Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988 21 Þing Málm og skipasmíðasambandsins: Fræðslu og öryggismál viðfangsefni þingsins Tveggja ára stórátaki í vinnuverndarmálum hrundið af stað FRAMTÍÐ í málmiðnaði var yfir- skrift 13. þings Máhn og skig- asmíðasambands íslands (MSÍ) sem lauk í gistihúsinu við Sigtún á þriðjudag. A þinginu voru fræðslumál og starfsaðstæður málmiðnaðarmanna efst á baugi. í umræðum um ályktanir þings- ins siðasta fundardaginn kom fram að málmiðnaðarmenn telja greinina i mikilli kreppu, jafnvel þeirri alvarlegustu frá upphafi. Skýringanna sé að leita í erfiðri samkeppnisstöðu fyrirtækjanna, flótta ungs fólks úr greininni, lélegum kjörum og aðbúnaði. Málmiðnaðarmenn líta á það sem höfuðverkefni sitt að bæta verk- þekkingu og taka ríkan þátt í skipulagi og þróun fyrirtækj- anna. Til þess að ná þeim markmiðum sem sett voru fram í ályktun þings- ins um atvinnumál telja málmiðnað- armenn að stjómendur fyrirtækj- ann og ráðamenn þjóðarinnar þurfi að breyta viðhorfum sínum. Tryggja þurfi sömu fyrirgreiðslu til útgerðar vegna nýsmíði, breytinga og viðgerða hvort sem verk sé unn- ið hérlendis eða erlendis. Ferðaskrif stofa opnuðí Hveragerði Hveragerði. FERÐASKRIFSTOFA hefur ver- ið opnuð í Hveragerði. Er hún tii húsa í nýbyggðu verslunar- húsi að Breiðumörk 10. Eigandi hennar er Valgarð Runólfsson sem i áraraðir hefur verið skóla- stjóri Gagnfræðaskóla Hvera- gerðis. Aðspurður sagðist Valgarð mundi bjóða ferðir innanlands og utan. Hann hefði tekið að sér um- boð fyrir Flugleiðir og bflaleigu, Utsýn og Faranda og gæti einnig boðið upp á ferðatryggingar. Þá mun hann veita upplýsingar fyrir ferðamenn og er sú þjónusta kostuð af Hveragerðisbæ. Kvaðst Valgarð vona að Hver- gerðingar og aðrir notfærðu sér þessa nærtæku þjónustu. Skrifstofustúlka hefur verið ráð- in Bryndís Forberg. — Sigrún Þá gagmýndu þingfulltrúar skip- asmíðastöðvar fyrir að senda heldur verkefni úr landi en að skipta við keppinauta sína innanlands. „Fyrir- tæki þurfa að hafa samvinnu sín á milli til að dreifa áhættu og gætta eðlilegrar hagræðingar og sérhæf- ingar," segir orðrétt í plagginu. Fræðslumál voru í brennidepli á þinginu. Var m.a. fjallað um endur- menntunarsjóð málmiðnaðarmanna sem stofnaður var með samkomu- lagi MSÍ og Sambands málm og skipasmíðastöðva síðastliðið sumar. „Þörfm fyrir endurmenntun hefur aldrei verið brýnni en nú...Þær greinar sem ekki leggja neitt af mörkum til endurmenntunar munu standa frammi fyrir því að fá hvorki hæfa starfskrafta úr röðum þess fólks sem kemur inn á vinnumark- aðinn né eiga þess kost að endur- þjálfa fólk til nýrra starfa innan viðkomandi greina," segir í ályktun um þessi mál. Þingið lagði áherslu á að endur- menntun færi fram á landsbyggð- inni þegar því yrði við komið. Á höfuðborgarsvæðinu væru fjórir skólar sem biðu upp á menntun í iðngreininni en Vestfírðingar og Austfirðingar hefðu enga aðstöðu fyrir slíka kennslu. Þingfulltúar telja mörgu ábóta- vant í öryggismálum málmiðnaðar- manna. Gagnrýni þeirra beinist jafnt að vinnuveitendum, ríkisvald- inu og starfsmönnunum sjálfum. Tillögur þingsins gera ráð fyrir að hafíð verði tveggja ára stórátak í öryggis og vinnuvemdarmálum málmiðnaðarmanna og liggji niður- staða þess fyrir á þingi MSÍ árið 1990. I þessu skyni vilja þeir ráða sérstakan starfsmann sem njóti launa frá Vinnueftirliti ríkisins til þess að sinna vinnuvemdarmálum. Þá er þeim tilmælum beint til aðild- arfélaga sambandsins að virkja öryggistrúnaðarmenn á vinnustöðv- um. Félögin leggji jafnramt fram skýrsla um aðbúnað tvisvar á ári. Málm og skipasmíðasamband Is- lands var stofnað árið 1964. Guðjón Jónsson sem gengdi varafor- mennsku í sambandinu frá stofnun þess til ársins 1976 og formennsku frá þeim tíma gaf ekki kost á sér til endurkjörs að þessu sinni. Við embætti hans tók Öm Friðriksson. Varaformaður var kosinn Guð- mundur Hilmarsson en aðrir í stjórn em Hákon Hákonarsson, Óskar Amórsson og Einar Gunnarsson. Meðstjómendur em Jóhann Sævar Kristbergsson, Guðmundur S.M. Jónasson, Rúnar Bogason og Har- aldur Guðmundsson. „Framtíð greinarinnar bygg- ist á menntun og fræðslu“ - segir Guðjón Jónsson fráfarandi formaður Málm og skipasmíðasambands íslands_____ ÞINGI Májm og skipasmíða- sambands Islands lauk í gisti- húsinu við Sigtún á þriðjudag. Við stjórnarkjör gær tók Öm Friðriksson við formennsku i sambandinu af Guðjóni Jóns- syni sem gengt hefur starfinu um 12 ára skeið og gaf ekki kost á sér. „Framtíð þessarar iðngreinar byggist fyrst og fremst á menntun og fræðslu. Þeir sem ráða yfír þekkingu og hæfni geta selt vinnu sína,“ sagði Guðjón Jónsson í samtali við Morgunblaðið við lok þingsins. „Það er staðrejmd að ungir menn fást ekki til vinnu í þessari grein, því þetta em tvímælalaust með óþrifalegri og vandasamari störfum. Á meðan við getum ekki boðið upp á betri starfsskilyrði og hærri laun verður ekki spomað við þessasri þróun. Ég lít á það sem eitt brýnasta verkefni okkar að ná greininni upp úr þessu óþrifaástandi." „Að sjálfsögðu em næg verk- efni og atvinna forsenda þess að einhverjar breytingar verði á starfsskilyrðum í greininni. Fyrir- tæki sem í raun hanga á horri- minni og em í hálfum rekstri em þess vart megnug að koma til móts við kröfur okkar um betri aðbúnað," sagði Guðjón en þing- fulltrúar fjölluðu nokkuð um erfíð- leika skipasmíðaiðnaðaríns. „Skipasmíðir og viðgerðir em viðamestu verkefni félagsmanna og því ekki að ósekju að samband- ið taki á þessum vanda. Því miður virðist stefna stjórnmálamanna vera sú að láta þessi verkefni úr landi. Við höfum ásamt eigendum fyrirtækjanna kvartað aftur og aftur yfír því ósamræmi sem ríkir varðandi bankaábýrgðir. Þegar viðgerðir em unnar erlendis fæst bankaábyrgð samstundis, en lána- fyrirgreiðsla er minni ef verkefnið er unnið innanalands," sagði Guð- jón. wm Guðjón Jónsson „Nú er talið að íslendingar muni greiða 3 milljarða króna fyrir viðgerðir á skipum erlendis á þessu ári. Ef menn em að kveinka sér undan 15 milljarða viðskiptahalla ætti þessi skerfur að koma fyrst til athugunar." Guðjón sagði einnig fráleitt að skipasmíðastöðvar létu sjálfar hluta verkefna úr landi í stað þess að leita til aðila innanlands, eins og raun væri á í nokkmm tilvikum. Samningar félagsmanna hafa verið lausir síðan um áramót og að sögn Guðjóns er það efst á baugi í kjaramálum að færa taxta að greiddu kaupi. Það væri óeðli- legt að kaup gmndvallaðist á per- •sónulegu samkomulagi starfs- manna við vinnuveitendur sína. „Við höfum til þessa ekki viljað blanda okkur í þessa samninga- gerð heldur bíða og sjá hvemig þessari hrinu ljúki. Sambandið mun taka að sér samningagerð fyrir aðildarfélögin eins og áður. Við höfum ekki sett fram eina ákveðna kröfu um prósentur og er ekki ljóst hvaða aðferð myndi henta best til að færa taxtana að greiddu kaupi. Þar koma til at- hugunar starfsaldurshækkanir, hækkanir á gmnnkaupi og sér- greiðslur," sagði Guðjón Jónsson. OTENJULEQ UTSALA FYRIR VANDLÁTA í Kaupmannahöfn F/EST í BLAÐASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI , Eggert feldskeri rýmir til fyrir nýjum vöru: M Útsalan hjá okknr stendnr til 30. apríl. Eggert býðnr loðfeldi og leðnrvörnr á lækknðn verði, til þess að liægt sé að rýma til fyTir nýjum vörnm. Þetta er einstakt tækifæri. Eggert feldskeri efnir ekki til útsöln á liverjn ári, svo að nú getnr þú vafalaust fnndið eittiivað vlð þitt liæfi. s Uf > EGGERT feldskiri Efst á Skólavörðustígnum, sími 11121. SEM SAGT: OVENJULEG UTSALA FYRIR VANDLATA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.