Morgunblaðið - 30.11.1993, Side 22

Morgunblaðið - 30.11.1993, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993 LANDSFUNDUR ALÞYÐUBANDALAGSINS A HOTEL SOGU Sjávarútvegsmálin endurskoðuð í heild HÉR fer á eftir kafli stjórn- málaályktunar Alþýðubanda- lagsins sem fjallar um sjávarút- vegsmál: Við margskonar erfíðleika er nú að etja í flestum hefðbundnum at- vinnugreinum Islendinga. Afkoma sjávarútvegsins er slæm og skuldabyrðin gífuleg. Ríkis- stjórninni hefur með öllu mistekist að koma saman heillegri stefnu í málefnum greinarinnar og endur- skoðun laga um stjóm fiskveiða er í uppnámi. Ríkisstjórnin kaus að loka það mál inni í stjómarflokkunum með hörmulegum árangri. Eigi að nást betri samstaða um málefni sjávarútvegsins er nauð- synlegt að gerbreyta vinnubrögð- um. Taka á sjávarútvegsmálin í heild, þar með talið stjóm fiks- kveiða, til endurskoðunar og í því verki eiga allir að vera þátttakend- ur frá byijun, bæði stjórn og stjórn- arandstaða og fulltrúar allra hags- munaðila, þ.m.t. sjómanna, land- verkafólks og byggðalaganna. Tryggja verður að arðurinn af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar renni til íbúa byggðanna og lands- manna allra en ekki til fáeinna útgerðaraðila. Stöðva verður þá eignarmyndun á óveiddum fiski, sem þegar á sér stað í núverandi kerfi, þrátt fyrir sameignarákvæði laga um fiskveiðistjómun. Meðal þeirra leiða sem þarf að skoða eru hugmyndir um að taka upp afnotagjald sem staðfestir að fískurinn í sjónum sé sameign þjóð- arinnar, og kanna verður rækilega aðrar leiðir en núverandi fiskveiði- stefnu, þar á meðal hugmyndir um sóknarstýringu og/eða veiðistýr- ingu. Samtök sjómanna hafa lýst yfir fullri andstöðu við framsali á veiði- heimildum, þ.e. sölu á óveiddum fiski innan gildandi kerfís um stjóm fiskveiða. Alþýðubandalagið lýsir yfir fullri samstöðu með sjómönn- um í baráttu þeirra gegn viðskipt- um með aflaheimildir sem fara fram á þeirra kostnað. Og telur að bannað eigi með lögum að sjómenn taki þátt í kostnaði sem tengjast viðskiptum með veiðiheimildir. Það er afstaða Alþýðubanda- lagsins að meðan endurskoðun fískveiðistefnunnar stendur yfír skuli tekið á þeim vanda sem frjálst framsal aflaheimilda hefur skapað með reglum sem takmarka það veralega, m.a. þannig að framvegis verði fyrst og fremst um að ræða skipti á jafngildum veiðiheimildum og sveigjanleika ef bilanir eða óviðráðanlegar orsakir valda um- talsverðri röskun á útgerð. Forkaupsréttur sveitarfélaga verði á umþóttunartímabilinu lát- inn ná til aflaheimilda en ekki ein- ungis skipa. Settar verði nýjar regl- ur um meðferð aflaheimilda við gjaldþrot og hvernig þær skuli ganga til nýrra úthlutunar með til- liti til atvinnusjónarmiða. Einnig verði útgerðum gert skylt að bjóða með tryggum og viðurkenndum hætti allan afla til sölu á innlendum fiskmörkuðum nema að hann fari beint til vinnslu innanlands. Fundurinn telur að gæta eigi ýtrastu varkámi gagnvart um- hverfínu og að hvetja eigi til veiða með vistvænum veiðarfæram, eins og t.d. krókaveiðar, veiðar í gildrar og fleira. Fundurinn viðurkennir mikil- vægi smábátaúgerðar, fyrir byggð í landinu og nauðsyun þess að varð- veita þau störf er hún skapar, jafnt til sjós og lands. Það er krafa Alþýðubandalags- ins að krókaveiðileyfí haldist áfram og eigendum smábáta gefist kostur á að velja milli aflamarks og króka- veiða sem lúti almennum sóknar- takmörkunum. Athuga ber að veita vistvænum veiðum smærri físk- skipa aukinn forgang til veiða á grunnslóð. Fundurinn hvetur útgerðaíaðila þeirra skipa, sem möguleika hafa til veiða íjarri landi til að nýta sókn- argetuna og stunda slíkar veiðar eftir fremsta megni. Lýst er yfir andstöðu við þá út- færslu hugmynda um þróunarsjóð sem stjórnarflokkarnir hafa sett fram. Þar er útgerðinni ætlað að taka þátt í úreldingu fískvinnslu- húsa, starfandi fyrirtækjum í dag ætlað að taka á sig vanda úr fortíð- inni og halda uppi mjög umdeilan- legri úrejdingar- eða samdráttar- stefnu. í staðinn setur Alþýðu- bandalagið fram tillögur um raun- verulegan nýsköpunarsjóð. „Fram þjáðir menn...“ LANDSFUNDARFULLTRUAR Alþýðubandalagsins sungu Internationalinn, alþjóðasöng verkalýðsiiis, í lok landsfundar fiokksins á Hótel Sögu á sunnudag. Fremstar á myndinni eru Guðrún Helgadóttir al- þingismaður og Stefanía Þorgrímsdóttir frá Garði í Mývatnssveit. Formaðurinn studdi ekki úrsögn úr NATO ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, sat hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu um úrsögn Islands úr NATO á lands- fundi Alþýðubandalagsins á sunnudag. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða gegn sex. Nokkrir Iandsfundarfulltrúar deildu mjög hart á Ólaf Ragnar fyrir þær skoðanir sem hann lýsti á fundinum um framtíðarhlutverk NATO. Í drögum að stjómmálaályktun sem lögð var fyrir landsfundinn var hvergi minnst á kröfu flokksins um úrsögn úr NATO. Við umræður í starfshópi sem fjallaði um ályktun- ardrögin náðist málamiðlun um ýms- ar breytingar en breytingartillaga Soffíu Sigurðardóttur, Einars Vals Ingimundarsonar og Arthurs Morth- ens gegn NATO-aðild fékkst hins vegar ekki sett inn í afgreiðsluskjalið sem lagt var iyrir landsfundarfulltrúa á sunnudag. I því var heldur hvergi minnst á afstöðuna til NATO en þar sagði m.a.: „Markmiðið sem stefna ber að er heimur án hemaðarbanda- laga, heimur þar sem engin þjóð heldur her í annarra landi og þar sem sérhver þjóð nýtur öryggis og friðar, virðir mannréttindi og lýðfrelsi.“ Soffía, Einar Valur og Arthur Málamiðlun eftir miklar umræður um fiskveiðistefnuna Skoða þarf hugmyndir um afnotagjald af auðlindinm HEITAR umræður urðu um sjávarútvegsmál á lokuðum fundi starfs- hóps um sjávarútvegsmál á landsfundi Alþýðubandalagsins skv. upplýs- ingum Morgunblaðsins. Höfðu Vestfirðingar og fulltrúar Vesturlands sig þar mikið í frammi en að lokum náðist málamiðlun á sunnudag um kafla stjórnmálaályktunar sem fjallar um sjávarútvegsmál en tals- verðar breytingar urðu þó frá þeim drögum sem lögð voru fyrir lands- fundinn. Tillaga fulltrúa Birtingar um afnotagjald af fiskveiðiauðlind- inni komst inn í endanlega ályktun sem samþykkt var, með breyttu orðalagi um að sú hugmynd væri ein þeirra leiða sem skoða þyrfti í stað núverandi fiskveiðistefnu. Steingrímur J. Sigfússon, varafor- maður flokksins, tók fram við um- ræður á landsfundinum að þótt hann styddi orðalag ályktunarinnar um ýmsar leiðir sem þyrfti að skoða þá fælist ekki í því efnislegt samþykki hans við þeim kostum sem taldir væru upp. Kveðið er skýrar á um andstöðu við núverandi stjómkerfí fískveiða í endanlegri ályktun en þeim drögum sem lögð voru fyrir fundinn. Sam- komulag náðist um nýja málsgrein þar sem segir að skoða þurfí Hug- myndir um að taka upp afnotagjald sem staðfesti að fiskurinn í sjónum sé sameign þjóðarinnar og kanna verði rækilega aðrar leiðir en núver- andi fiskveiðistefnu, þar á meðal hugmyndir um sóknarstýringu og/eða veiðistýringu. Vitnað er til andstöðu sjómanna við framsali á veiðiheimildum og lýst samstöðu með sjómönnum í baráttu þeirra gegn viðskiptum með afla- heimildir á þeirra kostnað sem flokk- urinn telur að eigi að banna með lögum en hins vegar var felld niður setning um að brot á slíkum laga- ákvæðum varði missi veiðiheimilda. Einnig vora felldar út úr ályktunar- drögunum hugmyndir um að setja þak á aflahlutdeild úr einstökum fískistofnum. Afstöðubreyting „Mér finnst orðin veruleg breyting á umfjölluninni í okkar hópi um þessi mál,“ sagði Jóhann Ársælsson al- þingismaður í samtali við Morgun- blaðið. „Það voru ekki Iengur harðir verjendur kerfisins eins og alltaf hefur verið á fundum hjá okkur,“ sagði hann. „Ég er ekki í vafa um að það hefur orðið veruleg afstöðu- breyting innan flokksins í þessum málum. í vetur stefnir í átök við sjó- menn um þessi mál og ég held að það verði ekki leyst farsællega nema alþingi taki á eignarréttinum á veiði- heimildunum. Fyrsta skrefið gæti verið að takmarka fijálsa framsalið og er ekki ólíklegt að um það geti myndast möguleiki á samstöðu í þinginu,“ sagði Jóhann. Morthens lögðu breytingartillögu sína þá fyrir landfundinn til af- greiðslu en hún er svohljóðandi: „Al- þýðubandalagið áréttar þá stefnu sína að Island hætti allri þátttöku í NATO og standi utan hernaðar- bandalaga hvaða nafni sem þau nefn- ast.“ „Verðum að ræða breytingar" Ólafur Ragnar kvaddi sér hljóðs á fundinum og sagði að veröldin væri að breytast og flokkurinn væri reiðu- búinn að ræða þær breytingar. „Við verðum líka að vera tilbúin að ræða þær breytingar sem eru að verða á NATO og hinu alþjóðlega öryggis- kerfí. Við getum ekki haldið áfram að endurtaka aftur og aftur það sem var rétt, gott og satt hér við ákveðn- ar aðstæður, en er að breyta um eðli í dag. Við verðum að vera reiðubúin að skoða þær miklu breytingar sem eru að verða í þessum efnum,“ sagði Ólafur Ragnar. „Ég teldi að ég væri að bregðast skyldu minni ef ég benti ekki flokkn- um á það að með sama hætti og verðum að ræða breytingar á öllum öðrum sviðum, verðum við líka að ræða breytingar á þessum sviðum og við skulum gera okkur grein fyr- ir því að fjöldi stjórnmálaflokka í Evrópu, sem á dögum kalda stríðsins börðust hart gegn NATO, hafa af raunsæi horfst í augu við það að það eru að verða þar breytingar. Ég vil lýsa því sem minni skoðun hér að ef það þróast alþjóðlegt ör- yggiskerfi á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, þar sem hernaðarbanda- lagseðli NATO verður lagt til hliðar, en það taki að sér verkefni í þágu Sameinuðu þjóðanna, þá tel ég þá breytingu af hinu góða. Það skiptir mig engu máli hvað það heitir," sagði hann og bætti við: „Ég ætla ekki að leggjast gegn þessari tillögu sem hér er flutt en ég ætla að segja það hins vegar við ykkur að ég tel hana það einfeldnislega orðaða og úr takt við það sem er að gerast að ég ætla ekki að greiða henni at- kvæði," sagði Ólafur Ragnar. „Talar ekki í nafni Alþýðubandalagsins" Nokkrir landsfundarfulltrúar brugðust mjög við ræðu Ólafs. Hjör- Morgunblaðið/Jón Svavars. Deilt um þátttöku í NATO SOFFÍA Sigurðardóttir, fyrsti flutningsmaður tillögu um að ís- land hætti allri þátttöku í NATO, gagnrýnir formann Alþýðu- bandaíagsins Ólaf Ragnar Gríms- son harðlega vegna yfirlýsingar hans á landsfundinum um fram- tíðarhlutverk NATO. leifur Guttormsson sagðist ekki sjá nein teikn um að NATO væri að breyta um eðli sem hemaðarbandalag og því væri ekki tímabært að breyta afstöðu flokksins til NATO. Soffía Sigurðardóttir, fyrsti flutningsmaður tillögunnar um úrsögn úr NATO, sagði að skoðanir Ólafs Ragnars lýstu einfeldningshætti og gagnrýndi rök hans harðlega. Þorvaldur Þorvalds- son sagði að sér hefði blöskrað mál- flutningur formannsins. „Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur í vaxandi mæli verið notað í glæpsamlegum stríðum og það er út í hött að líta svo á að allt sem er gert í nafni Sameinuðu þjóðanna sé gott og bless- að,“ sagði hann. „Ég tel það alveg ófrávíkjanlegt að við samþykkjum þessa tillögu hér og það sé alveg skýrt eftir þennan landsfund að með þá stefnu sem Ólafur Ragnar lýsti yfir hér áðan þá talar hann ekki í nafni A'lþýðubandalagsins,“ sagði Garðar Mýrdal. Breytingartillagan var síðan sam- þykkt með miklum meirihluta at- kvæða og stjórnmálaályktunin svo í heild sinni samhljóða. Þar eru ýmsar tillögur um afvopnun og lýst yfír að þegar í stað beri að ganga til við- ræðna við Bandaríkjamenn um það hvernig brottför hersins verði háttað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.