Morgunblaðið - 14.09.1994, Side 48

Morgunblaðið - 14.09.1994, Side 48
MTT* alltaf á Miövikudögmn MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Kristinn Alger risasveppur „Þ ARNA er hátt gras og ég tók ekki eftir því fyrr en í morgun að kominn væri stærðar svepp- ur,“ sagði Áslaug Árnadóttir, hús- freyja í Smárahlíð í Hrunamanna- hreppi, eftir að hún hafði fundið svepp sem var 105 cm í þvermál við útihús hjá sér í gærmorgun. Áslaug sagðist ekki vita af hvaða tegund sveppurinn væri. Hins vegar líktist hann sveppi sem var 90 cm í þvermál sem komið hefði upp á svipuðum stað fyrir nokkrum árum. Hefði henni verið sagt að sá sveppur væri ætisvepp- ur. Rúnar Geir Björnsson í Smára- hlíð viktaði sveppinn og reyndist hann vega 3,76 kg. Áslaug segist ætla að geyma sveppinn svolítið ef einhver vilji sjá hann en henda honum síðan. Sérstakt félag stofnað um innanlandsflug Flugleiða Markmið að mæta tap- rekstri og samkeppni STJÓRN Flugleiða hf. ákvað í gær að stofna sérstakt fyrirtæki til að sjá um rekstur innanlandsflugs félagsins á næsta ári, en innanlandsflugið hefur verið rekið með verulegu tapi undanfarin. ár. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir að markmiðið með breytingunum sé að reka innanlandsflugið með hagnaði, jafnframt því að mæta aukinni samkeppni sem fyrirsjáanleg sé vegna breytinga á flugmálareglum Evrópska efna- hagssvæðisins sem verði að fullu gengnar í gildi árið 1997. Breytingarnar voru kynntar á starfsmannafundi Flugleiða í gær og fyrirhugað er að hef|a viðræður við starfsfólk og stéttarfélög á næstunni um breytingarnar og þær breytingar sem gera þarf á kjara- samningum vegna þeirra. Nýja félagið verður alfarið í eigu Flugleiða, en gert er ráð fyrir að tapið á innanlandsfluginu í ár verði um 90 milljónir króna. Sigurður sagði að mögulegt væri að gera ýmsar breytingar sem auðvelduðu rekstur- inn með stofnun sjálfstæðs félags. Þetta væri leið sem ýmis flugfélög hefðu farið erlendis, svo sem SAS og Aer Lingus. Ekki væri gert ráð fyrir að draga úr þjónustunni eða fækka viðkomustöðum að svo komnu, en miðað er við að þijár Fokker 50 skrúfuþotur sjái um inn- anlandsflugið. Fjórða vélin sem Flug- leiðir hafa umráð yfir er nú leigð út til Noregs. Hún kemur aftur til lands- ins í haust og verður þá tekin ákvörð- un um hvort áætlun verði aukin eða aukið við millilandaflugið. Sigurður sagði að þetta væri hagkvæmasta og öruggasta flugvélategundin að þeirra mati fyrir innanlandsflugið og engar breytingar væru því fyrirhug- aðar í þeim efnum. Sigurður sagði að rekstur inn- aniandsflugsins næmi um 10% af veltu Flugleiða, þannig að gera mætti ráð fyrir að velta nýja félags- ins yrði um 1.300 milljónir króna. Ekki væri gert ráð fyrir að starfs- fólki fækkaði við þessar breytingar. Aðspurður hvort þetta hefði einhveij- ar breytingar í för með sér fyrir starfsfólkið sagði hann að gert væri ráð fyrir að það héldi öllum þeim réttindum sem það hefði, en nýtt félag þyrfti að gera nýja kjarasamn- inga við viðkomandi stéttarfélög. 732 milljóna tap Heildartap Flugleiða jókst á fyrri- hluta þessa árs samanborið við síð- asta ár og nam 732 milljónum króna samanborið við 572 milljónir. Hins vegar batnar rekstrarafkoman frá síðasta ári en óhagstæð gengisþróun og lækkuð tekjuskattsskuldbinding gera það að verkum að það skilar sér ekki í bættri heildarafkomu. ■ Tapið fyrri hluta/14 . Morgunblaðið/Sverrir Hrefna í fiskborðið Bótakröfur á hendur Landsvirkjun vegna Blönduvirkjunar Krafist er 192 millj. fyrir land og vatnsréttindi KRÖFUR á hendur Landsvirkjun vegna vatnsréttinda og bóta fyrir það land á heiðunum beggja vegna Blöndu sem farið hefur undir vatn vegna virkjunar árinnar hljóða samtals upp á tæplega 192 milljónir króna. Þar af er krafist tæplega 51 milljónar í bætur vegna vatnsréttinda og 141 milljónar vegna þess lands sem farið hefur undir vatn. Hlj ómlistarmenn Verkfall en áfram fundað SAMNINGANEFNDIR ríkisins og Félags íslenskra tónlistarmanna sátu á samningafundi þegar verk- fall tónlistarmanna í Þjóðleikhús- inu hófst á miðnætti. Heldur þokaðist í samkomu- lagsátt á samningafundum í gær- dag. Þorsteinn Geirsson, formaður samninganefndar ríkisins, sagði rétt eftir miðnætti að erfitt væri að meta stöðuna, það gæti brugð- ið til beggja vona en halda átti samningaviðræðum áfram fram eftir nóttu. Skák Margeir í 2.-5. sæti MARGEIR Pétursson er í 2.-5. sæti á stórmeistaramóti í Sviss þegar 9 umferðum er lokið af 11. Hann hefur ð'A vinning en enski stórmeistar- inn Hodgson er efstur með V/2 vinning. Jafnir Margeiri að vinning- um eru Svisslendingarnir Magem og Hug. Erfitt í Tilburg Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson töp- uðu báðir með svörtu í fyrri skákum sínum í annarri um- ferð útsláttarmóts í Tilburg í Hollandi í gær. Þeir verða að vinna í dag til að jafna og fá framlengingu. Fyrri skák Helga Olafssonar úr annarri umferð var ekki lokið í gær- kvöldi. ÞEIR sem finnst gott hrefnukjöt ættu að geta fengið eitthvað við sitt hæfi á næstunni því Fiskbúð Hafliða í Reykjavík áskotnaðist í gær nærri fimm tonna hrefna. Helgi Helgason hjá Fiskbúð Haf- liða sagði að hrefnan hefði flækst í veiðarfæri báta fyrir utan Reykjanes. Helgi sagði að hrefnukjöt væri vinsæll matur og líklega yrði kílóverðið til kaupenda nálægt verðinu á ýsu- kílói. Hrefnukjöt og kjöt af höfr- ungum og hnísum hefur stundum fengist í matvörubúðum hérlend- is þótt allar hvalveiðar séu bann- aðar, en sjómenn hafa komið með dýr á land sem hafa flækst í netum og drepist. Á síðasta ári var kaupmaður á Akureyri kærð- ur fyrir að hafa hrefnukjöt á boðstólum en kærunni var vísað frá þar sem ekki var talið sannað að kaupmaðurinn hefði brotið lög eða reglugerð um bann við hvalveiðum. Að sögn Þorsteins Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar, er málshöfðun vegna þessa nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, en mál- flutningur hefur enn ekki farið fram. Að sögn Þorsteins eru kröfurnar sem gerðar hafa verið á hendur Landsvirkjun ekki sundurgreindar, en vísað er til samnings sem upphaf- lega var gerður við Rafmagnsveitur ríkisins og Landsvirkjun tók við. Á grundvelli þess að úrskurðað yrði um eignarrétt er samkvæmt honum auk vatnsréttindanna um að ræða bætur vegna þess lands sem færi undir vatn, og’einnig vegna þess lands sem færi undir uppgræðslu í stað þess gróðurlendis sem lenti undir vatni. Vatnsréttindi 92 milljónavirði Landeigendur gerðu á sínum tíma kröfur um að heildarbætur fyrir vatnsréttindi í þágu Blönduvirkjun- ar yrðu 165 milljónir króna, en haustið 1992 kvað matsnefnd upp þann úrskurð að vatnsréttindin í heild skyldu metin á 92 milljónir króna. Þar sem eignarréttur að vatnsréttindum heiðanna var um- deildur var greiðslu bóta vegna þeirra frestað þar til almennir dóm- stólar hefðu úrskurðað um eignar- rétt á þeim. Landsvirkjun greiddi vegna þeirra jarða sem óumdeildir eigendur voru að rúmlega 41,2 milljónir króna. Loðnulýsi hrapar stöð- ugt í verði VERÐ á loðnulýsi hefur hrunið frá í fyrra. Nú fást tæpar 17 þúsund krónur fyrir tonn af loðnulýsi en á sama tíma í fyrra fengust um 30 þúsund krónur fyrir sama magn. Lækkunin stafar af mikilli fram- leiðsluaukningu á fiskilýsi í Perú sið- ustu misseri en Perúmenn flytja mikið af lýsi til Evrópu. Haldist verð svona lágt út loðnuvertíðina verður verðmæti útflutts fiskilýsis hundruð- um milljóna króna lægra en á síð- asta ári miðað við sömu framleiðslu, að sögn Sólveigar Samúelsdóttur hjá SR-mjöli hf. Hún segir að búast megi við að lýsisverð lækki enn meir síðar í haust þegar fiskveiðar hefjast aftur í Perú, en þar er nú veiðibann. Gera má ráð fyrir því að verð á hráefni og afurðum fylgist að og því megi fastlega gera ráð fyrir að lækk- andi verð á lýsi hafi áhrif á verð á loðnu upp úr sjó. Verðlækkunin á lýsi hefur þó ekki haft áhrif á loðnu- mjölsverð í sumar. Þar hafa fengist um 34 þúsund krónur fyrir tonnið um hríð. ■ Verð á fiskiIýsi/Bl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.