Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 43

Morgunblaðið - 06.02.1990, Page 43
MQRGWBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990 43 Pétur Kristins- son - Kveðjuorð Fæddur 12. janúar 1968 Dáinn 29. desember 1989 Vinur okkar Pétur er látinn. Ungur maður í blóma lífsins sem átti allt lífið framundan. Hjörtu okkar fylltust sorg er okkur barst fregnin um það og jafnframt reiði til þess eiturs sem flæðir yfir heim- inn og eyðileggur ungmenni í stór- um stíl. Pétur vinur okkar var fórn- arlamb þess eiturs og nú tvítugur að aldri er hann allur. Það vanda- mál sem Pétur átti við að stríða var honum erfitt og veitti honum stund- argaman en snerist síðan gegn hon- um og varð að lokum kvöl og pína. Okkur var kunnugt um að Pétur vildi snúa lífi sínu og takast alvar- lega og af einlægni á við vandamál sitt. En maðurinn með ljáinn varð á undan og því er vinur okkar allur. í eðli sínu var Pétur góður dreng- ur, átti marga góða kosti til að bera, en því miður villtist hann af réttri braut, eiturlyfin náðu tökum á honum og þessi ljúfi drengur missti alla stjórn á lífi sínu. Við minnumst Péturs sem góðs drengs og þó að hann'bæri ekki trú sína á torg þá vitum við að hann í hjarta sínu trúði á Guð, þetta vitum við frá þeim tíma þegar við sátum í ró og næði og ræddum um tilgang lífsins, trúmál, líf eftir dauðann og margt fleira, þess vegna trúum við því að nú hvili hann í faðmi frelsar- ans þar sem allt er gott og engin eiturlyfjavandamál eru til. Við viljum að síðustu votta móð- ur hans og nánustu aðstandendum dýpstu hluttekningu og biðjum al- máttugan góðan Guð að hugga þau og styrkja. Ég beini augum mínum upp til þín, ó, Jesús, þetta er játning mín. Þó stundum villist ég um eyðistig ég veit þú ávallt vemdar mig. Þó lífsins gata virðist þyrnum stráð, ég áfram geng á þinni náð. Nú kæri Jesús minn í brjósti mér mitt hjarta slær til heiðurs þér. Halldór Fannar Ellertsson, Súsanna R. Gunnarsdóttir, Sigurður M. Sigurðsson. 20% VERÐLÆKKUN VEGNA HAGSTÆÐRA MAGNINNKAUPA Skerar, tennur og undirvagnshlutir í CATERPILLAR, einnig í flestar aðrar gerðir og tegundir vinnuvéla. T.D.: JCB * KOMATSU * JOHN DEERE « INTERNATIONAL HARVESTER FIATALLIS « BANTAM « CASE ♦ O&K ♦ LIEBHERR * HITACHI ♦ POCLAIN nms“Ka riómi Utri • KAFFIRJÓMI ■ GEYMSL UÞOLINN RJÓMI KAFFIRJÓMI ■ GEYMSL UÞOLINN RJÓMI ■ KAFFIRJOMI þegar þú vilt rjómabragð af kaffinu þínu Nú er líka teygja að aftan, sem heldur bleiunni á réttum stað. Allar Libero bleiur eru óbleiktar og ofnæmisprófaðar Verndið náttúruna Rjómabragðiö er á sínum stað þótt fitu- innihaldið sé aðeins 12%. Kaffirjóminn er G-vara og geymist mánuðum saman utan kælis. Vel kældur bragðast hann sem besta rjómabland út á skyr og ávaxtagrauta. nros” jtuAekO) Stráka- bleiur Stelpu- bleiur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.