Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981 3 Fyrirtæki sameinuð til rekstrar skipa- lyftunnar í Eyjum Risalúðan og fisksalinn hjá Sæbjörgu. Stærsta lúða sem sögur fara af nægir 1 máltíð fyrir 1250 mani Ein lúða mettaði 1250 manns FRÁSÖGN aí lúðunni á ísa- firði, í blaðinu í gær, hefur rifjað upp aðra stórlúðu- sögu, sem raunar var mynd- fest og færð í letur í Morg- unblaðinu haustið 1969. Lúð- an sú var víst 514 pund nákvæmlega á þyngd, að því er Guðmundur í Sæbjörgu scgir okkur. Hann var þá í húðinni hjá pabba sínum, Óskari í Sæbjörgu, sem var myndaður við lúðuna. Til að hægt væri að mynda hana og sýna stærðina miðað við manninn, þurfti að hífa hana upp með krana á vöru- bíl. Þessi lúða veiddist í troll mótorbátsins Hópness frá Grindavík 13. nóvember. Lúðan var 2 metrar og 60 sm á lengd og 257 kg að þyngd. Isafjarðarlúðan var í blaðinu í gær sögð vega slægð 247 kg og hafa verið 268 sm löng og 120 sm breið. Risalúðan á myndinni hér að ofan var semsagt flutt í fiskbúðína Sæbjörgu og dreift þaðan í fleiri fiskbúðir, enda var reiknað með að hún myndi duga í matinn handa 1250 manns og var þá reiknað með 200—250 gr á mann. 500 pumdia lú-ða vieiidldtiisit í tTrtoðfl. n/b. Hópti/ests írá Grindiaiviílk í ynradlag. Var íhiúin fibuttit í Æisk- aiúlðina Sæfbtjöaiau í gær, en þaöain. jttti alð dmeifia ihenná í 7 fiútóbúðúx lum. &ð ræðta díiær''ltiu bújðu sölglur faina at£ á íslandij múinrista 'kosti. Bf neilkintað er imidð 200- girömrautm atf lúJðlu á iruamm í UNDIRBÚNINGUR að rekstri hinnar nýju skipalyftu i Vest- mannaeyjum stendur nú yfir af fullum krafti. en lvftan. sem getur tekið upp skip af öllum stærðum í Eyjaflotanum nema Iferjólf, verður tilbúin á na*sta ári. Tvær elztu vélsmiðjurnar í Eyjum. Magni og Völundur, verða sameinaðar í eitt fyrirtæki um næstu áramót vegna skipa- lyftunnar og yfir standa samn- ingaviðra>ður um það hvort raf- magnsverkstæðið Geisli og Skipa- viðgerðir verði hluthafar i hinu nýja fyrirtæki, Skipalyftan hf. Þegar er hafinn undirhúningur fyrsta hluta verkstæðishúss við skipalyftuna og er þar um að ra-ða 1500 fcrmetra húsnæði. Að sögn Gunnlaugs Axelssonar, framkvæmdastjóra Völundar, í Vestmannaeyjum er sendinefnd á SJÓLASTÖÐIN í Reykjavík, sem er einn af fjórum aðilum sem hafa átt jafnmörg skip í pöntun frá Bretlandi, hefur ákveðið að hætta við kaupin, en festa þess í stað kaup á skipi frá Norcgi. Norska skipið mun Sjólastöðin fá á svipuð- um kjörum og verði og cinnig verður afhending þess um líkt leyti og til stóð að hrezku skipin kæmu til landsins. Að sögn Haralds Jónssonar, framkvæmdastjóra Sjólastöðvar- innar, var þessi ákvörðun tekin, þar sem forráðamenn stöðvarinnar töldu sig fá betra skip í Noregi. „Þetta eru hliðstæð skip og á vegum hins nýja fyrirtækis ný- komin frá Danmörku þar sem skipalyftur, verkstæði og skipa- smíðastöðvar voru skoðaðar með tilliti til þess verkefnis sem er framundan. Til stendur að hefja byggingu 1500 fm verkstæðishúss þegar í haust, en Gunnlaugur kvað slíkt hús þurfa að vera tilbúið þegar fyrsta skipinu verður lyft, væntanlega í marz eða apríl. Hér er um að ræða stálgrindarhús, sem á að hýsa verkstæðisþættina, en þá er eftir að byggja hús til að taka skip inn í og fleiri mannvirki er ráðgert að smíða í kjölfarið eftir því sem aðstæður leyfa. Samningaviðræður fyrr- greindra fyrirtækja og bæjarsjóðs Vestmannaeyja standa nú yfir um leigu á skipalyftunni, sem er í eigu bæjarsjóðs. hliðstæðu verði, en norska skipið er með fiskikassa og hentar okkur betur þar sem við erum með frysti- hús. Brezku skipin eru aftur á móti með fiskilestir fyrir lausan fis,“ sagði hann. Hinir aðiíarnir, sem einnig áttu pöntuð skip frá Bretlandi, eru Síld- ar- og fiskimjölsverksmiðjan á Akranesi og aðilar á Dalvík og í Garði, en að sögn Haraids mun riftun eins aðila ekki eiga að hafa áhrif á kaup hinna. Umboðsaðili að kaupunum í Bretlandi er Benedikt Sveinsson hrl. í Reykjavík. Úr Morgunblaðinu 14. nóv. 1969. Sjólastöðin hættir við kaup á brezku skipi Nú getur þú fengið nýja Sinclair Pínutölvu fyrir aðeins 1795.- krónur! Sinclair tölvan er á stærð við tvö súkkulaðistykki, 16,7 cm x 17,5 cm x 4 cm, og aðeins 350 gr. á þyngd. Ótrúleg örtölvutaekni gerir nú hverjum sem er kleift að kaupa sér pínutölvu og nota hana bæði í gamni og alvöru. Heimilisbókhaldið, bankareikningurinn, innkaupaiistinn og jafnvel símaskráin eru leikur einn í pínutölvunni! Sinclair Pínutölvan hefur vakið heimsathygli. Á síðast liðnu ári seldust rösklega 50,000 pínutölvur í Bret- landi, en f ár hefur framleiðsla og sala Sinclcúr margfaldast enda er eftirspumin gífuriega mikil. Skólar, heimili, námsfólk og félagasamtök notfæra sér möguleika Sinclair Pínutölvunnar til margvíslegra hluta. Ódýrara tölvutæki er varla til! Hvað gerir Pínutölvan? Næstum því hvað sem er. Hún aðstoðar þig við: Heimilisbókhaldið Bankareikninginn Fjárhagsáætlun heimilisins Víxla og skuldabréfalistann Afmælisdagabókina Símaskrána Jólakortalistann Plötu, bóka og blaðasafnið Birgðabókhald eldhússins Stærðfræðinámið og skólann Stigatöflu knattspymunnar og aðstoð vegna getrauna o.fl. o.fl. o.fl. o.fl. Beint í sjónvarp Sinclair Pínutölvuna má nota hvar sem er. Nota má hvaða sjónvarp sem er fyrir skerm. Þú stingur henni bara í samband í loftnetstengilinn, og keyrir af stað! heimilistæki hf Sætúni 8. Pínuminni Ef þú villt auka getu Sinclair pínutölvunnar er hægt að kaupa viðbótanninni, sem eykur afköstin. Pínuprentari Sinclair pínutölvan er ah/örutölva. Þú getur keypt við hana prentara, sem prentar úrlausnir tölvunnar á strimil. Pínuleikir Pú notar Pínutölvuna til að kenna þér og fjölskyldunni að notfæra sér tölvur - mikilvægt uppeldisatriði. En svo er líka hægt að leika sér við pínutölvuna með sér- stökum tölvuleikjum. Leiðbeiningar Með hverri tölvu fylgir 212 síðna leiðbeiningabók, sem útskýrir möguleika Sinclair pínutölvunnar á einfaldan hátt ilsil Zx81 Pínutölva fyrir þá, sem aldrei hafa kynnst töivum áður!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.