Morgunblaðið - 17.01.1986, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986
■ /• - • ■•.<
4 fá&L ;4>*, ■ ' *' ' t
AP/Símamynd
Inn á Miðjarðarhaf
Sovézka beitiskipið „Slava-108“ á siglingu
í Bosporussundinu í gœr. Skipið, sem hefur
stýriflaugar um borð, sigldi inn á Miðjarð-
arhafið í gær ásamt freigátunni „Krivak-
Ladny-824“. Talið er að sigling skipanna
inn á Miðjarðarhaf standi í beinu sambandi
við þá spennu, sem þar hefur verið í fram-
haldi af árásum hryðjuverkamanna á flug-
völlunum í Róm og Vín, en Bandaríkjamenn
hafa sagt þá hafa notið aðstoðar Líbýu-
manna.
Finnland:
Andsovézk kvik-
mynd bönnuð
Helsingfors, 16. janúar. AP.
KVIKMYNDAEFTIRLITIÐ í Finnlandi hefur bannað nýja finnska
spennukvikmynd. Mynd þessi heitir á ensku „Born American**
(Fæddur Bandaríkjamaður). Heldur finnska kvikmyndaeftirlitið
þvi fram, að myndin hafi að geyma allt of mikið ofbeldi og geti
„skaðað samskipti Finnlands við önnur ríki“.
Finnskir kvikmyndagagnrýnend-
ur segja, að búast hafi mátt við
því, að kvikmyndin, sem sé greini-
lega „andsovézk", yrði bönnuð í
Finnlandi. Þar breyti engu, þótt
bandaríska myndin „Rambo", sem
finnska myndin hefur að fyrirmynd,
sé leyfð í Finnlandi.
Tveir ungir Finnar stóðu að gerð
mjmdarinnar „Fæddur Bandaríkja-
maður", sem kostaði um 2 milij.
doliara. Þeir eru Lauri Haijola,
stjómandi myndarinnar og Markus
Selin, framleiðandi hennar. Haijola
var í Los Angeles og Selin í Osló
í því skyni að selja sýningarrétt á
myndinni, er kvikmjmdaeftirlitið í
Finnlandi bannaði hana á þriðjudag.
Söguþráður mjmdarinnar er á þá
leið, að þrír ungir Bandaríkjamenn
villast fra Lappahéruðum Finnlands
inn í Sovétríkin, þar sem þeir eru
teknir til fanga af Rauða hemum.
Síðan sleppa þeir og tekst að skjóta
sér leið til frelsins. „Þetta er skot-
hríð frá upphafí til enda,“ var í dag
haft eftir Ralf Ditor, útgefanda
fínnska dagblaðsins Iltalehti, sem
var einn örfárra utan finnska kvik-
mjmdaeftirlitsins, er séð höfðu
mjmdina.
Evrópuríkin njóta
lækkunar olíuverðs
Brussel, 16. janúar. AP.
VERÐLÆKKUN sú á olíu, sem hófst fyrir alvöru fyrir fjórum árum,
er nú farin að segja til sin í Evrópuríkjum, sem borga loks lægra
verð f yrir þá oliu sem, þau kaupa.
Aðal ástæðan fyrir því að það
er loks nú sem umtalsverð lækkun
á olíuverði á sér stað er gengislækk-
un Bandaríkjadollars að undan-
fömu. Sérfræðingar segja að olíu-
fatið hafi lækkað að meðaltali um
25% í ríkjum Evrópubandalagsins
frá því í marz, í gjaídmiðli viðkom-
andi ríkis talið, og þeir spá því að
olían eigi eftir að lækka um 35%
til viðbótar á þessu ári.
Verðlækkun þessi á eftir að hafa
gífurleg áhrif á efnahagslíf ríkja
Vestur-Evrópu, að sögn hagfræð-
inga. Bretland og Noregur em þar
undanskilin, lækkunin mun hafa
öfug áhrif þar vegna minnkandi
tekna af olíuvinnslu í Norðursjón-
um.
Sérfræðingar EB spá því að
dollar eigi eftir að lækka um önnur
10-15% gagnvart evrópskum gjald-
miðlum á þessu ári. Sú skoðun er
GJALDMIÐLA
GENGI
London, 16. janúar. AP.
GULL snarhækkaði i verði í dag,
en Bandaríkjadollar lækkaði.
Þessu ollu bollaleggingar um
vaxtalækkun í Bandarikjunum i
kjölfar fyrirhugaðs fimmvelda-
fundar i London um helgina.
Hækkaði gullið um 15 dollara
únsan í London og 13 dollara í
Ziirich.
Síðdegis í dag kostaði sterlings-
pundið 1,4400 dollara (1,4435), en
að öðru lejrti var gengi dollarans
þannig, að fyrir hann fengust
2,4610 vestur-þýzk mörk (2.4560),
2,08075 svissneskir frankar
(2,08225), 7,5525 franskir frankar
(7.5625), 1.674,50 ítalskar lírur
(1,681,50), 1.40265 kanadískir
dollarar (1,40675) og 202,39 jen
(202,95).
í London var verð á gulli 361,00
dollarar hver únsa (346,20) en
360,50 íZörich (347,50).
rejmdar almenn meðal hagfræð-
inga, enda þótt þeir hafi fátt til að
byggja skoðun sína á.
Olíuverð hefur verið miðað við
dollara og hefur þróun dollars
undanfarin fjögur ár hækkað það
verð, sem Evrópuríkin hafa greitt
fyrir olíu, enda þótt verðlækkun
hafí átt sér stað í dollurum talið.
Áhrifin hafa verið önnur í Banda-
ríkjunum, þar sem olían stórlækkaði
í verði. Þannig hækkaði innkaups-
verð á olíu um 8% í evrópskum
gjaldmiðlum talið árið 1984, enda
þótt dollar lækkaði þá í verði um
4%, og þótt OPEC-ríkin hafi lækkað
olíuverð um 15% í marz 1983 þá
hækkaði innkaupsverð í Evrópuríkj-
unum um 25% vegna verðhækkunar
á dollar.
Mikil lækkun dollara síðustu
mánuði hefur hins vegar breytt
þessari þróun til hins betra fyrir
Evrópuríkin, að Bretlandi og Noregi
undanskildum. Þá er bæði spáð
frekari verðlækkun á næstu vikum,
um jafnvel 2-3 dollara fatið, og
einnig verðlækkun á dollara, svo
menn sjá fram á enn betri tíma.
Hagvöxtur muni aukast, verðbólga
minnka, einkaneyzla aukast, og
hægt yrði að leggja grunn að efna-
hagslegri endurreisn.
Veður
víða um heim
Lœgst Hœst
Akureyri +4 skýjað
Amsterdam 0 5 skýjað
Aþena 6 15 heiðskirt
Barcelona 15 léttskýjað
Briissel +3 4 heiðskírt
Chicago +16 3 skýjað
Dublín 3 7 skýjað
Feneyjar 2 þoku- móöa
Frankfurt 1 7 skýjað
Genf 2 6 rigning
Helsinki +18 +8 heiðskirt
Hong Kong 16 19 skýjað
Jerúsalem 4 11 skýjað
Kaupmannah. +3 2 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 9 15 heiðskírt
London 2 5 skýjað
Los Angeles 14 20 skýjað
Lúxemborg 1 haglél
Malaga 71 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Miami 4 20 heiðskirt
Montreal +16 +15 skýjað
Moskva +1 0 skýjað
NewYork +13 +4 skýjað
Osló +13 ð skýjað
Parfs 4 8 skýjað
Peking +8 6 heiðskfrt
Reykjavík 1 úrk. f gr.
RíódeJaneiro 21 35 skýjað
Rómaborg 8 17 heiðskfrt
Stokkhólmur +10 +7 skýjað
Sydney 21 25 rigning
Tókýó 3 6 úrkoma
Vinarborg 3 12 skýjað
Þórshöfn +1 skýjað
Svíþjóð:
Fólksflótti hinna ríku skal stöðvað-
ur með hagstæðari skattareglum
Stokkhólmi, 16. janúar. Frá fréttaritara Morgunbladsins, Erík Lidén.
NÚ Á að koma í veg fyrir flótta þeirra ríku frá Sviþjóð - ekki
með þvingunum heldur með hagstæðari skattareglum. Það er
engin önnur en stjóm jafnaðarmanna sjálfra, sem hyggst með
þessum hætti stöðva þennan óæskilega fólksflótta.
Lástinn yfir auðuga Svía, sem
jrfirgefið hafa heimaland sitt,
hefur lengst mikið og á síðasta
ári einu saman mátti Kjell-Olof
Feldt jgármálaráðherra sjá á eftir
peningum að fjárhæð 2 milljarðar
s. kr. (um 11 milljarðar ísl. kr.) úr
landi og árið áður hafði þetta fé
numið 3 milljörðum s.kr. (rúml.
16 milljörðum ísl. kr.).
Á þessum lista má finna mörg
þekkt nöfn. IKEA-stofnandinn
Ingvar Kamprad er einn, erfingi
Wallenbergauðæfanna, Peter
Wallenberg, er annar og svo má
lengi halda áfram. Þá hefur það
ekki síður komið sér illa fyrir
stjómina, að vinsælir listamenn,
eins og meðlimir í ABBA, eða
þekktir atvinnumenn í íþróttum
t. d. aliar tennishetjur Svíþjóðar
hafa valið þann kostinn að setjast
að í löndum, þar sem skattalögin
eru þeim vinsamlegri en heima í
Svíþjóð.
Mikil umræða hefur átt sér stað
í Svíþjóð um það, hvað eigi að
gera til þess að fá þetta fólk til
þess að vera þar kyrrt. Ein virk-
asta aðferðin í því skyni er að
margra áliti að gera umbætur
þeim í hag á skattakerfinu og nú
er sænska stjómin komin á þá
skoðun, að setja verði lagareglur
þar að lútandi til þess að tryggja
það að þetta fólk fari ekki úr
landi.
Það sem úrslitum réð, var atvik,
sem gerðist nú í haust. Þá til-
kynnti fremur lítið þekktur for-
stjóri, Fredrik Lundberg, sem á
eignir yfír 1 milljarð s.kr. (um 5.5
milljarða ísl. kr.), að hann sæi sig
tilneyddan af skattaástæðum til
þess að flytjast frá Sviþjóð til
Sviss. Áður hafði systir hans, sem
á eignir að ijárhæð 900 millj.
s.kr., flutzttil Englands.
í stuttu máli er vandamálið
einkum fólgið í reglunum um
erfðafjárskatt og hlutabréfaskatt.
Til þess að geta greitt erfðafjár-
skattinn verða erfíngjar oft að
selja hlutabréf og við slíka sölu
Leikstjórinn og kvikmynda-
framleiðandinn Ingmar Berg-
man var einn þeirra, sem sáu
sig tilneydda til þess að fara
frá Sviþjóð af skattaástæðum.
er svo skattur lagður á mismuninn
á nafnverði og söluverði. Þetta
þýðir svo, að selja verður enn
fleiri hlutabréf.
Þegar arfleiðandinn hefur verið
aðal hlutabréfaeigandinn í hluta-
felagi kann þetta aftur á móti að
hafa verðlækkun á hlutabréfunum
í för með sér. Sænsku skattaregl-
umar taka hins vegar ekkert tillit
til slíkrar verðlækkunar. Sú fjár-
hæð, sem skatturinn er reiknaður
af, er verðmæti hutabréfanna á
dánardægri hins látna.
Fyrir ári lézt einn af auðugustu
mönnum Svíþjóðar. Hann lét eftir
sig 300 millj. s.kr., sem voru
fólgnar f hlutabréfum í einu og
sama hlutafélaginu. Dánarbúið
varð gjaldþrota. Eignir þess
nægðu ekki til þess að greiða alla
þá skatta, sem greiða þurfti af
því.
í haust fól Kjell-Olof Feldt flár-
málaráðherra sérstakri nefnd að
koma hið bráðasta fram með til-
lögur í þessu máli. Þessar tillögur
hafa nú verið lagðar fram og em
þær á þá leið, að skattar verði
ekki reiknaðir af 100% hluta-
Qárarfsins heldur aðeins af 75%
af honum. Gert er ráð fyrir, að
ríkisstjómin geri þessar tillögur
að sínum og að þær verði lagðar
fyrir sænska þingið á þessu ári.
Hvort þetta nægir til þess að
stöðva frekari flótta auðugs fólks
frá Svíþjóð til annarra landa er
ekki vitað enn, en þeir em marg-
ir, sem efast um það.