Morgunblaðið - 17.01.1986, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ.Í’ÖSTUDAGUR 17. JANÚAR1986
SVAR
MITT
eftir Hillv (irahani
Biblíuútgáfur
Úlgáfur Biblíunnar eru margar. Ein þeirra er kennd við Scofield.
Viðurkennið þér hana? Ég tilheyri fjölmennri kirkjudeild, og ég
hei' heyrt tvo af prestum okkar gagnrýna hana. Ég hef notaö þessa
Biblíu í átta ár og þykir ákafiega vænt um hana. Einnig hef ég
heyrt, að sonur minni eigi að fleygja sinni, þegar hann fer að
læra í einum skólanum okkar. Ef þér samþykkið þessa útgáfu
Biblíunnar og notið hana, viljið þér þá gera grein fyrir því í
þessum þætti yðar?
Ég á ýmsar gerðir og útgáfur Biblíunnar í bókasafni
mínu, þar á meðal þá, sem þér víkið að. Satt að segja
hef ég gefið mörg hundruð eintök af þessari útgáfu
Biblíunnar. Eini munurinn á henni og venjulegri
Biblíu eru neðanmálsgreinarnar,. sem hópur lærðra
manna hefur skráð. Þessi Biblía hefur nýlega verið
endurskoðuð og stórbætt. Menn geta verið ósammála
um túlkunina í sumum atriðum. Samt er þarna að
finna ótrúlega miklar upplýsingar og uppörvun, í
þessum neðanmálsgreinum, og allir ættu að hafa gagn
af þeim.
— . Eg skil aldrei þess konar lærdóm, sem kemur fram
í því, að menn vísa öllu því á bug, sem kemur ekki
heim við sérskoðanir þeirra. Mjög oft er þetta viðhorf
kennt við „frjálslyndi". Hvernig má kalla slíka þröng-
sýni frjálslyndi?
Sérhver kristinn maður ætti að rannsaka hvaðeina,
sem honum er boðið til að auðvelda honum skilning
á Biblíunni. Við ættum að hafa andlegan þroska til
að greina kjarnann frá hisminu, sannleikann frá
lyginni. Biblían segir: „Rannsakið yður sjálfa, hvort
þér eruð í trúnni." Við ættum að reyna að bæta sí-
» fellt lestur okkar á Biblíunni.
Allar nútímaþýðingar hafa orðið mér til hjálpar,
þó að ég meti sumar meira en aðrar. Áðurnefnd
Biblía hefur reynzt mér haldgóð í þrjátíu ár.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásúium Moggans!
Petrína S. Jóns-
dóttír - Minning
Fædd 5. ágúst 1901
Dáin 10. janúar 1986
Föstudaginn 10. janúar andaðist
í Borgarspítalanum móðursystir
mín, Petrína Jónsdóttir, eða Peta
frænka, eins og hún var ávallt
kölluð á mínu heimili. Hún fæddist
5. ágúst 1901 í Reykjavík en flutt-
ist ung til Keflavíkur, þar sem hún
bjó alla tíð. Foreldrar hennar voru
Jón Jónsson sjómaður og Guðrún
Þorkelsdóttir. Þau eignuðust tvær
dætur, Petu og Sigríði, sem dó
ung. Föður sinn missti Peta 1905.
Móðir hennar giftist síðar Guð-
mundi Guðmundssyni og eignuðust
þau eina dóttur, Jónu, sem gift er
Gesti Gamalíelssyni, búsett í Hafn-
arfírði.
Árið 1921 giftist Peta Friðmundi
Híeronymussyni og eignuðust þau
eina dóttur, Ásthildi Sveinbjörgu,
fædda 31. október 1932. Hennar
maður var Yrving Herman, en hann
lést á besta aldri 1972. Þeirra böm
em tvíburamir Friðmundur Leon-
ard og Toby Sigrún, fædd 1949,
sem að sjálfsögðu vom augasteinar
ömmu sinnar og afa. Toby býr í
Reykjavík með Gunnari Þórðarsyni
og eiga þau soninn Karl Brook
Herman, sem nú er Qögurra ára
og heillaðist langamma mjög af
tilvem hans, sem og aðrir í fjöl-
skyldunni og Friðmundur er
ókvæntur, búsettur í Ameríku. Kom
hann til landsins snemma þann 10.
janúar og trúi ég því að þó að Peta
væri mikið veik, hafi hún fundið
nærvem hans síðustu klukkustund-
imar sem hún lifði, því svo mjög
var kært með þeim.
Mínar fyrstu minningar em
tengdar Petu frænku. Það er sér-
stakur ævintýraljómi yfir ferðunum
til Keflavíkur. Tilhlökkunin að hitta
Petu og fjölskylduna var mikil, því
það var alltaf glatt á hjalla kringum
hana Petu og mikið hlegið. En það
var líka stjóm á hlutunum þar og
þýddi ekkert fyrir okkur frænd-
systkinin annað en að hlýða settum
reglum.
Hún var ákaflega gamansöm og
lét engu ósvarað, en það er einmitt
slíkt fólk sem laðar að sér annað
fólk, og fáa hef ég hitt sem búið
hafa í Keflavík, að þeir þekktu ekki
hana Petu.
Þó efast enginn um að sínar
erfiðu stundir hafi hún átt, sérstak-
lega eftir £ið hún missti mann sinn
1956 og einkadóttirin og hennar
fjölskylda búsett í flarlægum lönd-
um. En Ásta gætti þess vel að hafa
reglulegt samband við móður sína
og koma heim eins oft og hægt var.
Eftir að Ásta missti mann sinn
1972 flutti hún heim og hélt heim-
ili með móður sinni þar til Peta
varð að fara á hjúkrunarheimilið
Garðvang í Garði sökum Tieilsu-
brests, en hún þjáðist mjög af liða-
gigt hin síðari ár. En þrátt fyrir
vanlíðan var grunnt á gamansem-
inni og alltaf var hægt að hlæja
með henni Petu.
Hún naut líka umhyggju dóttur
sinnar og dótturdóttur og allt var
gert fyrir hana sem hægt var af
læknum og hjúkrunarfólki Garð-
vangs. Fýrir það var hún þakklát.
Hún veiktist skyndilega á Þor-
láksmessu og var flutt á Borgarspít-
alann. Ljóst var að meinið var heila-
blæðing og Peta hafði m.a. misst
málið. Þökk sé Guði að þannig
þurfti hún ekki að lifa lengi, en hún
lést eins og áður sagði 10. janúar
sl., 84 ára.
Skemmtileg kona hefur kvatt
þennan heim, kona, sem skilaði
dagsverki sínu með sóma.
Okkur sem þótti vænt um hana,
við munum sakna hennar.
Elsku Ásta, Toby og Mundi, við
geymum minninguna um elskulega
móður, ömmu, systur og frænku
og biðjum Guð að geyma hana.
Blessuð sé minning hennar.
Erla G. Gestsdóttir
Þegar Peta í hárri elli kveður
þennan heim, er mér bæði ljúft og
skylt að flytja henni fáein kveðju-
og þakklætisorð, raunar frá okkur
öllum bömunum hennar Eyju.
Peta var glaðværðin sjálf holdi
klædd, æðrulaus og hugrökk svo
af bar, hjálpsöm og sterk.
í minningunni stendur þú í hálf-
gerðum ævintýraljóma. Á heimili
þeirra Friðmundar var gleðin alls
ráðandi og henni var einkar lagið
að kveða áhyggjumar í kútinn og
gera alla bjartsýna í kringum sig.
Mín böm mundu í dag kalla það
algert æði, ef þau mættu upplifa
þá tilhlökkun, sem gagntók mig
jafnan, þegar ég fékk að fara með
foreldrum mínum í heimsókn til
hennar suður í Keflavík eða mátti
hlaupa niður í Verkamannaskýli,
þegar hún hafði komið í bæinn. Að
vera í návist hennar var að lifa líf-
inu.
Nú er það svo, að lífíð er ekki
bara dans á rósum. Og fáir vissu
það betur en hún eða gerðu sér
grein fyrir því á líðandi stundu. í
því lá styrkur hennar. Mótlætið
herti hana alltaf og eigin áhyggjur
hurfu eins og dögg fyrir sólu, þegar
hún þurfti að liðsinna öðrum, ráð-
leggja eða hjálpa. Hún varst óbug-
andi.
Oft hefur mér virst, að hennar
kynslóð og nokkrar á undan henni
hafí beinlínis verið að storka nátt-
úruöflunum með því að beijast hér
til lífs. Lýsingar Áma og Páls í
Jarðabókinni á jarðnæði forfeðra
hennar á Miðnesi er gersamlega
óskiljanleg lesning nútíma hita-
veitu-íslendingi. En þetta allt stóðst
hennar kynslóð og er úrvalslið
náttúmnnar.
Ég veit, að hún Gróa föðursystir
hennar, sú sem villtist með brauð
prestsins og Kiljan hefur gert
ódauðlega, var henni mikil fyrir-
mynd í smáu sem stóru. Þijóska
þeirra og þrekið, viljafestan og trúin
á landið gerði gæfumuninn í allri
þessari sögu.
Ég vil endurtaka þakklæti mitt
og alls míns fólks. Ástu og bömun-
um sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur.
Ingi R. Helgason
***'
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsin
Aðalfundur
Félags ungra sjálfstæðismanna í
Norður-ísafjarðarsýslu
verður haldinn í verkalýðsfólagshúsinu í Bolungarvík sunnudaginn
19. janúar kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aöalfundastörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Ungir sjálfstæðismenn í Bolungarvík eru hvattir til að mæta. Nýir
félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Stjórnin.
Akureyringar
Alþingismennirnir
Halldór Blöndal og
Björn Dagbjartsson
verða til viðtals i
Kaupangi sunnu-
daginn 19. janúar
milli kl. 10.00 og
12.00.
Vestmannaeyjar
Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verður
haldinn sunnudaginn 19. janúar nk. kl. 16.00 í Hallarlundi.
Dagskrá:
1. Bæjarstjórnarkosningar og ákvörðun tekin um prófkjör.
2. Önnur mál.
Félagar hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
Auglýst er eftir
framboðum til prófkjörs
sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í Kópavogi vorið 1986, fari
fram 1. mars 1986. Val frambjóðenda til prófkjörs fer fram með
eftirfarandi hætti.
A. Gerð er tillaga um val frambjóöenda Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi til kjörnefndar. Tillagan er því aðeins gild að hún sé
bundin við einn flokksmann. Enginn flokksmaöur getur staöið
að fleiri tillögum en hann má fæsta kjósa í prófkjörinu. Tillagan
skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum i Kópavogi.
B. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til
viöbótar frambjóðendum samkv. A. liö.
Hér með er auglýst eftir frambjóðendum til prófkjörs, Sbr. A. lið hór
að ofan. Skal framboðiö vera bundið við flokksbundinn einstakling
enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér
til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu bæjar-
stjórnarkosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn, búsettir i
Kópavogi, skulu standa að hverju framboöi og enginn flokksmaður
getur staöiö að fleiri framboðum en 8.
Framboðum þessum ber að skila til kjörnefndar, eigi síðar en kl.
14.00 laugardaginn 1. febrúar 1986, en þá mun kjörnefnd verða
stödd i sjálfstæðishúsinu aö Hamraborg 1, 3. hæð.
Kjörnefnd sjálfstæðisflokksins i Kópavogi.
Sauðárkrókur
— Sjálfstæðiskonur
Aðalfundur Sjálfstæðiskvennafélags Sauðárkróks verður haldinn í
Sæborg sunnudaginn 19. janúar nk. kl. 14.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kaffi i boði stjórnar.
Stjómin.
Stúdentapólitíkin
Opinn stjórnarfund-
ur Heimdallar verð-
ur haldinn mánu-
daginn 20. janúar
nk. í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, og
hefst hann kl. 20.00.
Gestir fundarins
verða Vökumennirn-
ir Stefán Kalmanns-
son og Ólafur Arnar-
son. Munu þeir
ræða um stúdenta-
pólitíkina og lána-
málin. Allir ungir sjálfstæðismenn velkomnir.
Stjórn Heimdaiiar.