Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.11.1987, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1987 Þjóðarbókhlaðan: Ekki lögbrot að draga úr framkvæmdum segir fjármálaráðherra „Þjóðarbókhlaðan mun fá all- ar þær tekjur sem henni eru ætlaðar, þó að útgjöld til bygg- ingar hennar séu lægri en nemur lögbundnum tekjustofni hennar á fjárlögum næsta árs,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, þegar Morg- unblaðið leitaði álits hans á gagnrýni Sverris Hermannsson- ar og fleiri á Alþingi. Jón Baldvin sagði vera fjölmörg dæmi um slíka meðferð á mörk- uðum tekjustofnum á fjárlögum, og m.a. hefði eins verið staðið að þessu máli í fyrra, í tíð Sverr- is sem menntamálaráðherra. Jón Baldvin sagði að lög um sérstakan eignarskattsauka til að fjármagna byggingu Þjóðarbók- hlöðu hefðu líka verið í gildi á yfirstandandi ári, og orðrétt sagði hann: „í fjárlögun ríkisstjómar 1987, þegar Sverrir Hermannsson gegndi starfi menntamálaráð- herra, var sama niðurstaða í þessu máli. í fjárlögum var aðeins veitt 45 milljónum til Þjóðarbókhlöðu, þrátt fyrir að tekjustofninn, álagð- ur eignarskattsauki, hafi skilað um 150 milljónum. Menntamálaráð- herra og fjármálaráðherra gerðu með sér samkomulag um þetta og staðfestu það í fjárlögum. Þetta kemur fram í greinargerð með fjár- lögum 1987 og var ágreinings- laust. Það sem nú hefur gerst er nákvæmlega sami hluturinn. Eign- arskattsaukinn mun skila um 170 milljónum, framlög til Þjóðarbók- hlöðu eru um 50 milljónir, og það er gert samkvæmt ákvörðun ríkis- stjómar í fjárlögum." Jón Baldvin sagði að um það væri ekki deilt að Þjóðarbókhlaðan fengi þær tekjur sem henni eru ætlaðar, en það yrði ekki greitt meira til verkefnisins en íjárlög segðu til um. Hann sagði að það væru ótal fordæmi um að ákvæð- um laga um markaða tekjustofna væri breytt á fjárlögum og láns- fjárlögum. „Rökin fyrir að þetta er gert eru hin sömu í ár og í fyrra,“ sagði Jón Baldvin. „Það er gífurleg þensla í byggingariðnaði á höfuð- borgarsvæðinu, og það gætir mikillar aðhaldssemi í útgjöldum, þar á meðal í opinberri fjárfestingu og nýbyggingum. Skýiingamar eru hinar sömu og fyrrverandi menntamálaráðherra, Sverrir Her- mannsson, féllst á í fyrra. Ég spyr að lokum: Hverju reiddust goðin ’87?“ Jón Baldvin var spurður hvernig honum litist á þá hugmynd sem Sverrir Hermannsson varpaði fram á Alþingi, um að láta reyna á málið fyrir dómstólum. Jón Baldvin sagði að það væri hæpið að dóm- stólar myndu hnekkja lögmæti slíkra aðferða, því það væri komin áratuga hefð á þær á Alþingi. Hann sagði að lokum að það væri stefna ríkisstjómarinnar að draga úr sjálfvirkni ríkisútgjalda, með því að afnema sjálfvirkar viðmiðanir, lögbundnar eða vísitölubundnar. Framlag til Þjóðarbókhlöðu sett í ríkissjóð: Fjármálaráðherra hefur ekkert vald yfir þessu fé - segir Sverrir Hermannsson fyrrvemdi menntamálaráðherra SVERRIR Hermannsson alþing- ismaður og fyrrverandi mennta- málaráðherra gagnrýndi harðlega við fjárlagaumræðu á Alþingi að i fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að fé úr Bygg- ingarsjóði Þjóðarbókhlöðunnar renni að mestum hluta í ríkis- sjóð, eða 127 milljónir af 177 milljónum sem áætlað er að komi í sjóðinn á árinu. í gildi eru lög um sérstakan eignarskattsauka sem renna skuli óskiptur í bygg- ingarsjóðinn og sagði Sverrir að fjármálaráðherra hefði ekkert vald yfir þeim peningum og til greina kæmi að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort lögin standist ekki að því leyti. „Haustið 1986 fór Þorsteinn Pálsson þáverandi íjármálaráðhera þess á leit við mig að vegna erfíð- leika í fjármálum almennt og vegna spennu í byggingarmálum hér fengi ríkissjóður 100 milljónir að láni úr sjóðnum með venjulegum viðskipta- kjörum af 140 milljónum sem áætlað var að rynnu í hann á árinu 1987. Það féllst ég á,“ sagði Sverr- ir Hermannsson í samtali við Morgunblaðið en hann var mennta- málaráðherra á þessum tíma. „Ef núverandi ríkisstjóm og fjármála- ráðherra ætluðu að standa við þennan gerða samning þurfti að vera inni á fjárlögum núna upphæð til að borga þetta lán. Þess í stað leyfír fjármálaráðiierra sér að fara með staðlausa stafí um að hann sé að virða eitthvað samkomulag okk- ar Þorsteins Pálssonar í þessum efnum og talar tóma vitleysu í því sambandi af því hann hefur ekki athugað lögin. Það mætti þessvegna leggja það í dóm hvort þessi lög eru í gildi eða ekki en það leikur enginn vafí á því að þessir peningar eiga ekkert erindi í ríkissjóð. Ef að núverandi menntamálaráðherra og sjóðs- stjómin vill semja um eitthvað álíka fyrir næsta ár fínnst mér að það ætti að vera í föstu formi fyrst menn hafa slík lausatök á þessu. Það yrði þá alveg frágengið skrif- lega hvemig peningunum yrði skilað og sjóðurinn kaupi til dæmis ríkisskuldabréf fyrir þessa pen- inga.“ Sverrir sagðist viss um að núver- andi menntamálaráðherra myndi kippa þessu í liðinn þegar hann kæmi til landsins en hann er nú staddur í útlöndum. „Það verður ekkert gefíð eftir í þeim málum og nýjum mönnum ekki liðið að vaða yfír þetta verkefni á skítugum skón- um,“ sagði Sverrir Hermannsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.