Morgunblaðið - 17.01.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1986
23
Rússar kvarta undan
bandarískri flusrsveit
Tókýó, 16. janúar. AP.
EDUARD Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétrikjanna, lét í ljós er 925 kflómetrar en innan þess
áhyggjur við hinn japanska starfsbróður sinn, Shintaro Abe, vegna
staðsetningar bandarískrar orrustuflugsveitar í norðurhluta Japan.
Shevardnadze er nú í heimsókn í Japan, fyrsti sovézki utanríkisráð-
herrann sem þangað fer í áratug. Sovétmenn gerðu sér vonir um
að undirritað yrði samkomulag um menningarleg samskipti ríkjanna,
en háttsettir embættismenn í Tókýó segja að ekkert verði af þvi þar
sem Japanir hafi ekki sömu möguleika á að kynna japanska menn-
ingu í Sovétríkjunum og Sovétmenn hafí á að kynna sina menningu
í Japan.
Bandaríkjamenn staðsettu sveit að vega upp á móti hemaðarupp-
50 F-16-orrustuflugvéla í Misawa- byggingu Sovétmanna í Asíu. Bar-
flugstöðinni í Norður-Japan til þess dagaradíus flugvélanna frá Misawa
Bandarískir bankar:
Starfsmenn stórtæk-
ari en bankaræningjar
Miami, Flórida, 16. janúar. AP.
OPINBERAR skýrslur benda til, að bandariskir bankastarfsmenn
hafi stolið 382 milljónum dollara á árinu 1984, eða niu sinnum meira
fé en bankaræningjar.
Sérfræðingar segja, að þetta sé
aðeins eitt dæmi um, að auðgunar-
brot fari í vöxt hjá starfsmönnum
fyrirtækja. Er áætlað, að tjón fyrir-
tækjanna af þessum sökum nemi
ríflega einum milljarði dollara ár
hvert.
Allt að 75% af 119 gjaldþrotum
banka á síðasta ári kunna að eiga
rót sína að rekja til svika og fjár-
dráttar starfsmanna, að því er
Caridad Matthews aðstoðardóms-
málaráðherra telur.
Að sögn sérfræðinga í viðskipta-
lífinu eru bankamir ekki einu fyrir-
tækin, sem verða fyrir tjóni af þessu
tæi. Þjófnaður starfsmanna í smá-
söluverslunum er mun alvarlegra
vandamál en hnupl og innbrot til
samans. Á árinu 1984 greiddu
tryggingafélög smásöluverslunum
344 milljónir dollara í bætur vegna
þjófnaða starfsmanna, og var það
næstum tvöfalt hærri upphæð en
félögin urðu að punga út af þessum
sökum á árinu 1980, að sögn Rob-
erts Hepbums, varaforseta sam-
bands bandarískra ttyggingafé-
laga.
Og bótakröfumar nema þó í
hæsta lagi 20% af andvirði þess,
sem starfsfólkið tekur ófxjálsri
hendi, að sögn Hepbums. Hann
áætlaði, að það næmi um einum
milljarði dollara á ári.
A árinu 1983 upplýsti FBI 319
fjársvika- og fjárdráttarmál í bönk-
um, að því er dagblaðið Miami
Herald greindi frá á mánudag. Á
árinu 1985 voru 509 slík mál upp-
lýst.
Samt sem áður gerist það oftar
en hitt, að sögn blaðsins, að látið
sé sitja við að reka fíngralanga
starfsmenn og sleppt að sækja þá
til saka. Þannig geta þeir auðveld-
lega ráðið sig í svipuð störf hjá
öðnim fyrirtækjum.
svæðis er hin mikla flotastöð Sovét-
manna í Vladivostok.
Ráðherramir ræddust við í þijár
stundir á fyrsta fundi sínum um
ástandið á Kóreuskaganum, nýj-
ustu afvopnunartillögur Mikhails
Gorbachev og tillögur Rússa um
öryggismálaráðstefnu Asíuríkja.
Rússum er mjög áfram um að ráð-
stefna af þessu tagi verði haldin,
en Japanir hafa sýnt hugmyndinni
lftinn áhuga.
Hermt er að Abe hafi lagt að
Shevardnadze að beita sér fyrir
þvf að dregið verði úr spennu á
Kóreuskaganum með því að telja
ráðamenn í Pyongyang í Norður-
Kóreu á að taka upp raunhæfar
viðræður þar að lútandi við yfirvöld
í Seoul. Shevardnadze heldur til
Pyongyang er hann lýkur Japans-
heimsókn sinni á sunnudag.
Ráðherramir munu á fundum
sínum ræða mál, sem varða sam-
skipti ríkjanna, þ. á m. deiluna um
eyjar norður af Hokkaido, sem
Rússar lögðu undir sig við lok
heimsstyrjaldarinnar. Japanir gera
tilkall til eyjanna og undirrita ekki
samkomulag við Rússa um að
heimsstyijöldinni síðari sé lokið fyrr
en þeir hafa fengið þær til baka.
Hungrið sverfur að
AP/Símamynd
Þrátt fyrir að talsvert sé gert til að minnka hungrið í heiminum,
nægir það engan veginn til. Myndin sýnir starfsmann hjálpar-
stofnunarinnar vigta og mæla barn á þurrkasvæðunum í Malí
í Afríku.
Ný hugmynd beint frá Ameríku
í fyrsta sinn í Evrópu.
.VETRAR
UTSALA
STENDUR í 4 DAGA
FIMMTUDAG - FÖSTUDAG - LAUGARDAG - SUNNUDAG
Þú klippir út f rímiðann hér á síðunni kemur i
* X.
/ X,
t' A
/
Þú klippir út f rimiðann hór á síðunni kemur / A^ %
á Sprengisand kaupir einn hamborgara og / /v ^
færð annan frítt. / A' /V ^ ❖
__________/
VEITINGAHUSIÐ
SPRENGISANDUR
IbÚSTAÐAVEG 153 s. 688088
VERIÐ VELKOMIN, VERÐI YKKUR AÐ GÓÐU - TOMMI
// f
x <y
X
Shevardnadze í Japansheimsókn:
Sinfóniuhljómsveit íslands
Vínartónleikar
endurteknir
laugardaginn 18. janúar
kl. 17.00 í Háskólabíói.
Stjórnandi: Einsöngvari:
Gerhard Deckert. Ka tja Drewing.