Morgunblaðið - 17.01.1986, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986
9
Heimsmeistara-
keppnin í
handknattleik
í Sviss HM 1986
Hagstæð 5 daga ferð til Sviss 24. febrúar
til 1. marz 1986. Komið með og sjáið ís-
land leika 3 leiki íforriðlinum.
25. febrúar — Genf: ísland — Suður-Kórea .... kl. 19.00
25. febrúar — Genf: Rúmenía — Tékkóslóvakía . kl. 20.45
26. febrúar— Bern:ísland — Tékkóslóvakía .... kl. 19.00
26.febrúar— Bern: Vestur-Þýzkaland — Spánn .... kl. 20.45
28. febrúar — Bern: Rúmenía — ísland ........ kl. 19.00
28. febrúar — Bern: Danmörk — Svíþjóð ....... kl. 20.45
Dvalið verður í Bern
Innifalið í neðanskráðu verði er: Flugfargjald Keflavík/Lúxem-
borg/Keflavík, allur akstur, gisting (öll herbergi eru með baði
og síma), morgunverður, kynnisferð og sameiginleg skemmtun
ásamt kvöldverði í Bern þann 27. febrúar og aðgöngumiðar á
alla leikina.
íslenskur fararstjóri verður
með hópnum allan tímann
Verð fyrir manninn í tveggja
manna herbergi kr. 21.800
Verð fyrir manninn í eins manns
herbergi kr. 23.400
Allt verð er miöaö við gengisskráningu þann 6. nóvember
1985.
Austurstræti 17,
sími 26611.
Með stórmeistara
í stofunni!
2001 skáktölvan er einstök í
sinni röð, sannkallaður stór-
meistari skáktölvanna.
• Hún býr yfir 12 styrkleikastigum.
• Hún er eldfljót að hugsa.
• Hún er 100% sjálfskynjandi (enginn þrýst-
ingur á reiti þegar leikið er). Hún er skýr
og skemmtilegur heimilisvinur sem öll fjöl-
skyldan á eftir að hafa gaman af.
• Verð með staðgreiðsluafslætti er nú aðeins
kr. 13.985 (ca. 20% verðlækkun).
• Útsölustaðir í Reykjavík: Rafbúð Samband-
sins, Bókabúð Braga, Skákhúsið og hjá
Magna. j
• Söluaðilar úti á landi óskast.
Marco hf.,
Langholtsvegi 111.
Símar 687970/71.
ISameining Alþýðubladsins, Tímans og Þjódvilians:
Ekki pólitískar for-
sendur fyrir samruna
— sagði Svavar Gestsson á fundi Málfundafélags félagshyggjufólks
Blaðaraunir vinstri manna
Málfundafélag félagshyggjufólks efndi sl. þriðjudagskvöld
til opins fundar til að ræða hugmyndina um sameiningu
Alþýðublaðsins, Tímans og Þjóðviljans í eitt dagblað, sem
keppt gæti við Morgunblaðið og DV um hylli blaðalesenda.
Á fundinum komu ýmis forvitnileg atriði fram, eins og
lesa mátti í ýtarlegri frásögn hér í blaðinu í gær, og við
nokkur þeirra er staldrað í Staksteinum í dag.
Pólitísk
blaðamennska
Ljóst er nú, að samein-
iugarhugmyndin var
andvana fædd. „Það eru
ekki pólitfskar forsendur
fyrir því, að leggja þessi
blðð niður," sagði Svavar
Gestsson, formaður AJ-
þýðubandalagsins, sem
jafnframt er formaður
útgáfustjórnar Þjóðvilj-
ans, á málfnndinnm.
Hann sagði, að það væri
ekki um þá pólitísku
samstöðu að ræða milli
Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Fram-
sóknarflokks, sem gerði
samstarf um útgáfu
dagblaðs mögulega. Bolli
Héðinsson, hagfræðing-
ur, benti hins vegar á
það, að sldlja mættí að
almenn fréttaskrif og
stjómmálaskrif. Hægt
væri að útvega flokkun-
um ákveðnar blaðsiður
fyrir pólitískan málflutn-
ing og pólitískar frétta-
skýringar, en láta svo
almenna blaðamenn sjá
um annað efni. Svavar
Gestsson, sem er fyrrver-
andi ritstjóri Þjóðvijjans,
þekkir hins vegar ekki
slíkan aðsldlnað frétta
og stjómmálaboðskaps,
enda hefur slflct aldrei
verið tíðkað á blaðinu
hans. Þar er lesendum
ekki treyst til að draga
sínar eigin ályktanir af
staðreyndum, heldur
fylgja öllum fréttum út-
leggingar pólitískra
blaðamanna. Þeir Þjóð-
viljalesendur, sem vilja
kynnast staðreyndunum
sjálfum, verða þess
vegna að lesa Morgun-
blaðið.
Hér er einmitt komið
að kjama málsins. Á
fundinum var mikið
skrafað um yfirburði
Morgunblaðsins, „ægi-
veldi“ þess á blaðamark-
aðnum, eins og það var
orðað, en flestir fundar-
menn viku sér hins vegar
undan þvi að ræða hina
raunverulegu ástæðu
fyrir velgengni blaðsins.
Morgunblaðið er útbreitt
blað vegna þess að i því
er að finna fréttir og
annað efni, sem fólk vill
lesa. Það er ekki nóg að
hafa fjármagn á bak við
sig tíl að gefa út dagblað,
það verður líka að hafa
lesendur. Og dagblað,
sem viil ná verulegri út-
breiðslu, verður að bjóða
upp á efni, sem höfðar
til breiðs lesendahóps,
þ. á m. fólks, sem hefur
ólíkar hugmyndir um
markmið og leiðir f
stjómmálum. Bolli Héð-
insson viðurkenndi, að
enginn sem vildi fylgjast
með þjóðmálaumræðu og
atburðum líðandi stund-
ar, kæmist hjá því að lesa
Morgunblaðið. Jónina
Jónsdóttir kom svo orð-
um að grundvallaratriði:
„Farið þið bara og gerið
betur,“ sagði hún og
beindi orðum sinum til
ritstjóra Blaðaprents-
blaðanna. En á þvi skeri
steyta einmitt foringjar
vinstri manna. Þeir em
alltaf að hugsa um stórt,
pólitískt áróðursblað, en
átta sig ekki á þvi að
dagar slíkra blaða em
allir. Einhliða pólitísk
blaðamennska er tíma-
skekkja.
Af þessum ástæðum
myndi það engu breyta
þótt leiðtogar Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks
kæmust að samkomulagi
um eitthvert pólitískt
kvótakerfi í frétta- og
stjómmálaskrifum sam-
eiginlegs dagblaðs
vinstri manna. Slfkt blað
myndi einfaldlega ekki
höfða til nægilega
margra lesenda til að
unnt væri að reka það,
svo það væri samkeppn-
isfært við Morgunblaðið
ogDV.
Ríkisstyrkur
Ein leið til að halda
úti dagblaði, sem al-
mennir blaðalesendur
hafa ekki áhuga á og
kaupa ekki, er að fá ríkið
til að borga reikninginn.
Það gera t.d. valdhafar
í sósíalistaríkjunum. En
ekki þarf að faraút fyrir
landsteinana til að leita
að dæmum. Alþýðublaðið
er rekið með sæmilegum
hagnaði og það nánast
eingöngu fyrir ríkisfé,
en „ftjálsa" áskrifendur,
þ.e. þá sem kaupa biaðið
af áhuga fyrir efni þess,
má væntanlega telja á
fingrum sér. Svavar
Gestsson upplýsti á mál-
fundinum, að i „samein-
ingarviðræðunum“ við
[ formenn Alþýðuflokks
og Framsóknarflokks
hefði verið fjallað um
aiilrínn stuðning ríkLsins
við stjóramálaflokkana
og blaðaútgáfu þeirra.
Hann lét í jjós áhyggjur
vegna andstöðu sjálf-
stæðismanna við hug-
myndina, en virtist binda
vonir við að engu að síð-
ur væri unnt að ná sam-
stöðu um málið, svo sem
gerðist þegar framsókn-
armenn og stjómarand-
stæðingar hækkuðu hinn
opinbera blaðastyrk við
afgreiðslu fjárlaga i des-
ember.
Auðvitað er það frá-
leitt, að rfldð taki að sér
útgáfu blaða, sem verða
undir f samkeppni á
markaðnum. í þvi felst
nauðung, sem er rangiát,
þegar tekið er tiUit til
þess að skattgreiðendur
hafa þegar hafnað við-
komandi blaði sem neyt-
endur. Og í þvi felst líka
fyrirlitning á dómgreind
aimennings, svo ekki sé
minnst á sóun á almanna-
fé. Foringjar hinna
stjómlyndu vinstri
flokka láta sér hins vegar
aðfinnslur af þessu tagi
í léttu rúmi liggja. Þeir
telja sig eiga að hafa vit
fyrir fólki og halda að
þeir hafi rétt til að fara
með fé skattborgaranna
að geðþótta sínum.
Morgunblaðið/Emilfa
Nokkrir greinahöfunda og fulltrúar ritnefndar.
„Framtíðin í okkar höndum“
Bók Hvatar gefin út í lok kvennaáratugar
HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík og Landssamband
sjálfstæðiskvenna hafa gefið út
bók í tilefni af þvi að kvennaára-
tug Sameinuðu þjóðanna var að
ljúka. Bókin heitir „Framtíðin í
okkar höndum" og í henni eru
greinar eftir 15 höfunda, 12
konur og 3 karla, um ýmis efni.
Bókin var kynnt á fundi með blaða-
mönnum og sagði Bessí Jóhanns-
dóttir formaður ritnefndar það
sannfæringu sjálfstæðiskvenna í
lok kvennaáratugar, að hugsjónir,
sem byggja á frelsi einstaklingsins
til að lifa lífinu eins og hann sjálfur
kýs, séu virkasta vopnið í barátt-
unni fýrir jafnri stöðu kynjanna.
Stjóm Hvatar og Landssamband
sjálfstæðiskvenna ákváðu í byijun
árs 1985 að gefa út bók á árinu í
tilefni loka kvennaáratugarins. Rit-
nefnd var skipuð og áttu sæti í
henni, auk Bessíar, Ásdís J. Rafnar,
Jónína Michaelsdóttir, Margrét
Jónsdóttir og Sigríður Ambjamar-
dóttir. Ákveðið var að hafa greinar
bókarinnar ólíkar að efni, og reyna
að horfa til framtíðar i stað þess
að gera úttekt á stöðu kvenna í lok
kvennaaratugar.
Höfundar em Þorsteinn Pálsson,
Þórunn Gestsdóttir, Árdís Þórðar-
dóttir, Ása Steinunn Atladóttir,
Bessí Jóhannsdóttir, Eiríkur Ing
ólfsson, Jón Magnússon, Katrín
Fjeldsted, Margrét S. Einarsdóttir,
Margrét Jónsdóttir, Oddrún Kríst-
jánsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir,
Rósa Guðbjartsdóttir, Salóme Þor-
kelsdóttir og Sólrún Jensdóttir.