Morgunblaðið - 17.01.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986
Gunnar Þórðarson og Erlingur Björnsson stilla saman strengi sina.
„Hey, hey heyrðu mig góða“ ... Jensen og Rúni Júl. i góðu stuði. Morgunbiaðia/Bjami
nánast samstarf við Gunnar
undanfarin ár og hefur sungið
fleiri lög eftir hann inn á hljóm-
plötur en nokkur annar, eða yfír
40 lög. Björgvin mun meðal
annars koma frma með hljóm-
sveitinni „Lónlí blú bojs" sem
verður þarna á sínum stað með
„Búðardalinn" og „Harðsnúnu
Hönnu". Þá má heldur ekki
gleyma söngflokknum „Þú og
ég“, þeim Helgu Möller og Jó-
hanni Helgasyni, sem komu
Iögum Gunnars á vinsældarlista
í Japan og víðar. Þá munu Egill
Ólafsson, Eiríkur Hauksson og
Pálmi Gunnarsson syngja nokk-
ur af nýrri lögum Gunnars.
Dýrasta sýning-
á Broadway
Að sögn Ólafs Laufdal, veit-
ingamanns, er „Söngbók Gunn-
ars Þórðarasonar" viðamesta og
dýrasta sýning sem sett hefur
verið upp í Broadway til þessa.
„En ég er stoltur af því að geta
boðið upp á þessa sýningu. Sér-
staklega er þetta ánægjulegt
fyrir mig þar sem þama koma
fram margir af mínum bestu
yinum í gegnum tíðina,“ sagði
Ólafur.
Yfír 30 manns taka þátt í
sýningunni, þar með talin stór-
hljómsveit Gunnars, strengja-
sveit, tæknimenn, Páll Þor-
steinsson kynnir og Egill Eð-
varðsson sem stjómar sviðsetn-
ingu. A hveiju borði verður
bæklingur, með ágripi af ferli
Gunnars eftir Þorstein Eggerts-
son og textum þeim sem fluttir
verða, þannig að menn geta
sungið með ef þeim sýnist svo.
Menn hafa reiknað það út,
að seldar hljómplötur, þar sem
Gunnar hefur komið sögu, annað
hvort sem tónsmiður, útsetjari
eða hljómlistarmaður, séu nú
orðnar yfír ein milljón talsins.
Eru þar með talin lög hans með
„Þú og ég“ sem náðu vinsældum
víða erlendis svo og lagið „Show
me you like me“, sem komst á
vinsældarlista í Michigan-ríki í
Bandaríkjunum á sínum tíma.
Það er því tæpast ofmælt, þótt
fullyrt sé, að Gunnar Þórðarson
sé afkastamesti tónlistarmaður
landsins og enn lætur hann
engan bilbug á sér fínna, eins
og nýja platan hans „Borgar-
bragur" sýnir. í því sambandi
má vitna í orð Björgvins Hall-
dórssonar, sem annast hefur
framkvæmdastjóm við upp-
færslu sýningarinnar í Broad-
way. „Mesta vandamálið var að
velja lög úr þessum mikla
Qölda."
— Sv.G.
„Söngbók Gunnars Þórðarsonaru opnuð um helgina:
Stoltur að geta boðið
upp á þessa sýningu
— segir Ólafur Laufdal
veitingamaður á Broadway
HLJÓMAR FRÁ Keflavík, stórstjömur íslenska poppbransans á
sjöunda áratugnum, hafa að. undanfömu verið að dusta rykið af
„gömlu lummunum", sem gerðu þá að einni vinsælustu hljómsveit
sem íslands hefur alið. Þeir, ásamt fjölmörgum öðrum söngvurum
og tónlistarmönnum, em nú að leggja síðustu hönd á undirbúning
að sýningu í Broadway, þar sem byggt er á verkum Gunnars
Þórðarsonar, en sýningin, sem ber heitið „Söngbók Gunnars
Þórðarsonar“ verður frumsýnd á laugardaginn næstkomandi.
„Það er stórskemmtilegt að
standa í þessu, en við tökum
vissa áhættu. Við verðum að
standa okkur til að eyðileggja
ekki „nostalgiuna“, sagði Rúnar
Júlíusson, er blaðamaður Morg-
unblaðsins leit inn á æfíngu í
Broadway nú í vikunni. Þeir fé-
lagar Gunnar, Rúnar, Engilbert
Jensen og Erlingur Bjömsson
virtust þó hinir sprækustu á
æfíngunni. Það var einna helst
Erlingur, sem virkaði svolítið
feiminn við „míkrófóninn", en
hann sagði að það myndi ijátlast
af sér er frá liði. Það væru
auðvitað viðbrigði fyrir sig að
vera allt í einu kominn upp á
svið, eftir 15 ára hlé. Hljómamir
renndu í gegnum nokkur af sín-
um vinsælustu lögum eftir.
Gunnar, „Fýrsta kossinn", „Lífs-
gleði“ (Allir kvarta og kveina),
„Hey, hey, heyrðu mig góða“
og Jensen tók að sjálfsögðu
„Bláu augun þín“. Þá er von á
Shady Owens í hópinn með lagið
„Ég elska alla“, en hún kemur
sérstaklega til landsins til að
taka þátt í sýningunni.
sviði í þá tíð. Einnig stóðu vonir
til að Magnús Kjartansson sæi
sér fært að skreppa af Sögu, til
að taka þátt í sýningunni. Þá
mun Karl Sighvatsson vera
væntanlegur heim frá námi í
Bandaríkjunum síðar í vetur og
er fastlega búist við að hann
muni þá ganga til liðs við þá
félaga í Trúbrot.
Margir fleiri koma við sögu í
„Söngbók Gunnars Þórðarsson-
ar“. Björgvin Halldórsson lætur
sitt ekki eftir liggja, en hann er
sá maður sem átt hefur hvað
Björgvin og Engilbert ræðast við, og ekki ósennilegt að „Lónli
blú bojs“ hafi borið þar á góma.
Shady mun einnig koma fram
með hljómsveitinni „Trúbrot",
sem flytur valda kafla úr tón-
verkinu „Lifun“. Trúbrot var
fyrsta svokallaða „súpergrúppa“
á íslandi og þar komu við sögu
margir þekktir kappar. Þeirra á
meðal var Gunnar Jökull Hákon-
arson, trommuleikari, sem verð-
ur með á sýningunni í Broadway.
Er ekki að efa, að marga fysir
að heyra í Jöklinum á ný, en
hann var yfirburðamaður á sínu
Gunnar virðist áhyggjufullur út af einhveiju atriði. Til vinstri eru Páll Þorsteinsson kynnir og
Egill Eðvarðsson, sem stjóraar sviðsetningu sýningarinnar.