Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.09.1981, Blaðsíða 44
Valur Aston Villa Eftir 13 daga iééi Ljósaperur ^ Sterkarog Einkaumbod d isiandí endingargóðar S SEGULLHF. Nýlendugötu 26 00 FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1981 Tugi hjúkrunar- frseðinga vantar Hjúkrunaríræðingar hóta fjöldauppsögnum - ófull- nægjandi hjúkrun á Kleppi, segir framkvæmdastjórinn „ÞAÐ vantar 30 hjúkrunarfræðinga til starfa á Kleppsspitalanum, ef viúunandi rekstur á að vera á þeim 13 deildum, sem þar eru starfræktar,“ sa>{ði Guðrún Guðnadóttir, framkvæmdastjóri Kieppsspitalans i viðtali við Morgunblaðið. ágúst og komst vöntunin upp í 79 vaktir á einni deild á þessu tímabili. Til þess að bjarga málunum, hafa hjúkrunarfræðingar nú orðið að taka að sér fleiri en eina vakt á sólarhring og stundum hefur það verið þannig, að aðeins einn hjúkrunarfræðingur hefur verið með 2 deiidir. Við höfum líka reynt að fá hjúkrunarfræðinga til að taka að sér einstakar vaktir, en auðvitað er það ekki heppilegt fyrirkomulag, því þeir komast aldrei vel inn í starfið. Það hefur verið þannig á Kleppsspítalanum, að aldrei hefur tekizt að manna í heimilaðar stöður enda þótt þær séu mun færri en æskilegt væri miðað við þá aukningu, sem orðið hefur á starfsemi spítalans á liðnum ár- um. Þó hefur ástandið aldrei verið eins slæmt og nú og hver maður getur séð, að ekki er hægt að veita fullnægjandi hjúkrun við þessi skilyrði svo eitthvað verður að gera til úrbóta," sagði Guðrún Guðnadóttir. Ilrunamenn heimtu fé sitt vænt af fjalli i gær og sitthvað fleira eins og sjá má, þvi svo langt sem augað eygir er vænt að sjá á myndinni sem Sigurður Sigmundsson tók í náttbóii Hrunamanna í Tungnafelisdal í gær. Sjá bls. 18. „Þessi skortur á hjúkrunarfræð- ingum hefur verið í allt sumar og hefur vinnuálagið verið því gífur- legt á þeim hjúkrunarfræðingum, sem hér eru fyrir. Svo er nú komið að þeir eru hreinlega að gefast upp á þessu ástandi. Þann 31. ágúst síðastliðinn var forráðamönnum Kleppsspítalans sent bréf, þar sem greint var frá núverandi stöðu og úrbótum, sem taldar eru koma til greina og jafnframt skýrt frá því, að ef ekki verður ráðin bót á þessum málum, þá muni koma til fjöldauppsagna hjúkrunar- fræðinga við spítalann. Sem dæmi um það ástand, sem ríkt hefur í sumar, þá vantaði hjúkrunarfræð- inga á 559 vaktir frá 1. júní til 15. Framkvæmdastofnun: Rúmur þriðjungur frystihúsa landsins í greiðsluþroti millj. kr. til skuldbreytingalána Stofnunin ver 25 STJÓRN Framkvæmdastofnunar samþykkti á fundi sínum 21. ágúst sl. að veita 22 hraðfrysti- húsum viðs vegar á landinu heimild tii að breyta vanskila- skuldum sínum við stofnunina i lán til 15 ára. Staða hraðfrysti- húsa er mjög slæm að sögn forstöðumanns lánadeildar Framkvæmdastofnunar og skulda þau mjörg hver miklar fjárha'ðir. þó misjafnlega miklar. NÚ MUNU frystihúsin i land- inu liggja með um 8000 lestir af karfaflökum i hirgðum og veldur þessi birgðasöfnun mörgum húsanna miklum rekstrarerfiðleikum, enda er Stjórn Framkvæmdastofnunar samþykkti að verja til þessara skuldhreytinga 25 millj. kr. Frystihús þau, sem viðskipti eiga við Framkvæmdastofnun, eru tæplega 60 að tölu, þannig að hér er um meira en einn þriðja hluta þeirra að ræða. Skuldbreytingalán þessi verða til 15 ára, bundin lánskjaravísitölu og afborgunar- laus fyrstu tvö árin. Þau bera 2% ársvexti. verðmæti þessara birgða um 8,8 millj. kr. (8800 millj. gkr.) að því er Morgunblaðinu var tjáð í gær. Karfaflök hafa hrannast upp í geymslum frystihúsanna það í viðtali Mbl. við forstöðumann lánadeildar Framkvæmdastofnun- ar kom í ljós að staða þessara frystihúsa er afleit. Þau hafa ekki getað staðið í skilum, en skuldir þeirra eru misháar og misjafnt hversu langur skuldahalinn er. Hann sagði forstöðumenn hús- anna telja að margt kæmi til, svo sem rekstrarerfiðleikar, vöntun á lausafé og ekki sízt há vaxtabyrði. sem af er þessu ári, enda hefur veiðin verið meiri en menn áttu von á, og sala á Rússlands- markað gengið treglega, en fram til þessa hefur stór hluti karfaflaka farið á þann mark- að. Rússar hafa greitt um 11 kr. fyrir hvert kíló af karfaflökum sem þeir hafa keypt á árinu og er það fyllilega samkeppnis- fært við það verð sem fengist hefur á Bandaríkjamarkaði fyrir karfaflök. Morgunblaðinu var sagt í gær, að væntanlega yrðu tekn- ar upp samningaviðræður við Rússa í nóvember nk. og gerðu menn sér þá vonir um að geta selt nokkurt magn af flökum til Rússlands. Fyrir viðskiptavið- ræður Islendinga og Rússa á dögunum höfðu menn gert sér vonir um sölu á a.m.k. 5000 tonnum, en aðeins tókst að selja 500 tonn. Listahátíð 1982: Silkitrumba Atla frumflutt Sjö meiriháttar tón- listaratriði ákveðin MEÐAL efnis á Listahátíð 1982 er frumflutningur Sinfóniu- hljómsveitarinnar og Pólifón- kórsins á „Eddu oratorium“ eftir Jón Leifs, undir stjórn Ingólfs Guðhrandssonar. Sjö meiriháttar tónlistaratriði hafa þegar verið ákveðin og hið áttunda í athugun. Meðal frægra tónlistarmanna sem hingað koma á Listahátíð að þessu sinni eru írski flautuleikarinn James Galway, fiðluleikarinn Gidon Kremer og píanóleikarinn Zoltan Kocsis. Þá verður frumflutt óperan „Silkitrumban" eftir Atla Heimir Sveinsson og Örnólf Árnason. Er það hálfs annars klukkutíma verk í nútímalegri uppfærslu. Þá mun hljómsveitin London sin- fónietta gista Listahátíð og ís- lenzka kammersveitin mun frumflytja nýtt tónverk eftir Þorstein Hauksson. Sjá hls. 18. Kindakjöt hækkar um 16% NÝTT landhúnaðarverð hefur verið ákveðið og kostar fyrsti flokkur af kindakjoti í heildsölu eftir hækkun- ina 36.86 krónur. hækkaði úr 31.71 krónum, eða um 16,10%. Læri kostar eftir hækkunina 52,00 krónur, hækkaði úr 44,90 krónum, eða um 15,8%. Kindalifur hækkar úr 37,15 krón- um í 40,30 krónur, eða um 8,48%. Hjörtu og nýru hækka úr 24,61 krónu hvert kíló í 26,70 krónur hvert kíló, eða um 8,50%. Heilslátur með sviðahausum og kíló af mör í ódýrustu pakkningum kostar eftir hækkun 38,70 krónur í stað 33,60 króna. Niðurgreiðslur eru óbreyttar, en verðhækkun á nautakjöti í dýrustu flokkunum er um 14%. 5 létust í um- ferðarslys- um í ágúst DAUÐASLYS í umferð urðu 5 hér á landi í ágúst sl. eða þremur fleiri en sama mánuð í fyrra. Hins vegar hefur dauðaslysum fækkað í ár, átta fyrstu mánuði ársins létust 12 ís- lendingar í umferðarslysum en 19 sömu mánuði í fyrra. Slys með meiðslum urðu 317 fyrstu átta mán- uði ársins 1981 eða nákvæmlega jafnmörg og sömu mánuði í fyrra. Þessar tölu koma fram í yfirliti Umferðarráðs. Karpov með læknisvottorð gegn íslenzku veðurfari ANATOLY Karpov. heimsmcist- ari i skák. har fyrir sig heilsufars- ástæöur þegar hann vildi ekki tefla I Reykjavík. Karpov lagði fram læknisvottorð um, að hann væri kvefsækinn og vegna þess að hrugðið gæti til beggja vona með veður á íslandi, fyrst og fremst vegna þess að svo mikill raki væri í loftinu. þá ka mi ekki til greina að hann tefldi við áskorandann Viktor Korchnoi hér á landi. Þetta kemur fram í opinberum gógnum af ársfundi FIDE, al þjoða skáksamhandsins. sem haldinn var i Atlanta í júli. Eins og kunnugt er, þá buðust þrjár borgir til að halda heims- meistaraeinvígi þeirra Anatoly Karpovs og Viktor Korchnois, Reykjavík, Meranó og Las Palmas. Korchnoi vildi tefla í Meranó, en hafði Reykjavík til vara, en Karp- ov valdi aðeins Las Palmas. Þeir sem til þekkja halda því þó fram, að ástæðan fyrir því, að Karpov vildi ekki tefla á tslandi hafi fyrst og frem3t verið sú, að Boris Spassky hefði misst titilinn til Bobby Fischers í Reykjavík. Karpov er sagður ákaflega hjá- trúarfullur og því óttaðist hann að sagan endurtæki sig. Um 8000 lestir af karfaflök- um í geymslum frystihúsanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.