Morgunblaðið - 17.01.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1986
47
Símamynd/Nordfoto
•Atli Hilmarsson reynir skot f leiknum í gærkvöldi en Sovótmenn
eru vel á verði.
•Kristján Arason á hér í höggl vlð elnn sovóska risann f vörninni.
Naumt hjá UMFN
NJARÐVÍKINGAR unnu KR-inga
með einu stigi, 89-88, f æsispenn-
andi leik í fyrri leik liðanna í átta
liða úrslitum bikarkeppni KKÍ. í
hálfleik var staðan 46-40 fyrir KR
og varð að útkljá leikinn í leng-
ingu, þar sem Njarðvfkingar jöfn-
uðu 10 sekúndum fyrir lok venju-
legs leiktfma.
KR-ingar léku betur en Njarðvík-
ingar og höfðu forystu naer allan
tímann, eða þar til innan við tvær
mínútur voru eftir. Ólánið elti
KR-inga, þar sem tveir af beztu
mönnum þeirra, Páll Kolbeins og
Garðar Jóhanns, urðu að yfirgefa
völlinn vegna meiðsla.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur á að horfa. KR-ingar
börðust mjög vel en Njarðvíkingar
voru sumir hálf slappir. Jóhannes
Kristbjörns var langbezti maður
UMFN og hélt liði sínu á floti.
Stig KR: Garðar Jóhanns 23, Birgir Mikaels
21. Páll Kolbeins 17, Guðni Guðna 12, Guð-
mundur Björns 8 og Þorsteinn Gunnars 7.
Stig UMFN: Jóhannes Kristbjörns 35, Valur
Ingimundar 21, Kristinn Einars 11, Helgi Rafns
10, (sak Tómasar 6, Ingimar Jóns 3, Ellert
Magg 2 og Hreiðar Hreiðars 1. -ágás.
Þjálfarinn
trylltist
EFTIR leik Dana og Sovótríkjanna
á miðvikudagskvöldið varð sov-
óski þjálfarinn, Ewtuschenko,
algjörlega óður. Hann hund-
skammaði leikmenn sfna svoleið-
is að einn þeirra besti maður,
Apilogow, sem er 2,10 metrar á
hæð, gekk hór um eins og lúbar-
inn hundur.
Þjálfarinn lét ekki þar við sitja
því morguninn eftir sendi hann allt
liðið út að hlaupa og eftir það voru
leikmenn látnir sitja í rútu fyrir utan
hótelið í tvær klukkustundir. Þeir
máttu ekki talast við og fengu
hvorki vott né þurrt til að svala
hungri og þorsta. Þaö gildir ekkert
nema harkan sex þegar hand-
knattleikur er annars vegar.
Sovétmenn léku íkvöld
eins og þeir gera best
— sagði Bogdan um stórleik Sovétmanna
„VIÐ spiluðum ekki nógu vel í
sókninni. Eins og ég hef sagt áður
vantar okkur samæfingu. Við átt-
um aldrei möguleika gegn Sovót-
mönnum en engu að sfður er
sigur þeirra of stór,“ sagði Bogd-
an þjálfari íslenska landsliðsins
eftir leikinn í gær.
„Það má ekki gleyma því að við
vorum líka óheppnir í þessum leik.
Attum skot í stangirnar, slárnar
og rétt framhjá þegar við hefðum
átt að skora.
Sovétmenn léku mjög vel í
„ÞEIR kláruðu þennan leik í fyrri
hálfleik og þurftu þvf ekki að
spyrja að leikslokum," sagði
Þorgils Óttar Mathiesen Ifnumað-
urinn knái úr FH eftir leikinn f
gær.
„Samæfingin hjá okkur er ein-
faldlega ekki nógu góð. Þetta er
ef til vill eðlilegt þar sem við náum
ekki að halda sama hópnum í
undirbúningnum og þetta lagast
kvöld, eins vel og þeir geta leikið.
Að mínu mati er ekki að marka
sigur Dana á þeim í gær því þá
hvíldu fjórir af fastamönnum
þeirra. Þeir urðu að vinnan þennan
leik gegn okkur með eins miklum
mun og þeir gátu til þess að eiga
möguleika á að vinna mótið.
Það er eðlilegt í svona keppni
að leika vel einn daginn og illa
þann næsta. Við, Danir og Sovét-
menn höfum gert það núna og það
er eðlilegt.
Það verða einhverjar breytingar
ekki fyrr en við getum æft meira
saman. Þrekið hjá okkur er ekki
nægt og það er mikill munur á að
leika í 1. deildinni heima og síðan
gegn þessum sterku þjóðum.
Sovetmenn eru mjög sterkir,
þeir þekkja vel til hvers annars og
leika mjög vélrænt. Þeir áttu topp-
leik í dag en ekki í gær gegn
Dönum og við áttum okkar léleg-
asta leik í mótinu til þessa.“
á liðinu fyrir leikinn gegn Pólverjum
á morgun en ég get ekki sagt
hverjar þær verða á þessari
stundu."
Steinar Birgisson:
Hrein
martröð
„ÞETTA var hrein martröð. Þeir
eru að vísu mun betri en viö en
ekki svona mikið. Við hefðum átt
aö hafa sóknirnar lengri en viö
geröum og smella síðan á þá
leikkerfum,“ sagöi Steinar Birgis-
son eftir stórtapiö gegn Sovót-
mönnum í gær.
„Við héldum knettinum ekki ngu
lengi og því fór sem fór. Það er
mjög erfitt að skjóta yfir vörnina
hjá þeim og því hefðum við frekar
átt að reyna gegnumbrot og blokk-
eringar.
Þeir eru geysifljótir og skoruðu
mikið úr hraðaupphlaupum í leikn-
um í kvöld eftir mistök okkar í
sókninni. Mér fannst vörnin hjá
okkur þokkaleg en þeir gerðu út
um leikinn strax í fyrri hálfeik og í
þeim síðari gátu þeir leyft sér
meira.“
Sovétmenn eru
geysilega sterkir
— sagði Þorgils Óttar Mathiesen
Sovéski björninn
sýndi á sér klærnar
— eitt stærsta tap íslands frá upphafi
Frá Val Jónatanssyni, btaðamanni Morgunblaðsins í Danmörku.
SOVÉSKI bjöminn sýndi svo
sannarlega á sór klærnar gegn
íslendingum f gærkvöldi. Þeir
sigruðu frekar slakt fslenskt
landslið meö fimmtán marka
mun, 27:12, f Baltic Cup-keppn-
inni hór í Danmörku. Sovótmenn,
sem eru núverandi heimsmeist-
arar f handknattleik, sýndu f
gærkvöldi hreint ótrúlega yfir-
burði. íslendingar skoruöu aö-
eins þrjú mörk f fyrri hálfleik gegn
12 mörkum þeirra. Þaö er örugg-
lega ár og dagur sfðan fslenskt
handboltalandslið hefur skoraö
svo fá mörk á 30 mfnútum. Flestir
leikmanna Sovótrfkjanna eru tröll
aö vexti, yfir tveir metrar á hæð
og 100 kfló aö þyngd. íslensku
strákarnir voru eins og fis f hönd-
um þeirra.
Það var aðeins fyrstu sjö mínút-
ur leiksins sem íslensku strákarnir
héldu í við sovéska björninn. Eftir
það skoruðu þeir ekki mark, eöa í
tuttugu og þrjár mínútur, það sem
eftir var hálfleiksins. Sovétmenn
byggðu upp stóran og sterkan
varnarmúr sem íslenska liðinu
tókst yfirleitt ekki að komast í
gegn. Þegar knötturinn fór í gegn-
um múrinn varði stórgóður mark-
vörður þeirra.
Danir unnu
Pólverja
DANIR unnu f gær Pólverja meö
28 mörkum gegn 21 en Austur-
Þýskaland sigraöi B-landsliö
Dana með 24 mörkum gegn 17.
Staðan í mótinu er þannig að
Austur-Þjóðverjar eru með forystu,
hafa hlotið 6 stig, Sovétmenn og
Danir í öðru sæti með 4 stig hvor
þjóð, síðan koma Danmörk-B, ís-
land og Pólland með 2 stig hver
þjóð.
Það voru þessar mínútur sem
gerðu endanlega út um þennan
leik — það var augljóst hvert
stefndi — það var aðeins spurning
um hversu sigurinn yrði stór.
Seinni hálfleikur bar keim af
þeim fyrri og gátu Sovétmenn leyft
sér ýmsar kúnstir. Undirritaöur
hefur aldrei séð eins sterkt hand-
knattleikslandslið og voru þessir
stóru og sterku leikmenn hreinir
töframenn með knöttinn og leika
eins og vel smurð vél.
Stórkostlegt mark
Eitt stórkostlegasta mark leiks-
ins gerði leikmaðurinn Gopin, hann
keyrði sjálfur í gegnum íslensku
vörnina við vítapunktinn, fékk
sendingu á eftir sér inn í vítateig-
inn, greip knöttinn í loftinu og
skoraði. Þetta er handknattleikur
sem sést ekki á hverjum degi.
Síöustu mínútur leiksins leyfði
sovéski þjálfarinn yngri og óreynd-
ari leikmönnum að spreyta sig og
var það í eina skiptið í hálfleiknum
sem jafnræði var á með liðunum.
Stórsigur Sovétmanna var síst of
stór.
íslendingar vilja örugglega
gleyma þessum leik. Þetta er einn
af þeim dögum sem ekkert gengur
hjá öðru iiðinu en allt hjá hinu. Það
var sennilega ekki hægt að fá
Sovétmennina á verri tíma þarsem
þeir höfðu tapað fyrir Dönum
daginn áður. Þeir lögðu því allt f
þennan leik og urðu að sigra með
miklum mun, því úrslit í mótinu
gaetu ráðist á markahlutfalli.
íslensku strákarnir léku ekki
sem ein heild og reyndu of mikið
á eigin spýtur. Sóknir þeirra voru
stuttar og ekki mikið um ieikkerfi.
Mikið var reynt aö stökkva upp
fyrir framan vörnina, en þar sem
þessi tveggja metra tröll eru fyrir
gekk það ekki upp. Enginn í liði
Islands bar af í þessum leik.
Hávaxnir mjög
Það var eins og Sovétmenn léku
á annarri hæö en íslendingar.
Kristján Arason, sem er okkar
hæsti leikmaöur, var eins og peð
við hliö þeirra. Sovétmenn eru með
fjóra leikmenn sem eru yfir tveir
metrar á hæð og sá stærsti er
2,15 metrar. Bestu leikmenn
þeirra voru Gopin, Gagin og mark-
vörðurinn Schipenko.
Islendingar voru utan vallar í 4
mínútur og Sovétmenn í 10.
Mörk islands: Krístján Arason 5/2, borgils
Óttar Mathiesen 3, Atli Hilmarsson, Alfreö
Gíslason, Þorbjörn Jensson og Jakob Sigurðs-
son gerðu eitt mark hver.
Markahæstur Sovétmanna var Gobin,
sem skoraði 8 mörk, og Gagin skoraði 4
mörk.
Sigurður ekki með?
SAMKVÆMT áreiðanlegum
heimildum Morgunblaðsins
mun Sigurður Gunnarsson,
handknattleiksmaður, hafa
ákveðið að taka ekki þátt í
undribúningi landsliðsins fyr-
ir heimsmeistarakeppnina í
Sviss og þar af leiðandi mun
hann ekki leika þar.
Ekki náðist í Sigurð í gær-
kvöldi til að bera þetta undir
hann en samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins mun
þetta vera af persónulegum
ástæðum. Guöjón Guðmunds-
son, liðsstjóri ísienska lands-
liðsins, sagði í gærkvöldi að
ekkert væri hæft í þessum
sögusögnum.