Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.09.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994 15 VIÐSKIPTI Hvaða kreditkort er hagstæðast á ferðalagi? Chicago. Reuter. ÞEIR, sem ferðast mikið í viðskipta- erindum, verða að hafa gengis- skráninguna á hreinu og það getur verið forvitnilegt fyrir þá að vita hvaða kreditkort kemur best út hvað varðar gjaldeyrisyfirfærslur. American Express, Diners Club, Mastercard eða Visa? Svo virðist sem lítill munur sé á notkun þess- ara korta og til dæmis Bandaríkja- maður, sem kaupir sér föt erlendis, þarf yflrleitt að greiða 1% gjald þegar búið er að yflrfæra upphæð- ina í dollara, sama hvaða kort hann notar. Þessi greiðsla kemur hins vegar betur út en ef gjaldeyrinum hefði verið skipt á hótelinu eða í banka í útlandinu en hugsanlega nokkuð verr en ef yfirfærslan hefði farið í gegnum hraðbanka. Það fer þó eft- ir því hvað bankinn krefst mikils fyrir þjónustuna og hvað mikið er tekið út. Þeir, sem eru öllum hnútum kunnugir, segja, að til að komast að því hvaða kort sé best við inn- kaup, til dæmis Mastercard eða KOSTNAÐUR vegna notk- unar greiðslukorts erlendis kemur betur út en ef gjald- eyrinum er skipt á hóteli eða I banka í útlandinu. Visa, þurfi að kanna hundruð banka, sem skipta við þessi greiðslukortafyrirtæki, og þeir telja, að munurinn, sé hann ein- hver, sé smávægilegur. Það, sem skiptir kannski meira máli, er hvað bankarnir taka fyrir úttekt í inn- lendum gjaldeyri. í Bandaríkjunum er yfirieitt um fasta upphæð að ræða, á bilinu tveir til flmm dollar- ar, og meðaltalið er þrír dollarar. Af 300 dollara úttekt er því um að ræða 1% þóknun en séu aðeins teknir út 30 dollarar er hún hvorki meiri né minni en 10%. Almennt er ferðafólki, sem skipt- ir gjaldeyri, ráðlagt að skoða vel hvað það undirritar, einkum í lönd- um þar sem mikið er um gengisfell- ingar. Þar geta upphæðirnar verið háar og fólk verður að greiða það, sem það kvittar fyrir. Fulltrúi Diners Club segir, að upphæðir séu reiknaðar frá þeim degi, sem greiðslutilkynningin berst. Það getur verið samdægurs ef viðkomandi verslun til dæmis er beintengd þjónustubanka en síðar, hafl kaupin átt sér stað á afskekkt- um stað. Miðað er við gengi dags- ins þegar greiðslutilkynningin berst auk 1% þóknunar. Þá er um að ræða bankagengi, sem er almennt hagstæðara en það, sem oft er notað á hverjum stað. 100 megabæta disk- lingnr frá Fuji Photo Tókýó. Reuter. JAPANSKA fyrirtækið Fuji Photo Film greindi frá því nýverið að það hefði þróað nýja tölvudisklinga með stærra minni, sem gætu hugsanlega orðið að nýjum staðli við geymslu gagna í margmiðlunarkerfum. Fyrirtækið sagðist geta framleitt disklingana fyrir þriðjung kostn- aðarins af framleiðslu disklinga sem fyrir eru á markaðnum. Nýju disk- lingarnir rúma meira en 100 mega- bæti og hægt verður að nota þá við einkatölvur með því að skipta um drif. Lions íbúð. Lionsklúbbur Borgarness gaf 10% hlut í íbúð í fjölbýlishúsi fyrir aldraða við dvalarheimilið í Borgarnesi. Hér með er íbúðin auglýst til umsóknar. íbúðin er ætluð efnalitlum, öldruðum íbúa/íbúum þessa svæðis og mun félagsmálanefnd Borgarbyggðar sjá um úthlutun íbúðarinnar. Upplýsingar gefur félagsmálastjóri Borgarbyggðar í síma 93-71224 og skulu umsóknir hafa borist til hans fyrir 28. september nk. Bæjarstjórínn í Borgarbyggð. Fyrirtæki A-L velur fram- tíðarstjómendur Ziirich. Morgunblaðið. SVISSNESKA ál-, efna- og um- búðafyrirtækið Alusuisse-Lonza, A-L, gaf í gær vísbendingu um fyrirhugaða framtíðarstjórnendur fyrirtækisins og tilkynnti um breytingar í framkvæmdastjórn þess. Dominique Damon, fram- kvæmdastjóri umbúðasviðs, mun taka við forstjórastöðunni af Theodor M. Tschopp árið 1997, samkvæmt fréttatilkynningu fyrirtækisins, ef Tschopp verður kjörinn stjómarformaður A-L í stað Hans K. Jucker, stjómar- formanns, sem þá mun láta af stjómarformennsku. Frú Damon, sem er frönsk, hef- ur nú verið falið að hafa yflrum- sjón með öllum þremur fram- kvæmdasviðum A-L. Dr. Peter Kalantzis, framkvæmdastjóri efnasviðs, hefur verið ráðinn for- stjóri Lonza hf og situr áfram í framkvæmdastjórninni. Enginn hefur verið ráðinn í stað dr. Heinrichs Holtmanns sem var skipaður framkvæmdastjóri ál- sviðs í byijun þessa árs en hætti störfum eftir nokkra mánuði. Sergio Marchionne, fyrrverandi starfsmaður Lawson Mardon um- búðafyrirtækisins, sem A-L keypti í fyrra, er nýr í framkvæmda- stjóminni. Ákveðið hefur verið að hans verkefni verði að huga að framtíðarþróun fyrirtækisins. Ert þú BÍLASALI eða hyggst þú gerast slíkur? Samkvæmt nýlegtun lögum um sölu notaðra ökutækja þarft þú að sækja um leyfi til að reka bílasölu. Eitl af skilyrðum leyfisins er að þú hafir sótt námskeið og lokið prófi. Prófnefnd bifreiðasala og Fræðslu- miðstöð bílgreina bjóða nú námskeið í Reykjavík og á Akureyri þar sem þú munt m.a. læra um: • Kauparétt og Samningarétt. • Veðrétt lausafjármuna, þinglýsingar og Viðskiptabréfareglur. • Vátryggingar ökutækja. • Opinber gjöld og reglur um virðisaukaskattsbíla. • Reglur um skráningu ökutœkja o.fl. • Mat á ástandi og verðmasti ökutækja, ráðgjöf við kaupendur. • Fjármálaleg ráðgjöf, Sölu- og samningatækni. Lengd: 17 kennslustundir (sex kvöld + próf). Verð: kr. 35.000,- (Visa/Euro raðgreiðslur). Námskeið i Reykjavík: 4. október og 25 október n.k. Námskeið á Akureyri: 14. október n.k. • _ j_ Skráning og upplýsingar hjá Fræðslumiðstöð bílgreina, CD 91-813011, jp 91-813208. (D 1STD Hafðu samband og fáðu sendan upplýsingabækling strax! VtSA Lög um soiu notaðra ökutsekja - helstu atriöL Til að mega stunda viðskipti með notuð ökutæki i atvinnuskyni þarf nú leyfi sýslumanns. Einungis þeim sem öðlast hafa slíkt leyfi er heimilt að kalla sig bifreiðasala. Starfandi biffeiðasalar hafa sex mánuði til að afla sér slíks leyfis og að liðnum niu mánuðum ffá gildistðku laganna er með ðllu óheimilt að stunda viðskipti af þessu tagi án leyfis. Til að öðlast leyfi bifreiðasala þarf að uppfylla tiltekin skilyrði, þ.á.m. að hafa sótt námskeið og staðist próf og hafa aflað sér tryggingar sem bætir viðskiptavinum tjón sem valdið er af ásetningi eða gáleysi i tengslum við sölu notaðra ðkutækja. 210 Itr. 1 karfa 36.780 stgr. 320 Itr. 1 karfa 42.480 stgr. 234 Itr. 2 körfur 41.840 stgr. 348 Itr. 3 körfur 47.980 stgr. 462 Itr. 4 körfur 55.780 stgr. 576 Itr. 5 körfur 64.990 stgr. VISA og EURO raðgreiðslur án útb. MUNALÁN m/25% útb. o Fyrsta flokks frá /FOniX HATUN 615 - SIMI (91)24420

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.