Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 30.11.1993, Blaðsíða 27
MORGÚNBLA ÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1993 27 Reuter Fegurst allra ÁTJÁN ára Jamaíkustúlka, Lisa Hanna, var krýnd ungfrú alheimur um helgina en keppnin fór fram í Suður-Áfríku. Þeldökkar stúlkur urðu í efstu þremur sætum. í öðru sæti varð Jacqueline Mofokeng frá Suður-Afr- íku og þriðja Sharmaine Qutierrez frá Filippseyjum. Fulltrúi íslands, Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, komst ekki í 10 stúlkna úrslit. Utanríkisráðherra Fídels Kastrós um landflótta íþróttamanna Þeir sem ekki flýja langtum fleiri en hinir New York. The Daily Telegraph. RÚMLEGA 900 kúbverskir íþróttamenn taka nú þátt í Mið-Amer- íku- og Karibahafsleikunum sem fram fara á Puerto Rico. Frammi- staða þeirra er með ágætum; þeir hafa þegar unnið 136 af 213 gullverðlaunum. En þótt afrekum þeirra sé hampað á forsíðu stjórn- armálgagnsins Granma í Havanna og þeir njóti hvers kyns fríðinda eins og safaríkra steikarmáltíða sem þorri Kúbverja getur aðeins Iátið sig dreyma um nægir það ekki til. 32 þeirra hafa strokið og hyggja á frama í Bandaríkjunum þar sem þeir bestu geta efnast vel m.a. með því að auglýsa íþróttavörur. Einræðið og kúgunin á Kúbu eru einnig illþolandi fyrir fólk sem hefur kynnst lífinu í lýðræðisríkj- um. „Ég var að leita að svolitlu frelsi sem ekki fyrirfinnst á Kúbu“, sagði Odaly Hernandez fyrirliði á sunnudaginn en lið hennar sigraði í hafnabolta kvenna. Hún gekk einfaldlega af vellinum og út í bíl sem beið eftir henni. Sumir flóttamannanna hafa undirbúið sig vel og fá aðstoð ætt- ingja sem þegar hafa komið sér fyrir í Bandaríkjunum, aðrir grípa tækifæri sem gefst óvænt. Þannig ákváðu 11 manns skyndilega að flýja, sennilega vegna þess að þeir höfðu séð aðra taka til fótanna. Ljósmyndari íþróttastofnunar Ha- vanna sem flúði tók með sér ná- kvæma skýrslu um fyrri störf og afrek til að eiga léttara með að koma undir sig fótunum í nýja landinu. Fulltrúar kommúnista- stjórnarinnar gera liðskönnun á hveiju kvöldi og fólkið verður að biðja um leyfi með sólarhrings fyr- irvara ætli það að fá að hitta ætt- ingja á staðnum. Þá gefst ráðrúm til hindra flóttatilraunir. íþróttagoðin blíðkuð Stjórnvöld á Kúbu reyna nú að stemma stigu við þessari þróun með því að hygla afreksfólkinu enn meira. Ákveðið var að heimsmeist- arinn í hástökki, Javier Sotomay- or, fengi að halda þriðjungnum af nær þriggja milljón króna verð- launum sem hann hlaut fyrir að vera kjörinn besti íþróttamaður heims úr röðum spænskumælandi þjóða. Hann fær einnig að halda Mercedes Benz-bíl sem hann fékk fyrir sigur á heimsmeistaramóti i frjálsíþróttum í Stuttgart. Áður hefði bíllinn verið seldur eða gefinn háttsettum embættismanni. Liðið sem Kúbverjar sendu til Puerto Rico er talið það besta sem þeir hafa nokkurn tíma teflt fram og er flóttinn því enn sárgræti- Iegri fyrir stjórn Fidels Kastrós. Utanríkisráðherra hans, Roberto Robaina, er fyrrverandi íþrótta- hetja sem gjarnan hjólar í vinnuna og er talinn helsta von Kastrós um að byltingarstjórn hans endi ekki á sama öskuhaug og alræðisstjórn- irnar í Mið- og Austurevrópu. Robaina bendir á að flóttamennirn- ir séu mun færri en hinir. „Það ætti að óska þeim til hamingju með reisn þeirra og hreysti", segir hann um tryggu þegnana. Major í vöm vegria viðræðna við IRA London, Belfast. The Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, og Sir Patrick Mayhew, Norður-írlandsmálaráðherra, stóðu í ströngu um helgina við að bjarga því, sem bjargað varð af trúverðugleika sínum, eftir að upplýst hafði verið, að breska stjórnin og IRA, írski freslsisher- inn, hafa átti í leynilegum viðræðum um langa hríð þótt þeir hafi alla tíð þvertekið fyrir það. Stjórnmálamenn í röðum mótmælenda á Norður-írlandi eru ævareiðir og krefjast afsagnar Majors og Mayhews en ýmsir flokksbræður þeirra og frammámenn í Verka- mannaflokknum hafa lýst yfir stuðningi við viðræðumar við IRA. Frakkland Ungir pilt- ar sakaðir um morð París. Reuter. SAKSÓKNARI í Frakklandi hvatti í gær fjölmiðla til að sýna stillingu í fréttaflutningi sínum um þrjá 9-10 ára drengi sem sakaðir eru um að hafa tekið þátt í að berja útigangsmann til bana. Auk drengjanna þriggja er tólf ára drengur sakaður um að hafa horft á barsmíðamar án þess að koma manninum til hjálpar. Enn- fremur er verið að rannsaka þátt tveggja fullorðinna útigangsmanna í morðinu. Barsmíðarnar hófust vegna deilu mannanna þriggja um afnot af skýli. Morðið var framið 29. október en saksóknarar reyndu að koma í veg fyrir að Ijölmiðlar kæmust á snoðir um það. Þeir vildu þannig koma í veg fyrir að mikla fjölmiðia- umfjöllun líkt og í máli bresku drengjanna tveggja sem voru dæmdir fyrir morðið á smábarninu James Bulger. Drengirnir þrír eru sagðir hafa barið útigangsmanninn með spýtu og dregið líkið ofan í brunn. Þeir eru í umsjá foreldra sinna þar sem frönsk lög banna handtöku barna undir 13 ára aldri. Gerry Adams, formaður Sinn Fein, pólitísks arms IRA, sagði á sunnudag, að Sir Patrick hefði logið þegar hann reyndi að gera lítið úr viðræðunum og fullyrti, að háttsettir embættismenn hefðu tekið þátt í þeim með fullri vitn- eskju allrar, bresku stjórnarinnar. Major og Sir Patrick segja hins vegar, að ekki hafi verið um við- ræður að ræða, heldur „þreifing- ar“ þar sem stefna stjórnarinnar hefði verið í samræmi við opinber- ar yfirlýsingar: Að forsenda eigin- legra viðræðna væri, að ÍRA hætti ofbeldisverkum og Norður-írland yrði hluti af breska konungsríkinu svo lengi sem meirihluti íbúanna vildi. „Óglatt“ af tilhugsuninni Ekki fer samt á milli mála, að afdráttarlausar yfirlýsingar Maj- ors og Sir Patricks um að ekki væri verið að ræða við IRA hafa skaðað þá og bresku stjórnina og spiilt sambandi hennar og mót- mælenda á Norður-írlandi. Eftir sprenginguna í Shankill Road í Belfast, sem varð 10 manns að bana, sagði Major til dæmis, að honum yrði „óglatt“af tilhugsun- inni um viðræður við Sinn Fein eða IRA og um miðjan mánuðinn sagði Sir Patrick, að engar viðræð- ur hefðu átt sér stað við IRA. Nú hefur verið upplýst, að „þreifingar“ milli IRA og breskra stjórnvalda hafa átt sér stað árum saman en Sir Patrick segir, að í febrúar sl. hafi bresku stjórninni borist boð frá forystu IRA um að átökin væru á enda en hún vildi Líkur á langvarandi lækkun á olíuverði Nikosíu. Reutcr. BRENT-hráolía lækkaði í fyrsta sinn í fimm ár niður fyrir 14 dali á fatið í gær og virt fréttablað, The Middle East Economic Survey (MEES), sagði að Samtök oliuútflutningsríkja, OPEC, stæði frammi fyrir verulegri lækkun á olíuverði og líkur væru á að verðið haldist lágt í langan tíma. Blaðið segir að bjartsýnustu sér- fræðingar í olíuviðskiptum séu ekki vongóðir um að olíuverðið eigi eftir að hækka umtalsvert á vetrarmán- uðunum. Verðið hefur verið á bilinu 15-20 dalir á fatið að undanförnu og blaðið telur líklegt að það lækki niður í 10-15 dali. „Áhrif slíkrar þróunar á efnahag OPEC-ríkjanna myndu augljóslega vera hrikaleg," segir blaðið. Blaðið segir að olíumálaráðherra Saudi-Arabíu, Hisham Nazer, hafi lagst gegn því að framleiðslukvóti landsins yrði minnkaður. Hann hafi haldið því fram á fundi OPEC-ráð- herra í vikunni sem leið að ekki nægði að minnka heildarframleiðsl- una um 300-500.000 föt á dag til að halda verðinu uppi. Til þess þyrfti framleiðslan að minnka um 1-1,5 milljónir fata á dag, sem yrði mjög erfitt í framkvæmd fyrir OPEC og gæti leitt til þess að markaðurinn minnkaði. Blaðið telur líklegt að þótt olíu- verðið kunni að hækka örlítið í des- ember bendi flest til þess að það lækki aftur í byijun næsta árs. 25% AFMÆLISAFSLÁTTUR af allri þjónustu og vörum til 6. desember. HAKSEL í MJÓDD Þararbakka 3-2. hæð, sími 79266. ræða um hvemig þeim yrði form- lega lokið. Sagði Sir Patrick, að útilokað hefði verið að skella hurð- um á skilaboð af þessu tagi. Ian Paisley, leiðtogi Sambands- flokksins á Norður-írlandi, sakaði bresku ráðherrana um „ósvífnar lygar“ en sumir frammámenn í Verkamannaflokknum segjast ekki munu áfellast stjórnina fyrir að hafa rætt við IRA, heldur fyrir ósannindin í kringum viðræðurnar. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. _ J Kopavogi, sími S71800 ^ MMC Lancer GLXi '90, silfurgrár, sjálfsk., ek. 39 þ. V. 890 þús., sk. á ód. Níssan King Cap 4x4 ’90, grár/svartur, 5 g., ek. 59 þ. V. 1250 þús. Toyota Corolla XL ’88, steingrár, 4 g., ek. 78 þ. V. 520 þús. stgr. Honda Civic CRX ’88, hvítur, 5 g., ek. 78 þ., rafm. í rúðum, sóllúga o.fl. V. 760 þús., sk. á ód. MMC L-300 Minibus 4x4 ’88, grásans, 5 g., ek. 87 þ. Gott eintak. V. 1090 þús. MMC L-300 Minibus 4x4 ’91, hvítur, 5 g., ek. 40 þ. V. 1850 þús. Toyota Hi Lux SR5 EFi ’93, 5 g., ek. 15 þ., upphækkaður o.fl. V. 1980 þús. MMC Pajero turbo diesel (stuttur) ’86, gott eintak, mikið endurnýjaður. V. 690 þús. Daihatsu Feroza EL-II '89, grár/tvílitur, 5 g., ek. 62 þ., álfelgur, cent. o.fl. V. 890 þús. Subaru Justy J-12 4 x 4 ’89, grásans, 5 dyra, 5 g., ek. 61 þ. V. 590 þús. Toppeintak. Daihatsu Charade Sedan SG '91, rauður, sjálfsk., ke. 48 þ. V. 820 þús. Ford Orion CLX Sedan ’92, 5 g., ek. 34 þ. V. 850 þús., sk. á ód. Toyota Corolla 1300 DX '87, blár, 5 dyra, 4 g., ek. 102 þ. V. 370 þús., sk. á ód. Subaru station 1800 GL '88, sjálfsk., ek. 70 þ. V. 780 þús., sk. á ód. Subaru Justy J-10 4x4 ’86, hvítur, 3ja dyra, 5 g., ek. 78 þ. V. 290 þús. Mazda 626 2000 GLX '91, sjálfsk., ek. 51 þ., rafm. í rúðum, cent., álfelgur o.fl. V. 1190 þús., sk. á ód. BÍLARÁTILBOÐSVERÐI: Subaru 1800 GL Coupé 4x4 '86, 5 g., ek. 152 þ., ný yfirf. V. 490 þús. Tilboðsverð: 390 þús. Mercedes Benz 250 T station '80, grænn, 4 g., ek. 170 þ. V. 550 þús. Tilboðsverð: 320 þús. stgr. Lada 1500 station '92, 5 g., ek. 32 þ., sumar/vetrardekk. V. 450 þús. Tilboðsverð: 390 þús. stgr. MMC Colt GL '90, 5 g„ ek. 69 þ. V. 690 þús. Tilboðsverð: 600 þús. stgr. Renault 9 '87, 4ra dyra, vínrauður, 5 g., ek. 91 þ. V. 370 þús. Tilboðsverð: 250 þús. Chevrolet S-10 Thao '83, 5 g., ek. 120 þ. milur, sóllúga, álfelgur o.fl. V. 630 þús. Tilboðsverð: 480 þús. Honda Prelude '85, 5 g„ ek, 125 þ„ sóllúga, spoiler. V. 480 þús. Tilboðsverð: 330 þús. stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.