Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988 Stjóm Blaðamannafélags Islands: Lýst yfir vanþóknun á vinnubrögðum frétta- stofu Stjörnunnar STJÓRN Blaðamannafélags ís- lands sendi í gær Eiriki Jónssyni fréttastjóra útvarpsstöðvarinnar Stjömunnar svohljóðandi bréf: Vegna meðferðar Stjömunnar á úrskurði Siðanefndar blaðamannafé- lags íslands frá 9. mars sl. vill stjóm Blaðamannafélagsins taka eftirfar- andi fram: Siðanefnd Blaðamannafélags ís- lands komst að þeirri niðurstöðu 9. mars sl. að frétt sem lesin var í frétt- atíma Stjömunnar 28. desember sl. væri alvarlegt brot gegn inngangs- orðum og 3. grein siðareglna BÍ. Taldi Siðanefndin að í fréttinni hefðu viðkvæm einkamál nafngreindra ein- staklinga verið dregin fram á sær- andi hátt. Dómi þessum var beint til fréttastjóra Stjömunnar. í 6. grein siðareglnanna er kveðið á um að viðkomandi fjölmiðill skuli birta úrskurð um alvarlegt brot gegn siðareglunum. Fréttamenn Stjöm- unnar lásu áðumefndan úrskurð Siðanefndar BÍ í fréttatíma 1. apríl sl. með „fréttum“ sem allar voru sérstaklega samdar í tilefni dagsins, 1. apríl. Eftir að úrskurðurinn hafði verið lesinn var endurtekin fréttin sem Siðanefnd BÍ hafði áður úr- skurðað alvarlegt brot á siðareglun- um. Tveimur dögum síðar á páskadag, voru fréttir Stjömunnar frá 1. apríl endurteknar í fréttatíma Stjömunn- ar, þar á meðal dómur Siðanefndar og fréttin sem úrskurðurinn reis af. Stjóm BÍ bendir á 6. grein siða- reglna þar sem segir: „Við framsetn- ingu frétta af úrskurðúm Siðanefnd- ar sýna blaðamenn alla þá aðgát sem siðareglumar ætlast til." Stjóm BÍ telur að með því að lesa úrskurð Siðanefndarinnar innan um tilbúnar fréttir 1. apríl og gefa þannig óbeint í skyn að ekkert mark væri takandi á úrskurðinum, hafí fréttastofa og fréttastjóri Stjömunnar vanvirt Siða- nefnd Blaðamannafélags íslands, siðareglumar og Blaðamannafélagið sjálft. 1. grein siðareglna blaða- mannafélagsins hljóðar svo: „Blaða- maður leitast við að gera ekkert það sem til vanvirðu má telja fyrir stétt sína eða stéttarfélag, blað eða frétta- stofu. Honum ber að forðast hvað- eina sem rýrt gæti álit almennings á starfí blaðamanns eða skert hags- muni stéttarinnar. Blaðamaður skal jafnan sýna drengskap í skiptum sínum við starfsfélaga." Stjóm Blaðamannafélags íslands lýsir yfír vanþóknun sinni á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa ver- ið á fréttastofu Stjömunnar í þessu máli og áskilur sér allan rétt varð- andi hugsanlegt framhald þessa máls. Fyrir hönd stjómar Blaðamanna- félagsins, Lúðvík Geirsson formaður Morgunblaðið/PPJ Pétur Einarsson flugmálastjóri ásamt starfsmönnnum loftferðaeftir- lits og kennurum, auk hluta þeirra nemenda sem námskeiðið sóttu. 20 nemar á flug- kennaranámskeiði FYRST'A flugkennaranámskeiði sem haldið er hérlendis lauk laug- ardaginn 9. april sl. Námskeiðið sóttu að þessu sinni rúmlega 20 nemar en það var haldið i húsa- kynnum flugmálastjórnar á Reykjavíkurflugvelli. Flugmála- stjóra stóð fyrir námskeiðinu og verður það haldið árlega fram- vegis. Hveijum flugmanni sem hyggst leggja stund á flugkennslu og hljóta flugkennararéttindi er skylt að sækja námskeiðið og standast próf með lágmarkseinkunn 7,0 sem jafnframt er lágmarkseinkunn í öllum flug- prófum. Námstilhögun er þannig, að u.þ.b. 100 klst. kennslu er dreift á 10 vikur. Auk þess eru fluttir nokkrir smærri fyrirlestrar sem fjalla um breytilegt efni, s.s. leit og björgun, reglur um loftferðir, viðhald loftfara, slq'öl og skráningar o.fl. Nýbreytni þessa námskeiðshalds er sú, að í stað þess að flugmenn leiti erlendis eftir þessari menntun eða stundi sjálfsnám án leiðbeinenda, njóta þeir nú leiðsagnar sérfróðra manna, sem sniðið hafa námið að íslenskum aðstæðum og skilyrðum. Það er von flugmálastjómar að þessar auknu kröfur hafi bætandi áhrif á almenna flugkennslu og flug- öryggi í landinu. (Fréttatilkynning) Marargata 6 Húseignin Marargata 6 í Reykjavík er til sölu. Húsið stendur á stórri hornlóð og er að grunnfletí um 160 fm. Húsið er 2 íbúðarhæðir, rúmgott íbúðarris og kjallari með fullri lofthæð. Útigeymslur og bílsk. fylgja. Afh. hússins getur orðið strax. Allar upplýsingar gefur undirritaður, Hafsteinn Hafsteinsson, hrl. Síðumúla 1, sími688444. GIMLIGIMLI Þorsgata 26 2 hæð Simi 25099 pp Þorsgato26 2 harð Sinn 25099 /,j . ® 25099 Arni Stefáns. viðskfr. Bárður Tryggvason Elfar Ólason Haukur Sigurðarson Raðhús og einbýli VANTAR EINBÝLI Höfum mjög fjárst. kaup. aö góðu 140-250 fm einb. i Garöabæ eöa Kóp. VANTAR RAÐHÚS Höfum fjárst. kaupendur að góöum raöh. í Seljahv., Seláshv. eða Graf- arvogi. Mega vera á byggstigi. LITLAGERÐI Fallegt 240 fm einb. ásamt 40 fm bilsk. Husiö er í mjög góöu standi m. nýl. þaki. Glæsil. garöur séríb. í kj. Verö 10,8 millj. PARHÚS - KÓP. Glæsil. 180 fm parh. ásamt 30 fm bílsk. Afh. fullb. aö utan en fokh. aö innan. Skemmtil. staðsetn. Gengt Nauthólsvik. Frábært útsýni. SUÐURHVAMMUR - HF. Fallegt 195 fm raöh. á tveimur hæöum. 30 fm bílsk. Afh. fokh. aö innan en fullb. aö utan. Frábært útsýni. Einnig 110 fm efri sérh. m. 25 fm bilsk. og 95 fm neöri hæö m. sérinng. BJARNHÓLASTÍGUR Fallegt 180 fm einbh. ásamt góöum 50 fm bilsk. 4 góö svefnherb. Nyl. parket. Endurn. eldhús. Mögul. skipti. Blómaskáli. Fallegur ræktað- ur garöur. Ákv. sala. Verö 8-8,5 miilj. VESTURBÆR-KÓP. Skemmtil. 130 fm steypt parhús ásamt 50 fm bílsk. 4 svefnherb. Nýl. verksmgler. Fallegur ræktaöur garöur. Heitur pottur. Mjög ákv. sala. Verö 6,5-6f7 millj. ESJUGRUND Stórgl. ca 300 fm raöhús meö óviöjafnan- legu útsýni. 35 fm upphituö garöstofa. Lítil íb. í kj. Eign í sérfl. Mögul. aö taka minni eign uppí. BRAUTARÁS Stórgl. 200 fm fullb. endaraöhús ásamt tvöf. bílsk. Húsið er fullfrág. mjög vandaö. Mjög fallegt útsýni. Arinn í stofu. Laust i júní. Hagst. áhv. lán. Ákv. sala. SEUAHVERFI Vandaö 240 fm einb. á tveimur hæöum ca 10 ára gamalt. Innb. bilsk. 4 svefn- herb. Glæsil. útsýni. Fallegur garöur. 5-7 herb. íbúðir BRAGAGATA - 6 HERB. Glæsil. 125 fm íb. á 1. hæö í góöu stein- húsi. Nýtt gler og eldhús. Ánv. 1900 þús. langtímalán. Ákv. sala. Verö 6 millj. GRENIGRUND - KÓP. Falleg 150 fm hæö i nýl. fjórbhúsi. 35 fm innb. bílsk. 4 svefnherb. Glæsil. útsýni. Suöursv. Frág. rækt- aður garöur og bílaplan. Ákv. sala. NÝBÝLAVEGUR Falleg 140 fm efri sérhæö ásamt 30 fm bílsk. 4 svefnherb. Nýtt gler. Fráb. útsýni. HJARÐARHAGI Góð 130 fm ib. á 2. hæð + bílsk. 4 svefnherb. Sérþvhús. Suðursv. Ákv. sala. SILUNGAKVÍSL Glæsil. ný 120 fm efri sérhæö í tvib. ásamt 50 fm gluggalausu rými og 30 fm bilsk. Frág. garður. Mikiö áhv. Ákv. sala. SKÓLAGERÐI - KÓP. - LAUS STRAX Falleg 130 fm sérh. á 1. hæð. Bflskrött- ur. Sérinng. Nýtt aldh. og gler. Verð 5,5-5,6 millj. LAUFVANGUR Glæsil. 120 fm neöri sórh. ásamt bílsk. i nýl. tvibhúsi. Arinn. Fallegur garöur. Mjög vönduö eign. Verö 7,1 millj. TÓMASARHAGI Glæsil. 150 fm sérh. ásamt góðum bílsk. Frábær staösetn. Laus fljótl. 4ra herb. íbúðir UÓSHEIMAR Falleg 112 fm íb. í lyftubl. Sórinng. 3 svefnherb. VerÖ 5 millj. ÞINGHOLTSSTRÆTI Góö 70 fm íb. á 2. hæö. Nýl. eldhús og gler. Verö 3,9 millj. ÁLFTAHÓLAR + BÍLSK. Falleg 117 fm íb. á 5. hæö ásamt 30 fm bilsk. Fráb. útsýni. Ákv. sala. Verð 5,2 m. LAUGARÁSVEGUR - SÉRHÆÐ + BÍLSKÚR Ca 100 fm íb. á jaröhæö i fallegu þribhúsi. Nýl. bílsk. Fallegur garöur. Gott útsýni. Laust strax. Verö 5,5 millj. BERGSTAÐASTRÆTI Glæsil. 4ra herb. íb. á neöri hæð i tvib. steinhúsi. íb. er öll endurn. Nýtt eldhús, gluggar, lagnir o.fl. Verö 4,2 millj. RÁNARGATA Falleg 4ra herb. risíb. í góöu steinh. íb. er öll endurn. á vandaöan hátt. 2 góö svefnherb. Tvær stofur. Nýir gluggar, innr. o.fl. Mjög ákv. sala. Verð 4,9-5 millj. HRAUNTEIGUR Góö 130 fm sérh. + bilsk. FLÚÐASEL Glæsil. 110 fm íb. á 1. hæö. Vandaöar innr. Parket. Verö 4,8 millj. KÓPAVOGSBRAUT Stórgl. 110 fm íb. á jaröh. 3ja herb. íbúðir UÓSHEIMAR Gtæsil. 3ja herb. ib. ó 3. hæö. íb. er mikiö endurn. Fallegt útsýni. Parket. Ákv. sala. VESTURBRAUT - HF. Ca 70 fm íb. á 2. hæö i steinhúsi. Nýtt gler. Verð 2,7 milij. HRINGBRAUT Falleg 80 fm íb. á 2. hæö. Nýtt eldhús og baö. 10 fm sérgeymsla í kj. Áhv. nýtt lán frá Húsnæðisstj. ca 2 millj. Verö 3850 þ. KÁRSNESBRAUT Falleg 3ja herb. ib. í nýl. húsi. Glæsil. útsýni. Verö 3650 þús. HAMRAHLÍÐ Rúmgóö 3ja herb. ib. á 3. hæö. íb. er öll ný máluð og i góöu standi. Mjög ákv. sala. HÁALEITISBRAUT Falleg rúmg. 3ja herb. ib. á jaröh. í fallegu stigahúsi. Rúmg. svefnherb. Endurn. baö og eldh. Góöur garöur. Verö 4,3 millj. SÓLVALLAGATA Góö 3ja herb. íb. á jaröh. i góöu steinh. Sérhiti og inng. Nýstands. baö. Ákv. sala. Verö 3,5 millj. Gæti hentaö fötluöum. GRENSÁSVEGUR Góö 85 fm íb. á 3. hæö i mjög góöu fjölb- húsi. Rúmg. íb. Vönduö sameign. Verö 4 m. GERÐHAMRAR Ca 119 fm neöri hæö i tvíb. Skilast fullb. utan, fokh. innan. Verö 3,2 millj. 2ja herb. TRYGGVAGATA Stórglæsil. rúml. 90 fm íb. á 4. hæö. Parket. Suöursv. Glæsil. útsýni. Verö 4,5 millj. ORRAHÓLAR Glæsil. 70 fm íb. í lyftuh. HRAFNHÓLAR Falleg 65 fm íb. á 1. hæö í vönduöu stigah. Stór stofa. Ákv. sala. REYNIMELUR Falleg 65 fm íb. á 2. hæö í fallegu steinh. íb. er talsv. endurn. Fallegur ný stands. garöur. Ákv. sala. Verö 3,5-3,6 millj. EIÐISTORG Glæsil. 2ja herb. íb. á 3. hæö í vönduöu fjölbhúsi. Stórar suöursv. Ákv. sala. Verð 3,7-3,8 millj. ÁLFHÓLSVEGUR Góö 60 fm ib. á 1. hæö. Sérinng. Verö 2,9 millj. NJÁLSGATA Glæsil. 70 fm íb. á 2. hæð í tvíb. íb. er öll endurn. Nýjar innr. Ákv. sala. KRÍUHÓLAR Falleg 55 fm íb. á 6. hæö í lyftuh. Mjög fallegt útsýni. Nýl. teppi. Mikil sameign. Verð 3,0 millj. HALLVEIGARSTÍGUR Falleg 35 fm samþykkt ib. á jaröhæö. Nýtt parket. Verö 1950 þús. HRAUNBÆR Falleg 70 fm íb. á 3. hæö í nýi. fjölbhúsi. Stórar suöursv. Verö 3,5 millj. SKIPASUND Falleg 65 fm íb. í fallegu tvíbhúsi. MikiÖ endurn. Nýtt rafmagn, lagnir o.fl. Sérinng. Verö 3,2 millj. ENGJASEL Falleg 40 fm ib. á jaröh. i fjölbhúsi. Ákv. sala. Verö 2,5 millj. SAMTÚN Lítil stórgl. 2ja herb. ósamþykkt ib. Óvenju vönduö. Verö 2,5 millj. DRAFNARSTÍGUR Falleg 70 fm risib. Parket. Fallegt útsýni. Verö 3,6 millj. Námskeið um heimagist- ingu og gistiheimili NÁMSKEIÐ um heimagistingu og gistiheimili sem Fræðslumið- stöð iðnaðarins hefur undirbúið verður haldið á næstunni af Námsflokkum Reykjavíkur og Atvinnumálanefnd Akureyrar- bæjar. Námskeiðið er ætlað fólki, sem hyggst reka þjónustu af þessu tagi fyirir ferðamenn. Námskeiðið í Reykjavík hefst 26. apríl, stendur í fjórar vikur og verð- ur kennt tvö kvöld í viku og á laug- ardögum. Námskeiðið á Akureyri hefst síðar í vor og næsta vetur verður það væntanlega haldið víðar um land. Námsþættir eru fjórir: Ferðamál, Menning og mannleg samskipti, Að stofna og reka lítið fyrirtæki og Gott húshald. Fræðslumiðstöð iðnaðarins hefur unnið náms- og kennslugögn. Aðal- leiðbeinendur í Reykjavík verða Steinunn Harðardóttir, Úlla Magn- ússon, Sigrún Magnúsdóttir og Steinunn Ingimundardóttir. (Úr fréttatilkynningu) Norræn bók- mennta- vakaí Stokkhólmi Stokkhólmi. Frá Pjetri Hafstein Lárus- syni, fréttaritara Morgunblaösins. STÚDENTAFÉLAG Stokk- hólmsháskóla hélt norræna bók- menntavöku 21. apríl sl. Voru þar mættir ungir rithöfundar frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi (raunar bæði sænsku- og finnskumælandi) og auk þess frá íslandi, en þaðan kom Einar Már Guðmundsson. Engum var boðið frá Færeyj- um eða Grænlandi. Raunar sjást þess sjaldan merki að lönd þessi sé að finna á landakortum skandinavískra menningarvita. Dagskráin hófst kl. 16.00 fimmtudaginn 21. apríl og foru þá fram pallborðsumræður rithöfund- anna undir stjóm Ola Lorsmo, rit- stjóra Bonniers litteratur magasin. Umræður þessar einkenndust nokkuð af þeim þráláta kvilla Skandinava að fjalla um bók- menntir út frá áratugum, sbr. 80- talistema í Svíþjóð. Leiðir þetta gjaman til þess að hver ný kynslóð rithöfunda, að ekki sé sagt aldurs- hópur, telur sig hafa höndlað áður óþekktan sannleika. Gerði Einar Már heiðarlega en lítt heppnaða tilraun til að sýna mönnum fram á að ekkert væri nýtt undir sólinni. Ýmsir rithöfundanna töldu bók- menntaumræður í heimalöndum sínum um of mótaðar af gagnrýn- endum af 68-kynsIóðinni. Sjálfir vildu þeir fá að lýsa huglægum vemleika sínum meðan gagnrýn- endur heimtuðu hlutlægt mat á þjóðfélaginu líkt og tíðkaðist með- an þeir voru ungir. Áð loknum þessum pallborðsum- ræðum, sem e.t.v. væri réttara að kalla samansafn einræðna, lásu rithöfundamir úr verkum sínum. Einar Már las danskar þýðingar á ljóðum sínum svo og kafla úr skáld- sögu sinni Vængjasláttur í þak- rennum. Með haustinu er sú bók væntanleg í sænskri þýðingu Inge Knutsons. Það er bókaútgáfan Fripress í Stokkhólmi sem gefur þýðinguna út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.