Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fuiltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, BjörnJóhannsson, ÁrniJörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið. Risið upp gegn kommúnismanum Um síðustu helgi, þegar 20 ár, voru liðin frá því hinn Rauði her Sovétríkjanna réðst inn í Tékkóslóvakíu til þess að bæla niður vorið í Prag mót- mæltu hundruð Sovétmanna innrásinni í Moskvu. í Prag er talið að tíu þúsund manns hafi tekið þátt í göngu um miðborg- ina á sunnudag til að minnast innrásarinnar. í Póllandi blossuðu verkföll upp að nýju í síðustu viku og krefjast verkamenn þess að hin bönnuðu verkalýðssamtök Sam- staða verði leyfð. Tugþúsundir verkamanna hafa tekið þátt í verkföllunum sem eru þau um- fangsmestu í Póllandi frá árinu 1981. Þá lauk verkfallsaðgerð- unum með því að sett voru her- lög sem bönnuðu Samstöðu. í Eystrasaltsríkjunum söfn- uðust ímndruð þúsunda manna, með samþykki stjómvalda, sam- an á þriðjudag til þess að krefj- ast aukins sjálfræðis og minnast þess að 49 ár voru liðin frá því Hitler og Stalín gerðu samning um að Eistland lyti stjóm Sov- étrílganna. í Búrma, þar sem sósíalistar hafa haft tögl og hagldir síðustu 26 ár, hafa hundruð þúsunda gengið um götur undanfarið og krafíst þess að sósíalistastjómin fari frá og komið verði á lýðræði. Þúsundir andófsmanna vom skotnar af herliði stjómarinnar en mótmæl- in héldu áfram og margt virðist benda til að stjómvöld muni ganga að kröfum fólksins. Jafn- vel í sjálfum Sovétríkjunum, í Armeníu og Nagomo-Kara- bakh, hafa verið haldnir mót- mælafundir. Það em merkilegir hlutir að gerast víða í hinum kommúníska heimi. Atburðir sem fyrir ör- fáum missemm hefðu verið óhugsandi í kommúnistaríkjun- um em nú að verða daglegt brauð. Fólkið þorir að rísa upp og mótmæla kúguninni. Stjómvöld í kommúnistaríkj- unum sýna þó mótmælendum fulla hörku. I frétt af mótmæl- unum í Moskvu á sunnudag seg- ir að „margir [andófsmenn] vom dregnir á hárinu yfír torgið að þremur langferðabifreiðum sem biðu í nágrenninu. Aðrir fengu að kenna á kylfum lögreglu- mannanna, sem einnig spörkuðu í andófsmenn sýndu þeir minnsta mótþróa. Einn mann- anna reyndi að hefja fána með áletrun á loft en öryggisverðir þeyttu honum til jarðar og hrifs- uðu hann af honum. Annar rejmdi að lesa yfírlýsingu upp fyrir vestræna fréttamenn sem fylgdust með en var handtek- inn.“ Það er eflaust engin einhlít skýring til á þeirri ólgu sem nú gætir í kommúnistaríkjunum en líklega er ekki orðum aukið að segja að fólk þar hafí einfaldlega fengið nóg. Það er búið að fá sig fullsatt af þeirri kúgun og örbirgð sem allsstaðar hefur verið fylgifískur sósíalisma og kommúnisma. Efnahagskerfí þessara ríkja eru einnig að hruni komin. Fólk sveltur í ríkjum sem áður voru stærstu matvælaútflytjendur veraldar. Margra klukkutíma bið eftir helstu nauðsynjavörum er daglegt brauð hjá þegnum kommúnistarílcjanna. Stjómvöld í kommúnistaríkjunum hafa smám saman verið að átta sig á þeirri staðreynd að hinar marx-lenínísku kenningar sem öllu áttu að bjarga ganga ekki upp í veruleikanum. I fjölmenn- asta kommúnistaríki veraldar, Kína, hafa verið gerðar tilraunir til þess að slaka á miðstýringu ríkisins á efnahagslífínu í því skyni að reyna að auka fram- leiðni. Sovéskir ráðamenn virð- ast hafa áhuga á að feta sömu braut og Kínveijar en hefur ekki orðið eins mikið úr verki og þeim. Hins vegar hafa komm- únistar ekki verið eins áfjáðir í að slaka á klónni hvað varðar hið pólitíska vald enda myndi það í raun þýða endalok alræðis- valds kommúnistaflokkanna. Það sem við erum vitni að er að fólkið sættir sig ekki við þær takmörkuðu breytingar sem stjómvöld eru að reyna að koma á. Það vill stíga skrefíð til fulls. Það vill fá að ráða sínum eigin skoðunum og búa við frelsi án þess að eiga það á hættu að verða sent á geðveikrahæli eða í þrælkunarbúðir. Kröfur af því tagi ganga þvert á hagsmuni stjómvalda í alræðisríkjum. Mannkynssagan segir okkur hins vegar að eftir því sem frelsi eykst á sviði efnahagsmála verða kröfur um frelsi á öðmm sviðum háværari. Það verður fróðlegt að sjá hvort gengið verður að kröfum almennings um aukið frelsi eða hvort tilburðir í þá átt verða barðir niður á sama hátt og gert var í Ungveijalandi 1956, Tékkóslóvakíu 1968 og Póllandi 1981. Þá fáum við að sjá hversu mikið er marka glasnost-talið. „Sannleikurinn mun sigra að lokum,“ eins og mótmælendum- ir í Prag hrópuðu um helgina. Ákveðið hefur verið að rífa Kveldúlfshúsin eða Skúlaskála. Eimskipafélagið áformar að byggja hótel þa vistarsvæði og ibúðarhús þar sem Kveldúlfshúsin standa. Kveldúlfshúsin: Þar var upphaf físk- verkunar á fyrri hluta aldarínnar Kveldúlfshúsin við Skúla- götu, sem kölluð hafa verið Skúlaskáli eftir að Eimskipa- félagið festi kaup á þeim, verða rifin á næstunni vegna áforma stjórnar félagsins um byggingu hótels eins og sagt hefur verið frá í Morgun- blaðinu. Gert er ráð fyrir að bílageymsluhús hótelsins ásamt íbúðarhúsum og úti- vistarsvæði verði þar sem Kveldúlfshúsin eru nú. Thor Jensen stofnaði hlutafé- lagið Kveldúlf með fjórum sonum sínum árið 1912 og keypti fyrsta skip þess, Skallagrím. Hann byggði Kveldúlfshúsin á árunum 1913 til 1915 undir fiskverkun. Á tímabili var Kveldúlfur stærsta fískútflutningsfyrirtæki heims af þeim sem ráku verslun fyrir eigin reikning. Þar var um tíma verkað- ur fískur úr ellefu skipum Kveld- úlfs þar af sjö togurum, auk að- keypts físks á stundum, og geng- ið frá honum til útflutnings. Hafði Kveldúlfur forystuna um saltfí- skútflutning til Spánar frá íslandi. Kveldúlfshúsin eru tvö 3600 fermetra steinhús á tveimur hæð- um með steyptu porti og yfir- byggðri brú á milli, en jarðgöng liggja undir Vatnsstíg úr portinu. Eimskipafélagið lét setja þak yfír Á fyrri hluta aldarinnar var myndarleg saltfiskverkun í Kveldúlfshúsunum sem Thor Jensen lét reisa. Myndin er tekin árið 1915. Keflavíkurflugvöllur: Gamla flugstöðin í nýju hlutverki Keflavík. GAMLA flugstöðin á Keflavíkur- flugvelli er eflaust einn af þeim stöðum á landinu þar sem flestir íslendingar hafa komið. Hún var um áratuga skeið andlit íslands og um hana fóru þúsundir ferða- manna á hveijum degi. Nú er öldin önnur í gömlu flugstöðinni og þar sem áður var salur far- þega eru nú seld húsgögn. Verslun varnarliðsins rekur hús- gagnaverslunina en hjá því fyrir- Helga Jóhannsdóttir elsti starfs klippir á borðann og opnar þar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.