Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981 Fjársafn Hrunamanna vænt af fjalli Fjársafn Hrunamanna kom af fjalli í áningarstað á Tungnafellsdal í gær, þar sem gist er síðustu nóttina áður en rekið er á réttarstað. Féð kemur vænt af fjalli að þessu sinni ok það var galsi í mannskapnum þe«ar komið var i náttból í gær, en meðfylgjandi myndir tók Sigurður Sigmundsson fyrir Morgunblaðið. A myndinni hér til hægri er Guðni Jónsson, fyrrverandi bondi að Jaðri í Hrunamannahreppi, 86 ára Kamall. en á hverju hausti fer hann á móti gangnamönnum til þess að sjá safnið renna niður af f jöllum og í gær hafði hann komið sér fyrir á góðum stað í stól sínum svo hann gæti notið feKurðarinnar <»k þess stórbrotna. Listahátíð í Reykjavík 1982 Tvö íslenzk tónverk frumflutt James Galway leikur með Sinfóníuhljóm- sveit Islands Sinfóníuhljómsveit íslands og Pólýfónkórinn undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. LISTAIIÁTÍÐ 1982 mun standa frá 5. til 20. júní na'sta sumar. Að sögn Örnólfs Árnasonar fram- kvamdastjóra Listahátíðar er dagskrá hátíðarinnar þegar að nokkru ákveðin, sérstaklega hvað varðar tónlistaratriði en sem kunnugt er hefur megin- áherzla vcrið lögð á tónlist á Listahátíðum. Eftirfarandi dagskráratriði Listahátíðar 1982 hafa þegar verið ákveðin. Listahátíðin verður sett með frumflutningi á viðamiklum kon- sert „Eddu oratorium" eftir Jón Leifs. Það verk er stærsta og trúlega metnaðarfyllsta verk Jóns, en hann samdi það á árunum eftir stríð. Sinfóníuhljómsveit Islands og Pólýfónkórinn flytja verkið undir stjórn Ingólfs Guðbrands- sonar. Hefur þetta verk ekki verið flutt áður m.a. vegna þess hve fjölmennan kór þarf til flutnings- ins, en 150 manns munu syngja í Pólýfónkórnum við flutning „Eddu oratoríum" Jóns Leifs. Hinn 6. júní verður annað ís- lenzkt tónverk frumflutt, óperan „Silkitrumban" eftir Atla Heimi Sveinsson. Koma þar fram 6 söngvarar og 24 manna hljóm- sveit, en einnig eru notuð ýmis tæki við flutninginn s.s. hljóð- bönd, myndskyggnur og kvik- myndir. Örnólfur Árnason samdi texta óperunnar, sem byggður er á fornu japönsku „no“-leikriti, en gerist í tízkuheimi nútímans. Þess má geta að japanska skáldið Yukio Mishima samdi einnig nú- tímaleikverk byggt á þessu leik- riti. Fyrir milligöngu V. Ashkenaz- ys, sem nýlega var kjörinn heið- Jón Leifs tónskáld. ursforseti Listahátíðar, hefur tek- ist að fá hinn heimsfragga írska flautuleikara James Galway til að koma á Listahátíð og mun hann leika með Sinfóníuhljómsveit ís- lands hinn 9. júní, stjórnandi verður David Measham. Á efn- isskránni verða verk eftir Haydn,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.