Morgunblaðið - 17.01.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1986
45
'Tf'WiH'
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu .. .
S. hriíig'di: „Tilefni þessara orða
er viðtal sem starfsmaður Ríkisút-
varpsins átti við formann kven-
félagsins í Vík í Mýrdal sl. mið-
vikudagsmorgun. Eftir nokkrar
spumingar og svör um velgengni
og störf félagsins spurði starfs-
maður útvarpsins, sem er kona:
„Og það eru ekki lengur peysu-
fatakonur sem standa undir félag-
inu?“
„Nei, alls ekki“, svaraði for-
maðurinn. Hvemig ber að skilja
þetta? Em ekki peysufatakonur
lengur taldir frambærilegir með-
limir kvenfélaganna. Oft er talað
um að peysufötin, sem em einn
af þjóðbúningum íslenskra
kvenna, megi ekki leggjast niður
og ungar stúlkur hvattar til að
bera hann á tyllidögum þjóðarinn-
ar. Og mér er kunnugt um að
íslensku kvenfélögin hafa látið
margt gott af sér leiða allt frá
stofnun þeirra, og þar vom peysu-
fatakonumar að verki. Mér fínnst
í hæsta máta óviðkunnanlegt að
nú á tímum skuli vera til konur
sem tala niðrandi um þessa mikil-
hæfu forvígismenn íslenskra
kvennasamtaka."
Vigdís hringdi: „Að undan-
fömu hefur verið rætt um með-
lagsskuldir í Velvakanda og fund-
ið að því að þær séu vaxtalausar.
Mér finnst að einnig mætti koma
fram að hjá karlmönnum er
meðlagsgreiðsla frádráttarbær til
skatts, þó þeir þurfí ekki að greiða
meðlög fyrr en þeim hentar og
meðlagsskuldir séu vaxtalausar.
Hins vegar verða einstæðar
mæður að gefa meðlög upp til
skatts sem tekjur. Flestir karl-
menn borga ekki nema þetta lág-
mark sem þeim er gert að greiða
en það vita aliir sem ala upp böm
að það kostar miklu meira að
hafa þau á sínu framfæri en
þessum greiðslum nemur. Það er
því vægast sagt undarlegt að ekki
skuli gengið eftir því að menn
greiði meðlögin skilvíslega."
Sigríður hringdi: „Mig langar
til að koma á framfæri smá ábend-
ingu í sambandi við dagskrár-
kynningu íþróttaþátta í dagblöð-
unum. Það er óþægilegt að ekki
skuli vera gerð grein fyrir eftii
þeirra fyrirfram - hvort fjallað
er um tennis, fímleika, skíða-
íþróttir o.s. frv. Þá þyrfti maður
ekki að sitja fyrir framan skjáinn
allan þáttinn til að missa ekki af
einhveiju. Væri ekki hægt að
kynna efni íþróttaþátta fyrirfram
í dagblöðunum?
Húsmóðir í Austurbænum gerði
það að umtalsefni á dögunum
hversu krítarkortaviðskipti tækju
mikinn tíma. Mér sýnist þau ekki
taka neitt meiri tfma heldur en
greiðslur með ávísunum eða þegar
fólk lætur skrifa hjá sér.
Kjarvalsvísur — athugasemd
Velvakandi!
Ekki get ég látið framhjá mér
fara athugasemdalaust vísu sem
birt er í Kjarvalsbók Indriða G.
Þorsteinssonar. Ég leyfi mér að
fullyrða að þar er ekki alveg rétt
farið með vísu þessa. Þar eð hafa
skal það sem sannara reynist vil ég
biðja Velvakanda Morgunblaðsins
að birta fyrir mig títtnefnda vísu:
EJin alsheija bomba, í gemlingsins gátt,
í grallaraleysisins flæðandi mátt,
í heysigemlingsins hrásalaga lind,
hrekkst hún um náhöfin skynlaus og
blind,
í algieymi skelfulla skröngiast um nátt,
skelmórinn starir með giórunum hátt,
eitt áralegt brak, eitt boldangsins slum
og burtu var gieiddin af skelfúllu-rum.
Rithöfundurinn kemur með skýr-
ingar á þessari vísu, sem ég vil
gera lítilsháttar athugasemd við: Ég
tel að Kjarval hafí notað gemlings-
ins gátt fyrir hafsauga. Gemlingur
er í vísunni sama og þorskur.
Heysigemlingu er er þorskur, sem
hefiir verið hengdur upp. í grallara-
leysisins þá á Kjarval við að svo
djúpt sé róið að ekki fáist lúða. Þá
vil ég aðeins bæta við að lokaorðið
skelfullu-rum er á máli Kjarvals
skipstjórinn.
Þá vil ég biðja Velvakanda að
birta hér að lokum vísu eftir Kjar-
val, sem mun reyndar vera mörgum
kunn, a.m.k. hér í Reykjavík. Hún
er ort fyrir mörgum árum um
þekkta konu hér í bænum, Lálju
Sölvadóttur. Bræður hennar voru á
sínum tíma einnig kunnir hér í
bænum sem fótboltakappar í Val,
þeir Ellert og Guðmundur. Vísan
er svona:
Lilja mín Sölva
mig langar að bölva
því nú ert þú gift.
Guðmundur maki
gjaldkerinn spaki
geturðu skipt.
Guðmundur maki var Guðmund-
ur Guðmundsson ftá Reykholti,
gjaldkeri í Landsbankanum.
Guðmundur Sveinsson frá Vík
ÍMýrdal.
Hættur í umferðinni
Áhætta eldra fólks í umferðinni er mun meiri en þeirra,
sem yngri eru. Sjón og heym þeirra hefur daprast. Það
er stirðara til gangs og eftirtektin lakari en áður. Sýnum
öldruðum tillitssemi og réttum þeim hjálparhönd. Bömin í
umferðinni eru bömin okkar. Þar sem þau eru á eða við
akbrautir er nauðsynlegt að sýna sérstaka aðgát.
Öll viljum við vemda bömin fyrir hættum í umferðinni.
Hvernig gengur
reksturinn?
Námskeið þetta er einkum ætlað þeim sem koma
nálægt rekstri fyrirtækja eða hyggja á slíkan rekst-
ur. Á námskeiðinu verða kynnt helstu hugtök
rekstrarhagfræðinnar og farið yfir æfingar í rekstri
fyrirtækja og gerð greiðsluáætlana og raunhæf
verkefni unnin með aðstoð tölvu. Kennsla fer fram
á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl.
19.10—20.40, alls 40 klukkustundir.
Kennsla hefst mánudaginn 27. janúar.
Þátttaka tilkynnist í síma 688400.
Verslunarskóli íslands,
Ofanleiti 1,
108 Reykjavík.
67.420.-
Þessi hornsófi er ekki bara venjuleg-
ur hornsófi sem passar í flestar stof-
ur. L. 250 sm X b. 206 sm.
í honum er sérstaklega hönnuð grind
með dýnu og þegar þú ert búin(n) að
velta henni fram á gólfið ert þú
komin(n) með fyrirtaks svefnsófa
fyrirtvo.
Mundu að við tökum greiðslukortin bæði sem
staðgreiðslu með hæsta afslætti og sem út-
borgun á kaupsamning.
f ■■
BUSGA6NAH0LLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410