Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/C/D 208. TBL. 82. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Sambandsflokkurinn í Færeyjum Samið um þátt- töku í sljóm Þórshöfn. Morgunblaðið. EFTIR langar samningaviðræður hefur samkomulag náðst innan Sam- bandsflokksins í Færeyjum um stjómarþátttöku. Björn á Heygum og Finnbogi Arge, þingmenn flokksins, samþykktu um miðjan dag í gær stjómarsáttmálann sem þegar hafði verið undirritaður en þeir mót- mæltu í fyrstu. Lögðu Björn og Finnbogi þó áherslu á að þeir væm ekki sáttir við alla þætti samkomulagsins. Mannfjöldaráð- stefnu SÞ lokið Páfagarð- ur styður ályktunina Kaíró. Reuter. PÁFAGARÐUR veitti í gær skilyrt- an stuðning sinn við lokaályktun mannfjöldaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ), sem lauk í Kaíró í gær. Lagði Páfagarður á það áherslu að hann héldi þó fast við skoðanir sínar á fóstureyðingum og getnaðar- vörnum. Allt fram á síðustu stundu var óvíst hvaða afstöðu Páfagarður tæki til ályktunarinnar. Formaður sendinefndar Páfa- garðs, Renato Martino erkibiskup, sagði að páfi vildi styðja samkomulag ráðstefnunnar, jafnvel þó að það yrði aðeins að hluta til. Lagði hann hins vegar áherslu á að þetta væri ekki stefnubreyting af hálfu Páfagarðs hvað varðaði fóstureyðingar, getnað- arvarnir, ófijósemisaðgerðir eða smokka sem forvarna gegn alnæmi. Múslimsk ríki höfðu einnig fyrir- vara á samþykki sínu, m.a. Iran, Líbýa, Jemen, Alsír, Sýrland og Afg- anistan, sem sögðust ýmist setja lögmál Islam ofar öðru eða gagn- rýndu harðlega þann hluta ályktun- arinnar sem fjallar um rétt einstak- linga í kynferðismálum. ■ Staða Páfagarðs/16 ----------------- ísrael og PLO Samkomu- lag um fjár- framlögin Ósló. Reuter. SHIMON Peres, utanríkisráðherra ísraels, og Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO), náðu í gærkvöldi samkomu- lagi um leiðir til að flýta fyrir fjár- framlögum erlendra ríkja til sjálf- stjórnarsvæða Palestínumanna. „Friðarumleitanirnar eru aftur komnar á skrið,“ sagði Bjorn Tore Godal, utanríkisráðherra Noregs, þegar hann tilkynnti samkomulagið. Peres og Arafat voru viðstaddir tónleika í Osló í tilefni þess að ár er liðið frá því friðarsamkomulag ísra- ela og PLO var undirritað í Washing- ton. „Við lukum við Óslóar-yfirlýsing- una í hléinu," sagði Godal. Finnbogi Arge sagði í samtali við færeyska útvarpið í gær að hann vildi heldur að Sambands- flokkurinn væri sameinaður í stjórn en klofinn og án áhrifa í landsmála- pólitíkinni í framtíðinni. Björn á Heygum er á sama máli. Sjö ráðherrar í Quebec hrósa sigri Skipting ráðuneyta Þegar hefur verið ákveðin skipt- ing á stærstu málaflokkunum. Sambandsflokkurinn hefur sjáv- arútvegsmál og utanríkisviðskipti með höndum, Jafnaðarflokkurinn viðskipti, Verkamannaflokkurinn iðnaðar- og landbúnaðarmál og Sjálfstýriflokkurinn menningar-, samgöngu- og ferðamál. AÐSKILNAÐARSINNAR í Que- bec í Kanada unnu sigur í kosn- ingum í rikinu á mánudag, en þó ekki jafn mikinn og búist var við. Þeir hyggjast efna til þjóðarat- kvæðis um aðskilnað frá Kanada, en meirihluti íbúanna er andvígur þeirri hugmynd, samkvæmt könn- unum. Á myndinni fagnar Jacqu- es Parizeau, leiðtogi aðskilnaðar- sinna, ásamt konu sinni þegar úrslitin lágu fyrir. ■ Þjóðaratkvæðiánæstaári/17 Bandarísk flugmóður- skip send áleiðis til Haítí Stjórnarflokkarnir hafa ekki enn ákveðið hveijir hljóti ráðherraemb- ætti. Þegar það hefur verið gert verður Lögþingið kallað saman til að velja nýja landsstjórn. Ráðherr- arnir verða sjö, Sambandsflokkur- inn fær lögmann og tvo ráðherra, Jafnaðarflokkurinn tvo ráðherra og þingforseta, Verkamannafylkingin og Sjálfstýriflokkurinn einn hvor. Reuter Aðskilnaðarsinnar Washington, Port-au-Prince. Reuter, The Daily Telegraph. INNRÁS virðist yfirvofandi á Haítí og Bandaríkjastjóm sendi í gær flugmóðurskipið America áleiðis til landsins þrátt fyrir mikla andstöðu heima fyrir við hemaðaríhlutun. Talið er að í America séu sér- sveitir sem yrðu fyrstar á land á Haítí verði innrás fyrirskipuð. Ann- að flugmóðurskip, Eisenhower, heldur af stað til Haítí frá Norfolk í dag, með fleiri hermenn og árás- ar- og flutningaþyrlur. Fyrir eru að minnsta kosti 15 bandarísk herskip í grennd við Haítí og stjórn Bills Clintons for- seta hefur hótað herforingjastjóm- inni innrás fari hún ekki frá og setji Jean-Bertrand Aristide, sem hún steypti af stóli, aftur í emb- ætti forseta. Ilerforingjastjórnin hefur skrif- að Bandaríkjastjórn og óskað eftir skýringu á því að fimm herskip voru send inn fyrir landhelgi Ha- ítí um helgina. Stanley Schrager, talsmaður bandaríska sendiráðs- ins í Port-au-Prince, sagði að her- Leon Panetta, forseti bandaríska herráðsins, spáði því að Banda- ríkjamenn myndu fylkja sér á bak við forsetann ef hann ákvæði inn- rás á Haítí, þrátt fyrir þessa niður- stöðu könnunarinnar. Vaxandi andstaða er við innrás innan Bandaríkjaþings. Repúblik- anar krefjast þess að þingið ræði málið- áður en innrásin hefjist en Clinton forseti þarf ekki að óska eftir heimild þingsins fyrir hernað- aríhlutuninni. Sautján þúsund hermenn Bandaríkjastjórn leggur nú kapp á að sannfæra þjóðina um að inn- rásin sé nauðsynleg af siðferðileg- um ástæðum. Warren Christopher utanríkisráðherra leggur áherslu á að koma þurfi herforingjastjórn- inni frá vegna mannréttindabrota hennar. Búist er við að 15.000 banda- rískir hermenn taki þátt í innrás- inni, en auk þess segir stjórnin að sautján ríki hyggist leggja til um 2.000 hermenn. LÖGREGLUMAÐUR á Haítí beitir svipu til að hafa stjórn á fólki sem bíður í röð eftir matargjöfum í Port-au-Prince. Fátt bendir til þess að herforingjastjórnin í landinu fari frá þrátt fyrir refsiaðgerðir og yfirvofandi innrás. foringjastjórnin fengi engin svör Næstum þrír af hveijum fjórum þar sem útlagastjórnin hefði heim- Bandaríkjamönnum, eða 73%, eru ilað siglingu skipanna inn fyrir andvígir innrás á Haítí, samkvæmt landhelgina. nýrri könnun A/tC-sjónvarpsins. Norður-Kórea Þjóðar- sorg hjá fuglunum Lundúnum. The Daily Telegraph. DÝRKUNIN á Kim Il-sung, „leiðtoganum mikla“ í Norð- ur-Kóreu, einskorðast ekki lengur við mannfólkið. Fugl- arnir eru sagðir syrgja hann einnig og streyma nú að einni af fjölmörgum styttum sem reistar voru leiðtoganum til heiðurs. Að sögn fréttastofu Norð- ur-Kóreu streyma trönur, svölur og þvarar að minnis- merkinu og „tísta trega- söngva“ til að votta Kim virð- ingu sína í hinsta sinn. Frétta- stofan hafði eftir náttúru- fræðingum og sjónarvottum að „svölurnar væru að tjá sorg sína vegna andláts hins föðurlega leiðtoga áður en þær fljúga suður á bóginn“. Sjónarvottar sögðu þetta enn eitt merkið um að Kim væri „mikilmenni sem stigið hefði niður frá himnum“. Undur og stórmerki Að sögn fréttastofunnar höfðu áður gerst þau undur og stórmerki að eftirlætis- blóm Kims, magnolían, hefði tekið að blómgast þegar þess var minnst að tveir mánuðir voru liðnir frá andláti hans, þannig að „hjörtu mannanna fylltust enn meiri söknuði".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.