokkuð
minni eða á bilinu 5 til rúmlega
8%. Inni í þessum tölum er sú 3%
launahækkun, sem allar launþega-
stéttir höfðu fengið, nema far-
menn.
Gerðardóminn skipuðu eins og
áður hefur komið fram Guðmund-
ur Magnússon, kjörinn háskóla-
rektor, Hrólfur Asvaldsson, við-
skiptafræðingur og Jóhannes L.L.
Helgason, hæstaréttarlögmaður.
Morgunblaðið hafði þær spurnir
af niðurstöðum dómsins í gær, að
svo virtist sem hann hafi tekið
upp launabil í kjarasamningum
frá árinu 1974, en til þess að laun
lækki ekki við þá breytingu, verði
sú heildarútgjaldaaukning, sem að
framan getur.
Morgunblaðinu tókst ekki að
hafa samband við Ingólf Ingólfss-
on, forseta Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands í gær
vegna þessa máls og spyrja hverj-
ar niðurstöður hefðu orðið af
útreikningum sambandsins á
dómsniðurstöðunni.
„Nauðsynlegt að
samræma veiðar
og vinnslu afla44
HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN hefur breytt viðmiðunarregl-
um varðandi þorskveiðar og má smáfiskur nú ekki nema meira
en 3G% í afla og ekki vera undir 60 cm. Var tilkynnt um þessa
breytingu í gær. Togarar hafa komið með mikinn afla að landi
síðustu daga og hefur Framleiðslueftirlit sjávarafurða kært
allmarga togara fyrir að fara ekki að reglum um meðferð afla,
m.a. að fiskur sé laus á dekki o.fl.
afkastageta húsanna líka nokkru
minni á þessum árstíma m.a.
vegna sumarleyfa. Því lenti hluti
aflans í lægri gæðaflokkum en
vera þyrfti t.d. saltfisk og skreið.
Væri því nauðsynlegt að skipu-
leggja og samræma vinnslu og
veiðar, ekki sízt með ástand fisk-
istofnanna í huga, því nú væri
einmitt mikils virði að aflinn
nýttist sem bezt.
Búizt er við að nokkurt hlé verði
víðast á fiskvinnslu um næstu
helgi, allt frá föstudegi til þriðjud-
ags og því hafi togarar reynt að
koma með afla að landi síðustu
daga og talið er að margir hafi í
hyggju að taka út 30 daga þorsk-
veiðibanní ágúst og því hafi þeir
margir landað síðustu daga.
Jóhann Guðmundsson forstjóri
Framleiðslueftirlits sjávarafurða
tjáði Mbl. í gær að í aflahrotunni
að undanförnu hefði borizt mikill
afli á land sem frystihúsin hefðu
ekki undan að vinna og væri
flugfargjalda
innanlands
VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa
heimilað 12% hækkun á flugfar-
gjöldum innanlands og hefur
hækkun þessi þegar tekið gildi.
Samkvæmt þessu hækkar far
báðar leiðir milli Reykjavíkur og
Akureyrar úr 25,500 í 28,560 krón-
ur og far báðar leiðir milli Reykja-
víkur og Egilsstaða hækkar úr
34,400 í 38,500 krónur, svo dæmi
séu tekin. Við þessar tölur bætist
flugvallarskattur.
Fyrsta flokks baðströnd í Grindavík:
Of t um 30 gráður
þegar sólin skín
FJÖLDI fólks hefur að undanförnu lagt leið sína suður til
Grindavíkur til að sleikja sólina á einni bestu baðströnd sem
fyrirfinnst hér á landi. Ströndin er í Hraunslandi um það bil þrjá
kflómetra fyrir austan Grindavík, og kallast Hraunsandur, við
Festarfjall. Þar er oft mikill hiti enda skjól gott, og sem dæmi má
nefna að í fyrradag þegar hiti mældist 19 stig í Grindavík var
mun heitara á sandinum.
í góðviðrinu sunnanlands und-
anfarna daga hefur fjöldi fólks
lagt leið sína á Hraunssand, og
notið veðurblíðunnar, og þykir
mörgum sem baðströndin á
Hraunssandi gefi ekkert eftir
suðrænum ströndum þegar vel
viðrar. Það er einkum fólk frá
Grindavík og nágrenni sem hefur
notfært sér ströndina, en því
fólki fer fjölgandi sem kemur
lengra að, meðal annars af höf-
uðborgarsvæðinu.
Sjórinn við sandinn er þó ekki
vel heitur sem varla er von, og
einnig er fólki ráðlagt að synda
ekki langt frá landi vegna sterkra
strauma með ströndinni á þess-
um slóðum. Þá er fólk einnig
varað við því að vera of nálæg
fjallinu vegna hættu á hruni
þaðan, en sandurinn sjálfur er
mjúkur og sléttur, og oft sann-
kallaður hitapottur ef sól er á
lofti, enda er þar skjólgott með
afbrigðum.
Hamrabelti mynda skjól við Hraunssand austan Grindavfkur. Þarna
verður oft mjög heitt á kolsvörtum sandinum, og er ekki óalgengt að
hitinn fari upp fyrir 30 stig þegar hlýtt er í veðri. Um 300 manns
voru í sólbaði í veðurblíðunni um síðustu helgi, og æ fleiri virðast
kunna að meta þennan skjólgóða stað. Ljósm. Mbi. Guftfinn r.