Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓHANN PÉTUR SVEINSSON + Jóhann Pétur Sveinsson hér- aðsdómslögmaður var fæddur á Var- malæk í Lýtings- staðahreppi 17. september 1959. Hann lést á Vífils- stöðum mánudag- inn 5. september síðastliðinn. Minn- ingarathöfn um Jó- hann Pétur fór fram í Hallgríms- kirkju í gær, en -*»• útför hans fer fram frá Reykjakirkju í dag. í dag, miðvikudaginn 14. septem- ber, verður Jóhann Pétur Sveinsson lögmaður jarðsettur kl. 15 frá Reykjakirkju, Lýtingsstaðahreppi, Skagafirði. Jóhann Pétur fæddist í foreldrahúsum á Varmalæk i Skagafírði, sonur Herdísar Bjöms- dóttur frá Stóru-Ökrum og Sveins Jóhannssonar frá Mælifellsá. Hann var Skagfirðingur langt aftur í báð- ar ættir. Á ljórða aldursári fór að bera á sjúkdómi þeim er hijáði Jó- hann þannig að líkamlegur vöxtur var mjög hægur og var hann því næstu árin af og til á sjúkrastofnun- um sem úrskurðuðu hann með liða- gigt. Bamaskólaárin dvaldi Jóhann að miklum hluta á Landspítalanum í Reykjavík og dvalarstaður hans var einnig þar er hann lauk lands- prófi, þangað komu kennarar til hans. Á sumrin dvaldi Jóhann heima á Varmalæk og á helgum og hátíðum eða eins oft og hægt var heimsótti hann föðurforeldra sína í Reykjavík, þau Lovísu Sveins- jm, dóttur og Jóhann Pétur Magnússon, sem áður voru ábúendur á Mæli- fellsá í Skagafírði. Eftir landsprófíð lá leið Jóhanns í Menntaskólann við Hamrahlíð. Þaðan útskrifaðist hann með stúdentspróf 20. des. 1987 og var með þriðju hæstu einkunn í skólanum. Jóhann hóf nám í lög- fræði við Háskóla íslands 1979 og lauk þaðan prófí að vori til 1984. Það má vekja sérstaka athygli á því að hann frestaði aldrei að fara í próf og féll aldrei í nokkurri grein lögfræðinnar. Að loknu lögfræðiprófinu innrit- aðist hann í Óslóarháskóla árið 1985 og lauk þaðan á því ári prófi í „Félagsrétti". Hann var líka ávallt : sannur félagi og hafði sitt háskóla- próf í því. Jóhann starfaði því næst sem fulltrúi borgarfógeta síðla árs 1985 og fram á árið 1986 er hann stofnaði sína eigin lögmannsstofu ásamt skólabróður sinum Ólafi Garðarssyni, lögfræðingi. Fyrsta árið voru þeir til húsa á Grandavegi 42, en undanfarin sjö ár á Austur- strönd 6, Seltjarnarnesi. Jóhann gerðist lögfræðingur Ör- yrkjabandalags íslands árið 1987 og hefur verið það síðan og starfað mikið og ötullega að úrbótum á málefnum fatlaðra. Ritari félags Sjálfsbjargar í Reykjavík 1980- 1982. Kjörinn varaformaður Sjálfs- bjargar, Landssambands fatlaðra, Eríulnkkjur Glæsileg kaíti- lilaðlnirð lallegir salir og mjög góð þjðllUStíL L'pplýsingar ísuna22322 FLUGLEIDIR IIÓTt'L LOFTLEIIIR 1984-1988 og for- maður þessa félags eftir það eða til ævi- loka. Hann sat einnig í stjóm Bandalags fatl- aðra á Norðurlöndum frá 1988 og var forseti þess frá 1992 og til dánardægurs. 24.-28. ágúst sl. sat Jóhann stjórnarfundi þess og var því nýkominn heim til Islands frá þeim störfum er hann lést. Frá árinu 1988 var hann í stjórn fatlaðra ungmenna á íslandi og í stjórn íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík og nágrenni. Auk þess- ara miklu stjórnunarstarfa á vegum þessara félaga lét Jóhann ekki deig- an síga í landsmálunum. Hann gerðist formaður Framsóknarfélags Seltjarnarness árið 1990 og sat í miðstjórn flokksins frá 1988 og í landsstjórn frá 1989. Hann var í bæjarmálanefnd Seltjarnarness. Hann var í stjórn EDDAHESTA, sem eru sölusamtök íslenskra hrossabænda, og ennfremur í stjórn Slátursamlags Skagfírðinga. Á sín- um tíma voru talin saman stjómun- ar- og nefndarstörf Jóhanns Péturs og reyndust þau vera 17 að tölu. Á haustdögum 1987 gerðist Jó- hann söngfélagi í Skagfírsku söng- sveitinni í Reykjavík ásamt bræðr- um sínum Gísla og Ólafí frá Varma- læk, svo og fleiri ungum Skagfírð- ingum. Það árið efldist skagfírska sönggleðin í söngsveitinni og auk þess að syngja í kómum söng hann með hópi ungmenna sem söng und- ir stjórn tónskáldsins Björgvins Þ. Valdimarssonar við ýmis tækifæri. Jóhann valdi þessum sönghóp nafn- ið „Veirumar". Að sjálfsögðu starf- aði Jóhann í mörgum nefndum hjá Söngsveitinni. Honum er þakkað af söngfélögum fyrir ógleymanlega, skemmtilega og góða kynningu. Jóhann Pétur var þriðji í hópi 6 systkina. Elst er Lovísa húsfrú á Varmalæk, þá Björn bóndi á Varmalæk kvæntur Sólveigu S. Einarsdóttur. Gísli, staðarhaldari á Leirubakka í Landssveit, kvæntur Ástu Beggu Ólafsdóttur, Sigríður tvíburasystur Gísla, húsfrú í Goð- dölum, eiginmaður hennar er Smári Borgarsson, og yngstur er Ólafur Stefán, verslunarstjóri í Pennanum í Reykjavík. Þó Jóhann væri í hjólastólnum sínum á mannfögnuðum var það næstum eins eðlilegt fyrir hann og aðra sem bara ganga með gler- augu, því hann dansaði í hjólastóln- um og þegar við hin stilltum okkur upp í söngröðina kom hann og hækkaði stólinn sinn upp og allir voru jafnir, enginn félaginn varð var við hans miklu fötlun því hann var ávallt sá hressasti með hnyttin tilsvör og engin vandamál. Jóhann Pétur var tvígiftur, hann kvæntist Þórhildi Guðnýju Jóhann- esdóttur hinn 18. sept. 1988. Þau slitu samvistir. Seinni kona hans sem nú lifír mann sinn er Jónína Harpa Ingólfsdóttir frá Hornafírði. Þau giftu sig á 1. Hörpudegi hinn 25. apríl 1991 í Reykjakirkju. Þeirra hjónaband hefur verið mjög far- sælt. Þau hafa átt margt sameigin- legt. Hún á við fötlun að stríða á vinstri hendi en ber það með reisn og jafnaðargeði. Andlegi styrkurinn var m.a. þeirra mikla sameiningar- tákn. Barn þeirra hjóna er á leið- inni. Hún eignast það núna í nóvem- ber. Þau Harpa og Jóhann ferðuðust a.m.k. þrisvar sinnum með hesta- mönnum úr Skagafirði suður yfír hálendið, þau keyrðu bílinn til skipt- is, oft var áð og glasi lyft í góðra vina hópi. Þá hljómuðu skagfírsku kvæðin og vísurnar. Jóhann söng bassaröddina af mikilli lífsgleði sem söngfélagar hans sakna nú, en minningin lifir björt í hugarskoti um góðan dreng og félaga. Hann var mikilsvirtur lögfræð- ingur, heiðarlegur og réttsýnn, sem ávallt leysti málin á farsælan hátt. Eins og fyrr er getið kom Jóhann heim erlendis frá í lok ágústmánað- ar og var í smá heilsurannsókn á Vífilsstaðaspítala eftir þá ferð og beið eftir myndatöku kl. 2 eftir hádegi 5. sept. sl. Hann sat í stóln- um sínum og las í blaði þegar hjart- . að hætti að slá, tæplega 35 ára. Hans verður minnst um ókomin ár sem mikilmennis og síðast en ekki síst sem mikils Skagfírðings sem unni átthögum sínum svo mikið. Skagfirska söngsveitin heiðraði minningu söngbróður með söng við kveðjuathöfn í Hallgrímskirkju í gær. Innilegustu samúðarkveðjur til móður hins látna og fjölskyldu, en síðast en ekki síst er Hörpu vott- uð hluttekning í hennar söknuði, en það leynist alltaf ljós sem leysir burtu myrkrið og lífíð heldur áfram í gleðiríkum heimi. Blessuð sé minning Skagfírðings. Sveinn S. Pálmason. Okkur bræðurna langar í örfáum orðum að minnast æskuvinar okkar Jóhanns Péturs Sveinssonar, eða Jóa á Varmalæk, eins og við kölluð- um hann ætíð. Samskipti okkar voru náin í æsku en stopul á fullorð- insárum þannig að það eru einkum bernskuminningarnar sem upp koma. Við tvíburabræðurnir voru jafngamlir Jóa og mjög stutt á milli bæjanna, Ljósalands og Varma- lækjar. Jói var litríkur persónuleiki og gefandi félagi og eigum við hug- ljúfar minningar af kynnum okkar við hann. Þær eru skemmtilegar og sumar fremur skondnar minningamar sem streyma um hugann þegar þessi ár eru rifjuð upp. I bæjarþyrpingunni umhverfis Varmalæk, þorpinu eða hverfínu eins og það var kallað, var á uppvaxtarárum okkar nokkur ljöldi bama á mismunandi aldri. Einhvern veginn var það svo að aldur og ólíkar aðstæður eins og fötlun Jóa varð aldrei nein hindrun fyrir því að allir gætu leikið sér saman í sátt og samlyndi. Alltaf var til einhver leið til að allir gætu verið með, yngri sem eldri og einn- ig Jói. Varmilækur var eins konar samkomustaður barnanna og ekki minnumst við þess að tilhneiging hafí verið til þess í hópnum að skilja Jóa útundan. Hann hafði og enda þann persónuleika strax í æsku að hann laðaði -að sér fólk og ávallt er hann kom heim eftir oft og tíðum langa dvöl á sjúkrahúsi var eftir- sóknarvert og spennandi að hitta Jóa aftur. Hann hafði frá svo mörgu að segja og miðlaði því á svo skemmtilegan hátt til annarra. E.t.v. er eftirminnilegast þegar fótboltaáhuginn hóf innreið sína í þorpið en þannig var að eitt vorið kom Jói heim uppfullur af áhuga á fótbolta. Hann kenndi okkur krökk- unum síðan fótbolta, fór í gegnum reglur og var sjálfur dómari og sat þá í hjólastólnum á hliðarlínunni og dæmdi af röggsemi; og þegar skortur var á leikmönnum kom fyr- ir að hann hljóp í skarðið og tók einnig að sér hlutverk markvarðar. Ýmsa aðra leiki kenndi hann okkur og eftir á að hyggja er merki- legt að einmitt hann skyldi gera það þar sem hann hafði svo tak- markaða möguleika á að taka þátt í þeim með sama hætti og hinir krakkarnir. Strax á æskuárum kom fram sá eiginleiki Jóa, sem sennilega hefur einkennt líf hans síðan, að hann fór það sem hann ætlaði sér og lét enga þröskulda í lífínu hindra sig í því að fá áformum sínum fram- gengt. Uppvaxtarár Jóa voru örugglega ekkert sældarlíf og erfítt hefur ver- ið fyrir hann að sætta sig við hlut- skipti sitt. En lærdómurinn sem af því má draga er e.t.v. sá að þó að aðstæður séu ekki eins og maður kýs er alls ekki ástæða til að hug- fallast, heldur nýta til fulls þá möguleika sem þrátt fyrir allt eru til staðar í lífínu; vera jákvæður og líta björtum augum til framtíðarinn- ar því með einbeittum vilja, áræðni og Guðs hjálp er ávallt spennandi að lifa lífínu. Þannig tók Jói sínum örlögum og þannig komst hann áfram. Við biðjum Guð að blessa að- standendur og vini. Hjálmar og Benedikt Jó- hannssynir frá Ljósalandi. Hljótt er í hópnum, vinur er valinn til vegferðar þeirrar sem enginn fær breytt sönprinn þapaður, félagi falinn í faðm þess sem lífið til himins fær leitt. Trúin á tilgang, verkefni æðri, kveðjum með þökk sólsetur lífsins, vakir enn vonin kölluðu á hinn sannasta soninn mönnunum hjá, skærasta perlan, geislandi líf, glóandi gimsteinn þó horfinn sért frá. (Anna K.V.) Elsku Harpa og aðrir ástvinir. Innilegar samúðarkveðjur. Anna K. Vilhjálmsdóttir. Kveðja frá samstarfsfólki hjá Oryrkjabandalagi Islands ' Raun var að líða frá langframa gæskunni ljósinu, frægðinni, deginum æskunni... Þessar ljóðlínur Stephans G. Stephanssonar koma okkur í hug þegar við minnumst vinar og starfs- félaga, Jóhanns P. Sveinssonar, sem hvarf svo skyndilega frá okkur hinn 5. þ.m. Hvers vegna þarf ung- ur maður að hverfa svo fljótt? Hvers vegna fær ungur maður sem barð- ist jafn ötullega fyrir málefnum fatlaðra ekki að vera lengur á með- al okkar? Fyrir nokkrum árum gerð- ist Jóhann Pétur starfsmaður hér á skrifstofunni. Hann var hér á þriðjudagsmorgnum og annaðist lögfræðilega upplýsingaþjónustu fyrir öryrkja. Og það var margur skjólstæðingurinn sem lagði leið sína til hans þessa morgna og öllum tók hann vel með sinni léttu lund og hressilegu framkomu. Og marg- ir fóru áreiðanlega sporléttari af hans fundi vegna þess að fólk fann að hann vildi af einlægni leysa mál þess. Og vegna þess að hann var sjálfur fatlaður maður áttu skjól- stæðingar hans sjálfsagt betra með að tjá honum ýmis vandræði sín því skilningur þess sem sjálfur er fatlaður er ef til vill oft öðruvísi á högum meðbræðra sinna en ann- arra. Jóhann Pétur lifði lífinu lifandi. Það var alltaf glatt á hjalla í kring- um hann hvort sem það var í kaffi- sopanum í horninu okkar í Hátúninu eða á öðrum gleðistundum í lífi okkar allra. Minningarnar um Jó- hann Pétur fremstan í flokki í bar- áttugöngum og útifundum um mál- efni fatlaðra munu alltaf fylgja okkur. Hann lét ekkert fram hjá sér fara sem gat orðið til þess að vekja athygli og áhuga á málefnum fatlaðra og hann var góður vinur og starfsfélagi bæði fatlaðra og ófatlaðra. Hann talaði um fötlun sína eins og sjálfsagðan hlut ef á það var minnst, annars var fötlun hans sjálfs það sem síst var rætt um - hún var ekkert mál. Og það var honum svo eðlilegt að þiggja þá hjálp sem hann þurfti á að halda að enginn tók sérstaklega eftir þeirri aðstoð. Við blátt áfram gleymdum því að hann var fatlað- ur. Það var ekki það sem málin snerust um. Spor hans hafa legið víða, ekki aðeins í málefnum fatlaðra heldur í ýmsu öðru. Hann var t.d. söngunn- andi og hver man ekki eftir honum glöðum og reifum syngjandi með Skagfirsku söngsveitinni og þegar sýnt var í fréttum frá stóðréttum í Skagafirðinum; hver sást þar ekki syngjandi, sæll og glaður nema Jóhann Pétur Sveinsson. Hann unni heimabyggð sinni Skagafirðinum af lífi og sál og margar voru ferðir hans á heimaslóðir. Það er gott að hafa þekkt fólk sem þú minnist með gleði sam- skipta við. Við hér á skrifstofu Öryrkjabandalagsins kveðjum vin okkar og starfsfélaga Jóhann Pétur með söknuði og trega vegna þess að við erum ekki búin að sætta okkur við hið snögga fráfall hans. En það er ekki í hans anda að syrgja og trega heldur halda áfram að lifa lífinu og vinna málaflokki okkar um málefni fatlaðra eins mikið gagn og hægt er. Jóhann Pétur náði ekki að vinna landinu sínu þegar kveldaði að dög- unum en í blóma lífs síns vann hann því eins mikið gagn á allan hátt eins og margur sá sem á sér langa lífdaga auðið. Við vottum eiginkonu Jóhanns, móður systkinum og öðru skylduliði okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning vinar okkar, unga baráttumannsins Jóhanns Péturs Sveinssonar. Ásgerður Ingimarsdóttir. Kveðja frá Öryrkja- bandalagi íslands Eftirminnilegur persónuleiki, Jó- hann Pétur Sveinsson, er látinn, langt um aldur fram. 011 tilvera okkar byggist á hreyf- ingu og samskiptum við annað fólk. Þeir sem ekki eru þess megnugir að fylgja hraðanum, lenda þar af leiðandi oftast nær í einangrun. Það var því algjör bylting fyrir fatlað fólk, þegar rafknúin og tölvuvædd hjálpartæki komu til sögunnar. Þessa naut Jóhann Pétur í ríkum mæli. Um hann mátti með sanni segja, að án hjólastóls er maðurinn ei nema hálfur, í rafknún- um stól er hann meiri en hann sjálf- ur. Jóhanni Pétri voru allir vegir færir í rafknúnum hjólastólnum, með farsíma við hlið sér og snemma kom einnig til sögunnar sérbúin bifreið. Hann var glaðsinna, kjarkmikill og lét sér enda fátt fyrir bijósti brenna. Áhugamálin og umsvifin voru ótrúlega margvísleg. Störf hans að málefnum fatlaðra eru þó ríkust í hugum okkar sem unnum með honum á þeim vettvangi. Jóhann Pétur vann um margra ára skeið fyrir Öryrkjabandalag ís- lands sem lögfræðilegur ráðunautur og leysti vanda margra. Honum eru þökkuð góð störf og samfylgd. Við sendum eiginkonu Jóhanns Péturs og fjölskyldu allri einlægar samúðarkveðjur. Ólöf Ríkharðsdóttir, formað- ur Oryrkjabandalags íslands. Mánudagurinn 5. september var annasamur dagur hjá mér, þar sem ég var að ganga frá ýmsum málum áður en ég tæki mér frí frá vinnu. Um hálfsjö hringdi ég heim til eiginmanns míns sem sagði mér að bæði framkvæmdastjóri Sjálfs- bjargar og framkvæmdastjóri Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfs- bjargar hefðu verið að reyna að ná í mig fyrr um daginn. Það setti að mér kvíða. Ég vissi að eitthvað al- varlegt hefði komið fyrir. Þau hörmulegu tíðindi voru, að fyrr um daginn hafði formaður Sjálfsbjarg- ar, landssambands fatlaðra, Jóhann Pétur Sveinsson, látist skyndilega. Ég hygg að um mig hafi farið sem marga innan samtaka fatlaðra og aðra sem hafa verið samferða- menn Jóa. Ég sat hljóð og örvænt- ingarfull, missirinn var svo stór og svo sár fyrir alla sem á einhvern hátt tengdust honum. Kæra Harpa okkar sem nú hefur misst mann sinn og ófæddur frumburður þeirra verður föðurlaus og Sjálfsbjörg hef- ur misst mikilhæfan formann og ég góðan og umhyggjusaman vin. Það var árið 1975 sem Jóhann Pétur fluttist í Sjálfsbjargarhúsið og var þá að hefja nám í Mennta- skólanum við Hamrahlíð. Það leið ekki langur tími þar til Sjálfsbjarg-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.