Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA I0100KL 10— 11 r FRÁ MÁNUDEGI Jlmm vegar á áhrifasvæði Portúgala, en kristnar þjóðir, þ.á m. Grænlend- ingar, voru skv. páfaúrskurði und- anskildar þegar páfi skipti heim- inum milli Spánverja og Portú- gala. Þetta gat flýtt fyrir rýmingu Eystribyggðar. Portúgalar slá eign sinni á Austur-Grænland um fimmtánhundruð en ekki Eystri- byggð. Skömmu seinna byrjar landnám Portúgala í Brasilíu og er það land innan marka páfa- úrskurðar. En Nýfundnaland er rýmt að mestu leyti. Eftir að íbúar Eystribyggðar hafa náð fótfestu í Acadie (ágæti) í nánu sambandi við umsvif Portúgala á Nýfundnalandi hafa þeir kynnst landi og sjávarafla sem var gjöfulla en Eystribyggð og þar að auki var hafin verslun við Evrópubúa eftir nokkurt hlé. Samdráttur í verslun við Portú- gala hefur komið þeim illa. En þá koma Frakkar til skjalanna og þeim er fagnað með hrópum á máli innfæddra: „Naþeu tondam- en ass ur tah“, þrátt fyrir fall- byssuskothríð Frakka, en sé „Na- þu tandamen oss ur stað“, talið mál Eystribyggja frá Grænlandi er hér fagnað skipi eldmanna (Tandr-eldur) frá stað (Noregi). Þessi fagnaðarfundur nyrst í New Brunswick, Kanada, þar sem Aca- dienne (ágæti = menn?) eru fjöl- mennastir enn í dag var upphaf að góðri sambúð Frakka og íbúa Austur-Kanada. En Bretar gerðu kröfu til þessara landa vegna ferðar Cabots, sem fann eða týnd- ist sjálfur á siglingu við austur- strönd Kanada rétt fyrir fimm- tánhundruð. Erjum Breta og Frakka lauk með því að Bretar eyddu byggðinni og fluttu fólkið suður (nú USA). Margir sneru heim og eru nú um tvöhundruð þúsund í New Brunswick. Þessir hringdu . . . „Aðeins andstæðing- um Sjálfstæðis- flokksins til ánægju“ Sigurjún Jónsson. Hrísateig 34., Reykjavík, hringdi og óskaði eftir að eftirfarandi pistill um málefni Sjálfstæðisflokksins yrði birtur í Velvakanda: „Hvað eigum við, hinir óbreyttu stuðningsmenn Sjálfstæð- isflokksins, að hugsa eftir öll þau orð sem skrifuð hafa verið um þá Geir og Gunnar. Skrifin hafa of oft verið á þann veg að þau hafa verið mörgum til leiðinda en aðeins andstæðingum Sjálfstæðisflokksins til ánægju. Við sem eigum því láni að fagna að hafa kynnst þessum báðum mönnum, vitum að þeir vilja ekki aðeins flokknum vel heldur eru og alltaf tilbúnir að veita hverjum þeim aðstoð sem til þeirra leita eftir því sem aðstæður leyfa. Velvakandi góður. Ég vil sér- staklega mótmæla skrifum þeim sem birtust í Staksteinum hinn 15. þ.m. um Gunnar, því þar er reynt á lævíslegan hátt að gera hann tor- tryggilegan sem góðan flokksmann. Það sem Gunnar er nú skammaður fyrir að segja er þó í samræmi við það sem ég heyrði forsætisráðherra segja á fjölmennum fundi fyrir mörgum árum, og var hann góður sjálfstæðismaður. Sá maður taldi það ekki veikleikamerki að láta menn njóta sannmælis þótt skoðan- ir væru að mörgu leyti skiptar til ýmisra mála, enda voru menn yfirleitt sáttir í nærveru þessa manns. Um þessa ríkisstjórn og þær tvær sem voru áður vil ég aðeins segja þetta. Látum reynsluna okkur að kenningu verða. I næstu kaupsamn- ingum verða það ein af aðalkröfum launþega að ná hliðstæðum kaup- mætti launa og var þegar Geir og Óli Jó voru við völd hér á landi. Mega þeir báðir vel við una. Ég vona að lokum að menn hætti öllu grjótkasti sín í milli — en myndi heldur samstöðu." Af kommafyrirtektum og vinstrigæðinga: „Við erum of fáir Islendingar til að geta alið marga slíka“ Alltaf er jafn fróðlegt að rifja upp söguna, og þarf ekki alltaf að fara langt aftur í tímann. Við höfðum hér framsóknarstjórn fram að stríðsbyrjun og reytti hún þjóðina inn að skinni, svo engin þjóð var sárfátækari, en íslend- ingar fyrir stríð. Stríðið kom og margvíslegar stjórnir hafa verið síðan. Fyrstu vinstristjórnina fengum við svo 1957, og eftir að sjávarútvegsmálaráðherrann hafði verið lengur í Rússlandi, en Ásmundur Garðaríkisfari, fengum við 12 mílna landhelgi, en aldrei komst Lúðvík lengra en í 50 mílur. Við eigum stjórn Geirs Hall- grímssonar 200 mílna fiskveiði- lögsöguna að þakka. Matthías Bjarnason varð þjóðinni happa- sæll í ráðherraembætti sínu, happasælli en ráðherrann sem stundum gleymdi alveg að láta endurskoða. Ingi R. Helgason hefði í ráðherratíð Matthíasar ekki fengið að fara flugleiðis, á skattborgaranna kostnað til Ástralíu, sem alveg hefði mátt spara með því að fá eitt eintak af hagtíðindum álfunar sent í pósti til iðnaðarráðuneytisins. Efnahagsástand Póllands og landana handan Járntjalds, og hinn eilífi matvælaskortur þar, er ekki sízt flokksgæðingum komm- únísta að kenna. Við eru of fáir íslendingar til að geta alið marga slíka — fyrsta vinstristjórnin varð ekki langlíf, en samt þurfti full 4 ár til þess að rétta við efnahag þjóðarinnar eftir hana. I þrettán ár höfðum við svo stjórn, sem þrátt fyrir fiskileysi og fleiri vandræði gat fært okkur Búrfells- virkjun, og þá fyrst var tekið á vegamálunum af einhverju viti og fleira mætti telja sem til framfara horfði á þessu tímabili. Á þeim árum komst framsókn, sem ungar út kommúnistum og Alþýðu- bandalagi, ekki upp með sinn moðreyk — þeir börðust þó af öllum kröftum gegn öllum þeim þjóðþrifamálum sem Viðreisnar- stjórnin kom í verk, og þjóðin nýtur nú góðs af. Almenningur ætti núna að lesa stjórnarand- stöðublöðin frá þeim tíma sér til glöggvunar fyrir næstu kosningar. Væri sá maður, sem ekki áttar sig á þessum hlutum, búinn að vera blindur, heyrnarlaus og máttlaus síðustu 20 árin. Þjóðinni til stór- skaða komust aftur til valda þessi óráðsíuöfl, sem núna eru aftur sest í valdastól. Með annarri vinstri stjórninni 1971 flæddu yfir þjóðina svo sterk sænsk áhrif, að síðan tala maður um þá sænsk- lærðu. í 30. árg. 5 tbl. Ásgarðs er úttekt á ýmsu frá Svíþjóð, og er það ljótur listi, sýnir manni að fátt gott er þaðan að fá. Áfengisvanda- mál, fíkniefnavaridamál o.fl. eru þar miklu alvarlegri en hér. Þeim sem því trúa, að bann lækni áfengisvandamálið, er ráðlagt að lesa þetta. Þjóðir sem aldrei láta sig dreyma um að bann lækni áfengissýki, þar sést varla nokkur undir áhrifum, og þar éta sig álíka margir í hel eins og drekka. Greinarhöfundur nefnir ekki að þrátt fyrir allt er í Svíþjóð sandur af félag- og sálfræðingum, orðið er frjálst og þar er verkt'allsréttur. Öll Austur-Evrópa vill flytjast þangað. Ég hef meiri áhyggju af 334 milljónum manna í Austur- Evrópu því þar er matvælaskort- urinn landlægur, ekkert frelsi og lífshættulegt að kvarta. Húsmóðir. bréfsins alveg óviðkomandi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. framkvæmdastjóri SÁÁ, hringdi og gerði athugasemd við yfirfyrirsögn er birtist í Velvakanda sl. þriðju- dag: „Sjúkdómurinn alkóhólismi og SÁÁ“, en aðalfyrirsögn bréfsins er „Læknaleikur“. Benti Vilhjálmur á að þarna væri mjög villandi fyrir- sögn að ræða því viðkomandi bréf fjalli alls ekki um SÁÁ eða starf- semi þess, þó aðeins sé vikið að samtökunum í upphafi bréfsins. Vildi hann að það kæmi skýrt fram að þó bréfritari væri einn starfs- manna SÁÁ þá tengdust þær skoð- anir og sú ádeila sem fram kemur í bréfinu samtökunum á engan hátt. Velvakandi harmar þau mistök að nafn samtakanna var sett í fyrirsögn bréfsins, en bendir á að villandi uppsetning þess gaf nokk- urt tilefni til. JCIZZBaLL©CCQKÓLÍ BÚPU Innritun í lokuðu tímana hafin. Vinsamlegast hafið samband við skólann sem fyrst. Upplýsingar og innritun í síma 36645. njoa rp>l8QQ0TioazzDr ____-__________________:- HVAÐ ER sebamed? Seba-med eru snyrti- og hreinlætisvörur með sérstakri efnasamsetningu, er hefur sýrugildið 5,5 sem merkir það að í þeim er alls engin venjuleg sápa. Þær eru því súrar og alkalílausar. Því styrkja þær og vernda náttúrulegt varnarlag heilbrigðs hörunds. Seba-med efnin eru samt sérstaklega ætluö þeim sem mega helst ekki nota venjulega sápu, enda voru þau þróuð í nánu samráði við húðsjúkdómastofn- anir og sjúkrahús. Seba-med hefur auk hreinsunar- og verndareiginleik- anna framúrskarandi eiginleika til að koma í veg fyrir myndun ólyktargerla. Eru þær þannig í eðli sínu öruggur svitalyktaeyðir. Þar sem seba-med hreinlætisvörur eru hannaðar fyrir viðkvæma húð, eru þær ákjósanlegar í baðvatn fyrir ungbörn og við hreinlæti í sambandi við hina leyndustu líkamshluti. Seba-med vörur eru notaðar meö góöum árangri gegn exemi, bólugreftri, sveppa- myndun og öörum húðsjúkdómum. Þær hafa veriö prófaöar af læknavísindamönnum og hlotið meömæli þeirra í hvívetna. Eftirtaldar vörur frá Seba-med eru nú fáanlegar: seba-med sápa í föstu formi, 90 gr. seba-med sápulögur fyrir hár og kropp, 150 ml. seba-med lotion 200 ml. seba-med krem, 60 ml. seba-med krembaðfreyðir, 150 ml. Fæst í öllum apótekum, helstu snyrtivöruverslun- um og flestum stórmörk- uðum. Heildsölubirgdir: Friðrik Björnsson, Pósthólf 9133 — 129 Rvík. Sími 77311.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.