Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 20

Morgunblaðið - 30.11.1993, Síða 20
20 MORGÚNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993 íslenskur skipaiðnaður Aukin verkefni geta komið í veg fyrir hrun eftir Örn Friðriksson íslenskur málm- og skipaiðnaður er að hruni kominn, vegna þess að þar verður sífellt minna um að við- skiptavinir segi — íslenskt, já takk.“ Þess í stað beinast viðskiptin til útlanda, einkum Noregs og Pól- lands. Undanfarin sjö ár hafa íslending- ar keypt ný fiskiskip og endurnýjað gömul fyrir meira en 42 milljarða króna. Miðað við þessa gríðarlega fjár- festingu mættí halda að íslenskur málm- og skipaiðnaður stæði traustum fótum. En svo er ekki. íslensku fyrirtækin hafa aðeins fengið brot af þessum viðskiptum. Vegna viðvarandi verkefnáleysis eru nokkur þeirra þegar gjaldþrota, önnur eiga stutt í endalokin og þau sem eftir lifa búa við algjöra óvissu um framtíðína. Þetta er nöturleg staða fyrir iðn- að sem áður var blómlegur, skapaði meira en þúsund mönnum störf og skilaði sínu til þjóðarbúsins. Þetta er enn nöturlegri staða í ljósi þess að sjaldan hafa fallið til fleiri við- gerðar- og skipasmíðaverkefni hér á landi en einmitt síðustu ár. Verkefnin fara til útlanda Hvað veldur? Verkefnin hafa einfaldlega flust úr landi. Sjö síð- ustu ár hafa íslenskir útgerðarmenn farið til útlanda og látið smíða þar eða endurnýja skipakost fyrir tæpa 29 milljarða króna. Á sama tíma hafa öll íslensku málm- og skipa- smíðafyrirtækin aðeins fengið verk- efni fyrir rúma 13 milljarða króna. Ríkisstyrktur skipaiðnaður í Nor- egi og undirboð frá Póllandi hafa öðrum fremur freistað íslenskra útgerðarmanna með milljarðana 29 í farteskinu. í Noregi styrkir ríkið skipasmíðar um rúmlega 13% og í Póllandi fást jafnan hagstæðustu tilboðin í breytingar á fiskiskipum Örn Friðriksson vegna ríkisstyrktra undirboða. ís- lensk málm- og skipasmíðafyrir- tæki hafa hins vegar yfirleitt verið með næst lægstu tilboðin í breyt- inga- og viðgerðarverkin þannig að ekki munar mikiu. íslensku fyrir- tækin njóta engra ríkisstyrkja. Fljótt á litið mætti álykta að það væri hið besta mál fyrir íslendinga að fá fiskiskipakost sinn niður- greiddan í útlöndum. En ef við íhug- um hver raunkostnaðurinn verður þegar upp er staðið, þá snýst dæm- ið við. Útgerðarmaðurinn sparar í upp- hafi í beinum útlögðum kostnaði. íslenska þjóðarbúið tapar hins veg- ar þeirri verðmætaaukningu sem verkefnið mundi skapa og þetta samaþjóðarbú þarf einnig að greiða atvinnuleysisbætur vegna verk- 'efnamissis. Framkvæmdafé sem fer úr landi tekur atvinnu frá fólki. Árið 1992 fengu íslensku fyrir- tækin aðeins 8% af verkefnum við „Ef íslenskur skipaiðn- aður á að lifa, verður að gera ráðstafanir til að halda íslenskum verkefnum hér heima. Beinast liggur við að grípa til jöfnunarað- gerða, til dæmis með jöfnunar- eða undir- boðstollum.“ nýsmíði og endurnýjun skipa. 92% fóru til útlanda. Með slíku áfram- haldi verður málm- og skipaiðnað- urinn gjaldþrota. Með hruni hans tapast hins vegar meira en aðeins verðmætaaukning þjóðarbúsins. Við gjaldþrot fyrirtækjanna missa hundruð manna atvinnuna, fast- eignir og tækjabúnaður tapa verð- gildi sínu. Verðmæt þekking starfs- manna hættir að nýtast. Þróunar- og þjónustufyrirtæki tapa verkefn- um. Bankar og sjóðir tapa hundruð milljónum króna. Sparnaður út- gerðarinnar breytist í tap þjóðarinn- ar. Ekki á jafnréttisgrundvelli Meginvandi skipaiðnaðarins er sá að hann keppir ekki á jafnréttis- grundvelli. Hann keppir við ríkis- styrktan skipaiðnað Norðmanna og Pólvetja. Þessar þjóðir greiða niður skipaiðnað sinn til að fá næg verk- efni og halda uppi atvinnu. Þar með er ekki sagt að íslensk- ur skipaiðnaður sé ekki samkeppn- ishæfur. í útboðum eru tilboð Is- lendinga yfirleitt næst á eftir tilboð- um Pólveija og Norðmanna og mun lægri en tilboð frá öðrum löndum. Það er því í raun lítið sem skilur á milli, en nógu mikið samt til að ís- Bensín á starfs- menntakerfið eftir Guðbrand Magnússon íslenska skólakerfíð hefur ekki skilað þeim árangri sem þörf er á og gríðarlegt misvægi er á milli bóknáms og starfsnáms. Þetta kem- ur best fram ef við berum okkur saman við aðrar þjóðir, þar sem starfsmenntun er í hávegum höfð, s.s. Dani og Þjóðveija. Sá háttur stjórnmálamanna að tala um mennt- un íslensku þjóðarinnar sem auðlind, sem við getum alltént huggað okkur við þegar aflabrestur og samdráttur í atvinnulífi blasir við, hefur leitt af sér þá sjálfsblekkingu að menntun þjóðarinnar sé góð. Sárafáir ungling- ar sjá þó vænlega menntunarleið í starfsmenntakerfmu, bóknámsleiðin sogar fjöldann til sín og þar á meðal bestu námsmennina. Á sama tíma og til dæmis um 50% danskra ung- menna lýkur formlegri starfsmennt- un og 80% þýskra, þá nær það hlut- fall hér í mesta lagi 20% og kannan- ir benda reyndar til mun lægra hlut- falls. Iðnnemar hafa lýst miklum áhyggjum sínum yfir því að geta ekki lokið starfsþjáifun úti í atvinnu- lífinu sem er forsenda þess að geta lokið sveinsprófi. Vandinn liggur m.a. í því að nemendum er veittur óheftur aðgangur að námi í skóla, sem fyrirséð er að ekki geta allir lokið með starfsþjálfun í atvinnulíf- inu. Það er auðvitað til skammar, að nemendum sé beint í nokkurra ára skólanám þegar fyrirséð er að aðeins hluti þeirra getur lokið námi með formlegum h'ætti. Nær væri að sú takmörkun lægi fyrir á fyrstu stigum námsins, eins og í nýju iðn- ámskerfi í prentiðnaði. Það verður að fjölga möguleikum til formlegs starfsnáms, en nú er það nánast eingöngu bundið við löggiltar iðngreinar. Það þarf að auka og bæta yerknámið í fyrirtækjunum og gera atvinnurekendur ábyrgari fýrir verknámskennslunni. Þeir hafa sýnt sig reiðubúna til þess í a.m.k. nokkr- um starfsgreinum gegn meiri áhrif- um á innihald og framkvæmd náms- ins. Ef atvinnurekendur taka verk- þjálfun iðnnema alvarlega fylgir því kostnaður, en þeir atvinnurekendur eru líka til sem nota iðnnema sem ódýrt vinnuafl. Núverandi starfs- menntakerfi býður þeirri hættu heim, nánast engar kröfur eru gerðar um gæði starfsþjálfunar og ekkert eftir- lit er haft með henni. Það þarf að fjölga þeim fyrirtækj- um sem taka iðnnema til náms og taka kennslu þeirra alvarlega. Það gerist ekki af sjálfu sér, það þarf bensín á starfsmenntakerfið - pen- inga. Til að auðvelda fyrirtækjum að taka nema þyrfti að taka upp nokkurs konar hvatningarsjóð sem allir atvinnurekendur myndu borga í og þeir sem tækju iðnnema til verk- náms fengju endurgreitt úr sjóðnum, Guðbrandur Magnússon „Það þarf að auka og bæta verknámið í fyrir- tækjunum og gera at- vinnurekendur ábyrg- ari fyrir verknáms- kennslunni. Þeir hafa sýnt sig reiðubúna til þess í a.m.k. nokkrum starfsgreinum gegn meiri áhrifum á inni- hald og framkvæmd námsins.“ t.d. ákveðna upphæð fyrir hvern nema sem þeir tækju. Þau fyrirtæki sem ekki geta eða vilja taka nema borguðu með öðrum orðum hinum sem tækju að sér að mennta fólk til starfa. Það er óeðlilegt að aðeins sumir atvinnurekendur taki á sig þann kostnað sem er samfara því að taka nema til verkþjálfunar, en aðrir njóti góðs af án þess að leggja neitt af mörkum. Þetta myndi örugg- lega hvetja fleiri atvinnurekendur til að taka fleiri nema til starfsþjálfunar og gera ábyrgð þeirra augljósari á því að verkþjálfunin sé markviss. Það felst í því heilmikill sparnaður fyrir ríkið að færa verkþjálfun að hluta úr skólum til fyrirtækja, sér- staklega vegna minni tækjakaupa. Það er því ekki óeðlilegt að á móti myndi ríkið leggja fé í þennan hvatn- ingarsjóð. í Danmörku hefur þessi háttur verið hafður á um árabil. Sérstök sjálfseignarstofnun hefur það að markmiði að endurgreiða atvinnu- rekendum þau laun, sem þeir borga nemum þann tíma sem þeir eru í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.