Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 Minning: Jón Daníelsson frá Hvallátrum Fæddur 25. mars 1904 Dáinn 20. ágúst 1988 Þeim, sem æfinnar magn fyrir móðurlands gap hafa mestum af trúnaði þreytt, hljómar alþjóðar lof yfir aldanna rof, því þeir óbomum veg hafa greitt. (Steingr. Thorsteinsson) Nú, þegar Jón fændi minn er allur, langar mig að kveðja hann nokkrum orðum. Hann fæddist 25. mars 1904 í Hvallátrum á Breiðafirði, sonur hjónanna Maríu Guðmundsdóttur og Daníels Jónssonar og var næst- elztur átta systkina. Af þeim komust fimm til fullorð- insára, fjórir bræður og ein systir. Nú er hún ein á lífi þessara systk- ina og kveður bróður sinn með sár- um söknuði. Þegar í bemsku sáu Jón og systk- ini hans á bak foreldrum sínum, sem létust á bezta aldri með skömmu millibili, og voru þá fjögur af þeim tekin í fóstur af föðursystur þeirra, Ólínu Jóhönnu Jónsdóttur, og manni hennar, Ólafi Aðalsteini Bergsveinssyni, sem einnig var skyldur þeim'í móðurætt, en einn bróðirinn fluttist í Skáleyjar og var tekinn í fóstur af hjónunum Maríu Gísladóttur, frændkonu sinni, og Jóhannesi Jónssyni, og ólst hann þar upp sem eitt af mörgum börnum þeirra. Hin, sem eftir voru í Hval- látrum, ólust þar upp við gott at- læti í hópi margra fóstursystkina, sem öll eru nú látin. Atvikin höguðu því svo, að Jón tók við búi í Hvallátrum eftir fóstra sinn, og rak þar myndarbú í all- mörg ár ásamt Jóhönnu Friðriks- dóttur, eiginkonu sinni, er hafði áður verið gift Aðalsteini Ólafs- syni, föðurbróður Jóns, en misst hann eftir fárra ára sambúð, og gekk Jón tveimur bömum þeirra í föðurstað, en saman eignuðust þau fimm böm og eru fjögur á lífí, en eina dóttur misstu þau unga. Jóhanna lifir mann sinn. Hún er nú rúmliggjandi sjúklingur á Sól- vangi í Hafnarfírði, og hygg ég, að hennar missir sé mestur, því að hann sýndi henni sérstaka um- hyggju alla tíð, eins og hún átti fyllilega skilið. Um búskaparsögu Jóns og Jó- hönnu í Hvallátrum verður ekki fjöl- yrt hér, en hún var þeim hjónum báðum til sóma, og margir, sem voru hjá þeim þar, ungir og gamlir, minnast þeirra með hlýhug. Ég minnist þess frá æskuárum mínum heima í Hlíð í Þorskafirði, að móðir mín, systir Jóns, sagði mér ýmislegt frá eyjalífínu, eins og það var í gamla daga, og gæddu þær frá- sagnir eyjamar hillingaljóma. Oft bar það við, að þeir Látramenn ættu leið um Þorskafjörð og stungu þá gjaman við stafni í Hlíð, en þar vom Jón og hans fólk ávallt kær- komnir gestir. Minnisstæð er mér ferð, sem ég fór á æskuámm út í eyjar, ásamt móður minni og systur. Dvöldum við þá nokkra daga í Hvallátrum í góðu yfirlæti. Var það að vorlagi um háannatímann. Sá ég þar margt, er vakti furðu mína og var ólíkt því, sem ég átti að venjast, allt iðaði af ijölskrúðugu lífí, og náttúmfegurðin var einstök. Gam- an þótti mér að sjá Jón frænda verka selskionin, sem hann gerði af mikilli vandvirkni, eins og allt, sem hann fékkst við. Þrátt fyrir miklar annir gaf hann sér tíma til að skreppa með okkur út í Svefneyj- ar og inn í Skáleyjar. í Svefneyjum bjó þá Sveinbjöm, bróðir hans ásamt konu sinni, Sigríði, föður- systur minni, og sonum þeirra, en í Skáleyjum bjó Gísli Jóhannesson og kona hans, Sigurborg Ólafs- dóttir, fóstursystir og frænka móð- ur minnar, ásamt bömum þeirra. Allt þetta fólk var móður minni einkar kært og tók okkur af mikilli hlýju. Síðan þetta var hafa mörg vötn mnnið til sjávar og það líf, sem þama var lifað, heyrir að miklu leyti sögunni til. Eftir að Jón og Jóhanna bmgðu búi í Hvallátmm, fluttu þau til Maríu dóttur sinnar og manns henn- ar að Hörpulundi 5 í Garðabæ. Þar undu þau hag sínum vel, enda þótt þau söknuðu ávallt átthaganna. Bæði fóm þau þangað, hvenær sem færi gafst, á meðan heilsan leyfði, og hann einn hin síðari ár, eftir að Jóhanna veiktist, enda býr dóttir þeirra, Ólína, ásamt ijölskyldu í Flatey, og þar var hann staddur ásamt stjúpdóttur sinni, Björgu, sem búsett er í Kanada, þegar hann veiktist snögglega og var fluttur hingað suður með sjúkraflugvél og lézt í Landsspítalanum fáum klukkustundum síðar. Þrátt fýrir mikla vanheilsu á seinni ámm var Jón ávallt glaður og reifur og hafði gamanyrði á vömm. Hann var vel gefínn og fróð- ur um margt, þrátt fyrir litla skóla- göngu, og var ekki hrifinn af öllu, sem nútíminn hefur í hávegum, þótt honum fyndist margt til bóta. Síðast, eftir að styttra varð á milli heimila okkar, kom hann oft til okkar í Hlégerði 29 og jafnan færandi hendi, þar á meðal ýmsa smáhluti, sem hann hafði búið til og bám vott um hagleik hans og vandvirkni. Nú hefur hann kvatt þetta líf án ótta við dauðann, sem hann leit fremur á sem góðan vin en ógnvald. Við móðir mín sendum öllum ástvinum hans innilegar samúðar- kveðjur og kveðjum hann sjálfan með þökk og ósk um guðs blessun. Guðmundur Arnfinnsson Svo er um ævi öldungmanna sem um sumar- sól fram runna. Hníga þeir á haustkvöldi hérvistardags hóglega og blíðlega fyrir hafsbrún dauða. (Jónas Hallgrímsson: Við jarðarför Jóns Sighvatssonar.) Morgunninn heilsar ekki framar Jóni Daníelssyni — þess vegna kveð ég hann nú í hinsta sinn. Ég heilsaði honum fyrst fyrir fímmtán ámm, þá unglingsstúlka úr Reykjavík, sem kom til sumar- dvalar vestur í Hvallátur. Þau sum- ur urðu fleiri en mig gmnaði í byij- un og því réð engin tilviljun. Eyjalíf- ið var heillandi og þama opnaðist nýr heimur unglingnum úr Reykjavík. „Gömlu hjónin", þau Jón Daníelsson og Jóhanna Friðriks- dóttir, tóku mér opnum örmum og urðu uppalendur mínir um skeið ásamt Maríu dóttur þeirra og ég tengdist þessu fólki sterkum bönd- um. Ég minnist Jóns sem einstaklega geðprúðs og þýðlynds manns og það fór aldrei á milli mála hvað hún Jóhanna var vel gift. Allt hans fas bar merki látleysis og hógværðar og mér fannst alltaf að hann byggi yfir leyndri visku öldungsins. Augnaráðið var einstaklega hlýtt og kímnin skein úr augunum þegar hann brosti. Fegurri maður var vandfundinn enda þótt hann væri hvorki hár í loftinu né kraftalega vaxinn. Hvítar hæmmar og samlitt alskeggið mótuðu fallega umgjörð utan um andlitið. Augun vom djúp- stæð og blá og þeim skýldu há kinn- beinin. Nefíð var teinrétt og í full- komnu samræmi við aðra andlits- drætti. Munnurinn var hulinn skeggi en sterkur munnsvipurinn leyndi sér þó ekki og þegar hann brosti skein í stráheilar tennur. En fegurð hans risti líka djúpt, það kom í ljós við nánari kynni. Ég bar strax mikla virðingu fyr- ir þessum „húsbónda" mínum og sú virðing var ekki blandin ótta. Það var ekki hægt að hræðast Jón Daníelsson, hann var ekki sú mann- gerð. Góðlátleg glettni hans særði mig aldrei enda þótt ég væri á við- kvæmum aldri unglingsins. Aldrei sá ég hann skipta skapi þótt elju- semin og vinnuharkan vitnuðu um að þama fór ekki skaplaus maður. Það leyndi sér líka ekki að leti og slóðaskapur vom lestir sem hann átti erfítt með að umbera. Hann fór gjaman að tvístíga þegar ungu mennimir sátu of lengi yfír morg- unkaffínu eða ef matartímamir drógust á langinn. Ef til vill átti hann líka bágt með að horfast í augu við að búskapurinn var að skreppa saman og krafðist ekki eins mikillar vinnuhörku og á fyrri tíð. Oft kom það í minn hlut að hend- ast eftir húsbóndanum í símann eða ef talstöðin kallaði á Látur. Þá var hann ýmist niðri í dúnhúsi að krafsa dún, bak við skemmu að flá sel eða bak við hlöðu að spýta skinn. Stund- um var hann líka niðri í vör að verka grásleppu. Hann var sístarf- andi og einstaklega vandvirkur, vaknaði fyrstur allra á morgnana og fór aldrei í rúmið áður en hann hafði hlustað á veðurfregnimar, enda eyjabóndinn háðari duttlung- um veðurfarsins en flestir aðrir. Ég lærði margt af þvi að dvelj- ast í Hvallátrum hjá þeim Jóni og Jóhönnu, enda voru búskaparhættir þar lítt breyttir frá því sem verið hafði um aldamótin. Vegna þess að ég var stelpa var ég höfð í inni- verkunum og varð því nánari Jó- hönnu en Jóni. Hún kenndi mér m.a. að mjólka og búa til smjör og skyr, reita lunda, skyggna egg, baka og elda mat. Jón reyndi að kenna mér hvemig ætti að búta sundur og borðá hertan þorskhaus, en • sú kennsla bar takmarkaðan árangur. Bæði áttu þau auðvelt með að sýna hlýju og þakklæti og þess vegna var gott að vinna undir þeirra handleiðslu. Jón var einstaklega þægilegur í viðmóti en vegna skertrar heyrnar hans gat verið dálítil kúnst að spjalla við hann. Röddin þurfti að vera í réttri tónhæð og framburður skýr til þess að viðkvæmar hlustir hans næmu orðin. Þama var meðal- hófið vandratað og það var það líka þegar kom að því að salta grautinn hans Jóns. Því enda þótt Jón Daní- elsson hafí verið sérlega nægjusam- ur og hafí ekki gert miklar kröfur til matargerðarlistar þá mátti saltið í grautinn hans hvorki vera of né van. Ég man að ég beið stundum í ofvæni eftir því að hann styngi upp í sig fyrstu skeiðinni og kvæði upp dóminn sem gat hljóðað svo: „Þetta er brimsalt, þetta get ég ekki étið“, eða „nei, nú hefurðu gleymt að salta grautinn“. Best var þó ef hann sagði: „Já, nú hefurðu saltað mátulega." Mig minnir að ég hafí verið eitthvað viðkvæm fyr- ir aðfinnslunum í fyrstu en þegar ég uppgötvaði kímnina sem skein úr augunum þegar hann setti út á grautinn fór ég að líta á grautar- gerðina sem skemmtilegan og spennandi leik. Ég dvaldist með þeim Jóni og Jóhönnu síðustu sumrin sem þau bjuggu f Hvallátrum og upplifði því aldrei blómatíma búskapar þeirra. Höfðingsskapur og gestrisni þeirra naut sín þó enn því gestkvæmt var þá í eyjunni eins og ávallt hafði verið. A haustin þegar ég kvaddi leystu þau mig alltaf út með rausn- arlegum gjöfum og dúnsængin sem þau gáfu mér er engu lík og mun ylja mér ásamt góðum minningum svo lengi sem ég lifí. Jón Daníelsson hefur nú skilað sínu dagsverki. Jóhanna lifir mann sinn en hún hefur verið heilsulaus um árabil. Um leið og ég votta Jóhönnu, Maju, Línu og öðrum að- standendum samúð mína vil ég vitna í annað erindi úr ofangreindu kvæði Jónasar Hallgrímssonar: Gráti þvi hér enginn göfugan föður, harmi því hér enginn höfðingja liðinn. Fagur var hans lífsdagur, en fegri er upp runninn dýrðardagur hans hjá drottni lifanda. Halla Kjartansdóttir Minning: Willmm S. Krason Þann 1. ágúst lést hér í Arling- ton, Virginia, William S. Krason, 70 ára að aldri, fyrrum starfsmaður í utanríkisþjónustu Bandaríkjanna í Reykjavík á árunum 1948—1951, kvæntist þá eftirlifandi konu sinni, Onnu Jónsdóttur, og var alla tíð mikill vinur íslands og íslendinga. Á þeim árum, sem William starf- aði á íslandi var Marshall-aðstoð- inni hrundið af stokkunum. Um þessar mundir hefur þess einmitt verið minnst að fjörutíu ár eru liðin frá þessum tíma, bækur hafa verið skrifaðar og ráðstefnur haldnar til að skoða og meta þetta framtak, árangur þess og afleiðingar. Dóm- arnir eru allir á svipaðan veg. Mars- hall-aðstoðin var borin uppi af óvenjulegu viðsýni og myndarskap. Aðstoðin sjálf, og þá ekki síður þær miklu umbætur í alþjóðaviðskiptum og stjórn efnahagsmála, sem henni fylgdu, reyndust upphafíð að einu mesta velgengisskeiði á Vestur- löndum. Það var mikil fylking manna í Bandaríkjunum og þeim löndum, sem aðstoðarinnar nutu, sem að þessum málum störfuðu. Einn þess- ara liðsmanna var William Krason og það var á þeim vettvangi, sem fundum okkar bar saman. Ég starf- aði þá að öflun ýmislegra efnahags- legra gagna, er þessi mál snertu, á vegum viðskiptaráðuneytisins. Það vakti undrun mína og aðdáun hvað þessi ungi bandaríski viðskiptafull- trúi lagði sig fram um að kynnast íslenskum aðstæðum og efnahags- málum. Eitt sinn, er ég kom á skrif- stofu hans, sýndi hann mér mikla skýrslu um norskan sjávarútveg, sem hann hafði aflað sér til þess að fá betri yfírsýn yfír sjávarútveg hér á landi. Var það meira en ég hafði komið í verk. Áhugi Williams Krasons á hag- fræði og efnahagsmálum og þá fyrst og fremst alþjóðlegum við- skiptamálum, hélst alla ævi. Há- skólanám hans hafði upphaflega verið í þessum greinum og störf hans í utanríkisþjónustunni voru aðallega á þessu sviði. Hann stund- aði framhaldsnám við bandaríska háskóla og lauk doktorsprófi í al- þjóðaviðskiptum við háksólann í Vín. Lýsir það best hæfíleikum hans, áhuga og elju að hafa lagt á sig svo erfitt nám jafnhliða störfum í utanríkisþjónustunni. Honum 33 Er mér barst dánarfregn föður- bróður míns setti mig hljóða. Það gat ekki verið að ég ætti ekki eftir að sjá hann Jón frænda aftur, hans björtu augu, hlýja bros og mikla skegg. Það var alltaf svo spennandi að fá fréttir af honum. Hann bjó á svo framandi stað, á sjálfu ættaróð- alinu sem faðir minn var fæddur og uppalinn á, en það var á eynni Hvallátrum á Breiðafírði, en þar stundaði Jón búskap. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fá hann í heimsókn til Reykjavík- ur á vorin. Hann kom þá með skinn- in sín og dúninn. Hann var alltaf svo gamansamur og í svo góðu skapi og það var eins og birti yfír föður mínum að fá hann Jón stóra bróður sinn í heimsókn. Þá voru rifjaðar upp gamlar minningar úr eyjunum og hinir sérstæðu búskap- arhættir ræddir. Þegar minnst er á Breiðafjarðar- eyjar kemur Jón frændi mér alltaf fyrst í hug. Hann var dugmikill bóndi og áttu eyjarnar og lífríkið þar hug hans allan. Fyrir tveimur árum var ég stödd í Flatey ásamt nokkrum vinum mínum. Við gistum í tjaldi. Hann vissi af frænku sinni í tjaldbúðunum og kom snemma morguns þennan sólríka dag með riklingsbita í nesti og bauð okkur góðan daginn. Fengum við Jón til að ganga með okkur um eyjuna sem við vorum stödd á og segja okkur frá sögu hennar og lífríki. Þessi morgunn er einn sá eftirminnileg- asti í lífi mínu, ég komst svo ná- lægt náttúrunni með Jón frænda í fararbroddi. Það var líka svo gleði- legt að sjá hve þessi gamli maður naut þess að vera í eyjaríki sínu og sérstakt hve honum tókst að gera aðra meðvitaða um fuglalíf eyjanna. Ég minnist Jóns frænda sem mikils eljumanns. Hann var einn þeirra sem ekki gátu setið auðum höndum. Eftir að hann fluttist til höfuðstaðarins var sérstaklega gaman að koma og heimsækja hann, þá var hann yfirleitt staddur í bílskúrnum að dúnhreinsa eða að föndra. Honum féll aldrei verk úr hendi. Jón var mjög mikill friðársinni og bar mikla umhyggju fyrir fjöl- skyldu sinni og vinum, þess hef ég ekki farið á mis og er ég mjög þakklát fyrir. Jón bar ætíð mikla umhyggju fyrir eiginkonu sinni, Jóhönnu Frið-. riksdóttur, sem dvelst á Sólvangi í Hafnarfírði. Var hann hjá henni þar af fremsta megni. Síðustu árin átti Jón við veikindi að stríða og veit ég að hann var sáttur við að kveðja þennan heim. Ég kveð hann með söknuði. Blessuð sé minning hans. Hvíli hann í friði. Lára María Theódórsdóttir veittist sú ánægja undir lok starfs- ferils síns að geta notfært sér þessa þekkingu sem kennari við háskóla bandaríska hersins. Einsog fyrr segir hélst vinar- hugur Williams Krasons til íslands ævilangt. Hann tók virkan þátt í félagsstörfum Islendinga og Is- landsvina í Bandaríkjunum og hafði ánægju af að hitta íslendinga og taka á móti þeim á heimili sínu. Margir íslendingar minnast hans með þakklæti og söknuði og send Önnu konu hans og tveimur dætr- um þeirra hjóna innilegar samúðar- kveðjur. Arlington, Virginia Jónas H. Haralz

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.