Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 Japanska varnarmálastofnunin: Vaxandi umsvif Sovétmanna kalla á aukin fjárframlög Tókíó. Reuter. JAPANSKA vamarmálastofnunin hefur farið þess á leit að útgjöld til varnarmála verði aukin um 6,1 prósent á næsta fjárlagaári. Talsmaður stofnunarinnar sagði á blaðamannafundi i Tókió í gær að þeta væri nauðsynlegt vegna sívaxandi hemaðarumsvifa Sovétmanna í Asíu. Talsmaðurinn sagði að þrátt fyrir slökun á spennu í samskiptum aust- urs og vesturs hefðu Sovétmenn ekki dregið úr viðbúnaði sínum í Asíu. Þvert á móti réðu þeir nú yfir fleiri vígtólum í Austurlöndum §ær en nokkru sinni fyrr. Vék talsmaðurinn, Osamu Sairenji, sérstaklega að því Danmörk: að verulegrar aukningar hefði orðið vart á þessu sviði á undanfömu ári þrátt fyrir að sögulegt skref í átt til afvopnunar hefði verið stigið í des- embermánuði er leiðtogar risaveld- anna undirrituðu samninginn um upprætingu meðal- og skamm- drægra kjamorkueldflauga á landi. „Við þurfum því að vinna áfram að því að efla vamir Japans þar sem ekkert bendir til þess að draga muni úr ógnun Sovétmanna," sagði Sair- enji og kvað japönsku vamarmála- stofnunina leggja til að 3.927 mill- jörðum jena (um 1.360 milljörðum ísl. kr.) yrði varið í þessu skyni á næsta flárlagaári, sem hefst 1. apríl 1989. Hart hefur verið deilt um framlög til vamarmála í Japan á undanföm- um ámm en Bandan'kjamenn hafa þrýst á stjómvöld þar um að auka flárveitingar á þessu sviði. Á síðasta ári ákvað ríkisstjóm Japans að veija rúmu prósenti af þjóðarframleiðslu til vamar- og öryggismála og var ákveðið að hvika ekki frá því marki á yfirstandi fjárlagaári. í máli talsmanns vamarmálastofn- unarinnar kom fram að stefnt er að smíði tveggja herskipa og kafbáts á næsta ári auk þess sem fyrirhugað er að festa kaup á 16 bandarískum omstuþotum af gerðinni McDonnell- Douglas F-15. Japanir ráða yfir öflugum herafla. Þeir hafa um 270.000 menn undir vopnum og ráða yfir 52 tundurspillum, 250 orustu- flugvélum og 1.180 skriðdrekum. Prinsarnir í bílslysi Kaupmannahöfn, Reuter. DANSKI krónprinsinn Friðrik, bróðir hans Jóakim og tveir fé- lagar þeirra slösuðust í bilveltu í Frakklandi á þriðjudag. Prinsamir tveir höfðu verið í heimsókn hjá foreldrum sínum í Caix-kastala, þar sem Margrét Danadrottning og maður hennar Hinrik dvelja í sumarleyfí um þess- ar mundir. Bræðumir vom á heim- leið ásamt tveim vinum sínum þeg- ar þeir óku á tré skammt frá Cahor í Frakklandi með þeim afleiðingum að bíll þeirra valt. . Friðrik viðbeinsbrotnaði og þurfti að dvelja á sjúkrahúsi í sólarhring en Jóakim, sem ók bílnum, slasað- ist lítið og fékk að fara af sjúkra- húsi eftir læknisskoðun. Félagar þeírra slösuðust einnig lítillega. A uglýsingastríð Senn hefst einvígi tveggja skúta um Ameríkubikarinn i siglingum, að undangengnu miklu striði á láði og legi. Keppt verður undan San Diego í Kaliforntu, heimahöfn bandarisku skútunnar. Á myndinni er skúta áskorendanna að æfingum. Á stórseglinu er risastór auglýs- ing frá bandarískum heilbrigðisyfirvöldum um skaðsemi reykinga. Talið er að auglýsingin sé ekki nein tilviljun því helzti stuðningsað- ili bandarísku siglaranna er þarlent tóbaksfyrirtæki. Stríð skútustjó- ranna hefur þvt enn fengið á sig nýja mynd. Gíslataka í Vestur-Þýskalandi: Deilt á lögreglu og frétta- menn sakaðir um siðblindu 54 klukkustunda eftirför lögreglu kostaði þrjú mannslíf ZUrich. Fri önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. FIMMTÍU og fjögurra stunda för fréttamanna og lögreglunnar S norðvesturhluta Sambandslýðveldis Þýskalands á eftir tveimur bankaræningjum og vitorðskonu þeirra, sem tóku yfir 30 manns S gíslingu, lauk S síðustu viku. En umræðan um afskipti lögreglunn- ar, fjölmiðla og stjóramálamanna af málinu hófst fyrir alvöra nú S vikunni. Fréttamenn eru gagnrýndir fyrir að hafa gefið vopnuð- um glæpamönnum tækifæri til að baða sig S Ijósi frægðarinnar og er borið á brýn að hafa hjálpað þrjótunum og uppörvað með þvi að koma kröfum þeirra á framfæri við alla þjóðina. Flokks- menn CDU, CSU og FDP hafa gert málið að pólitisku þrætuepli með þvi að benda á að innanríkisráðherrar Nordrhein—Westfalen og Bremen, þar sem bófamir fóru um, séu báðir jafnaðarmenn. Andstæðingar SPD (jafnaðarmanna) telja flokkinn linan i afstöðu sinni gagnvart glæpalýð og segja lögregluna þess vegna hafa hikað við að yfirbuga Ulmennin. Og lögreglan er gagnrýnd fyrir að láta uppákomur sem þessa eiga sér yfirleitt stað. Reuter Bankaræninginn Dieter Degowski heldur skammbyssu að hálsi Silke Bischoff, sem lét lifið er lögreglan lét til skarar skriða gegn ræningjunum. Lengst tíl vinstri er hinn gisUnn, Ines Voitle, sem tókst að flýja úr bilnum er iUmennin vora yfirbuguð. Hans-Jurgen Rösner, Dieter Degowski og Marion Löblich gerðu misheppnaða bankaránstil- raun í Gladbeck, sem er norðan við Dusseldorf, á þriðjudag, 16. ágúst. Lögreglan umkringdi ban- kann svo ræningjunum var ekki undankomu auðið. Þeir ógnuðu bankastarfsmönnum og heimtuðu 300.000 v-þýsk mörk (7,5 millj. fsl. kr.) og hraðskreiðan bíl. Lög- reglan svaraði þessu ekki í fyrstu en bauðst til að minnka refsing- una sem beið þeirra í sex mánuði ef þeir gæfust friðsamlega upp. Hún féllst þó að lokum á að út- vega þeim Audi-bifreið og 1.000 km langur eltingaleikur hófst þar með. Vopnum veifað í fjölmiðlum Ræningjamir tóku tvo gísla með sér úr bankanum. Þeir óku til Bremen, lögðu bflnum þar, tveir keyptu inn, þeir tóku bflafeiju og röbbuðu við fréttamenn. Um sex- leytið síðdegis á miðvikudag skiptu þeir á bifreiðinni og stræt- isvagni með um 30 farþegum. Þeir heimtuðu peninga og einn lögregluþjón og blaðamann í skiptum fyrir gislana í vagninum. Þegar þessu var ekki svarað óku þeir strætisvagninum í átt til Hollands. Þeir námu staðar á hvfldarstað við hraðbrautina og gíslunum úr bankanum var sleppt. Tveir fréttamenn voru teknir haldi í staðinn. Lögreglan handtók og afvopnaði Löblich skömmu seinna þegar hún var á leið í vagninn af salemi. Félagar hennar urðu órólegir þegar hún sneri ekki aft- ur. Þeir hótuðu að myrða litla stúlku ef hún sneri ekki aftur inn- an fimm mínútna. Fréttamenn komu þessu til skila til lögregl- unnar en konan var látin laus of seint. Degowski skaut Emanuele de Giorgi,15 ára ítaiskan pilt, ör- skömmu áður en hún kom aftur í vagninn. Fréttamenn bám de Giorgi úr vagninum en hann var látinn þegar hjálp barst 20 mínút- um síðar. Glæpamennimir fengu BMW- bifreið til umráða við landamæri Hollands og Vestur-Þýskalands. Þeir yfirgáfu strætisvagninn en tóku tvær 18 ára stúlkur, Silke Bischoff og Ines Voitle, með sér í bifreiðina. Hinir farþegamir fengu að fara frjálsir ferða sinna. Þeir höfðu að mestu setið hljóðir og reynt að láta, sem minnst á sér bera í prísundinni. Þeir gerðu þarfir sínar í tröppu við fremri inngöngudymar. Skömmu áður en þeir vom látnir lausir hljóp óvart skot úr skammbyssu Rösn- ers í fótlegg Löblich og skothríð hófst fyrir klaufaskap. Strætis- vagnsbflstjórinn slaðaðist lítils háttar. Ræningjamir óku inn í Holland en snem fljótlega aftur til Þýska- lands og héldu til Kölnar. Þeir námu staðar í göngugötu í miðbæ borgarinnar og ræddu við vegfar- endur og fréttamenn á fímmtu- dagsmorgun. Einn blaðamaður tróð sér inn í aftursæti bifreiðar- innar, þar sem gíslamir tveir og Degowski sátu fyrir, og ók út úr borginni með þeim. Hann fór aft- ur út á hvfldarstað við hraðbraut- ina til Frankfurt. Illmennin yfirbuguð Nokkmm kflómetmm sunnar lét víkingasveit lögreglunnar loks til skarar skríða. Umferðin fyrir aftan bifreið ræningjanna var stöðvuð, ómerktir lögreglubflar óku að henni, einn keyrði aftan á BMW-inn, skipst var á skotum og illmennin vom yfirbuguð. Bisc- hoff lét lífíð en Voitle tókst að flýja úr bflnum og meiddist aðeins lítilsháttar. Ekki er enn vitað með vissu hvort Bischoff féll fyrir skoti bófanna eða lögreglunnar. Einn lögreglumaður lést og annar særðist alvarlega í bflslysi í eftir- forinni. Vestur-þýska þjóðin gat fylgst náið með framvindu málsins í gegnum flölmiðla. Glæpamenn- imir svömðu spumingum frétta- manna fúsiega og sögðust aðeins vilja hafa samband við lögregluna í gegnum þá. Þeir miðuðu skamm- byssum á gíslana og sögðust kæra sig kollótta um eigið líf. Sálfræðingur hefur lflct þeim við mann í sjálfsmorðshugleiðingum sem klifrar upp á þak til að vekja athygli á fyrirætlun sinni. Þeir virtust þrífast á athyglinni sem þeim var veitt. Velferð gíslanna fyrir öllu Lögreglan var mjög varkár í afskiptum sínum af ræningjunum. Hún hélt sig f vissri fjarlægð frá þeim og aðeins óeinkennisklæddir lögreglumenn hættu sér nálægt þeim. Talið var víst að rænin- gjamir myndu myrða lögreglu- þjón sem þeir kæmust í tæri við. Rösner er gamall góðkunningi lögreglunnar. Hann strauk úr fangelsi fyrir 18 mánuðum hann sneri ekki aftur í tukthúsið úr helgarfríi — en á meðan hann sat inni ógnaði hann verði með beittu vopni sem hann hafði tálgað. Þess vegna var ekki orðið við ósk ræn- ingjanna um að fá lögregluþjón í stað strætisvagnsfarþeganna. Hann hefði varla snúið frá verk- efninu heill á húfi. Lögreglan segist fyrst og fremst hafa borið velferð gíslanna fyrir bijósti. Hún vildi því ekki aðhafast neitt nema hún væri svo til örugg um að yfirbuga öll ill- mennin í einu. Hún hélt lengi vel í vonina um að ræningjamir myndu losa sig við gíslana og reyna að komast undan án þeirra. En eftir viðdvölina í Köln þótti ekki rétt að bíða öllu lengur. Glæpamennimir vom síst rólegri en í upphafí eltingaleiksins. Spenna, keyrsla, brennivíns- drykkja og pilluát var farið að segja til sín. Voitle telur að þeir hefðu sleppt sér og Bischoff á endanum en lögreglan var búin að fá nóg. Hún hafði hendur í hári ræningjanna en eftirförin kostaði tvö ungmenni og lögreglu- þjón lífið. Aðstandendur Bischoff og de Giorgi hafa kært morðin og framgöngu lögreglunnar. Gagnrýnendur yfírvalda telja að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir dauða hinna látnu með því að yfirbuga glæpamennina miklu fyrr. Lögreglan í Bæjaral- andi var jafnvel látin sýna frétta- mönnum hvemig hún hefði af- vopnað ræningjana ef þeir hefðu verið í þeirra bæjarfélagi. Hans- Jochen Vogel, formaður jafnaðar- manna, kallaði það „hápunkt smekkleysunnar". Innanríkisráð- herrar Nordrhein-Westfalen og Bremen, Herbert Schnoor og Bemd Meyer, veija starf lögregl- unnar og skella skollaeyrum við kröfum um að þeir eða aðrir segi af sér. Nákvæm rannsókn á fram- vindu málsins er hafin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.