Morgunblaðið - 17.01.1986, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR17. JANÚAR1986
Hispania-kvikmynda-
klúbburinn:
Sýning
á morgun
Hispania-kvikmyndaklúbbur-
inn efnir til kvikmyndasýningar
í Regnboganum, E-sal, á morgun
laugardag kl. 15.15. Sýnd verður
kvikmyndin „Furtivos", sem gerð
var árið 1975. Leikstjóri er José
Luis Borau.
Myndin ijallar um ungan pilt,
Angel, sem býr með móður sinni í
skóglendi upp til flalla og stundar
veiðiskap, en með leynd. í heimsókn
í borginni kynnist hann Milagros,
sem flúið hefur af betrunarhæli.
Hann leynir stúlkunni og fer síðan
með hana heim til sín, móður hans
mjög að skapi. Ráðamaður í hérað-
inu, sem bamungur var í fóstri hjá
konunni, leggst á sveif með syni
hennar er hann vill kvænast stúlk-
unni. Maður sá er Milagros hafði
áður verið í tygjum við flýr réttvís-
ina og Angel er beðinn aðstoðar við
að hafa uppi á honum þar sem
hann leynist í skóginum, en í stað
þess að taka hann höndum hlítir
Angel ráðum móður sinnar og hjálp-
ar honum að komast undan. En er
hann kemur heim segir móðir hans
að Milagros hafl hlaupist á brott
að leita uppi ástmann sinn fyrrver-
andi. Angel gerist skógarvörður og
afsalar sér fyrra frelsi. Dag nokk-
um rekst hann á útilegumanninn
og er sá biður hann að hjálpa sér
að ná fundum Milagros vakna með
Angel grunsemdir um hvarf hennar.
Nokkm síðar kemst hann að þvf
að Milagros er ekki lengur lifs og
tekur að leggja á ráðin um að hefna
hennar.
Búnaðarsam-
band Suður-
lands með
fræðslufundi
BÚNAÐARSAMBAND Suðurlands
efnir til fræðslufunda á Suðurlandi
um tilraunamál og fleira. Ifyrsti
fundurinn verður 17. janúar kl. 14
á Kirkjubæjarklaustri, næsti fundur
sama dag í Ketilsstaðaskóla í Mýr-
dal kl. 21.00. Þriðjudaginn 21.
janúar verður fundur í félagsheimil-
inu Hvoli kl. 21 og miðvikudaginn
22. janúar verður fundur í Borg
Grímsnesi og þann sama dag í
Þjórsárveri kl. 21.00.
Þau fermdust 2. júní 1935: (f.v.) Haraldur Brynjólfsson, Króki; Þorsteinn Jónsson, Kaðlastöðum;
Emil Hjartarson, Litla-Fjalli; Ingibjörg Ingólfsdóttir, Múlakoti; Margrét Tómasdóttir, Tandraseli;
Guðrún Þórðardóttir, Högnastöðum; Halldór Þorbjamarson, Neðra-Nesi; Guðrún Einarsdóttir,
Stóra-Fjalli; Ingibjörg Eirfksdóttir, Grjóti; Halldóra Magnúsdóttir, Laugalandi; Kristín Björnsdóttir,
Sveinatungu (var skirð); Vigdís Björnsdóttir, Sveinatungu; Gísli Bjömsson, Sveinatungu (var skirð-
ur); Ólafur Eiriksson, Grjóti og Þórður Kristjánsson, Hreðavatni.
Stafholtskirkja:
Fimmtíu ára ferm-
ingarbörn hittast
Stafholti, 15. janúar.
FYRIR rúmlega hálfri öld, þ.e.
sunnudaginn 2. júni 1935 sem
ber upp á þrenningarhátið, er
mannaferð æði mikil í sveitun-
um norðan og vestan Hvitár i
Borgarfirði. Allt stefnir þetta
fólk á einn stað, til kirkjunnar
i Stafholti.
Þennan dag ætlar sóknarprest-
urinn þar, sr. Gísli Einarsson, að
ferma 14 böm og skíra 3, þar af
tvö bamaböm sín. Þetta er því
mikil hátíð og margt fólk við
kirkju í vorblíðunni.
Sr. Gísli er orðinn maður aldur-
hniginn, kominn á 78. aldursár
og þetta verður eitt af síðustu
prestsverkum hans, enda hefur
hann fengið lausn frá embætti
einmitt þetta vor.
En því er þetta rifjað upp hér,
að nákvæmlega 50 ámm síðar,
2. júní 1985, sem líka ber upp á
þrenningarhátíð, koma 13 af
þessum 14 fermingarbömum, auk
þeirra sem skfrð vom, saman í
Stafholtskirkju. Aðeins einn vant-
ar í hópinn, Þorstein Hjálmsson
frá Hofsstöðum, sem látinn er
fyrir allmörgum ámm.
Að lokinni helgistund í kirkj-
unni í umsjón sóknarprestsins,
Biynjólfs Gíslasonar, þar sem
skírt er bamabam eins skím-
þegans er farið í veitingaskála
BSRB í Munaðamesi og dmkkið
kaffí og rifjaðar upp gamlar
minningar. Að lokum er svo farið
út á stéttina fyrir utan skálann
og tekin mynd af hópnum í vor-
bliðunni.
Skylt er að geta þess, að af
þessu tilefni var kirkjunni færð
vegleg peningagjöf.
— Fréttaritari
Sr. Gísli Einarsson og kona hans Vigdfs Páls-
dóttir.
Atvinnuleysi á landinu helming’i
meira í desember en í nóvember
— verst er ástandið á Húsavík og í Keflavík
FJÖRUTÍU þúsund atvinnuleysisdagar voru skráðir á landinu öllu
í desembermánuði sl., en það eru sem næst helmingi fleiri atvinnu-
leysisdagar en í mánuðinum á undan. Þetta jafngildir því að 1.900
manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan desembermánuð, en það
svarar til 1,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði í mánuðinum
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar. Síðasta virka dag mánaðarins
voru hinsvegar um 3.300 manns á atvinnuleysisskrá víðsvegar á
landinu og er skýringin sú að víða komu uppsagnir á kauptrygginga-
aamningiim ekki til framkvæmda f frystihúsum fyrr en sfðari hluta
mánaðarins. Þeir 3.300, sem á skrá voru 30. desember sl., voru 2.900
verkamenn - 1.900 konur og 1.000 karlar - 60 iðnaðarmenn og 340
úr öðrum starfsgreinum.
Eins og þessar tölur gefa til
kynna verður atvinnuleysið í des-
ember sl. fyrst og fremst rakið til
stöðvunar fískvinnslunnar, eins og
jafnan á þessum árstíma. Skráð
atvinnuleysi í desember sl. var nán-
ast það sama og á sama tíma 1984.
Árið 1983 voru hinsvegar skráðir
48.500 atvinnuleysisdagar í des-
embermánuði, sem er mesti fjöldi
atvinnuleysisdaga, sem skráðst
hefur í þeim mánuði frá því skrán-
ing atvinnuleysisdaga hófst árið
1975. Enda þótt nýliðinn desember-
mánuður hafí í heild komið svipað
út og í fyrra, er dreifíng atvinnu-
leysisins nokkuð önnur.
Á höfuðborgarsvæðinu, Vestur-
landi, Norðurlandi vestra, Austur-
landi og Suðurlandi skráðust færri
atvinnuleysisdagar nú en í sama
mánuði í fyrra. Það eru hinsvegar
Norðurland eystra og Suðumes sem
skera sig úr með verulega fjölgun
atvinnuleysisdaga. Einkum eru það
þó tveir staðir, einn á hvoru svæði,
sem mestu valda um aukninguna -
Húsavík og Keflavík. En á báðum
þessum stöðum var atvinnuleysi
venju fremur mikið í desembermán-
uðisl.
Á árinu 1985 voru skráðir sam-
tals 288 þúsund atvinnuleysisdagar
á landinu öllu. Þetta jafngildir því
að 1.100 manns hafí verið á at-
vinnuleysisskrá allt árið sem svarar
til 0,9% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði samkvæmt spá Þjóð-
hagsstofnunar. Þetta er 97 þúsund
dögum minna en árið 1984, þegar
skráð atvinnuleysi nam 385 þúsund
dögum eða 1,3% af mannafla.
Hlutfallslega var atvinnuleysi á sl.
ári svipað og árið 1983 á landinu
í heild.
Skráð atvinnuleysi á árinu 1985
kom misjafnlega niður eftir lands-
hlutum. Þannig var hlutdeild höfuð-
borgarsvæðisins, þar sem 55-60%
mannaflans starfar, aðeins 28% af
skráðum atvinnuleysisdögum á
landinu í heild og hlutfallslegt at-
vinnuleysi aðeins 0,3% en 2,0% á
Norðurlandi eystra og Suðumesjum
þar sem flestir dagar skráðust utan
höfuðborgarsvæðisins. Þessar tölur
sýna fyrst og fremst hve fískvinnsl-
an hefur mikla þýðingu fyrir at-
vinnulífíð utan höfuðborgarsvæðis-
ins. En tölumar gætu jafnframt
bent til þess að umframeftirspum
eftir vinnuafli hafí í raun verið
meiri á höfuðborgarsvæðinu en
könnun sú, sem Þjóðhagsstofnun
og Vinnumálaskrifstofan stóðu fyr-
ir og birt var í júlímánuði gaf til
kynna. En samkvæmt þeirri könnun
virtist um helmingur umframeftir-
spumar vera á höfuðborgarsvæð-
inu.
í nýrri könnun sömu aðila virðist
hafa dregið vemlega úr umframeft-
irspum eftir vinnuafli á síðasta
fjórðungi ársins og umframeftir-
spumin virðist þá alfarið hafa verið
utan höfuðborgarsvæðisins.
Anglia:
Silvia Briem
kosin formað-
ur félagsins
Ensk-íslenska félagið Anglia
hélt aðalfund nýlega og var for-
maður kosin Silvia Briem, full-
trúi hjá Ferðaskrifstofu Guð-
mundar Jónassonar hf.
Er þetta í fyrsta sinn sem kona
er kosin í formannssæti félagsins,
en félagið var stofnað 11. desember
1921 og verður því 65 ára á þessu
ári. Anglia stóð f mörg ár fyrir árs-
hátíðum og dansleikjum. Seinni árin
hefur félagið aðallega haft á dag-
skránni námskeið fyrir böm og
fullorðna í enskum talæfíngum.
Aðalfundur Skipstjóra-
félags Islands:
Fjórir nýir
heiðursfélagar
FJÓRIR skipstjórar, þeir Ingólf-
ur Möller, Guðmundur Kjæme-
sted, Ásgeir Sigurðsson og
Kristján Aðalsteinsson vora
gerðir að heiðursfélögum Skip-
stjórafélags íslands á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var fyrir
skömmu.
Höskuldur Skarphéðinsson skip-
herra var endurkjörinn formaður
félagsins á fundinum var var jafn-
framt lýst yfír stuðningi félagsins
við Höskuld vegna máls Landhelgis-
gæslunnar gegn honum, að því er
segir í fréttatilkynningu frá félag-
inu.
Fram kom að undirbúningi nýs
skipstjóratals er langt komið en það
verður gefíð út í tilefni 50 ára
afmælis félagsins á nýbyijuðu ári.
„Laddi
á Sögu“
— 15. sýning á laug-
ardagskvöld
HINN kunni grínisti Þórhall-
ur Sigurðsson verður með
skemmtidagskrá sína „Laddi
á Sögu“ í fimmtánda sinn nk.
laugardagskvöld i Súlnasal,
en undanfarnar helgar hefur
hann skemmt þar við miklar
vinsældir.
Laddi kemur fram í sínum
helstu gervum skemmtiferils
síns, svo sem Eiríkur Fjalar,
Þórður húsvörður, mannfræð-
ingurinn, búfræðingurinn o.fl.
Laddi mun skemmta í Súlna-
salnum fram á sumar, en á
laugardagskvöld verður leyni-
gestur á dagskránni. Húsið
verður opnað kl. 19.00 og er
matur borinn fram kl. 19.30.
Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar leikur fyrir dansi til kl.
3.00.
Vegna árshátíðar Sambands
íslenskra samvinnufélaga á
föstudagskvöld í Súlnasalnum,
tekur Laddi sér frí.
Menntamálaráðuneytið:
Forstöðumað-
ur kvikmynda-
sjóðs ráðinn
Menntamálaráðherra hefur
veitt Guðbrandi Gíslasyni blaða-
manni stöðu forstöðumanns
kvikmyndasjóðs og tekur hann
við starfinu 1. febrúar 1986.
Aðrir umsækjendur voru þau
Elínborg Stefánsdóttir, Guðbjörg
Gústafsdóttir og Gunnar H. Árna-
son.