Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER 1993 Vinnslustöðin leitar til lögfræðings Vill fá álit á um- mælum Kristjáns SIGHVATUR Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, ákvað í gær, að höfðu samráði við stjórn fyrirtæk- isins, að óska eftir lögfræðilegri álitsgerð vegna ummæla Kristjáns Ragnarssonar, formanns bankaráðs íslandsbanka, í útvarpsviðtali í gærmorgun. I viðtalinu sagði Kristján m.a. að það væri óábyrg af- staða Sighvats að vilja greiða veiðileyfagjald. Hann stýrði fyrirtæki sem ætti í gríðarlegum rekstrarörðugleikum og hefði enga fjármuni til þess að greiða fyrir veiðileyfagjald. Sighvatur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að það væri vitað mál, að Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum ætti í miklum erfið- leikum. „En ástandið hjá okkur núna er hvorki betra né verra en það hefur verið um langa hríð. Við viljum einfaldlega fá úr því skorið, hvort það samræmist lögum um bankaleynd, að formaður banka- ráðsins skuli tilgreina sérstakt fyr- irtæki og fjárhagsstöðu þess, þeg- ar hann kemur fram í útvarpsvið- tali sem formaður LÍÚ,“ sagði Sig- hvatur. Óeðlilegt Sighvatur sagði að það færi eft- ir því hver niðurstaða hinnar lög- fræðilegu álitsgerðar yrði, hvort um frekari aðgerðir af hálfu Vinnslustöðvarinnar yrði að ræða. Sighvatur kvaðst telja óeðlilegt að formaður bankaráðs íslandsbanka nafngreindi einstök fyrirtæki þeg- ar hann stæði í deilum við ákveðna útgerðarmenn, eins og hann sjálf- an, vegna ágreinings um hvort taka beri upp viðræður um þróun- argjald. Morgunblaðið/Kristinn Ingólfstorg fær á sig mynd UNNIÐ hefur verið við Ingólfstorg alla daga og öll kvöld undanfarið, enda er stefnt að því að frágangi þess verði að mestu lokið áður en jólaösin hefst í næsta mánuði. Er torgið óðum að fá á sig endanlega mynd. Vatnsútflutningiir frá Sauðárkróki í sjónmáli Fyrrverandi aðalforstjóri Alusuisse stendur að stofnun hlutafélags Sauðárkróki. Á FUNDI bæjarsljórnar Sauðárkróks í dag, verður lagður fram til samþykktar stofnsamningur fyrir félagið „Islenskt ferskvatn hf.“ Það eru dr. Paul H. Mueller fyrrverandi aðalforstjóri Alusuisse, Gunnar G. Schram prófessor í Reykjavík og Sauðárkrókskaupstaður sem gera með sér þennan stofnsamning, en undirbúningur að stofnun félagsins hefur staðið allt frá því um mitt síðastliðið sumar. til staðfestingar hjá bæjarstjórn Sauðárkróks, um hlutafélag sem hefja myndi uppbyggingu á vatns- pökkunarverksmiðu á Sauðárkróki, með útflutning á ferskvatni í huga. B.B. Stefán Logi Magnússon. Reykjavík Lýst eftir 13árapilti LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir 13 ára pilti, Stefáni Loga Magnússyni. Hann fór af heim- ili sínu við Stangarholt seint á sunnudagskvöld en hefur síðan þá haft samband við kunningja sína. Stefán Logi er 160 sm að hæð, grannvaxinn, brúnhærður og stuttklipptur. Hann var í bláum gallabuxum, dökkblárri hettuúlpu og svörtum skóm þegar hann fór að heiman. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið varir við Stefán Loga að láta vita í síma 11166. Tilgangur hins nýja félags er vinnsla, verslun og útflutningur á lindarvatni og önnur skyld starfsemi og er eignarhlutur hvers um sig þannig að þeir Gunnar G. Schram og dr. Paul H. Mueller eiga 40% hluta félagsins hvor, en Sauðárkróksbær 20%. Hlutafé er tæp hálf fjórða millj- ón króna, og hefur að fullu verið greitt. Um mitt síðasta sumar tókust óformlegir samningar, milli Sauð- árkrókskaupstaðar annarsvegar og þeirra dr. Paul H. Mueller og Gunn- ars G. Schram hinsvegar, um að kannað væri, á því vatnsvæði sem Sauðárkrókur hefur umráðarétt yfír, hvort fínnanlegar væru þær lindir til vinnslu ferskvatns sem svöruðu þeim kröfum sem gerðar væru um rennsl- ismagn og vatnsgæði, sem þyrfti til útflutnings héðan og sölu á erlendum mörkuðum. í framhaldi af þessum óformlega samningi komu hingað tveir sviss- neskir jarðfræðingar ásamt Mueller og skoðuðu aðstæður og fundu álit- Iegt svæði þar sem gerðar voru frum rennslismælingar á þeim lindum sem í dag Bardagar í rannsókn Nú stefnir í að fram fari iögregiu- rannsókn á keppni í bardagalistum sem hjaldin var um helgina 25 Ráðherrar segja af sér_______ Allir ráðherrar sambandslandsins Sachsen-Anhalt í austurhluta Þýskalands hafa sagt af sér 26 Samkvæmisdansar Danskur dómari telur að dansinn sé á uppleið á íslandi 54 LeiÖari_______________________ Lífskjör og lækkun matarskatts 28 Dönsku stúlkumar koma á óvart o rr ;- •;• >■' ■•, • íþwttir ► Langt og strangt ferðalag handboltalandsliðsins til Króat- íu. Danir koma á óvart á HM kvenna í handknattleik. Þijú meyjamet í sundi. þar voru og einnig mælingar á þétt- leika jarðlaga og hreyfingu yfír- borðsvatns. Vatnið stenst gæðakröfur Þegar niðurstöður þessara frum- mælinga lágu fyrir síðla sumars og ljóst var að vatnið stóðst mjög vel allar kröfur um gæði, komu jarð- fræðingamir aftur í byijun ágúst, og virkjuðu lindimar á þann hátt sem þeir töldu að þyrfti til þess, að yfír- borðsvatn blandaðist ekki lindarvatn- inu, en síðan þá hafa verið tekin reglulega sýni af vatninu, sem send hafa verið til efnagreiningar í Sviss, en einnig til fleiri landa tii þess að fá sem gleggst yfírlit yfír gæðin. Nú virðist vera ljóst að vatnið stenst allar kröfur og því hefur verið gerður stofnsamningur, undirritaður af öllum hluthöfum og lagður fram Ekkert verður úr blómainnflutimigí LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ ítrekaði í gær þau skilaboð til blóma- innflytjenda að innflutningur á afskornum blómum samkvæmt tvíhliða samningi við Evrópubandalagið yrði ekki heimilaður að óbreyttum búvörulögum. Um er að ræða fjórar blómategundir, og eru nellikur þeirra á meðal. Að sögn Bjarna Finnssonar kaupmanns í Blómavali verður ekkert frekar aðhafst í málinu að sinni. Bjarni sagði í samtali við Morg- yrði þó ekki vegna sérstaks þrýstings unblaðið að fyrirspumir hefðu borist í gær frá útflutningsstofnun blóma- framleiðenda í Hollandi um það hver viðbrögð íslenskra stjómvalda við ósk um innflutningværu. Hann sagð- ist ekki vita hvort hollenskir blóma- framleiðendur hygðust kvarta yfír því að innflutningurinn yrði ekki heimilaður að þessu sinni, en það frá íslenskum innflytjendum. „Okkur fínnst að stjómmálamenn- irnir verði að hreinsa til hjá sér í þessu, en manni skilst að þeir eigi það á hættu að fá á sig kærur. Það er ekki endilega um sérstaka þörf innflutnings að ræða í þessu tilfelli heldur er þama frekar um að ræða prinsipmál," sagði Bjarni. Danskur maður flutti inn 3,7 kíló af hassi til landsins Dæmdur í 8 mánaða fang- elsi 2 vikum eftír handtöku 24 ÁRA gamall Dani var í gær dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa fyrir rúmum tveimur vikum flutt inn til landsins frá Amsterdam 3,7 kg af hassi. Efnið fannst í íþróttatösku í herbergi mannsins þegar hann var handtekinn á Hót- el íslandi aðfaranótt 13. þessa mánaðar. Maðurinn bar að hafa tekið að sér að flytja efnið inn til landsins fyrir mann sem hann hefði hitt í Amster- dam. Umsamin greiðsla fyrir burð- inn hafí verið 15 þúsund danskar krónur. Ekki kvaðst hann vita önnur deili á manninum en að hann væri útlendingur sem héti Frank og hefði sagt að fíkniefnalöggjöf á Islandi væri næstum eins fijálsleg og í Hollandi. Umsamið hafí verið að hann færi á hótel og þar mundi einhver gefa sig fram við hann og vitja efnisins. Því viti hann ekki hvaða aðilar á íslandi tengist málinu. Maðurinn kvaðst hafa talið að um væri að ræða í mesta lagi 2-2,5 kg af hassi sem hann hefði flutt inn til landsins og hugsanlega hefðu aðrir en hann flutt inn til landsins hluta þess efnis sem lögreglan lagði hald á. Hann vildi ekki skýra frá því um hveija þar gæti verið að ræða og í dóminum segir að af hálfu hans hafí því m.a verið haldið fram að hann óttaðist hefndaraðgerðir en í framburði hans kom m.a. fram að sá sem réð hann til verksins hefði haft í hótunum við hann. Þar kemur einnig fram að upphaf málsins hafi verið það ; lögreglan hafi fengið upplýsing; um að útlendingar hefðu komið I landsins með fíkniefni og að grurn hafi beinst að manninum og stúil sem tekið hafði á leigu næsta he bergi við hann. Sú var handtek en ekkert fannst í herbergi henn; og hvorki framburður mannsihs i annað kom fram í málinu sem styrk grun um aðild hennar að málinu. Þrátt fyrir það sem að fram; greinir bar maðurinn margítrek; að hann hefði verið einn að ver við innflutninginn og neitaði því ; hann ætti sér samverkamenn. Har var því talinn sekur um að hafa flu inn allt það efni sem honum v; gefið að sök og refsing hans tal hæfileg fangelsi í átta mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.