Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 Tekjur bæjarins rýma um 15 milljónir króna — segir Björn Jósef Arnviðarson bæjarfulltrúi „MÉR sýnist niðurfærsluleiðin koma afskaplega illa út fyrir Akureyrarbæ miðað við þá fjár- hagsáætlun sem unnið er eftir. Ljóst er að útsvarstekjur bæjar- ins munu lækka verulega frá því sem áætlað var í upphafi árs. Ef laun verða lækkuð um 10%, er ekki fjarri lagi að út- svar8tekjur bæjarins lækki um 3-4% síðustu fjóra mánuði árs- ins,“ sagði Björn Jósef Arn- viðarson bæjarfulltrúi og form- aður atvinnumálanefndar í sam- tali við Morgunblaðið í gær. í fjárhagsáætlun bæjarins var gert ráð fyrir 500 milljóna króna útsvarstekjum og myndu því tekj- uraar rýrast um 15 milljónir króna. „Það munar um minna. Ég Verkmenntaskólinn: Allar stöður við skólann nær fylltar „OKKUR hefur tekist að fylla nær allar kennarastöður hjá okkur nú þó það hafi ekki litið vel út á tímabili. Hinsvegar gengur okk- ur ekki nægilega vel að fá menntaða kennara til starfans. Ein- hvern veginn virðast þeir heldur forðast okkur,“ sagði Baldvin Bjarnason skólameistari Verkmenntaskólans i samtali við Morgun- blaðið i gær. Baldvin sagði að ákveðið væri að bjóða upp á leiklist í vetur sem valgrein og væri það nýmæli í starfí skólans. Leiklistin yrði á uppeldisbraut. Ekki hefði þó enn verið ráðinn kennari í þá grein, en nýi leikhússtjórinn, Arnór Ben- ónýsson, væri að vinna í málinu. Reynt var í fyrstunni að fá Þrá- in Karlsson eða Theódór Júlíusson leikara til starfans, en vegna anna við fyrsta verkefni Leikfélags Ak- ureyrar nú í haust, sáu þeir sér ekki fært að taka kennsluna að sér. Þá hefur verið rætt við Pétur Eggerz leikara sem mun vera að hugleiða málið. Baldvin sagði að nýlega hefði verið gengið til samninga við Jó- hann Baldvinsson organista í Gler- árkirkju um stjórn kórstarfs í Verkmenntaskólanum í vetur, en þar hefur kór ekki starfað til þessa. Jóhann sagðist hafa saknað kórstarfs í Verkmenntaskólanum og vonaðist hann til að þetta ný- mæli nyti vinsælda á meðal nem- enda VMA eins og í öðrum skólum þar sem kórstarf færi fram. sé ekki fram á að hægt verði að draga saman í framkvæmdum á árinu þar sem þeim framkvæmd- um, sem ráðist var í, er nú nær lokið. Mér sýnist að við gætum staðið frammi fyrir því að þurfa að taka ný lán sem við ætluðum okkur ekki að gera. Við ætluðum ekki að auka skuldir bæjarins. Þau lán, sem tekin hafa verið, hafa einungis verið til þess að skuld- breyta eldri lánum og lengja lánst- ímann. Þá er jafnframt rætt um að loka fyrir erlendar lántökur og því ekki um auðugan garð að gre- sja í því efni.“ Bjöm Jósef sagði að ein leiðin til öflunar lánsQ'ár væri skuldafjár- útboð, eins og bærinn reyndar gerði í sumar er 100 millj. kr. voru boðnar út. „Ég vil hinsvegar ekki mæla með skuldafjárútboði. Ég tel þá leið mjög varasama. Bærinn þarf að greiða vextina fyrirfram og þegar nú er svo kom- ið að vextir fara lækkandi í þjóð- félaginu, verða lánin okkur mun dýrari en gert hafði verið ráð fyr- ir. Varasamt er að fara út í slíka aðgerð á meðan stjómmálaástand- ið er eins og það er þessa dagana." Hann sagði að aðrar leiðir í efnahagsmálum væru ef til vill jafnslæmar fyrir bæinn og því væri niðurfærsluleiðin eflaust ekk- ert verri en annað serh stjóm- málamenn gætu týnt til til lausnar vandanum. Sigfús Jónsson bæjar- stjóri sagðist hlynntur niður- færsluleiðinni. „Allt annað hefur verið reynt áður, því ekki að prófa þetta núna,“ sagði bæjarstjóri. Úr Minjasafninu á Akureyri. Minjasafnið á Akureyri: Þrír sóttu um stöðu minjavarðar við safnið ÞRÍR sóttu um stöðu minjavarðar við Minjasafn Akureyrar. Umsækj- endur eru: Aðalheiður Steingrímsdóttir sagnfræðingur, Akureyri, Elísabet Guðmundsdóttir fornleifa- og þjóðháttafræðingur, Lundi í Svíþjóð, og Guðný Gerður Gunnarsdóttir fornleifa- og þjóðháttafræð- ingur, Reykjavík. Haraldur Sigurðsson formaður stjómar Minjasafnsins sagði að ákvörðunar væri að vænta bráðlega um stöðuveitinguna þar sem reikn- að væri með því að viðkomandi taki við starfínu um miðjan september. Umsóknarfrestur rann út 15. ágúst. Ásamt Haraldi sitja í stjóm Ingimar Brynjólfsson, Ásláksstöð- um, Kristinn Sigmundsson, Akur- eyri, Ólöf Jónasdóttir, Akureyri, og Guðlaug Hermannsdóttir, Akureyri. Safnið er í eigu Akureyrarbæjar, sýslusjóðs og Kaupfélags Eyfírð- inga. Bjarni Einarsson fomleifafræð- ingur var minjavörður um tveggja ára skeið og í fyrra fékk hann árs- leyfí frá störfum vegna framhalds- náms í Gautaborg í Svíþjóð. í vor fór hann fram á annað ár frá störf- um, en stjómin sá sér ekki fært að verða við þeirri bón, að sögn Haraldar. Neytendasamtökin: Verðhækkanir virðast tíðar Neytendasamtökunum hafa bo- rist fjölmargar ábendingar um verðhækkanir síðustu daga. BSRB: Engar líkur áaðverðlækk- anir verði Hér fer á eftir ályktun stjórnar BSRB frá því í gær vegna fyrir- hugaðra efnahagsaðgerða ríkis- stjómarinnar: „Stjóm BSRB varar stjómvöld al- varlega við þeim hugmyndum um niðurfærslu launa sem fram koma í skýrslu ráðgjafamefndarinnar til ríkisstjómarinnar. Níu prósent launalækkun yrði óbærileg fyrir þá sem fyrir henni verða ef ekki fylgja sambærilegar lækkanir á öllum þátt- um framfærslukostnaðar. Stjóm BSRB telur engar líkur á því að tilætlaðar verðlækkanir verði nú þótt tilmæli komi um það frá stjómvöldum þar sem margföld reynsla er fyrir því hér á landi að verðstöðvanir hafa ekki staðist í framkvæmd. Yrði þessi leið valin myndi tekjum- isréttið í þjóðfélaginu stóraukast, sem þó er síst á bætandi. Því telur stjóm BSRB þessar hugmyndir óframkvæmanlegar. Stjóm BSRB skorar á ríkisstjóm- ina að hafna þeirri niðurfærslu launa sem ráðgjafamefndin leggur til að hún láti kanna.“ Formaður Neytendasamtakanna segir að það hljóti að leiða til þeirrar kröfu samtakanna, að verði niðurfærsluleiðin sá kostur sem stjórnvöld velja gegn efna- hagsvandanum, þá verði það verð- lag sem færa á niður hið sama og var þegar umræðan um niður- færsluna fór af stað. Hann segir verðlagsyfirvöld hafa upplýsingar um hvemig verðlagið var þá. „Eftir að við sendum þessa yfírlýs- ingu frá okkur í gær um að okkur hafí borist upplýsingar um verð- hækkanir, hefur vart stoppað hjá okkur siminn í morgun," sagði Jó- hannes Gunnarsson formaður Neyt- endasamtakanna í gær. Hann sagði ábendingamar vera um verðhækkan- ir á öllum sviðum verslunar og þjón- ustu. „En að sjálfsögðu er ennþá erfítt fyrir okkur að átta okkur á því, hvort þetta hefur sínar eðlilegu skýringar. Þó em a.m.k. tvö tilvik skýr. Fólk hafði hreinlega kannað verðið nokkmm dögum áður, gerði athugasemd og sagði sem svo: „Heyrðu, ég kannaði verðið héma fyrir örfáum dögum." Þá, í tvígang, hefur fólk umyrðalaust fengið vömna á lægra verðinu, án þess þó að við- komandi verslun hafi breytt yfír í gamla verðið aftur, þannig að þeir virðast vita upp á sig einhverja skömm. Þetta vom byggingavöm- verslun og varahlutaverslun fyrir bif- reiðir. Við höfum einnig fengið ábendingar frá kaupmönnum, sem hafa fullyrt að heildverslanir hafi verið að hækka á allra síðustu dög- um.“ Jóhannes sagði að Neytendasam- tökin myndu halda áfram að fylgjast Launafólkið á enga sök á núverandi efnahagsvanda LAUNAMÁLARÁÐ Bandalags háskólamenntaðra rikisstarfs- manna kom saman til fundar á miðvikudag og samþykkti eftir- farandi ályktun vegna fyrir- hugaðra efnahagsaðgera ríkis- stjórnarinnar: „Launamálaráð BHMR mótmæl- ir öllum framkomnum hugmyndum um enn meiri skerðingu á kjömm launafólks en þegar er orðin. Áfnám samningsréttar launamanna í maí s.l. hefur þegar þýtt umtalsverðar kjaraskerðingar hjá launafólki sem aðrir þjóðfélagsþegnar hafa komist hjá. Launafólk á enga sök á þeim efnahagsvanda sém nú er við að glíma. Launafólk vinnur of langan vinnudag og hlutdeild þess í þjóðar- tekjum er síst of mikill. Efnahags- vandinn er m.a. kominn til vegna hárra vaxta og rangra íjárfest- ingaákvarðana fyrirtækja og stofn- ana. Launamálaráð BHMR vill af gefnu tilefni mótmæla tillögum um niðurfærslu launa sem án vafa mun bitna þyngst á opinberum starfs- mönnum. BHMR mun aldrei fallast á að afsala til fjármagnseigenda 2,5% kauphækkun hinn 1. septem- ber. Með þessum mótmælum er þó alls ekki viðurkennt að gengisfell- ing eigi rétt á sér enda felur gengis- lækkun einnig í sér grófa árás á lífskjör launafólks. Launamálaráð BHMR mótmælir því að sífellt sé ráðist á kaupið á meðan verðlag og vextir njóti frið- helgi.“ vel með þessum málum. „Við gerum okkur vonir um að neytendur muni eins og í dag hafa samband við okk- ur og láta okkur vita. Við munum koma öllum slíkum upþlýsingum áfram og reyna að auka þrýsting á það að menn séu ekki að reyna að gera þetta. Þetta hlýtur að leiða til þeirrar kröfu Neytendasamtakanna, ef niðurfærsluleiðin verður fyrir val- inu að lokum, að það verðlag sem menn eiga að miða við og færa nið- ur, verði verðlagið eins og það var þegar umræðan um niðurfærsluleið- ina fór af stað,“ sagði Jóhannes Gunnarsson. BHMR mótmælir niðurfærslu:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.