Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981 Gamla farþegaskýlið tekið taki af slökkviliðsmönnum, áður en það var fjarlægt. Nýja flugstöðin, sem hefur gjörbreytt allri aðstöðu fluKfarþega i Vestmannaeyjum. Hermannaeldhúsið sem varð flugstöð Gamla farþegaskýlið í Eyjum var rifið í vikunni, en það þjónaði sem far- þegaskýli á Vestmanna- eyjaflugvelli i 35 ár eða frá því að það var her- mannaeldhús á stríðsár- unum. Slökkvilið Vest- mannaeyja hélt æfingu í húsinu, þegar komið var að því að brjóta það niður, en nýja Flugstöðin í Eyj- um var tekin í notkun fyrir liðlega ári. Slökkviliðsmenn munda tæki sin áður en þeir vaða inn í brennandi farþeKaskýlið gamla. Quelle pöntunarlistinn með haust- og vetrartískunni '81 -'82 er nærri þúsund blaðsíður uppfullar af vönduðum þýskum varningi. Úrvalsfatnaðuráalla fjölskylduna, skór, töskur, skartgripir, húsbúnaður, heimilistæki, leikföng, - já allt sem hugurinn girnist. Allt gæðavörur á hagstæðu verði. öruggur afgreiðslumáti. Allt sem huqurinn girnist frá QueIIe ístve rslu^ íBv Vinsamlegast klippið þennan hluta auglýsingarinnar frá og sendið okkur eða hringið - ef þér viljið kaupa Quelle pöntunarlistann. Verð listans er kr. 45.00 auk póstkröfugjaldsins. Quelle-umboðið Pósthólf 39,230 Njarðvík. Slmi 92-3576. Afgreiðsla í Reykjavfk Laugavegi 26,3. h. Sími 21720. 1 Nafn sendanda heimilisfang ' sveitarfélag póstnúmer ^ mmm _ __ ^ sveitarfélag póstnúmer QueIIe umboðió sími 21720 Hótel Loftleiðir: Myndsegulbönd í hvert herbergi Fjölbreytt vetrardagskrá með lundaveizlu og fleiri nýjungum Um þessar mundir er að hefjast fjölþætt vetrarstarf að Hótel Loft- leiðum. Auk hefðhundinna liða o« skemmtana í veitinxasölum hótels- ins, verður í vetur hryddað upp í ýmsum nýjunxum ok af þeim vekur kannski mesta athyxli að myndseKulhandskerfi verður tenKt inn á öll herberKÍ hótelsins <>K setustofur á öllum hæðum. iia’Kt verður að fá sjónvörp í Kestamóttöku hótelsins. Á lauxar- döKum ok sunnudöKum verða sýndar barnamyndir, sem sjást i veitinKabúð <>k að sjálfsöKðu í öllum öðrum tækjum í Hótei Loft- leiðum. Atta sinnum í vetur verður efnt til sérstakra landshluta- og átt- hagakvolda í Blómasal Hótels Loft- leiða. Á þessum átthagakvöldum mun verða kynntur matur og ann- að, sem sérkennilegt má teljast fyrir hvern landshluta. Söguleg upprifjun mun eiga sér stað og skemmtikraftar upprunnir í lands- hlutunum koma fram. Átthagakvöldin verða sem hér segir: 2. og 3. október verður Vestmannaeyjakvöld. Árni John- sen, blaðamaður, sér um dagskrána. 16. og 17. október verður Norðlend- ingakvöld. Ingimar Eydal frá Akur- eyri ásamt SIS á Akureyri mun sjá um matföng og dagskrá. 6. og 7. nóvember verður Austfirðinga- kvöld. Berta Jóhansen og fleiri munu annast dagskrá. 20. og 25. nóvember verður Vestfirðinga- kvöld. Barði Ólafsson frá ísafirði sér um dagskrá. 3. til 10. nóvember verður settur upp enskur „pub“ á Vínlandsbar. Mr. Sam Avent, sem hér var fyrir nokkrum árum, mun leika á píanó. I september og október verða tískusýningar í Blómasal á föstu- dögum kl. 12:30. Frá 1. nóvember til 1. apríl verða tískusýningar fyrsta föstudag hvers mánaðar. Þá verður sú nýjung tekin upp, að tískusýning á alhliða tískufatnaði verður annað hvert föstudagskvöld í Blómasaln- um. Módelsamtökin munu sjá um sýninguna. Þau föstudagskvöld, sem tískusýning er, verður sérstak- ur sælkeramatseðill á boðstólum. Hin vinsælu sælkerakvöld munu halda áfram í Blómasal á fimmtu- dagskvöldum. Verð er breytilegt eftir matseðli. Áhugamenn um matargerð munu stjórna öðru hverju fimmtudagskvöldi, verða gestum til leiðbeiningar um val víns, gerð matar og fleira. Síldarævintýri verður í Blómasal 2. til 14. febrúar í samvinnu við íslensk matvæli í Hafnarfirði. Þá verður vín- og ostakynning 4. til 7. mars í Blómasal í samvinnu við Osta- og Smjörsöluna. Þá er áætlað að hafa júgóslavneskar, ungverskar, hollenskar og grískar vikur og dönsk vika er fyrirhuguð. Nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir. Eins og að undanförnu munu afnot af sundlaug og sauna hótels- ins standa gestum til boða endur- gjaidslaust. Þá verður kennsla í slökun þrisvar í viku, þ.e. mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga og kennir Sóphanías Pétursson. Til að fyrirbyggja misskilning, skal tekið fram, að hér er ekki um yoga- æfingar að ræða heldur reglulega slökun. Leikfimiæfingar verða skipulagð- ar á sundlaugarsvæðinu á þriðju- Fólkið sem er potturinn og pannan i vetrardagskrá Hótel Loftleiða. British Tourist Authority mun sjá um skreytingar. 21. nóvember til 7. desember verða að Hótel Loftleiðum skoskir skemmtikraftar, „Donnie Large“, sem skemmta gestum með söng og harmónikkuleik í Biómasal og á Vínlandsbar. Þessir skemmtikraft- ar hafa komið fram víða í Evrópu. Á hverjum sunnudegi verður Vík- ingakvöld, þar sem sérstakur Vík- ingamatseðill verður á boðstólum. Undantekning frá þessu verður í desember. Þá mun jólaundirbún- ingurinn og jólastemmning verða alls ráðandi á sunnudagskvöldum. Hinn 6. desember verður Aðventu- kvöld, 13. desember Lúsíukvöld og 20. desember Jólapakkakvöld. Her- mann Ragnars mun stjórna dagskrá öll kvöldin. Kennsla í bridge og skák verður á hverjum laugardegi. Kennari verð- ur Páll Bergþórsson. Um miðjan desember verður kynning á japönskum mat í Blóma- sal. Tveir japanskir matreiðslu- menn koma í heimsókn ásamt Jakobi Magnússyni, hijómlistar- manni og Önnu Björnsdóttur, sem verða sælkerar kvöldsins. dögum, fimmtudögum og sunnudög- um og sér Jóhann Ingi um þann þátt líkamsræktarinnar. Svo vikið sé að matargerðarlist, þá verður sýnikennsla í Leifsbúð á hverju þriðjudagskvöldi kl. 17:00. Mataruppskriftir verða prentaðar á tveimur tungumálum. Nauðsynlegt er fyrir þá, sem áhuga hafa á sýnikennslunni að tilkynna þátt- töku hvert skipti. Hilmar Jónsson, veitingastjóri, mun annast sýni- kennsluna. í vetur munu mörg fyrirtæki í matvælaiðnaði kynna mat á sýnikennslunni í Leifsbúð. Það er Emil Guðmundsson, hótel- stjóri Hótels Loftleiða, ásamt sínu fólki, sem er potturinn og pannan í ofangreindri dagskrá. Hilmar Jónsson, veitingastjóri, Haraldur Benediktsson, yfirmatsveinn, Mar- grét Sigurðardóttir, móttökustjóri, Elísabet Hilmarsdóttir, bókunar- stjóri, og veitingastjórarnir Soffía Pétursdóttir og Arndís Axeisson. Einnig Þórunn Sigurðardóttir, kokkur, Margrét Finnbogadóttir, veitingamaður, og Guðrún Svein- bjarnardóttir, viðskiptafræðingur hótelsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.