Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.04.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988 VERKFALL VERSLUN ARMANN A Verkfallsstj órn VR: Unnid á skrifstofum á bak við læstar dyr TÖLUVERT var. um verkfallsbrot á félagssvæði VR í gær, að sögn Kristins Stefánssonar, sem sæti á i verkfallsstjórn VR, en hann sagðist ekki vita til þess að nokkurs staðar hefði komið til ryskinga vegna verkfallsvörslu. Hann sagði að mikið bærist af ábendingum um að unn- ið væri á skrifstofum á bak við læstar dyr og í að minnsta kosti tveim- ur tilvikum hefði matvöruverslunum verið lokað hjá „síbrotamönnum". Þeim yrði sýnd aukin harka framvegis. Rúmlega 200 manns sinntu verkfallsvörslu á vegum VR í gær og sagði Kristinn að gott skipulag væri nú komið á vörsluna og erfitt væri orðið að fela verkfallsbrot. Kristinn sagði að VR hefði fengið úr sumum af viðkomandi fyrirtækj- Qölda ábendinga um vinnu á skrif- stofum, en eigendur svöruðu oft í síma og neituðu að fleiri væru við vinnu þar. Verkfallsverðir hefðu hins vegar séð starfsmenn fara inn og út um, og bifreiðum starfsmanna hefði verið lagt þar fyrir frarnan, þannig að gildar ástæður væru fyrir grun- semdum manna. Kristinn sagði að ábendingar hefðu komið um verk- Morgunblaðið/Emilía Gengið um borð í Arnarflugsvél á leið til Akureyrar í gær. Leiguflug í verkfalli: Lítil aukning, mik- ið um fyrirspurnir VERKFALL verslunar- og skrif- stofufólks hefur ekki enn haft telj- andi áhrif á starfsemi litlu flugfé- laganna i Reykjavík, þótt innan- landsflug Flugleiða hafi stöðvast. Nokkur aukning hefur þó orðið á farþegaflutningum félaganna úti á landi. Vöruflutningar hafa dreg- ist mjög saman. Mikið er um fyrir- spurnir og sögðu talsmenn félag- anna, að svo virtist sem fólk vildi bfða átekta fram eftir vikunni i þeirri von, að verkfallinu linnti. Allt rólegt ennþá Hjá leiguflugi Helga Jónssonar var allt rólegt í gær. Helgi Jónsson sagði í samtali við Morgunblaðið að bókað væri tvo til þijá daga fram í tímann. „Fólk er ekkert á ferðinni ennþá. Það breytist þó væntanlega ef verkfallið dregst á langinn," sagði Helgi. Hann taldi að það hefði sín áhrif, hve verk- failið lamar allt athafnalíf. Hann sagðist anna vel öllum fyrirspumum og geta bætt við eftir þörfum. Hjá Helga er afgreiðsla fyrir Flugfélag Norðurlands og Flugfélag Austur- lands. Helgi sagði að famar hefðu verið fímm ferðir á dag til Akureyrar og fimm ferðir til Austurlands, að mestu leyti á vegum þessara félaga. og hefur til þess eina 19 sæta vél og þijár tíu sæta vélar. Búast við annasamri helgi „Það hefur aukist töluvert hjá okk- ur, séi-staklega til Vestmannaeyja," sagði Halldór Ámason hjá Leiguflugi Sverris Þóroddssonar. Hann sagði að pantað væri fyrir daginn í dag og að nokkuð væri að gera í leiguflugi vítt og breitt út á land, einnig hefðu komið fyrirspumir um flug til út- landa. Halldór sagðist búast við ann- asamri helgi, ef verkfallið dregst á langinn. Flugfélagið Emir á ísafírði hefur aðstöðu hjá Leiguflugi Sverris Þóroddssonar og sagði Halldór að meira væri að gera hjá þeim nú í verkfallinu, einkum f farþegaflutn- ingum til og frá ísafírði. Margar fyrirspurnir Mikið hefur verið um fyrirspumir um flug hjá leiguflugfélaginu Vestur- flugi, en ekki hefði í gær farið að gæta aukinna farþegaflutninga. Jón- as Jónasson hjá Vesturflugi sagðist búast við aukningu upp úr miðri viku ef verkfall stendur þá enn. í gær hamlaði veður flugi á marga staði. fallsbrot hjá Eimskip, sem fengið hefði undanþágu vegna samskipta við skip útj á hafí, og gæti undanþág- an verið dregin til baka ef það kæmi í ljós að fleiri væru þar við vinnu en leyfilegt væri. Um helgina var einna mest um verkfallsbrot í sölptumum og bakar- íum, að sögn Péturs A. Maack, form- anns verkfallsstjómar VR. Pétur sagði að þar væri mikið af unglingum í vinnu, sem oft vissu lítið um rétt- indi sín og skyldur - „verkfallsvarslan hefur að stórum hluta verið fólgin í aukakennslu fyrir nemendur." Ungl- ingamir óttuðust að missa vinnuna ef þeir mættu ekki til starfa, en flest- ir yrðu við beiðni verkfallsvarða um að hætta. Yfirborgaðir verk- fallsbijótar Pétur sagði að flest verkfallsbrotin væru á þann veg að VR-félagar væru við vinnu, einkum í stærri fyrirtækj- unum. Víða væri viðkvæðið þar að menn segðust vera yfirborgaðir og teldu sér þess vegna ekki skylt að taka þátt í verkfalli sem ætti að knýja fram taxtahækkanir, en slíkt væri að sjálfsögðu ekki gild afsökun. „Þeir sem em yfírborgaðir verða að gera sér grein fyrir að aðrir hafa barist þeirra kjömm. Það má nefna að 40% kvenna á skrifstofum em á flötum töxtum." Einnig er mikið um að eigendur bijóti gegn verkfallinu í smærri fyrir- tækjum og verslunum, að sögn Pét- urs. Hann sagði að á skrá hjá VR væm nokkrir tugir „síbrotamanna", sem hefðu verið staðnir að verkfalls- broti oftar en einu sinni og sumir mörgum sinnum, og í framtíðinni yrði tekið harðar á þeim en gert hefði verið hingað til. Hann sagði að um helgina hefði komið til ryskinga á tveimur stöðum. Kaupmaður í Nóat- úni hefði lagt hendur á unga konu og slitið af henni armbandsúr og við- skiptavinur hefði í einu tilfelli ráðist á verkfallsvörð. í hvomgu tilfellinu hefðu þó nokkur meiðsli orðið. Enn deilt um öryggisverði í Kringlunni Pétur A. Maack sagði. að verkfalls- stjóm VR hefði sannanir fyrir því að öryggisverðir tilkynntu um komu verkfallsvarða í gegnum labb-rabb tæki og menn hlypu búð úr buð til að vara eigendur við svo að verkfalls- bijótar gætu forðað sér í tæka tíð. Hann sagðist hafa óskað eftir þvf að VR-maður fengi labb-rabb tæki til að fylgjast með fjarskiptum, en því hefði verið neitað. VR hefði hins veg- ar verið boðið að hafa mann í stjóm- stöð öryggisgæslunnar, en menn hefðu ekki séð ástæðu til að notfæra sér það boð, ennþá að minnsta kosti. Pétur sagðist vilja taka fram að það væm einungis örfáar verslanir í Kringlunni sem væm sek um verk- fallsbrot, en Kringlan fengi slæmt orð á sig vegna þeirra. Tíu undanþágur frá verkfallinu vom gefnar í gær og nokkrar um helgina. Þeirra helstar vom undan- þágur fyrir læknaritara, símastúlkur hjá læknum og aðföng - þar á meðal mjólk - til ríkisspítala, elli- og hjúk- ranarheimila og dagheimila. Rútur halda áætlun Mun mínni vöruflutningar Ámi Ingvarsson framkvæmda- stjóri Amarflugs innanlands var einn i afgreiðslunni í gær. Hann sagði að farþegaflutningar hefðu heldur dreg- ist sáman verkfallsdagana og vöm- flutningar minnkað að mun. „Það virðist sem fólk hafí haft góðan fyrir- vara á ferðalögum sínum, fólk hefur líka minna að gera núna,“ sagði Ámi. Hann sagði pantanir einnig vera nokkm minni en venjulega, en mikið um fyrirspumir. Ámi sagði dálítið hafa verið um leiguflug, þó ekki mik- ið. Þegar Morgunblaðsmenn bar að, var Twin Otter vél að leggja af stað með hóp skíðamanna til Akureyrar. Amarflug innanlands heldur uppi áætlunarflugi til 9 staða á landinu TAFIR verða ekki á ferðum áætl- unarbíla af völdum verkfallsins. Bilstjórarnir selja sjálfir farmið- ana i bilunum og taka við pökkum við bilana. Hólmar Magnússon bílstjóri á Keflavíkurrútunni var í óða önn að selja farmiða þegar Morgunblaðið kom að Umíerðarmiðstöðinni í gær. Hann sagðist vera önnum kafínn all- an tímann sem staldrað er við og svo væri um aðra bílstjóra einnig. Far- þegar stóðu í biðröð við dyr bílsins og þegar Hólmar hafði lokið við að afgreiða þá, þurfti hann að taka við pökkum þar sem pakkaafgreiðsla Umferðarmiðstöðvarinnar er lokuð. Því verða viðskiptavinimir að koma með pinkla stna rétt áður en bfllinn á að fara og afhenda þá bflstjóranum. Farþegum hefur ekki fjölgað vegna verkfallsins að sögn Hólmars. Þó hélt hann að þess gætti e.t.v á lengri leiðunum. Tafír hafa ekki orðið af völdum verkfallsins á ferðum áætlun- arbflanna, en upplýsingakerfi Um- ferðarmiðstöðvarinnar og ýmis þjón- usta við farþega hefur stöðvast. Morgunblaðið/BAR Pétur A. Maack, formaður verkfallsstjómar VR, ræðir við hóp verk- fallsvarða áður en farið er i könnunarferð í Kringluna. Magnús L. Sveinsson, formaður VR: Sama staðan og í byrjun viðræðna „ÞAÐ hefur ekkert gengið á sáttafundum verslunarmanna og vinnuveitenda um helgina,“ sagði Magnús L. Sveinsson, formaður VR, í samtali við Morgunblaðið í gær, en fjórtán stunda samn- ingafundi deiluaðila lauk hjá ríkissáttasemjara á fjórða tíman- um aðfaranótt mánudags. „Það var rætt um launamálin á fundinum á sunnudag, en vinnuveit- endur gefa ekkert eftir, þannig að það situr allt við það sama í því. Þetta er sama staðan og þegar við byrjuðum. Það er því augljóst að verkfall verslunarmanna mun standa í einhvem tíma enn, en það er sorglegt að það skuli ekki hafa fengist umræða um aðalmálið fyrr en í gær, 10 dögum eftir að við boðuðum verkfall." Magnús sagði að hugmyndir um bónuskerfi fyrir afgreiðslufólk hafi borið á góma á fundinum á sunnu- dag. Enn lægju ekki fyrir ákveðnar tillögur um þetta mál, en rætt hefði verið um að stofna nefnd viðræðu- aðila sem myndi fjalla um hvemig hægt væri að koma bónuskerfi á. Reykjavík: Orðið mjólkurlaust ENGIN mjólk fékkst síðdegis í gær í flestum þeim verslunum sem höfðu opið í Reykjavík. Morgun- blaðið ræddi við nokkra kaupmenn og höfðu flestir sömu sögu að segja, mjólkin búin eða að klárast. Aðeins í einni verslun var búist við að mjólkin dygði þar til í dag, í Kjörvali í Mosfellsbæ. Rætt var við kaupmenn I nokkmm verslunum víðs vegar um Reykjavík- ursvæðið. Þeir bám sig vel, þrátt fyrir verkfallið. Sögðust eiga nægar vörur — nema mjólk. Sumir vom einnig að klára osta og aðrar mjólkur- vömr. Ólafur Kristjánsson fram- kvæmdastjóri Kjörvals reiknaði með að mjólkin dygði til hádegis. Allir kaupmennimir kváðust vera vel birg- ir af öðmm drykkjarvörum. Vilhelm Andersen fjármálastjóri Mjólkursamsölunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að ekkert hefði verið afgreitt frá Mjólkursam- sölunni síðan á föstudag. Hann sagði alla mjólk nú fara til vinnslustöðv- anna sem næstar em, en hægt yrði að afgreiða mjólk strax og verkfalli lýkur. Mikil mjólk var afgreidd síðustu dagana fyrir verkfall, þó sagði Vilhelm að það hefði dreifst á nokkra daga. Því hefði föstudagurinn ekki verið svo ýkja frábmgðinn venjuleg- um föstudegi. Ekki sagði hann að mjólk hefði verið afgreidd samkvæmt undanþágum í gær. Verkfallsstjóm VR hefur veitt und- anþágur til að afgreiða nauðsynjar til sjúkrastofnana og bamaheimila. Seinkun á verkfallsboðunum: Sökin líklega hjá við- takendum skeytanna - segir Olafur Eyjólfsson, deildar- stjóri hjá Pósti og síma NOKKRUM verkföllum hefur verið frestað vegna þess að fulltrúar vinnuveitenda segjast ekki hafa fengið skeyti með verkfallsboðun frá fjórum félögum verslunarmanna á réttum tíma. Ólafur Eyjólfs- son, deildarstjóri hjá Pósti og síma í Reykjavík sagði i samtali við Morgunblaðið í gær að ekki væri unnt að greina frá gangi á send- ingu skeyta, þar sem ieynd hvíldi yfir öllum fjarskiptum. Skeytasend- ingar væru ipjög öruggur fjarskiptamáti og sökin f þessum málum, ef einhver væri, lægi hjá viðtakendum skeytanna. „Við emm bundin þagnareiði Björgvin Lúthersson, stöðvar- héma eins og allir fjarskiptamenn. stjóri hjá Pósti og síma í Keflavík, Það er reynt að fara eins dult með starfsemina hér á ritsímanum og hægt er, vegna þeirra sem eiga hlut að máli. Þessi umflöllun í fjöl- miðlum um þessi mál er tilefnis- laus. Það er auðvitað hægt að vé- fengja allt og það verður þá bara að fara fynr dómstóla með það,“ sagði Ólafur Eyjólfsson. sagði að öll fimm skeytin frá Versl- unarmannafélagi Suðumesja hefðu verið send strax áfram til ritsímans í Reykjavík, þar á meðal skeytið til Vinnumálasambands samvinnufé- laganna, en VSS sagðist ekki hafa fengið skeytið fyrr en á þriðjudag, þó að það hefði verið sent á föstu- dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.