Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 26.08.1988, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988 Vantar fyllingu í líf þítt? Sprungur í vegg lokast ekki af sjálfu sér. Það veistu. Lausnarorðiö er Thorite. Efnið sem fagmennimir kalla demantssteypu. Harkan og endingin — þú skilur. Thorite viðgerðarefnið hefur góða viðloðun. Þú notar það jafnt á gamla steypu sem nýja. Mótauppsláttur er óþarfur: eftir 40—60 mínútur er veggurinn þurr, slé'ttur og tilbúinn undir málningu. Iðnaðarmenn þekkja Thorite af langrí reynslu. Nú er komiö að .þér. Thorite fæst í Iítlum og stórum umbúðum með íslenskum leiðbeiningum. Spurðu eftir Thorite í næstu bYggingarvöruversIun. Þeir þekkja nafníð. IS steinprýði Stangarhyl 7. s. 672777 ÚUöltuts&ir: BYKO • B.B. Byggingarvörur • HúsasmíÖjan • Skapti, Akureyri • Málningarþjónustan, Akranesi • G.E. Sæmundsson, ísafirÖí .Ö Baldur Haraldsson, SauÖár- króki • Dropinn, Keflavík • Kaupfélag VestmannaeYja • Kaupfélag A-Skaftfellinga, Homaflröi. fclk f fréttum Lisa Bonet: Á von á tvíburum Köttur erfir milljónir Kötturinn Pussy getur haft glæstar vonir, ef því er að skipta. Þegar eigandi hennar, Dorothy Walker 80 ára, lést arfleiddi hún kisu sína að aleigu sinni, 225 milljónum íslenskra króna. Það er dýravemdunarfélag í Englandi sem hefur umsjón með milljónun- um og segir talsmaður þeirra að peningamir komi öllum dýrum til góða en erfinginn hljóti væntanlega einhver forréttindi. Fyrsta verk er þó að fínna heimili handa Pussy, sem hefur reynst erfítt þrátt fyrir ríkidæmið. Kisan hafði verið í eigu Dorothy Walkers frá árinu 1983. Þá kom hún skoppandi inn um gluggann hjá milljónamæringnum og heillaði hana upp úr skónum. Þjónustustúlka hennar, sem verið hefur í húsinu síðan í heims- styrjöldinni síðari, segir fúl í bragði að gömlu konunni hafí líkað betur við dýr en menn. Hún fékk ekki krónu í arf. FYLGSTU MEÐIVINNUNNI SPORTBÍLL OG SPÍTTBÁTUR Lisa lofaði mér að bíða í þrjú ár með að verða barnshafandi. Hún stóð ekki við það og því verður að stöðva framleiðslu á þáttunum „Vistaskipti". Hver sættir 'sig við það að ung og ólofuð skólastúlka sé bamshafandi" segir framleiðand- inn, Bill Cosby. Lisa, sem er 21 eins árs gömul, hefur þénað óheyrilegar upphæðir á leik sínum í þáttunum. Hún hefur engar áhyggjur þó að hún hafí óhlýðnast Bill Cosby eða að þáttur- inn verði lagður niður. Sjálf segir hún: „Ég á nóg af seðlum og eftir hálft ár verð ég tilbúin að leika á ný. Kvikmyndaframleiðendur stgjida í biðröðum eftir að gera samninga við mig, ég get vel verið án Bill Cosby." Hún hefur þénað um 175 milljón- ir íslenskra króna á þáttunum svo varla er hún eða verður á flæði- skeri stödd þegar tvíburarnir henn- ar koma í heiminn. Hún heldur sig nú mest heima við, meðan maður hennar, Lenny Kravitz, spilar rokk- músík í hinum ýmsu klúbbum í Los Angeles. Cj____ IHÖRITI Þrátt fyrir stöðugar erjur milli Lisu og Bill Cosby hefur hún þó lært af honum að halda einkalífí sínu sem mest fyrir sig og hefur hún ekki sýnt sig á almannafæri eftir að hún varð áberandi breið um miðjuna. Að eigin sögn er hún ákveðin í því að halda bömum sínum frá fjölmiðlafólki. Bill Cosby er ekki ánægður með „dóttur sína“ um þessar mundir. Jacques Suchet ásamt Ásdísi Hauksdóttur. Jacques Suchet: Styrkir fatlaða til ferðalaga Franski hugsjónamaðurinn sem fjallað var um hér á síðunum um daginn, Jacques Suchet, hefur nú veitt einum fötluðum íslendingi 100.000 króna ferðastyrk, og valdi hann af handahófí eitt af þeim bréf- um sem honum hafði borist. Sú sem styrkinn hlaut heitir Ásdís Hauks- dóttir. Hún vann áður sem hjúkrun- arkona, en missti sjónina fyrir átta árum, vegna sjúkdóms. Aðspurð sagðist hún varla trúa því að svona menn væru til í heiminum og var afskaplega þakklát. Styrkinn ætlar hún að nota til ferðalaga hér innan- lands, ásamt dóttur sinni. Jacques er nú að undirbúa kjöt- kveðjuhátíð sem hann hyggst halda í Champs-Elysée í París þann 14. júlí á næsta ári. Þangað hefur hann boðið leiðtogum stórveldanna, svo og öllum sem kenna vilja sig við heimsfriðinn, og hafa tök á að koma. Hann hefur í hyggju að bjóða þangað 50 — 100 fötluðum íslend- ingum, og greiða fyrir þá allan til- heyrandi kostnað. Hann mun koma aftur til íslands í því skyni, en héð- an fer hann til Noregs innan fárra daga. COSPER Gleymdi ég að segja þér það, ég vann sólarlandaferð fyrir tvo í ferðahappdrættinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.