Morgunblaðið - 15.02.1987, Síða 11
1
I
vser flAúaaa^ .at fluoAaimMua .qiQAjavmoflot/i 9 Oí
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 B 11
Ragnheiði, frá nýfæddum syni og mörgum dætrum, aðeins
42 ára gamla. Hann elskaði hana mikið og saknaði hennar
sárt. í bréfí til Boga Th. Melsteð segir hann „Ég trúði
ekki þessari grimmd fyrr en ég sá hana deyja."
í æfísögu Hannesar Hafsteins, eftir Kristján Albertsson,
segir að hann hafí oft sést ganga upp í kirkjugarð að leiði
Ragnheiðar, standa þar lengi, stundum fram í myrkur. í
sorgarljóðum hans eftir konu sína segir svo:
Mín elskaða, þú, sem mér unnir
og fyrirgafst ætíð allt,
hjálpaðu mér til að hefja
hug yfir stríðið kalt.
Andaðu á vesæla vængi
og freðnar fjaðrir þíð
svo flögrað í átt þér eftir
ég örmagna geti um síð.
Eitt andartak
Gegnt hliðinu fyrir miðjum garðinum, Suðurgötu megin,
gnæfír veglegur minnisvarði á gröf Jóns Sigurðssonar, sjálf-
stæðishetju okkar íslendinga, og konu hans Ingibjargar
Jón Sigurðsson forseti og Ingi-
björg Einarsdóttir kona hans
Hannes Hafstein skáld og fyrsti Þórbergur Þórðarson rithöfund-
ráðherra íslendinga ur
Einarsdóttur. Þau voru bæði lögð til hinstu hvíldar í kirkju-
garði Reykjavíkur við Suðurgötu. Það hafði verið ósk Jóns
að fá að hvíla í íslenskri mold. í bók sinni um Jón forseta
segir Páll E. Ólafsson frá jarðarför þeirra hjóna. Hún fór
fram 4. maí 1880 í heldur óblíðu veðri, sem þó fór batn-
andi er leið á daginn. Póstskipið Fönix hafði flutt kistumar
heim frá Kaupmannahöfn og frá skipinu voru þær fluttar
á báti sem allur var búinn sorgarblæjum. Honum fylgdi
annar sem í var lúðraflokkur sem blés sorgarlög alla leið
til lands. Er að bryggju kom varð um stund glaðasólskin
og fannst mönnum mjög til um. í kirkju voru m.a. sungin
minningarljóð eftir séra Matthías Jochumson. í garði voru
flutt kveðjuorð og síðan sungið skilnaðarkvæði eftir Bened-
ikt Gröndal. Síðar var settur veglegur minnisvarði á leiðið.
Á honum stendur: „Jón Sigurðsson — Stein þennan reistu
honum landar hans 1881.“
Þegar ég tipla milli leiðanna, áleiðis að borgarysnum á
nýjan leik virði ég fyrir mér umbúnað leiðanna, legsteina,
krossa, engla og annað sem slíkum stað tilheyrir. Fullir
ræktarsemi hafa aðstandendur gert sitt besta til að búa
látnum ástvinum sómasamlegan hvílustað. Sum leiðin eru
ómerkt, þar liggja þeir sem dóu lítilsmegandi og fátækir.
Allir hvíla þó í mjúkum faðmi íslenskrar moldar - Öll get-
um við tekið undir með Davíð Stefánssyni: „Við stöðvum
timans vald og vængjablak -
eitt andartak, eitt andartak."
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík, Sími 28566.
l\tvinnurekendur þurfa ekki að binda dýrmætt rekstrarfé í dýrum
tækjum og búnaði heldur geta nýtt það í að treysta undirstöður
atvinnurekstrarins.
Féfang hf er nýttfyrirtæki er byggir á 15 ára reynslu Fjárfesting-
arfélagsins á sviði fjármögnunarleigu. Féfang hf. aðstoðar atvinnu-
rekendur við kaup á nauðsynlegum tækjum og búnaði til rekstrarins.
féfang h/, nýtur aðstoðar sænska fjármögnunarfyrirtækisins PK Fin-
ans sem hefur 20 ára reynslu í alhliða fjármögnunarstarfsemi þar á
meðal fjármögnunarleigu. Þannig hefur Féfang hf. aðgang að erlendri
fjámögnun og þeirri sérþekkingu sem þörf er á hverju sinni.
ffæfifjámögnunarleiga ekki, kappkosta sérfræðingar Féfangs hf. og
Fjárfestingarfélagsins að finna viðeigandi lausn.
Fjárfestingarfélagið
Verslunarbankinn, Lífeyrissjóður verslunarmanna
Tryggingarmiðstöðin, Sparisjóður vélstjóra