Morgunblaðið - 30.01.1990, Blaðsíða 38
38
- ^ÖÍgÍjÍíÍBiIaMð'
t
Faðir okkar og sonur minn,
BJARNI ÞÓR KJARTANSSON,
sem lést 25. janúar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, mið-
vikudaginn 31. janúar, kl. 10.30.
Kjartan Þór Bjarnason, Birgir Bjarnason
Geir Bjarnason, Baldur Bjarnason
Ásta Bjarnadóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
VALDHEIÐUR (HEIÐA) M. VALDIMARSDÓTTIR,
Vesturbrún 10,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 31. janúar kl. 13.30.
Sigfús Jónsson,
Margrét Sigfúsdóttir,
Sigrún Sigfúsdóttir,
Jón Sigfússon, Birna Jónsdóttir,
Valdimar Sigfússon, Valgerður Hannesdóttir,
Kristinn Sigfússon
og barnabörn.
t
Bróðir minn og frændi,
SIGURJÓN BJARNASON
frá Látrum í Aðalvík,
lést í Landspítalanum föstudaginn 26. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrún Bjarnadóttir,
Sigurjón Þórisson.
Faðir minn, t
GUÐNIÞÓRÐARSON fyrrverandi verkstjóri,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi mánudaginn
29. janúar. Aðalsteinn Guðnason.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
áður búsett á Eskifirði,
til heimilis á Miðvangi 41, Hafnarfirði,
lést sunnudaginn 28. janúar á Hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafn-
arfirði.
Fyrir hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna.
Erla Eyjólfsdóttir,
Stefanía Eyjólfsdóttir,
Andrés Eyjólfsson.
Minning:
Benedikt Guðmunds-
son á Staðarbakka
Hinn 17. þ.m. lést merkismaður-
inn Benedikt Guðmundsson, bóndi
á Staðarbakka í Miðfirði, á 85. ald-
ursári. Benedikt var búfræðingur
frá Hvanneyri 1931. Hann bjó á
Staðarbakka með fjölskyldu sinni
frá 1930 til dauðadags. Auk bú-
skaparins tók hann mikinn þátt í
félagsmálum, var í sóknarnefnd og
safnaðarfulltrúi, í hreppsnefnd,
sýslunefnd og var hreppstjóri. Enn
eru þó ótalin mikil og gifturík störf
sem hann innti af hendi fyrir Veiði-
félag Miðfirðinga og fleiri aðila á
sviði veiðimála. Hann var einn af
hvatamönnum að stofnun veiðifé-
lagsins 1938, en það var eitt af
fyrstu veiðifélögunum sem stofnuð
voru á landinu. Átti hann sæti í
stjórn félagsins frá upphafi þess og
var formaður frá 1948 til 1973, að
hann gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Það er einmitt í gegnum störf
hans að veiðimálum sem undirritað-
ur kynntist Benedikt.
í dag tökum við það sem sjálf-
sagðan hlut að starfandi séu í
landinu veiðifélög við ár og vötn
(alls eru þau nú 162 talsins), sem
stjórni veiðimálum hvert á sínu fé-
lagssvæði oftast skynsamlega og
af myndarskap til hagsbóta fyrir
veiðieigendur og til gagns og heilla
fyrir veiðimenn og samtök þeirra,
sem eru aðalviðskiptavinir lang-
flestra veiðifélaga. En á bak við
núverandi stöðu veiðifélaga liggur
mikið og óeigingjarnt starf fjölda
frumheija og annarra, sem unnið
hafa að uppbyggingu félaganna í
rúmlega hálfa öld.
Ákvæði um veiðifélög sáu fyrst
dagsins ljós í lögum um lax- og
silungsveiði sem samþykkt voru á
Alþingi 1932, en þegar 1929 höfðu
verið samþykkt lög um fiskræktar-
félög. Fyrsta veiðifélagið var stofn-
að um Laxá í Leirársveit 1934.
Lengi vel var erfitt að koma á veiði-
félögum vegna andstöðu og tor-
tryggni á gagnsemi þeirra. Hjá
veiðieigendum með lélega veiðiað-
stöðu ríkti vonleysi um bættan hlut,
en hjá þeim með góða veiðiaðstöðu
var ótti um að þeirra hlutur yrði
rýrður. Á fyrstu árunum eftir lög-
festingu veiðifélaga og lengi fram
eftir stóðu frumkvöðlar að undir-
búningi og stofnun veiðifélaga í
ströngu við að sannfæra menn um
gagnsemi félaganna og raunar
einnig eftir stofnunina meðan verið
var að koma félögunum á starf-
hæfan grundvöll. Benedikt var ein-
mitt einn þeirra sem ruddu farsæl-
lega brautina á þessu sviði á heima-
slóðum.
Annar áfangi við að koma veiði-
félögum á eðlilegan starfsgrundvöll
var að semja og fá samþykkta arð-
skrá fyrir félögin. í flestum tilvikum
komu félagsmenn sér ekki saman
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLGRÍMUR PÉTURSSON,
Dalalandi 14,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Borgarspítalans sunnudaginn 28. janúar.
Kristín Salómonsdóttir,
Gústav Óskarsson, Elsa Haraldsdóttir,
Sigrún Þóra Óskarsdóttir,
Rut Hallgrfmsdóttir, Emil Ágústsson,
Anna Hallgrímsdóttir, Arngrímur Hermannsson,
ína Salóme Hallgrfmsdóttir, Gunnar Borgarsson
og barnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
SVAVA JÓHANNSDÓTTIR,
Teigaseli 7,
Reykjavík,
verður jarðsungin þriðjudaginn 30. janúar kl. 13.30 frá Fossvogs-
kirkju.
Þóra Ólafsdóttir, Gústav Nilsson,
Guðrún Ólafsdóttir, Ólafur Nilsson,
Jóhann Ólafsson, Sigurbjörg Sigurpálsdóttir.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
EYJÓLFUR GUÐNASON
bóndi,
Bryðjuholti,
Hrunamannahreppi,
lést í Landspítalanum 29. janúar.
*
Helga Magnúsdóttir, börn
og tengdadætur.
t
Kær faðir, afi minn og langafi okkar,
GESTUR BJÖRNSSON,
Krókatúni 11,
Akranesi,
lést í Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt sunnudagsins 28. janúar.
Gunnhildur Gestsdóttir,
Páll Björnsson,
Gunnhildur Arndís Pálsdóttir,
Inga Jóna Pálsdóttir,
María Rán Pálsdóttir,
Sólrún Edda Pálsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURLAUGUR SIGURÐSSON
vélstjóri,
Kaplaskjólsvegi 54,
sem lést 17. janúar sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
þriðjudaginn 30. janúar kl. 15.00.
Anna M. Thorlacius,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Systir okkar,
BETTY GUÐMUNDSDÓTTIR,
Seljavegi 19,
andaðist á Landspítalanum mánudaginn 29. janúar. Útförin aug-
lýst síðar.
Gyða Guðmundsdóttir,
Ágúst Guðmundsson,
Grímur Guðmundsson.
um arðskrá. Þurfti þá að fá yfir-
vald til að skipa tvo menn í arð-
skrárnefnd samkvæmt laxveiðilög-
unum og oft einnig til þess að end-
urskoða arðskrár seinna meir.
Samning arðskrár er mikið vanda-
verk og þá sérstaklega fyrsta arð-
skráin í hveiju félagi. Menn greindi
gjarnan á um hlut sem þeim bæri
í arðskrá. Benedikt var einn þeirra
manna sem unnu merkt starf við
arðskrárgerð. Hann var oft skipað-
ur í arðskrármat, aðallega utan
heimahéraðs. Vann hann störfín af
næmi og samviskusemi, og lagði
með því dijúgan skerf til upp-
byggingar skipulags okkar á veiði-
málum. Geta má í þessu sambandi
tveggja mætra Húnvetninga sem
oft voru skipaðir matsmenn og unnu
ósjaldan með Benedikt. Voru það
þeir Guðmundur Jónasson í Ási í
Vatnsdal, sem var lengi formaður
í Veiðifélagi Vatnsdæla, og Óskar
Teitsson í Víðidalstungu, lengi for-
maður í Veiðifélagi Víðidalsár. Þeir
eru báðir látnir.
Enn er ótalið framlag Benedikts
til Landssambands veiðifélaga.
Hann var með í starfi þess frá upp-
hafi sem fulltrúi síns félags og lagði
þar gott til málanna eins og annars
staðar.
Samskipti mín við Benedikt voru
sérstaklega ánægjuleg. Hann var
maður hæglátur, velviljaður og
glöggur á það sem máli skipti. Þeg-
ar hann var á ferð hér syðra leit
hann oft inn á Veiðimálastofnun til
að fylgjast með gangi veiðimála og
ræða þau. Var hann þá hógvær og
jákvæður í afstöðu sinni eins og
ævinlega. Benedikt var áhugasam-
ur um fiskrækt heima fyrir og ann-
ars staðar. Hann var einn þeirra
sem með útvegun hrogna veitti
stuðning við að koma upp laxa-
stofni í Laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði á fyrstu starfsárum stöðvar-
innar.
Við leiðarlok er við hæfí að þakka
Benedikt samfylgdina og merkilegt
framlag hans til uppbyggingar
veiðimála í landinu. Frú Asdísi,
börnum og barnabömum sendum
við hjónin samúðarkveðjur.
Þór Guðjónsson
Minningar-
og afmælis-
greinar
Það eru eindregin tilmæli
ritstjóra Morgunblaðsins til
þeirra, sem rita minningar- og
afmælisgreinar í blaðið, að
reynt verði að forðast endur-
tekningar eins og kostur er,
þegar tvær eða fleiri greinar
eru skrifaðar um sama ein-
stakling. Vilji höfundur vitna í
áður birt ljóð eða sálma verða
ekki tekin meira en tvö erindi.
Frumort ljóð eða kveðja í
bundnu máli eru ekki birtar.
Almennt verður ekki birtur
lengri texti en sem svarar einni
blaðsíðu eða fimm dálkum í
blaðinu ásamt mynd um hvern
einstakling. Ef meira mál berst
verður það látið bíða næsta eða
næstu daga.