Morgunblaðið - 16.08.1987, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.08.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 1987 35 Þrír eldri borgarar í Stykkishóhni látnir Þrír eldri borgarar í Stykkishólmi hafa kvatt þetta líf undanfarna daga. Hafa þeir allir skilað merku og miklu lífsstarfi hver á sinn hátt og átt þátt í uppbyggingu bæði hér og í Helgafellssveit. Létust þeir með litlu millibili. Þeirra verður af samferðamönn- um minnst sem eftirtektarverðra persónuleika, manna sem bæði settu svip sinn á umhverfi og gáfu meðbræðrum sínum gott fordæmi. Björn Jónsson fyrrum bóndi á Innri-Kóngsbakka í Helgafellssveit lést hér á sjúkrahúsinu í Stykkis- hólmi 5. ágúst. Hann var fæddur á Innri-Kóngsbakka 18. mars 1902. Hann vann sem önnur böm foreld- mm sínum en við lát föður síns 1937 tók hann við búsforráðum. Hann var kvæntur Sigurborgu Magnúsdóttur frá Ási við Stykkis- hólm en hún er látin fyrir nokkmm ámm. Björn stundaði fyrr á ámm húsasmíðar og það oft fjarri átthög- um. Snemma hafði hann áhuga á ýmsum fræðum, kom sér upp góðu safni ágætra bóka, vann að söfnun ýmissa fræða um sveit sína og flutti erindi á ýmsum mannamótum um þjóðleg fræði. Seinustu árin var hann búsettur í Stykkishólmi á dvalarheimili aldraðra, eða uns hann fyrir tveimur mánuðum fór á sjúkrahúsið hér þar sem hann lést eins og áður er getið, 5. ágúst sl. Pétur Jónsson, bróðir Björns, lést 8. ágúst á dvalarheimili aldraðra hér í bæ. Hann var fæddur 6. októ- ber 1894 á Innri-Kóngsbakka. Pétur vann sem Björn búi foreldra sinna uns hann giftist Sigríði Björnsdóttur, ættaðri úr Húna- vatnssýslu og bjuggu þau í Innri- Drápuhlíð.í Helgafellssveit frá 1933 til 1946 en þá fluttu þau til Stykkis- hólms og þar lést Sigríður nokkru síðar. Pétur keypti býlið Viðvík þar sem hánn átti heima síðan uns hann fyrir fáum árum flutti á Dvalar- heimilið. Þau eignuðust 7 böm. Pétur var orðlagður dugnaðarmað- ur. Hann vann alla algenga vinnu, var lengi togarasjómaður, háseti á bátum, við byggingarvinnu, dug- andi bóndi, svo nokkuð sé nefnt. Trúr húsbændum sínum svo af bar og vílaði ekki fyrir sér langar göng- ur til atvinnu sinnar og þegar hann var í Drápuhlíð gekk hann oft tvisvar á dag til sjóróðra í Hólminn eða um 11 km veg. Pétur las mik- ið, var mjög fróður um innanlands sem utanlandsmálefni og fýlgdist af alúð með framvindu mála, tók afstöðu, glögga og hispurslausa. Fréttaritari Morgunblaðsins hafði skömmu áður átt viðtal við Pétur þar sem þeir rifjuðu upp svip- leiftur liðins tíma og um leið tekið af honum mynd, og var lítill elliblær á viðtalinu. Þá skal það rifjað upp að Kóngsbakkabræður voru um skeið allir 4 á Dvalarheimilinu og þá tók fréttaritari af þeim mynd sem vakti víða athygli. Nú lifir einn þessara bræðra, Jón, sem á heima hér í Hólminum. Lárus J. Guðmundsson bóndi í Ögri í Helgafellssveit, nú lengi bú- settur í Stykkishólmi, lést 9. ágúst í Landakotsspítala. Hann var fædd- ur 11. september 1913 á Birgisvík á iStröndum. Hann var kvæntur Elínu Bjarnadóttur og lifir hún mann sinn ásamt B uppkomnum börnum.Hingað fluttu þau Elín og Mrus árið 1959 og keyptu jörðina Ögur í Stykkishólmshreppi og bjuggu þar síðan farsælu búi en áttu síðari árin vetrardvöl í Stykkis- hólmi. Lárus átti við erfið veikindi að stríða hin síðustu ár. Meðan heilsa leyfði dró Lárus ekki af sér. Hann var lengi sjómaður og síðan bóndi og alla algenga vinnu stund- aði hann. Hagleiksmaður og gat því bjargað sér á margan hátt. Framúrskarandi reglusamur og bóngóður og átti fréttaritari oft tal við hann, fræddist af honum og mat hann mikils. Að þessum þremur heiðurs- og reglusömu dugnaðarmönnum látn- um erum við Hólmarar fátækari. Þess skal að lokum minnst að síðan um á.ramót hafa 13 Hólmarar látist auk brottfluttra. Er það hið mesta um-50 ára skeið á ekki lengri tíma. Verður þá mörgum litið til ársins 1951 en það ár fór engin jarðarför fram í Stykkishólmi. Akranes — Nína Akureyri — Sporthúsið Blönduós — Búðin Dalvík — Kotra Egilsstaðir — Agla Eskifjörður — Sportv. Hákonar Sófussonar Hornafjörður — KASK Húsavík — Skóbúð Húsavíkur ísafjörður — Eplið Neskaupstaður — Nesbær Reykjavík — Alsport hf „Veiðivon" Sauðárkrókur — Sýn Siglufjörður — Rafbær Hverfisgötu 105, s. 91-23444. Áskriftarsíminn er 83033 þriðju hverja viku ! M/S JÖKULFELL lestar í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.